Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Bresk kona af indverskum uppruna um íslendinga:
Ég hef orðið fyrir miklum
kynþáttafordómum á íslandi
- mikill mínus fyrir fólkiö í landinu, segir Manju Nair, 23 ára kennari
„Ég hef oröið fyrir miklum kyn-
þáttafordómum á íslandi. Hugsun-
arháttur margra íslendinga virðist
vera á þá leið að ekkert dökkt fólk
eigi aö vera hér heldur bara fólk
með ljósan hörundslit. Þeir sem
hafa öðruvisi hörundslit eru ekki
velkomnir í augum fjölmargra ís-
lendinga og ég hef fundið verulega
fyrir því,“ segir Manju Nair, 23 ára
gömul bresk kona af indverskum
uppruna. Hún hefur dvalið hér á
landi í tæpa fjóra mánuði. Manju
hefur verið búsett í London í 11 ár
en hún er skiptikennari hér á landi
og kennir ensku í Ölduselskóla.
„í ferðabæklingum er fólkinu hér
lýst sem vingjamlegu og góðu fólki.
Það er vissulega mikið af góðu fólki
hér en ég hef líka fundið fyrir óvin-
gjarnlegu fólki. Mér finnast þessir
kynþáttafordómar mikill mínus fyr-
ir fólkið og landið í heild. Ég held að
þessir fordómar hljóti að vera ein-
hvers konar hræðsla og ég verð
mun meira vör við þetta hjá fuli-
orðnu fólki en bömum. Ég hef ferð-
ast víða í hinum vestræna heimi en
aldrei fundið fyrir svona miklum
fordómum neins staðar þó að þeir
séu víða að einhverju leyti.
Eins og geimvera
„Hér er horft á mig skringilegu
augnaráði og mér hefur oft liðið
eins og ég sé geimvera. Ég var ný-
komin hingað til lands þegar kona
kom til mín í verslun og sagði mér
að ég ætti að drífa mig til míns
heimalands því ég væri of dökk.
Hún sagði þetta ekki af neinni
illsku heldur frekar eins og hún
væri að leiðbeina mér. Stuttu
seinna gekk kona að mér og spurði
hvort þessi litarháttur væri vegna
sólarljóss eða hvort ég væri fædd
svona dökk. Ég var furðu lostin yfir
þessum ummælum og reið fyrst í
stað yfir þessum þekkingarskorti.
Eftir á hugsaði ég með mér að ég
yrði að geta þolað svona ef ég ætlaði
að dvelja áfram hér á landi,“ segir
Manju.
Dónalegar orösendingar
Hún segist hafa stundum fengið
dónalegar orðsendingar frá drukkn-
um karlmönnum í þau skipti sem
hún hefur farið út að skemmta sér
hér í Reykjavík.
„Það versta sem ég hef lent í var
þegar ég var að bíða eftir strætó á
dögunum. Þetta geröist á Hverfis-
götunni snemma kvölds. Það var
karlmaður hinum megin við götuna
að bíða eftir strætó. Hann var búinn
að bíða nokkra stund og horfði
stöðugt á mig. Síðan gekk hann ró-
lega yfir götuna og fór að tala dóna-
lega við mig. Hann sagði að ég hlyti
að vera vændiskona af því að ég
væri dökk. Hann sagði enn fremur
að meirhluti vændiskvenna í heim-
inum væri með dökkt hörund og
ástæðan fyrir því að það væri svona
mikil eyðni í Bandaríkjunum væri
dökka fólkið. Hann var ekki drukk-
inn eða dópaður heldur mjög yfir-
vegaður.
Það var fólk í biðskýlinu og það
hlustaði með eftirvæntingu á það
sem fram fór. Aðeins ein stúlka stóð
með mér og ávítaöi manninn fyrir
þessi ummæli en aðrir skiptu sér
ekkert af. Mér var mikið brugðið
eftir þetta atvik og má segja að það
hafi fyllt mælinn. Mér líkar að öðru
leyti mjög vel við ísland og ég hef
átt hér margar ánægjulegar stundir.
Samt sem áður tel ég að margt fólk
þurfi að vera víðsýnna," segir
Manju.
-RR
Sex nýjar löggæslumyndavélar á gatnamótum:
Nokkrir þegar teknir fýrir að aka gegn rauðu Ijósi
„Það hafa þegar nokkrir öku-
menn verið teknir upp á nýju
myndavélamar fyrir að aka gegn
rauðu ljósi. Þeir mega eiga von á að
heyra frá okkur og fá viðeigandi af-
greiðslu eins og aðrir sem staðnir
eru að verki með öðrum hætti varð-
andi umferðarlagabrot,“ segir Guð-
mundur Guðjónsson, yfirlögreglu-
þjónn i Reykjavík, um árangur
nýrra löggæslumyndavéla sem ný-
lega voru settar upp á sex ljósa-
stýrðum gatnamótum til að fylgjast
meö akstri.
