Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Síða 14
14
íþróttir
Gunnar í Val
Gunnar Guðmundsson, sem
lék með Víkingi í 2. deildinni í
knattspymu síöasta sumar er
genginn til liðs við Val. Gunnar
er 27 ára vamar- eða miðjumað-
ur og lék með Víkingum þegar
þeir voru meistarar 1991, en
einnig meö HK og ÍK, og enn
fremur með þýskum liðum um
nokkurra ára skeið.
Gunnar er þriðji Víkingurinn
sem Valsmenn fá í sínar raðir í
vetur en á undan honum vom
famir þeir Atli Helgason og Am-
ar Hrafn Jóhannsson. -VS
Kitson til West Ham
Paul Kitson var í gær seldur
frá Newcastle til West Ham fyrir
2,3 milljónir punda. Hann er 26
ára gamall framherji og er hon-
um ætlað að hressa upp á sókn-
arleik West Ham sem ekki hefur
verið burðugur á tímabilinu.
Harford til WBA
Ray Harford hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri hjá WBA
í stað Alans Buckleys sem rek-
inn var á dögunum. Harford var
áður við stjómvölinn hjá Black-
bum en hann hefur einnig stýrt
Wilmbledon og Luton auk þess
sem hann var þjálfari enska U-21
árs liðsins.
Breytingar í bikarnum
í fyrsta sinn í 22 ár eiga eitt af
eftirtöldum félögum: Manchester
United, Liverpool, Arsenal, Tott-
enham og Everton ekki lið i úr-
slitum ensku bikarkeppninnar i
knattspymu sem fram fer á
Wembley 17. maí. Síðan West
Ham bar sigurorð af Fulham í
úrslitaleik árið 1975 hafa þessi
fimm stóru félög unnið 16 af 21
bikarúrslitaleik.
Cole og Unsworth
Svo gæti farið að innan
skamms myndu Everton og
Manchester United hafa leik-
mannaskipti. Andy Cole er efst-
ur á óskalista Joe Royle, stjóra
Everton, og rætt hefur verið um
að ef Cole fer til Everton þá fái
United vamarmanninn David
Unsworth í staðinn.
Frímiðar á Stjörnuleikinn
Rétthafar frimiða á Evrópu-
leik Stjömunnar og Vigo eru
beðnir að nálgast miða sína í dag
á milli kl. 15.30 og 17.30. Mikill
áhugi er á handknattleik á norð-
vesturströnd Spánar og leikur-
inn í Ásgarði verður sýndur
beint til íbúa á þessu svæði.
Víkingur með 40
Víkingar unnu sinn 15. sigur í
jafnmörgum leikjum í 2. deild
karla í handknattleik í gærkvöld
þegar þeir unnu Ögra, 40-18.
Sljarnan sigraði
Stjaman vann ömggan sigur á
ÍS, 55-70, í 1. deild karla í
körfuknattleik í gærkvöldi.
Stjaman tryggði með því betur
stööu sína í fjórða sætinu.
Celtic saxar á
Celtic minnkaði forskot
Rangers í skosku úrvalsdeild-
inni í knattspymu í fjögur stig i
gærkvöldi. Celtic vann þá ömgg-
an sigur á Raith Rovers, 0-2,
með mörkum frá Paolo Di Canio
og Jorge Cadete.
Vicenza vann
Vicenza vann Bologna, 1-0, í
fymi leik liðanna í undanúr-
slitum ítölsku bikarkeppninnar í
knattspymu í gærkvöld. Roberto
Murgita skoraði markið. ^
Stjarnan-Vigo á morgun:
„Mikilvægt fyr-
ir okkur að gera
þá óþolinmóða"
Stjaman mætir spænska liðinu
Vigo í fyrri leik liðanna í 8 liða úr-
slitum Evrópukeppni félagsliða í
handknattleik klukkan 16 í Ásgarði
á morgun. Síðari leikur liðanna fer
svo fram á Spáni eftir viku.
„Við förum í þessa leiki til að
komast áfram og mér líst svo á að
við eigum möguleika á því. Við ger-
um okkur alveg grein fyrir þvi að
við verðum að ná tveimur toppleikj-
um enda er þetta lið sterkt og vel
mannað. Spánverjar eru þekktir fyr-
ir aö spila hraðan handbolta og lítill
agi er oft í leik þeirra og því er mik-
ilvægt fyrir okkur að gera þá óþol-
inmóöa," segir Valdimar Grímsson,
þjálfari og leikmaður Stjömunnar,
um leikinn gegn Vigo á morgun.
