Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Qupperneq 24
*
íl
36
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
Bjartsýnisandinn
í ökumönnum
„Það hlýtur að vera mikill bjart-
sýnisandi í mörgum hér á Reykja-
víkursvæðinu. Margir ökumenn
láta eins og hásumar sé.“
Baldvin Ottósson aðalvarð-
stjóri, í DV.
Kindumar em
greindari en ég
Mínar kindur neituðu að fara
inn í gærkvöld og ég leyfði þeim
bara að ráða því. Ég geri það
yfirleitt enda eru þær miklu
greindari en ég.“
Andrés Kristjánsson bóndi, í
Degi-Tímanum.
Stefnumótandi batterí
í áfengismálum
„Því var lætt inn í lögin, með
sakleysislegu yfirbragði sem
heimild til að setja einhvers kon-
ar rekstrarstjórn yfir ÁTVR og
hún er allt í einu orðin að
stefnumótandi batteríi í áfengis-
málum.“
Steingrímur S. Sigfússon, um
það sem hann kallar brenni-
vínsmálaráð, í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Réttlæti fram yfir
skynsemi
„Skipting þjóðartekna er mik-
ilvægur hluti af því þjóðskipu-
lagi sem við byggjum upp í land-
inu. Ég er þess fullviss að við
erum mörg sem viljum frekar að
það hvíli á réttlæti en kaldri
skynsemi.“
Hjalti Hugason prófessor, í DV.
Skynsemi fram yfir
sanngirni
„Sanngirni eða ósanngimin
kemur þessu máli afskaplega lít-
ið við. Öllu heldur snýst málið
um hvað er eðlilegt eða skyn-
samlegt."
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, um kröfur um
lægstu laun, í Alþýðublaðinu.
Fálkinn, hraðfleygastur fugla, er
hér yfir bráð sinni.
Hraðfleygir og
hægfleygir fuglar
Hraðfleygastur allra fugla er
förufálkinn (Falco peregrinus)
þegar hann steypir sér niður úr
mikilli hæð. í tilraunum sem
gerðar voru í Þýskalandi kom í
ljós að förufálkar náðu allt að
270 kílómetra hraða á klst. þegar
þeir steyptu sér niður með 30°
halla og 350 km hraða á klst. þeg-
ar þeir steyptu sér með 45° halla.
Hægfleygasti fugl jarðar er
amerísk skógarsnípa (Scolopax
minor), sem mælst hefur fljúga
niður í 8 km/klst. án þess að
missa hæð.
Blessuð veröldin
Lengst á lofti
Sá fugl sem heldur sig mest á
lofti er möttulþema (Sterna
fuscata). Eftir að hún yfirgefur
æskustöðvamar er hún stöðugt
á flugi í 3 til 10 ár uns hún kem-
ur niður á jörðina til að verpa.
Af landfuglum er múrsvölungur
(Apus apus) mest á lofti. Hann
heldur sig stöðugt á flugi í 2 til 3
ár og á þeim tíma sefur hann,
drekkur, étur og jafnvel eðlar sig
á flugi.
É1 og snjókoma fyrir norðan
MiUi íslands og Noregs er 955 mb
lægð sem hreyfist noröaustur. Um
300 km suðvestur af Hvarfi er 975
mb vaxandi lægð sem hreyfist norð-
austur og síðar austur.
Veðrið í dag
Um landið norðan- og norðaust-
anvert er reiknað með éljum eða
snjókomu, en syðra verður þurrt.
Upp úr miðjum degi lægir um tíma
um land aUt og víðast verður úr-
komulaust, en í kvöld vex austanátt-
inni ásmegin sunnanlands og útlit
er fyrir snjókomu eða slyddu með
suðausturströndinni í nótt. Frost
verður 6 tU 11 stig, en fer minnk-
andi um landið sunnanvert í kvöld.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðankaldi og úrkomulaust að
mestu. Frost 7 til 8 stig. Austan st-
inningskaldi og dálítU slydda eða
snjókoma í nótt og dregur jafnframt
úr frosti.
