Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997 37 I>V Saga Jónsdóttir og Guðmundur Óiafsson leika öll hlutverkin í Barpari. Barpar í 90. skipti Barpar var frumsýnt i okt- óber 1995 og hefur verið nær uppselt á allar sýningar síðan. í kvöld er 90. sýning á þessu vin- sæla leikriti eftir Jim Cartwright. Barpar gerist á bar og er sýnt á leynibamum í kjall- ara Borgarleikhússins. Leikhús- gestir sitja við borð og geta not- ið veitinga meðan á sýningu stendur. það er greinilegt aö áhorfendur kunna vel að meta þetta leikrými. Að auki geta leikhúsgestir skoðað sögusýn- inguna sem er við hliðina á Leynibamum. Leikhús Hlutverkin í Barpari eru fjórtán, hjónin sem eiga barinn og gestir þeirra, skemmtilegar persónur á ýmsum aldri. Aðeins tveir leikarar, Saga Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson, fara meö öll hlutverkin. Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir. Sýningar á Barpari era á föstudags- og laug- ardagskvöldum. Samræða um launin og réttlætið á íslandi Þingflokkur jafnaðarmanna hefur ákveðið að efna til sam- ræðu um launin og réttlætið á íslandi á Hótel Loftleiðum á morgun kl. 14.00. Formið á fund- inum er nýlunda því þar munu forystumenn úr verkalýðshreyf- ingunni og hagfræðingar segja álit sitt á.stöðu mála og svara fyrirspumum þingmanna Þing- flokks jafhaðarmanna. Myrkir músíkdagar Á myrkum músíkdögum í kvöld eru tónleikar Blásarak- vintetts Reykjavíkur en um upp- hafstónleika hátíðarinnar er að ræða. Tónleikarnir eru í Nor- ræna húsinu og hefjast kl. 20.00. Samkomur Félagsvist og dans Spiluð verður félagsvist og dansað á vegum Félags eldri borgara í Kópavogi í Gjábakka í kvöld kl. 20.30. Hljómsveit Karls Jónatanssonar spilar. Hjallastefna í dag verður haldinn sameig- inlegur námskeiðadagur sex leikskóla, leikskólanna við Hjallabraut, Vesturkots í Hafn- arfirði, Óss og Foldakots i Reykjavík, Reykjakots í Mos- fellsbæ og Árborgar á Selfossi. Leikskólamir eiga það sameig- inlegt að hafa nýtt sér Hjalla- stefnuna í starfi. Námskeiðið er á Nesjavöllum. Bubbi Morthens var mikiö í sviðsljósinu fyrir jólin enda gaf hann út tvær nýjar plötur sem hann fylgdi eftir og var önnur ljóðaplata. Eftir smáhlé er komið að tónleikahaldi hjá Bubba og mun hann í kvöld halda tónleika og verða þeir á kaffihúsinu Úlfaldan- um sem er í Ármúla 40. Á þessum tónleikum mun Bubbi flytja lög af nýju plötunni í bland við eldra efni. Tónleikamir heíjast kl. 23. Elvis-skemmtikvöld La Café, Laugavegi 45a, efnir til skemmtikvölds í kvöld þar sem minning Elvis Presleys verður í háveg- um höfð. Leikin verða Elvis- lög fram eftir nóttu. Skemmtanir Babylon á Fógetanum Hljómsveitin Babylon leikur á Fógetanum í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitin spilar dansvæna og sí- gilda kráartónlist sem allir kunna að meta. í hljóm- sveitinni era Július Jónasson, söngur, bassi, Hilmar J. Hauksson, söngur, hljómborð, og Sævar Ámason, gítar. Sóldögg á Gauknum Hin líflega og vinsæla hljómsveit Sóldögg mun skemmta á Gauki á Stöng i kvöld og annað kvöld. í! Bubbi Morthens heldur tónleika á kaffihúsinu Úlfaldan- um í kvöld. Bubbi Morthens á Úlfaldanum Mokstur hafinn á Snæfellsnesi Á Suðurlandi er verið að hreinsa vegi í uppsveitum Ámessýslu og meö suðurströndinni. Hafinn er mokstur á heiðum á Snæfellsnesi, um Svínadal fyrir Gilsfjörð í Reyk- Færð á vegum hóla og þaðan