Tveir sterkir Rússsar og þrír
spænskir landsliðsmenn
I liði Vigo era þrír spænskir
landsliðsmenn, markvörðurinn Ger-
man Muinos, örvhenta skyttan Juan
Jose Panadero sem er markahæstur
i spænsku deildinni og homamaður-
inn Femando Bolea. Þá eru í liðinu
tveir Rússar, Oleg Lvov sem er öfl-
ug rétthent skytta og línumaðurinn
Júrí Nesterov, 2,06 metrar á hæð og
fyrrum landsliðsmaður Rússa.
Vigo er frá samnefndri hafnar-
borg á norðurvesturströnd Spánar
þar sem íbúar era 300.000. Mikill
áhugi er á íþróttum á þessu svæði á
Spáni og mikill uppgangur hefur
verið í handknattleiknum. Á síð-
ustu áram hefur lið Vigo verið mjög
vaxandi. Tímabilið 1995-96 varð lið-
ið í 6. sæti í deildinni og tapaði fyr-
KR (38)84
Keflavík (55) 91
2-0, 11-11, 21-22, 29-34, 32-42 (38-55),
48-62, 64-75, 76-80, 80-83, 82-87, 84-91.
Stlg KR: Hermann Hauksson 22,
Jónatan Bow 19, Óskar Kristjánsson
14, Ingvar Ormarsson 12, Hinrik
Gunnarsson 8, Birgir Mikaelsson 7.
Stig Keflavikur: Falur Harðarson
25, Albert Óskarsson 21, Guðjón
Skúlason 16, Damon Johnson 10,
Birgir Öm Birgisson 7, Gunnar Ein-
arsson 4, Kristinn Friðriksson 4,
Kristján Guðlaugsson 3, Elentínus
Margeirsson 1.
Fráköst: KR 27, Keflavík 22.
3ja stiga körfur: KR 4, Keílavík 13.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Helgi Bragason, ágætir.
Ahorfendur: Um 130.
Maður leiksins: Falur Harðar-
son, Keflavík.
KR barðist vel
Keflvikingar voru mjög
sprækir í fyrri hálfleik gegn KR
og settu niður 9 3ja stiga körfur
og þeir náðu mest 22 stiga for-
skoti í upphafí seinni hálfleiks.
Með mikilli baráttu náðu
útlendingslausir KR-ingar að
minnka muninn í þrjú stig en
Keflvíkingar kláraðu leikinn af
skynsemi.
KR-ingar börðust vel og spil-
uðu oft ágætlega. Þeir vaxa
greinilega með hverjum leik og
er Hrannar þjálfari að gera góða
hluti með þá. í gærkvöld léku
þeir Hermann, Óskar, Ingvar og
Bow ágætlega og Hinrik var
sterkur í fráköstum. Keflvíking-
ar léku hraðan og skemmtilegan
körfubolta. Mikil fjölbreytni var
í vamarleiknum hjá þeim, þeir
pressuðu allan völlinn spiluðu
maður á mann í fyrri hálfleik og
svæðisvöm stóran hluta seinni
hálfleiks.
Bestir i liði Keflavíkur voru
þeir Falur, en hann var sjóðandi
í fyrri hálfleik, Albert og Guðjón
Skúlason. Birgir Öm komst
einnig vel frá sínu. -SS
ir Teka í úrslitum bikarkeppninnar.
Á síðustu leiktíð varð liðið í 4. sæti
í deildinni, aðeins tveimur stigum á
eftir Teka sem varð í öðru sæti.
Vigo er í dag í 5.-6 sæti í deildinni
með 24 stig eftir 20 leiki en
Barcelona er efst með 38 stig.
Stjömumenn fengu spólu með leik
liðsins í tveimur leikjum og hafa því
aðeins getað kortlagt andstæðinga
sina og enginn betur en Brynjar
Kvaran aðstoðarþjálfari en hann
sleit liðbönd i fæti á dögunum og hef-
ur þurft að vera heima við.
Fyrsta alvöruliðiö sem viö
mætum
„Þama er á ferðinni mjög sterkt
lið. Liðið er mjög jafnt, leikmenn
líkamlega sterkir og öflugir leik-
menn í flestum stöðum. Liðið leikur
undantekningarlaust 5:1 vöm og
mikill hraði er í sóknarleik liðsins.