Myndavélarnar taka myndir
framan á þá bíla sem aka gegn
rauðu ljósi á viðkomandi gatnamót-
um. Eftir skoðun á myndunum fá
eigendur þeirra bifreiða, sem ekið
er inn á gatnamót gegn rauðu ljósi,
senda sektartilkynningu frá lög-
reglu. Sérstök merki eru á þeim
gatnamótum þar sem þessar vélar
eru til að gefa ökumönnum það til
kynna.
„Það er mjög skýr lagastoð fyrir
þessum að-
gerðum okk-
ar, bæði í lög-
um um með-
ferð opin-
berra mála og
umferðarlög-
um við
ákvörðun við-
urlaga. Lög-
regla viða um
lönd hefur
notað þessar
vélar með
góðum ár-
angri og ég á
ekki von á
öðru en góðs
árangurs sé
líka að vænta
hér. Þetta er
góð og mikil-
væg viðbót
við núverandi
löggæsluúrræði i umferðinni. Það framtíðinni og einnig er þörf á að fá ýmsum hættulegum stöðum á svæð- við gatnamót," segir Guðmundur.
er stefnan að fjölga þessum vélum í vélar til að fylgjast með hraðakstri á inu, þó það sé ekki endilega bundið -RR
- mikilvæg urbot, segir yfirlögregluþjonn
1. Mlklabraut/Snorrabraut
2. Kringiumýrarbraut/Miklabraut
3. Krlnglumýrarbraut/Laugavegur
4. Hofsvallagata/Hringbraut
5. Álfabakki/Reykjanesvegur
6. Enn ekki veriö staðsett
o
Myndavélar á Ijósum
- staðsetning í Reykjavík -
©
©
©
r»rl
Eric Harvey, bandarískur fyrirlesari og rithöfundur, hélt fyrirlestur á ráðstefnu Gæöastjórnunarfélags Islands í gær.
Mikil áhugi var á ráöstefnunni og nær hvert sæti skipaö í stórum fundarsalnum. DV-mynd Pjetur
Ráðstefna Stjórnunarfélags íslands á Hótel Loftleiðum:
Láttu verkin tala
- segir Eric Harvey vera
„Gæði eru fyrst og fremst það
sem hver og einn gerir, einn dag í
einu og aðeins einu sinni í einu,“
sagði Eric Harvey, heimskunnur
fyrirlesari, ráðgjafi og rithöfundur á
sviöi starfsmannamála og hagnýtra
stjómunaraðferða, á ráðstefnu
Stjómunarfélags íslands um gæða-
mál á Hótel Loftleiðum í gær. Har-
vey hefur starfað hjá Performance
co. í Bandaríkjunum og er mjög eft-
irsóttur fyrirlesari í heimalandi
sinu.
Rástefnan bar yfirskriftina „Láttu
verkin tala“ en það er einmitt nafn
á bók eftir Harvey sem hefur undir-
titilinn „og náðu þeim árangri sem
þú sækist eftir", og Viðar Jóhannes-
grundvöll allra markmiða
son hefur þýtt á íslensku.
Harvey leggur, eins og titill bók-
arinn gefur til kynna, áherslu á að
fólk láti verkin tala til þess að ná ár-
angri. Hann segir meðal annars að
fólk heyri það sem við segjum en
sjái það sem við gerum. Sjón sé
sögu ríkari. Enn fremur segir hann
að við metum okkur sjálf eftir fyrir-
ætlunum okkar en aðrir eftir því
sem við gerum.
Tugir íslendinga komu á ráðstefn-
una og þar gafst þeim kostur á að
hlýða á Harvey fyrir hádegi og síð-
an á fyrirlesara í fjórum þemasölum
eftir hádegi. Ýmis fyrirtæki kynntu
enn fremur útgéfið efni, lausnir og
ráðgjöf á sviði gæðamála. -sv
Stóriðju í Hvalfirði mótmælt
Stjórnarfundur samtakanna
Óspillt land í Hvalfirði hefur form-
lega mótmælt málflutningi iðnaðar-
ráðherra að undanförnu þar sem
hann heldur áfram yfirlýsingum
um að álver muni rísa á Grundar-
tanga áður en umhverfisnefnd Al-
þingis hefur skilað áliti.
Þá mótmælti fundurinn einnig
ummælum iðnaðarráðherra um að
mótmæli Kjósverja hafi komið seint
fram. Samtökin skora jafnfram á
ríkisstjórnina og landbúnaðar- og
umhverfisráðherra að gerð verði
rannsókn á áhrifum stóriðju á land-
búnað beggja vegna Hvalfjarðar.-RR