Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
Sandkorn
Fréttir
Betrí auglýsinga-
staður
Á sínuin tlma var það afar um-
deilt þegar farið var að setja aug-
lýsingar á búninga íþróttafólks.
Mörgum félögum i íþróttafélögun-
um þótti það
vanhelgun við
búningana. En
máttur Mamm-
ons er mikill og
auglýsingamar
komu. Allt fram
undir það síð-
asta hafa þær
verið framan á
brjósti íþrótta-
fólksins. En nú
er að veröa
breyting á.
Fundist hefur betra auglýsingapláss
á íþróttafólkinu sem er rassinn.
Þar er nú farið að setja upp auglýs-
ingar meðal annars dömubindaaug-
lvsingar í kvennaflokkunum.
Astæðan fyrir því að auglýsendur
eru famir að velja rassinn á
iþróttafólki sem auglýsingaskilti er
eflaust sú sama og stendur í vís-
unni: „Þessi rass og þessi læri/þau
minna mig á tækifæri."
„Tveir þegar
dauðir"
í bókinni Þeim varð aldeilis á í
messunni er saga af séra Inga Jóns-
syni, sem var prestur í Neskaup-
stað. „Svo einkennilega vildi til að
næstum í hvert
skipti sem séra
Ingi brá sér til
Reykjavíkur
eða annarra
staða til
skemmri eða
lengri dvalar,
dóu þrír Norö-
firðingar. Þótti
mörgum þetta
nokkuð merki-
legt, eins og
gefur að skilja.
Einhverju sinni átti séra Ingi brýnt
erindi tÚ Reykjavikm-. Bað með-
hjálparinn hann að fara hvergi
vegna þess sem að framan greinir,
en kíerkur sagði það bábilju eina og
fór. Þegar séra Ingi innritaði sig á
Hótel Borg brá honum hins vegar i
brún. Hans beiö þar skeyti frá með-
hjálparanum og í því stóð: „Tveir
þegar dauðir." Það fylgdi sögunni
að þriðji Norðfirðingurinn hefði
dáið nokkrum klukkustundum sið-
Aftursætið
Við höfum verið að birta sögur
eftir Knút Hafsteinsson mennta-
skólakennara sem hann skrifaði fyr-
ir þáttinn Sögur úr skólastofunni í
Nýjum mennta-
málum. Síðast
birtum við góða
vísu eftir Sigur-
karl Stefánsson
stærðfræði-
kennara. Knút-
ur segir eftir-
farandi sögu af
Sigurkarli:
„Eins og gefur
að skilja eru
slíkir spekingar
sem stærðfræð-
ingar oft annars hugar. Svo mun
hafa verið þegar bifreið Sigurkarls
fór ekki í gang og hann ýtti aftan á
hana niður Amtmannsstíg. Þegar
skriður var kominn á ökutækið
stökk Sigurkarl inn en komst ekki
að því fyrr en á leið yfir Lækjargöt-
una að hann sat í aftursætinu."
Björg að dyrum
barði þar
Björg Sigurðardóttir, umoösmað-
ur DV á Eskifirði, hafði samband
við Sandkomsritara og sagði hon-
um skemmtilega vísu. Það er alltaf
saga á bak við
hverja visu og
eins var með
þessa. Björg
sagðist hafa
veriö aö rukka
fyrir blaðið og
á einum stað
stóð illa á og
hún því beðin
um að koma
seinna. Þegar
hún kom í sið-
ara sinnið var
henni heilsaö með þessari vísu hús-
freyjunnar um leið og hún borgaði
blaðið.
Björg að dyrum barði þar.
„Borgið þið nú skuldirnar.“
Aurasjúkir aumingjar
eru þessir rukkarar
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Flótti úr Grímsey:
Málið fari til
Byggðastofnunar
- segir Steingrímur J.
STOR - UTSALA
sem slær alit út
DV, Akureyri:
„Kjaminn í málinu er sá að
Grímsey hefur þrátt fyrir allt al-
gjöra sérstöðu í landinu vegna þess
að vera svona eyjasamfélag, algjör-
lega háð sjávarútvegi með smá-
bátaútgerð og enga möguleika á
öðru vegna skorts á hafnaraðstöðu.
Þar af leiðandi hefur almenn skerð-
ing aflaheimilda bitnað harðar á
Grímsey en nokkru öðru byggðar-
lagi í landinu," segir Steingrimur
J. Sigfússon, formaður sjávarút-
vegsnefndar alþingis og þingmaður
norðurlandskjördæmis eystra.
Fréttir DV um verulega fólks-
fækkun í Grímsey að undanfomu
hafa beint augum manna að því að
Grímseyingar hafa farið verulega
illa út úr skerðingu á þorskveiði-
heimildum undanfarin ár og hafa
sumir verulegar áhyggjur að því að
sú þróun hafi nú leitt til þess að
byggð í eyjunni kunni að dragast
verulega saman umfram það sem
þegar er orðið.
„Vegna þess hversu fiskveiði-
stjómunin hefúr bitnað hlutfalls-
lega meira á Grímsey en nokkm
öðra byggðarlagi í landinu hefur
Skeiðarár-
brú styrkt
DV Vík:
Starfsmenn vegagerðarinnar und-
ir stjórn Jóns Valmundssonar brú-
arsmiðs og starfsmenn hjá bygging-
arfyrirtækinu Klakk i Vík eru þessa
dagana að steypa niður rekstrar-
staura fyrir væntanlegar endurbæt-
ur á Skeiðarárbrú.