Þetta er því kannski fyrsta alvöru-
liðið sem viö mætum í keppninni og
það er veröugt verkefni fyrir strák-
ana að mæta þessu liði,“ sagði
Brynjar.
Vigo sló út lið frá Grikklandi og
Lettlandi í fyrstu tveimur umferð-
unum og spilaði alla fjóra leikina á
heimavelli.
„Við þurfum að fá ofsalega góðan
stuðning og með hjálp áhorfenda
ætti að vera hægt að setja þá út af
laginu enda þeir ekki ýkja vanir að
spila útileik í Evrópukeppninni,"
sagði Valdimar en hans heitasta ósk
er að mæta Geir Sveinssyni og fé-
lögum hans í Montpellier í undan-
úrslitunum. -GH
Gríndavík (48) 93
KFÍ (39) 85
4-0, 8-7, 13-13, 23-17, 27-24, 41-30
(48-39), 55-39, 70-51, 78-58, 86-79,
87-82, 91-82, 93-85.
Stig Grindavíkur: Herman Myers
30, Jón Kr. Gíslason 21, Pétur Guó-
mundsson 16, Helgi Jónas Guðfinns-
son 10, Páll Áxel Vilbergsson 6, Berg-
ur Hinriksson 5, Marel Guðlaugsson
5.
Stig KFÍ: Derrick Bryant 31, Frið-
rik Stefánsson 15, Odiatu Chiedu, 15,
Guðni Guðnason 8, Magnús Gíslason
6, Pétur Sigurðsson 5, Hrafh Krist-
jánsson 3, Baldur Jónasson 2.
Fráköst: Grindavík 47, KFÍ 40.
3ja stiga körfur: Grindavík 23/5,
KFÍ 21/7.
Vítanýting: Grindavík 17/12, KFl
10/8.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Sigmundur Herbertsson, stóðu sig
vel.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Herman Myers,
Grindavlk.
Grindvíkingar
styrktu stöðuna
DV, Suðurnesjuin:
Grindvíkingar styrktu stöðu
sína í öðru sæti úrvalsdeildar-
innar í gærkvöldi en þurftu að
leggja sig Eilla fram til að sigra
baráttuglaða ísfirðinga í mjög
hröðum leik í Grindavík.
Þrátt fyrir hraðann náðu ís-
firðingar að halda í við heima-
menn lengi og undir lokin
minnkuðu þeir muninn með góð-
um lokaspretti, sem hefði mátt
koma fyrr.
Herman Myers var grfðarlega
sterkur með Grindavík, sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Jón Kr. spil-
aði geysilega vel og Pétur Guð-
mundsson átti einnig mjög góð-
an leik. Hjá KFÍ var Bryant frá-
bær og Chiedu átti sæmilega
kafla. Guðni stóð sig ágætlega og
Friðrik var sterkur í fyrri hálf-
leik þrátt fyrir meiðsli. -ÆMK
FÖSTUDAGUR 7. FEBRU.
Róbert Julian Duranona
skoraöi mörg falleg mörk
gegn Aftureldingu í
gærkvöldi og viröist vera á
uppleið eins og allt KA-
liöiö.
Tindastóll 16 7 9 1305-1315 14
KFÍ 16 6 10 1293-1341 12
Þór, A. 15 4 11 1105-1310 8
Breiðablik 16 0 16 1140-1448 0
Derrick Bryant skoraði fyrstu 14
stig KFl í seinni hálfleiknum gegn
Grindavík í gærkvöld. Hann tók 16
fráköst í leiknum og lék mjög vel.
Herman Myers hjá Grindavík var
líka grimmur í fráköstunum og tók 18
slík, þar af 14 í vöm.
Grindvíkingar létu kærumál KFÍ
á hendur þeim fyrr í vemr ekki
hindra sig í að taka vel á
móti ísfirðingum og gera
vel við þá eftir leikinn.
ÍR-ingar irnnu í gær-
kvöldi langþráðan sig-
ur eftir sex tapleiki í röð.
Hjá Tindastóii snerist dæmið við þvi
Sauðkrækingamir töpuðu i fyrsta
skipti í fimm leikjum.
Antonio Ciullo frá Ítalíu dæmdi í
fyrsta skipti í úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi, leik Breiðabliks og Hauka.