í Skálanes. Á Vest- fjörðum er einnig verið að moka heiðar bæði á sunnan- og norðan- verðum fjörðunum. Norðurleiðin er fær til Akureyrar, en austan Akur- eyrar er ekkert ferðaveður. Á Aust- urlandi era allar helstu leiðir færar. m Hálka og snjór H Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir C^) LokaðrSt°ÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum Ástand vega Sonur Evu og Brynjars Karls Myndarlegi drengurinn á myndinni fæddist á fæð- ingardeild Landspítalans 20. janúar kl. 10.46. Þegar Barn dagsins hann var vigtaður reynd- ist hann vera 3480 grömm að þyngd og mældist 49 sentímetra að lengd. For- eldrar hans era Eva Ás- mundsdóttir og Brynjar Karl Guðmundsson og er hann þeirra fyrsta ham. Whitney Houston leikur titilhlut- verkiö. Kona klerksins Kona klerksins (The Pre- acher’s Wife), sem Sam-bíóin sýna, er hugljúf flölskyldumynd <■ - um prestsfjölskyldu sem þurfti á hjálp að halda en fékk í staðinn kraftaverk. Myndin er byggð á gamalli og klassískri mynd þar sem sjarmörinn og herramaður- inn Cary Grant lék aðalhlutverk- ið. Var hann í hlutverki engils sem kemur til jarðar til að hjálpa fjölskyldu. í Konu klerks- ins er það Denzel Washington sem leikur engilinn Dudley og nú fáum við til tilbreytingar svartan engil. Það er söngkonan Whitney Houston sem leikur titilhlut- verkið, en aðrir leikarar í stór- um hlutverkum eru Courtney B. Kvikmyndir Vance og Gregory Hines, þá kemur fram í litlu hlutverki söngvarinn þekkti Lionel Rit- chie og er þetta frumraun hans í kvikmyndum, og fýrir þá sem hafa áhuga á ættfræði má geta þess að móðir Whitney, Cissy Houston, leikur einnig í mynd- inni. Leikstjóri er Penny Mars- hall. Nýjar myndir: Háskólabíó: Áttundi dagurinn Laugarásbíó: Samantekin ráð Kringlubió: í straffi Saga-bíó: Dagsljós Bíóhöilin: Kona klerksins Bíóborgin: Kvennaklúbburinn Regnboginn: Koss dauðans Stjörnubíó: Tvö andlit spegils < Krossgátan 7 T~ r~ r 2 l ÍO TT* , r m /V 7?" j 19" 18 1 vr w zr □ Lárétt:l dreifður, 8 trylli, 9 geisla- baugur, 10 dó, 11 fæða, 12 bogið, 14 til, 15 gruni, 16 skoru, 18 frá, 19 þreyttar, 21 grind, 22 hræðslu. Lóðrétt: 1 ánægður, 2 viður, 3 melt- ingarvegar, 4 meðgangir, 5 kjarkn- um, 6 duglausa, 7 gramur, 13 amboði, 15 óttast, 17 námsgrein, 20 innan. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 dala, 5 áls, 8 ótuktin, 9 mar, 10 inna, 12 Suðri, 14 tvíhljóði, 15 æla, 16 iðn, 17 stál, 19 ami, 21 aur, 22 ljár. Lóðrétt: 1 dóms, 2 ata, 3 luröa, 4 ak- ir, 5 át, 6 linan, 7 snauðir, 11 niða, 13 ultu, 16 ill, 18 ár, 20 má. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 43 07.02.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 69,930 70,290 67,130 Pund 114,110 114,690 113,420 Kan. dollar 51,780 52,100 49,080 Dönsk kr. 11,0460 11,1040 11,2880 Norsk kr 10,7630 10,8220 10,4110 Sænsk kr. 9,4350 9,4870 9,7740 Fi. mark 14,2110 14,2950 14,4550 Fra. franki 12,4890 12,5600 12,8020 Belg. franki 2,0415 2,0537 2,0958 Sviss. franki 48,8100 49,0800 49,6600 Holl. gyllini 37,5100 37,7300 38,4800 Þýskt mark 42,1500 42,3600 43,1800 it. lira 0,04286 0,04312 0,04396 Aust. sch. 5,9870 6,0240 6,1380 Port. escudo 0,4197 0,4223 0,4292 Spá. peseti 0,4984 0,5014 0,5126 Jap. yen 0,56220 0,56560 0,57890 írskt pund 111,720 112,420 112,310 SDR 96,20000 96,77000 96,41000 ECU 81,8400 82,3300 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.