„Við komum til með að gera hátt
í 200 stykki af 10 metra löngum
staurum sem verða reknir niður í
sandinn til að styrkja þá sökkla sem
stöplamir brotnuðu af og undir
nýja sökkla í stað þeirra sem flóðið
tók,“ sagði Jón Valmundsson við
DV.
Þá sagði Jón einnig að reiknað
væri með að hefjast handa í mars
við endurbyggingu þeirra 176 metra
sem flóðið reif af brúnni. Auk þess
þyrfti að byggja einn nýjan stöpul
undir þeim hluta af brúnni sem eft-
ir stendur. -NH
Akranes:
Uppboðsbeiðnum
á eignum fækk-
aði mjög 1996
DV, Akranesi:
mér fundist það eitt og sér réttlæta
að á þeirra stöðu væri litið sérstak-
lega og það á við í dag. Málið er
hins vegar jööium höndum byggða-
pólitískt og mér finnst að rétti aðil-
inn til að taka málið til skoðunar í
fyrstu umferð séu yfirvöld byggða-
mála, að málið færi til Byggða-
stofhunar sem heyrir undir sjálfan
forsætisráðherra. Það væri eðlileg-
ast að stíla bréfið þangað í byrjun.“
Grímseyingar hafa ekki farið
leynt með þá skoðun sína að þeir
vildu sjá meira af þingmönnum
sínum og fá öflugri stuðning
þeirra. Hvað segir Steingrímur um
það?
„Við þingmenn kjördæmisins
era öragglega tilbúnir að leggja
okkar af mörkum í þessu máli. Ég
hef verið að reyna að koma fyrir
hjá mér heimsókn til Grímseyjar
en af samgönguástæðum er það
talsvert fyrirtæki." -gk
SAVA
vetrarhjólbarðar
135R13 kr. 2.675 stgr.
155R13 kr. 3.190 stgr.
175/70R13 kr. 3.500 stgr.
1B5/70R14 kr. 3.995 stgr.
Rocket rafgeymar
kr. 4.560 stgr.
Kaldasel ehf.
sími 561 0200 - Skipholti 11-13 iBrautarholtsmegin)
„Uppboðsbeiðnum og sölu á eign-
um á uppboðum hefur fækkað mjög
mikið á milli ára hjá einstaklingum
og fyrirtækjum hjá embætti sýslu-
mannsins á Akranesi," sagði
Kristrún Kristinsdóttir, fulltrúi
sýslumanns, í samtali við DV.
Árið 1995 voru beiðnir um sölu á
122 eignum hjá einstaklingum og
fyrirtækjum en 1996 voru þær 91.
Hefur þeim því fækkað um tæplega
30% milli ára.
Sölur á eignum á uppboði voru
1995 samtals 25 en 1996 voru þær 14,
þar af 10 hjá einstaklingum og 4 hjá
fyrirtækjum. Hefur þeim fækkað
um tæplega 70% milli ára.
„Það er greinilegt að það var
minna um að vera í uppboðsbeiðn-
um og sölu á eignum á uppboði
næstum allt síðasta ár, en þó var
greinileg aukning núna undir lok
ársins 1996. í byrjun þessa árs, 1997,
era komnar beiðnir um sölu á 19
eignum á uppboði," sagði Kristrún.
-DVÓ
Hv erfafundir
fyneð borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfa-
fundi með Reykvíkingum á næstu vikum.
Fundirnir verða sem hér segir:
Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudaginn 10. febrúar með íbúum
Grafarvogshverfa. Hamra-, Folda-, Húsa-, Rima-, Borga-, Víkur- og
Engjahverfi.
Fundarstaður: Fjörgyn kl. 20.00.
2. fundur verður haldinn mánudaginn 24. febrúar með íbúum í Árbæjar-,
Ártúnsholts- og Seláshverfi.
Fundarstaður: Ársel kl. 20.00.
3. fundur verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar með íbúum í Laugarnes-,
Lækja-, Teiga-, Langholts-, Sunda-, Heima- og Vogahverfi ásamt Skeifunni.
Fundarstaður: Langholtsskóli kl. 20.00.
4. fundur verður haldinn mánudaginn 3. mars með íbúurn Efra Breiðholts.
Berg, Fell og Hólar.
Fundarstaður: Gerðuberg kl. 20.00.
5. fundur verður haldinn mánudaginn 10. mars með íbúum Bakka, Stekkja,
Skóga og Seljahverfis auk Suður-Mjóddar.
Fundarstaður: Ölduselsskóli kl. 20.00.
6. fundur verður haldinn fimmtudaginn 13. mars með íbúurn í Háaleitis-,
Smáíbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Múlahverfi.
Fundarstaður: Réttarholtsskóli kl 20.00.
7. fundur verður haldinn mánudaginn 24. mars með t'búurn í Túnum, Holtum,
Norðurmýri og Hlíðum.
Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00.
8. fundur verður haldinn mánudaginn 7. apríl með íbúum Vesturbæjar,
Miðbæjar og Austurbæjar vestan Snorrabrautar.
Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00.
Á fundunum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og
framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og
fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af
fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og
myndrænu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.
7FA REYKJAVÍKUR