Hann er giftur íslenskri konu og hef-
ur verið búsettur hér á landi siðan i
haust og dæmt nokkra leiki í neðri
deildunum. Ciullo dæmdi áður í 2.
deildinni á Ítalíu.
Sigurður Valgeirsson tók við
vænum blómvendi ffá KR-ingum fyr-
ir leikinn á Seltjamamesi i gær-
kvöld. KR-ingar vom með því að óska
Keflvíkingum til hamingju með bik-
armeistaratitlana um síðustu helgi.
Aukalið var kaUað út á Akranesi
áður en leiknum við Skallagrim lauk.
Margir áhorfenda virtust tUbúnir tU
að láta dómarana hafa það óþvegiö
eftir leikinn og öraggara þótti að gefa
þeim góða vemd.
IA (56) 95
Skallagr.(46) 103
ÍR (42)84
Tindast. (38) 78
URVALSDEIIDIH
Keflavík 16 14 2 1546-1316 28
Grindavík 16 13 3 1534-1417 26
ÍA 16 10 6 1253-1207 20
Haukar 16 10 6 1324-1280 20
Njarövík 15 9 6 1277-1226 18
KR 16 8 8 1366-1293 16
ÍR 16 7 9 1376-1360 14
Skallagr. 16 7 9 1299-1368 14
0-2, 11-2, 11-6, 17-11, 26-16, 35-26
(42-38), 42-41, 52-43, 65-57, 66-62,
75-69, 81-73, 84-78.
Stig ÍR: Tito Baker 25, Eirikur Ön-
undarson 16, Eggert Garðarsson 11,
AUi B. Þorbjörnsson 10, Márus Am-
arson 7, Ásgeir Hlöðversson 7, Guðni
Einarsson 6, Gísli HaUsson 2.
Stig Tindastóls: Láras D. Pálsson
21, Wayne Buckingham 21, Cesare
Piccini 13, Amar Kárason 11, Skarp-
héðinn Ingason 9, Óli S. Reynisson 3.
Fráköst: lR 32, TindastóU 33.
3ja stiga körfiir: ÍR 4, TindastóU
2.
Vítanýting: ÍR 26/18, TindastóU
20/13.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Georg Anderssen, ágætir.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins: Tito Baker, ÍR.
Þetta var kær-
kominn sigur
„Þetta var kærkominn sigur
eftir slakt gengi að undanfornu.
Við virtumst vera aö tryggja
okkur öruggan sigur í seinni
hálfleik en þá gerðist það sem oft
hefur gerst I vetur, við misstum
taktinn, hættum að berjast, og
hleyptum þeim inn í leikinn, en
sem betur fer náðum við að
klára þetta,“ sagði Eiríkur Ön-
undarson, fyrirliði ÍR-inga, í
samtali við DV eftir að þeir
lögöu Tindastól í Seljaskólanum
í gærkvöldi.
Leikur liðanna var frekar til-
þrifalltill. ÍR-ingar höfðu undir-
tökin, Stólarnir hleyptu spennu í
leikinn undir lokin en ÍR vann
sanngjaman sigur.
Tito Baker og Eiríkur vora
bestir í liði ÍR en hjá Stólunum
var Láras Dagur Pálsson lang-
bestur. Wayne Buckingham
geröi þokkalega hluti en er slak-
ur leikmaður og nýtist liðinu
ekki vel.
-GH
16-13, 32-21, 52-38 (56-46), 74-65,
75-74, 85-87, 88-95, 90-99, 95-103.
Stig ÍA: Ronald Bayless 30, Brynj-
ar Karl Sigurðsson 16, Alexander
Ermolinski 13, Brynjar Sigurðsson
11, Dagur Þórisson 10, Bjami Magn-
ússon 9, Elvar Þórólfsson 6.
Stig Skallagríms: Joe Rhett 57,
Bragi Magnússon 13, Tómas Holton
12, Grétar Guölaugsson 11, Ari Gunn-
arsson 8, Þórður Helgason 2.
Fráköst: ÍA 30, Skallagrímur 36.
3ja stiga körfur: ÍA 10, Skallag. 4.
Vítanýting: ÍA 11/6, Skailag. 29/25.
Dómarar: Jón Bender og Björgvin
Rúnarsson, smámunasamir og mjög
lélegir.
Áhorfendur: 400.