Sólarlag í Reykjavík: 17.36
Sólarupprás á morgun: 09.46
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.26
Árdegisflóð á morgun: 06.48
Veörið kl. 6 í morgun:
Akureyri skafrenningur -5
Akurnes léttskýjað -5
Bergstaöir snjókoma -8
Bolungarvík snjóél -11
Egilsstaóir skýjað -4
Keflavíkurflugv. snjóél -4
Kirkjubkl. léttskýjað -7
Raufarhöfn snjókoma -1
Reykjavík úrkoma í grennd -8
Stórhöfði úrkoma í grennd -4
Helsinki snjókoma -1
Kaupmannah. þokumóða 4
Ósló hálfskýjað 5
Stokkhólmur rigning á síð. kls. 3
Þórshöfn haglél á síð. kls. 1
Amsterdam skýjaö 6
Barcelona heiðskírt 5
Chicago alskýjað -4
Frankfurt léttskýjað -2
Glasgow skúr á síð. kls. 4
Hamborg skýjað 5
London skýjað 10
Lúxemborg þokumóða -2
Malaga þokumóða 8
Mallorca léttskýjaó 2
Miami
París léttskýjað -1
Róm
New York heiðskírt 1
Orlando rigning 17
Nuuk alskýjað -5
Vín léttskýjað -4
Winnipeg heiöskírt -21
Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Hlífar:
Geng á allt sem er hærra en jafnsléttan
„Vegna afinælisins er ég alveg í
sjöunda himni, enda tókst það mjög
vel og það var virkUega gaman á af-
mælishátíðinni, en það er haldið á
kritískum tíma. Hátíðtn stangaðist
þó ekki á við neitt, mér liggur við
að segja því miður, því seinagangur-
inn í samningamálum er slíkur að
þess vegna væri hægt að halda
stórafmæli hér annan hvem dag,“
segir Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Verkamannafélagsins Hlífar
í Hafnarfirði, en félagið hélt upp á
90 ára afinæli sitt um síðustu helgi í
skugga vaxandi ólgu meðal verka-
lýðsfélaganna.
Sigurður sagði að það væri aUtof
langt á milli samningafunda: „At-
vinnurekendur hafa dregið lappirn-
ar og því miður verð ég að gefa
stjómvöldum faUeinkun. Forsætis-
Maður dagsins
ráðherra er búinn að gefa það út að
hann sjái enga fátækt í landinu,
hann hefur tekið áberandi afstöðu
með atvinnurekendum og hafi hann
skömm fyrir. Því miður verð ég að
gefa öUum öömm ráðherrum faU-
einkunn, en þó sérstaklega Páli Pét-
urssyni. Hann rauk af stað með
nýja lagasetningu um breytingu á
vinnulöggjöfinni í blóra við álit allr-
Siguröur T. Sigurösson.
ar verkalýðshreyfingarinnar á ís-
landi og sagði persónulega við mig
að hann heföi sínar ráðleggingar úr
hópi aðUa vinnumarkaðsins. Ég
þori að leggja mikið að veði að hann
fékk ekki þessar ráðleggingar laun-
þegamegin. Með öðmm orðum,
hann fékk sínar ráðleggingar ann-
aðhvort úr Garðastrætinu eða ffá
Vinnumálasambandinu.
„Það er samhugur í verkafólki nú
eins og oft áður,“ segir Sigurður
þegar minnst er á kjarabaráttuna,
„en það er einnig meiri kvíði.
„Áður voru engin greiðslukort.
Núna hefur fólki verið kennt að
nota þennan andskota og ýmis önn-
ur gyUiboð. Þeir sem hafa lægstu
launin eru langverst settir ef tU
verkfalla kemur taki þeir tUboði frá
þessum Mammonsfyrirtækjum. En
flestir segja að við verðum að taka
slaginn núna. Ef við gerum það ekki
og frestum þvl, segjum tU tveggja
ára, þá erum við enn verr sett, ef
við verðum yfirhöfúð lifandi."
Sigurður segir verkafólk vera
óttaslegið: „Fólk með þetta 50 og
upp í 100 þúsund krónur í laun get-
ur ekki gert nein stór plön varðandi
ffamtíðina. Það verkafólk sem hefur
eitthvað aflögu er kannski að koma
yfir sig húsnæði en með þvi eru
margir að reisa sér hurðarás um
öxl, ekki vUjandi heldur hefur það í
bjartsýni farið eftir stjómendum og
lent síðan í skuldasúpu sem það
ræður ekki við.“
Verkamannfélagið Hlíf er eitt
elsta verkalýðsfélag á landinu og er
Sigurður búinn að vera formaður
síðan 1988: „Ég kom tU starfa árið
1991 og ætlaði þá bara að starfa í
einn mánuði en það hefur lengst
heldur betur í þessum mánuði.