Maður leiksins: Joe Rhett,
Skallagrími.
Rhett meö
57 stig
DV, Akranes:
„Þetta var góður sigur á góð-
um tíma. Skagamenn hafa verið
með eitt besta liðið en það var
frábært að halda einbeiting-
unni,“ sagði Tómas Holton, þjáif-
ari Skallagrims, eftir sætan sig-
ur í nágrannaslagnum á Akra-
nesi í gærkvöld.
Dómgæslan setti mjög svip
sinn á leikinn og nánast eyði-
lagði hann, sérstaklega seinni
hálfleikinn.
Joe Rhett var bestur hjá Borg-
nesingum. Hann lék frábærlega
og skoraöi 57 stig, þar af 36 i síð-
ari hálfleik, og slíkt hefúr ekki
áður sést á Skaganum. Hjá
Skagamönnum bar mest á
Bayless en hann gæti átt leik-
bann yfir höfði sér. Þegar hann
fékk sína fimmtu villu henti
hann skyrtu sinni í góifiö og var
fyrir það rekinn úr húsinu.
-DVÓ
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
27
*►
Undanúrslit á
tennismótinu
í dag eru leikin undanúrslitin
á alþjóðlega kvennamótinu í
tennis í Tennishöllinni í Kópa-
vogi. Keppnin hófst klukkan
11 í morgun.
W í undanúrslit í einliðaleik era
komnar þær Adrian Hegedus
frá Ungverjalandi, Annica Lind-
stedt frá Svíþjóð, Marylene Los-
ey frá Sviss og Nina Nittinger
frá Þýskalandi.
Þær Lindstedt, Losey og
Hegedus eru líka í undanúrslit-
um í tvíliðaleik. Lindstedt með
Lindu Jansson frá Finnlandi,
Losey með Louise Lillesoe frá
Danmörku og Hegedus með
löndu sinni, Noru Koves. Auk
þeirra era Hanna Katrin Aalto
og Kirsi Lampinen frá Finnlandi
komnar áfram.
-VS
Einar frá í
fjórar vikur
DV, Akuieyri:
„Það var hræðilegt að sitja á
bekknum og þurfa að vera áhorf-
andi,“ sagði Einar Gunnar Sig-
urðsson sem lék ekki með Aftur-
eldingu gegn KA í gærkvöldi.
Hann er með rifinn vöðva frá
læri upp í nára og verður senni-
lega frá í 4 vikur.
„Við gerðum alltof mikið af
tæknilegum mistökum og var
refsað með hraðaupphlaupum.
Góð vöm hélt okkur á floti í
fyrri hálfleik en sóknin var langt
frá því að vera markviss," sagði
Einar við DV.
Það er vissulega slæmt fyrir
Aftureldingu að vera án þessa
sterka leikmanns á lokaspretti
deildarkeppninnar.
-gk
Amodt varð
meistari
Norðmenn fengu í gærkvöldi
sitt annað gull á heimsmeistara-
mótinu í alpagreinum í Sestriere
á Ítalíu þegar Kjetil Andre
Ámodt sigraði í tvíkeppni karla.
Þeir hafa því unnið báðar karla-
greinamar sem keppt hefur ver-
ið i til þessa.
Ámodt fékk næstbesta tímann
í brani og þriðja besta í svigi og
það tryggði honum samanlagðan
sigur. Brano Kemen frá Sviss
varð annar og „Super-Mario“
Reiter frá Austurríki varð þriðji.
Lasse Kjus frá Noregi var með
besta tímann eftir svigið en hon-
um gekk illa í bruninu og endaði
í fimmta sætinu samanlagt.
Ámodt hefur þar með oröið
heims- og Ólympíumeistari í
fjórum mismunandi greinum.
-VS
íþróttir
Rabchenko
losnar ekki
Úkraínumaðurinn Roman
Rabchenko kemur nær öragg-
lega ekki til liðs við körfuknatt-
leikslið KR eins og vonast var
eftir. Leikleyfi hans er fast í
Tyrklandi, Rabchenko mætti
ekki til síns félags þar eftir ára-
mót þar sem það stóð ekki í skil-
um við hann, en Tyrkirnir vilja
ekki sleppa honum.
„Við erum að leita fyrir okkur
í Bandaríkjunum en ætlum að
gefa okkur nokkra daga til að
finna góðan mann sem bætir
okkar lið. Það hafa þeir útlend-
ingar sem komið haifa til þessa
ekki gert. Við verðum því út-
lendingslausir gegn Þórsurum á
Akureyri um helgina," sagöi
Hrannar Hólm, þjálfari KR, við
DV í gærkvöldi. _v<5
Galopið á toppnum
- eftir öruggan sigur KA á Aftureldingu á Akureyri, 27-23
DV, Akureyri:
„Við erum vonandi komnir á beinu
brautina því þessi leikur var góður hjá
okkur lengst af, þótt við slöppuðum
óþarflega mikið af þegar sigurinn var
tryggður," sagði Jóhann G. Jóhannsson,
besti maður KA, þegar liðið sigraði Aft-
ureldingu, 27-23, á Akureyri í gærkvöld.
Með þessum sigri galopnaði KA toppbar-
áttu þessara liða og Hauka í deildinni og
er mikil barátta um deildarmeistaratitil-
inn fram undan.
Lið Aftureldingar tapaði þriðja leik
sínum í röð og i gær kom vel í ljós hve lið-
ið er brothætt, mæti það mótlæti og harðri
vöm. Þegar KA var að gera út um leikinn
í síðari hálfleik bar sóknarleikur Aftureld-
ingar öll merki taugaveiklunar og liðs-
heildin var alls ekki til staðar. KA-menn
refsuðu þeim jafnt og þétt með hraðaupp-
hlaupum og voru komnir með unninn leik
þegar 10 mínútur vora eftir. Einar Gunn-
ar Sigurðsson er meiddur og auðvitað
munaði það miklu fyrir liðið. Bestu menn
Aftureldingar í leiknum vora Bjarki Sig-
urðsson og Sebastian í markinu en leik-
menn eins og Sigurður Sveinsson og
Gunnar Andrésson vora slakir.
KA í fremstu röö meö þessu
áframhaldi
Mosfellingamir voru yfir lengi framan
af fyrri hálfleik en KA þó yfir í leikhléi,
11-9, og liðin léku þá góðan vamarleik. í
síðari hálfleik kom breiddin í KA-liðinu
vel í ljós, leikur liðsins minnti þá á það
sem liðið hefur verið að gera undanfarin
ár þegar best hefur látiö og KA verður í
fremstu röð í baráttunni í vetur fari sem
horfir. Jóhann G. Jóhannsson var sterkur
í vöm og sókn, Leó Öm góður í vöminni
og Duranona átti mjög góða kafla, sérstak-
lega þegar á leið.
Sigur KAvar fyllilega verðskuldaður,
liðsheildin mun sterkari en hjá Mosfell-
ingum sem þurfa að setjast niöur og skoða
sinn gang fyrir næstu leiki.
„Við spiluðum mjög vel og það er stíg-
andi í þessu hjá okkur. Við höfum veriö
að laga vömina og spila af skynsemi en
það er erfitt fram undan hjá okkur og mik-
il barátta," sagði Erlingur Kristjánsson,
fyrirliði KA, í leikslok.
-gk
Haukar 17 12 2 3 439-403 26
Afturelding 17 13 0 4 443-412 26
KA 17 12 1 4 463-439 25
Fram 17 8 3 6 398-373 19
iBV 15 9 0 6 374-343 18
Valur 17 7 3 7 387-394 17
Stjaman 16 7 1 8 423-416 15
FH 17 7 0 10 436454 14
ÍR 16 5 1 10 391-390 11
Grótta 17 4 2 11 396435 10
Selfoss 17 4 2 11 418-468 10
HK 17 4 1 12 384-421 9
Breiöabl. (28) 65
Haukar (44) 87
4-4, 4-13, 9-21, 13-24, 17-30, 19-38,
23-42 (28-44), 3449, 41-55, 41-68,
45-74, 53-74, 57-81, 65-87.
Stig Breiðabliks: Clifton Bush 28,
Agnar Olsen 12, Pálmi Sigurgeirsson
9, Óskar Pétursson 8, Erlingur S. Er-
lingsson 4, Einar Hannesson 4.
Stig Hauka: ívar Ásgrúnsson 21,
Pétur Ingvarsson 13, Þröstiu- Krist-
insson 12, Jón Amar Ingvarsson 10,
Shawn Smith 9, Þór Haraldsson 8,
Sigurður Jónsson 7, Bergur Eðvarðs-
son 4, Björgvin Jónsson 3.