Þegar Sigurð á frítíma fer hann í
útivist: „Ég er mikið fyrir að ganga
úti í náttúrunni og geng á aUt sem
er hærra en jafhsléttan." -HK
Myndgátan
Fastheldinn á fé Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
DV
Njarðvík-Þór
í körfunni
í kvöld verða nokkrir leikir í
körfuboltanum. í úrvalsdeUdinni
er einn leikur og fer hann fram í
Njarðvík þar sem heimamenn
taka á móti Þór frá Akureyri.
Njarðvikingar verða að teljast sig-
urstranglegri enda á heimaveUi
og eru ofar á stigatöflunni. Einn
leikur er í 1. deUd kvenna og fer
hann ffarn i Keflavík þar sem hin-
ar sigursælu stúlkur í Keflavíkur-
liðinu taka á móti nágrönnum
sínum úr Njarðvíkum. Tveir leik-
ir eru einnig í 2. deUd karla. AUir
leikimir hefjast kl. 20.
íþróttir
í handboltanum er í kvöld einn
leikur í 2. deUd karla. HM úr Mos-
fellsbæ tekur á móti Þór frá Akur-
eyri og fer leikurinn fram að
Varmá kl. 20.
íslensk náttúra
séð með augum
kínversks málara
í tUefni Kínadaga ’97 verður
málverkasýning í Perlunni sem
hefst í dag og endar á sunnudag-
inn. Sýnd verða verk kínversku
myndlistarkonunnar Lu Hong
sem kom tU íslands í mars 1990.
Haföi hún haft spurnir af land-
inu hjá íslenskum námsmönnum
í Tokyo. Hér settist hún að og
hefur síðan ferðast um landið,
kynnst því og túlkað það sem
hún hefur séð með aðferðum
heföbundinnar kínverskrar
landslagsmálunar.
Sýningar
Lu Hong hefur haldið og tekið
þátt í fjölda sýninga í Kína, Jap-
an og á íslandi og hlotið góða
dóma gagnrýnenda. Sýningar
sínar hérlendis hefur hún helgað
íslenskri náttúru sem svo mjög
hefur heillað hana.
Bridge
Dönsku Kroj gaard-bræöurn i r,
Niels og Mads, þykja efnUegir og
margir telja að þeir séu framtíðar-
menn í landsliðinu i opnum flokki.
Hér sjáum við eitt spU með þeim úr
tvímenningskeppni á dögunum.
Vestur gjafari og AV á hættu:
* 1093
•4 G109642
* 64
4> 63
* K6
•4 ÁKD7
* G975
* Á72
* 87542
•4--
* KD103
* G1094
Vestur Norður Austur Suður
1 * 2 v Dobl pass
2 Grönd pass 3 pass
3 * pass 6 Grönd p/h
Krojgaard-bræðurnir notuðu
veika grandopnun svo að Mads varð
að opna á einu laufi á vesturhönd-
ina. Niels, sem sat í austur, doblaði
í upphafi því hann taldi jafnvel að
norður væri að blekkisegja. Eftir
tveggja granda sögn vesturs var
ljóst að AV áttu meginhlutann af
punktunum á sínum höndum (2
grönd lofuðu 15-17 punktum). Norð-
ur valdi ágætis útspil, tígulsexuna,
Mads setti lítið í blindum og drap
tíu suðurs á ásinn. Næst var hjarta-
áttan lögð á borðið og norður lét lít-
ið spil án þess að blikka. Mads
þurfti að ákveða á þeirri stundu
hvort norður hefði verið að blekkja
eða jafnvel segja á aðeins 5 spil. En
hann hleypti hjartaáttunni og þegar
sá slagur hélt var framhaldið leikur
einn. Eftir 7 slagi á hálitina var suð-
ur þvingaður í láglitunum. Suður
hefði gert betur með því að setja tíg-
ulkónginn í upphafi en óvist er að
það hefði dugað. Sú vörn gefur þó
sagnhafa möguleika á að sækja slagi
í tígullitnum.
ísak Öm Sigurðsson
♦ ADG
•4 853
-f Á82
* KD85