Fráköst: Breiðablik 25, Haukar 20.
3ja stiga körfur: Breiðablik 1,
Haukar 9.
Vitanýting: Breiðablik 24/14,
Haukar 14/10.
Dómarar: Kristján Möller og Ant-
onio Ciullo, dæmdu nokkuð vel.
Áhorfendur: 43.
Maður leiksins: ívar Ásgríms-
son, Haukum.
Léttur Haukasigur
Haukar vora ekki í neinum
vandræðum með botnlið Blika í
Smáranum í gærkvöld. Þeir léku
ekki sinn besta leik en nóg til
þess að vinna öragglega. ívar
var bestur Haukanna en Bush
stóð upp úr í slöku liði Blika
sem tapaði í 16. skipti í jafn-
mörgum leikjum. -PS
Vörn Framara eins
og galopinn gluggi
Um leik Fram og Selfoss í Framhúsinu í
gærkvöld er best að hafa sem fæst orð en
honum lyktaði 23-23. Leikurinn var ekki
burðugur og raunar var afar fátt sem gladdi
augað. Raunar er ótrúlegt eins og Framarar
spiluðu leikinn að þeim hafi tekist að ná
jafntefli. Ef mótherjinn hefði verið af
sterkara taginu hefðu Framarar verið tekn-
ir í bakaríið. Frámliðið er líklega eitt óstöð-
ugasta liðið sem lengi hefur leikið í 1. deild.
Liðið er að leika skínandi vel annað daginn
en hinn daginn skítur það í buxumar. Vam-
arleikur liðsins var eins og galopinn gluggi,
allt lak í gegnum hana.
Markmenn beggja liða stóðu upp úr í
þessum leik. Markvörður Selfyssinga, Gísli
Rúnar Guðmundsson, er mjög efnilegur. Sel-
fossliðið sýndi mun meiri sigurvilja og hefði
með smáheppni átt að vinna sigur í leikn-
um. Alexei Demidov jafhaði fyrir þá þegar
tíu sekúndur voru til leiksloka.
-JKS
0-1, 0-3, 2-5, 5-5, 7-7, 8-9, 11-9, 12-10
(13-10). 14-12, 15-15, 17-15, 18-19,
21-20, 22-21, 23-21, 23-22, 23-23.
Mörk Fram: Sigurpáll Ámi Aðal-
steinsson 8/5, Magnús Arngrímsson
4, Oleg Titov 3, Njörður Ámason 3,
Guðmundur Pálsson 2, Ármann Sig-
urvinsson 2, Daöi Hafþórsson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson
14/1.
Mörk Selfoss: Alexei Demidov
8/1, Sigfús Sigurðsson 8, Björgvin
Rúnarsson 3, Gylfi Már Ágústsson 2,
Valdimar Fannar Þórsson 1, Harald-
ur Geir Eðvaldsson 1.
Varin skot: Gísli Rúnar Guð-
mundsson 14.
Brottvísanir: Fram 4 mín., Selfoss
6 mín.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og
Gunnar Viðarsson, frekar mistækir.
Áhorfendur: Um 100.
Menn leiksins: Reynir Reynis-
son, Fram, og Gfsli Rúnar Guð-
mundsson, Selfossi.
KA (11) 27
Aftureld. (9)23
0-3, 4-4, 4-6, 5-8 (11-9), 13-11, 17-13,
18-16, 21-16, 24-18, 25-21, 27-23.
Mörk KA: Róbert Julian Dura-
nona 8/1, Jóhann G. Jóhannsson 8,
Jakob Jónsson 3, Sergei Ziza 2, Þor-
valdur Þorvaldsson 2, Leó Öm Þor-
leifsson 2, Björgvin Björgvinsson 1,
Sævar Ámason 1.
Varin skot: Guðmundur A. Jóns-
son 9, Hermann Karlsson 3.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sig-
urðsson 6, Ingimundur Helgason 6/5,
Gunnar Andrésson 4, Siguijón
Bjarnason 2, Páll Þórólfsson 2, Alexei
Trúfan 1, Sigurður Sveinsson 1, Þor-
kell Guðbrandsson 1.
Varin skot: Sebastian Alexanders-
son 8, Bergsveinn Bergsveinsson 1.
Brottvisanir: KA 6 mín., Aftureld-
ing 8 mín.
Dómarar: Egill Már og Öm Mark-
ússvnir, gerðu fjölda mistaka.
Áhorfendur: Um 1.200.
Maðin: leiksins: Jóhann G. Jó-
hannsson, KA.
Spánn:
Barcelona sló
erkifjendurna út
Real Madrid og Barcelona skildu
jöfh, 1-1, í síðari leik sínum í 16 liða
úrslitiun spænsku bikarkeppninnar
í knattspymu i gærkvöldi. Barce-
lona vann fyrri leikinn, 3-2, og er
þvi komið í 8 liða úrslit.
Barcelona komst yfir þegar Ron-
aldo skaut fyrst í stöngina og síðan
í vamarmann og inn. Davor Suker
jafnaði úr vítaspymu en það var
ekki nóg fyrir Real.
Rayo Vallecano sló Extremadura
út í gærkvöldi og önnur lið sem
komin eru áfram era Racing Sant-
ander, Celta Vigo, Espanyol, Real
Betis, Las Palmas og Atletico Ma-
drid.
-VS
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Houston lá í Dallas
- Lið Orlando er á miklu skriði þessa dagana
Það gengur hvori né rekur hjá
Houston þessa dagana og í nótt tapaði
það sjötta leik sínum í röö þegar það
lá í Dallas. Það var í öðrum leikhluta
sem leiðir skildi. Detroit skoraði þá
31 stig gegn aðeins 15 stigum frá Hou-
ston og eftir það var aldrei spuming
hvorum megin sigurinn lenti. Hou-
ston var í vandræðum enda án
tveggja lykilmanna, Charles Barkleys
og Clyde Drexlers.
„Þetta var frábær sigur fyrir okkur
og gott að fara með þennan sigur í
stjömuhelgina," sagði Doug Collins,
þjálfari Detroit.
Voshon Lenard lék sinn besta leik
á ferlinum þegar Miami vann sigur á
Milwaukee og vann þar með sinn
sjötta sigur í röð. Lenard skoraði 38
stig og var hreint óstöðvandi.
Úrslitin í nótt:
New York-SA Spurs ............96-84
Houston 22, Johnson 20 - Wilkins 19,
Willimas 18.
New Jersey-Indiana..........100-104
Willimas 21, Kittles 20 - Miller 26, A. Dav-
is 18.
Orlando-Boston..............119-111
Seikaly 32, Hardaway 25 - Fox 30, Day 25.
Miami-Milwaukee..............102-90
Lenard 38, Hardaway 22 - Newman 26,
Baker 23.
Charlotte-Sacramento ........115-100
Mason 22, Rice 17 - Richmond 37, Polynice
15.
Detroit-Houston ..............96-87
Hill 16, Mills 16 - Olajuwon 18, Willis 17.
Minnesota-Vancouver...........103-86
Gamett 18, Gugliotta 17 - Peeler 24, Moten
16.
New York lék án Patricks Ewing
sem er meiddur á nára en það kom
ekki að sök. Orlando vann 5. sigurinn
í röð og 12. sigur í síðustu 14 leikjum
en Boston hefur 10 af síðustu 12. -GH
Um helgina
Körfubolti - úrvalsdeild:
Njarðvik - Þór, A................F. 20.00
Skallagrímur - Njarðvík .. . S. 20.00
Þór, A. - KR ..............S. 20.00
KFÍ - ÍA ..................S. 20.00
Keflavík - Haukar................S. 20.00
Tindastóll - Grindavík.....S. 20.00
ÍR - Breiðablik ...........S. 20.00
Körfubolti - 1. deild kvenna:
Keflavík - Njarðvík..............F. 19.00
Grindavík - fi? ...........L. 14.00
Breiðablik - ÍS ...........L. 16.00
Handbolti - Evrópukeppni:
Stjaman - Vigo...................L. 16.00
KA - Veszprem....................S. 16.00
Handbolti - 1. deild kvenna:
KR - Stjaman.....................L. 16.30
Valur - Haukar...................L. 16.30
Alþjóða tennismótið í Kópavogi:
Úrslit í einliðaleik.............L. 14.00
Úrslit í tvíliðaleik.............L. 16.00
Borötennis:
Coca-Cola mótið fer fram i TBR-hús-
inu á sunnudag. Meistaraflokkur
kvenna byrjar kl. 11.30 og meistara-
flokkur karla kl. 12.30.