Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Síða 28
(&)<&)<&)
KIN
a
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997
Mcd sönglnn'
i btóðinu >
Ástí
. fangelsi
Helgarviðtalið er að þessu sinni
við par sem kynntist á Litla- Hrauni
þar sem hún var fangavörður og
hann fangi. Þau náðu saman þrátt
fyrir að reynt væri að stía þeim í
sundur. Nú er hann laus og þau eiga
von á bami og búa hamingjusöm á
Eyrarbakka.
Einnig verður rætt við bamabam
Stefáns íslandi sem er að stíga stn
fyrstu skref í íslensku óperunni nú
um helgina. Fræknir KR-ingar úr
fótboltanum eru heimsóttir í bíi-
^ skúr í Kópavogi þar sem þeir iðka
allt annað en fótbolta. Samantekt er
á blóðugum átökum Vítisengla og
Banditos á Norðurlöndum og margt,
margt fleira. -em/bjb
Bruni
í Eyjum
Mikill eldur kviknaði í íbúðar-
húsi við Brimhólabraut í Vest-
mannaeyjum skömmu fyrir mið-
nætti í gærkvöld.
Enginn var í húsinu þegar atvik-
ið varð en slökkviliði gekk greið-
lega að slökkva eldinn. Húsið er
timburhús og brann nær allt sem
bmnnið gat þ. á m. logaði upp úr
þakinu og er húsið talið ónýtt. Að
sögn lögreglu er talið að eldsupptök-
in megi rekja til eldavélar.
_____________________-RR
Árekstur í
Svínahrauni
Árekstur tveggja bíla varð á Suð-
urlandsvegi í Svínahrauni snemma
á áttunda tímanum í morgun.
Annar bílinn var að taka fram úr
hinum þegcir slysið varð og að sögn
lögreglu á Selfossi má rekja það til
hálku á veginum og ógætilegs akst-
urs miðað við aðstæður. Ökumenn
i sluppu báðir ómeiddir en bilamir
skemmdust mikið.
-RR
Skrifstofustýra Max hf. ákærð fyrir 8,7 milljóna króna Qárdrátt:
Fyrirtækið selt
eftir fjárdráttinn
- fyrrum forstjóri hefur lagt fram bótakröfu á hendur konunni
Kona sem gegndi starfi skrif-
stofustjóra fataverksmiöunnar
Max lif. í Skeifunni í Reykjavík
hefur verið ákærð fyrir tæplega
8,7 milljóna króna fjárdrátt í starfi
sínu. Um er að ræða tímabilið frá
1990 fram í október 1995. Konan
hefur viðurkennt að verulegu
leyti þann fjárdrátt sem henni er
gefinn að sök.
í október 1995 komu fram upp-
lýsingar sem leiddu til þess að
grunur vaknaði um að konan
hefði dregið sér verulegar fjár-
hæðir. Hún var nánast strax kærð
til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Rannsóknin leiddi í ljós að kon-
an hafði dregið sér fé úr sjóðum
fyrirtækisins á undangengnum
ámm. Þannig hafði hún tekiö fjár-
muni sem höfðu verið innheimtir
hjá viöskiptavinum fyrirtækisins
og síðan nýtt sér þá í eigin þágu.
Fjárdrátturinn átti sér stað
jafht og þétt. Áður en yfir lauk
var talið að tugir þúsunda og upp
í einhver hundmð þúsunda króna
í hvert skipti væm orðin að hátt í
milljónatug á fimm ára tímabili.
Konan hefur sagt að ástæða fjár-
dráttarins væri sá að fjármál
hennar hefðu verið í kreppu.
Fyrmm forstjóri Max hf. sagði
fyrir dómi að fjárdráttur konunn-
ar hefði haft það vemlegt fjár-
hagslegt tjón í för með sér fyrir
fyrirtækið að hann hefði að miklu
leyti þess vegna orðið að selja fyr-
irtækið. Hann hefúr lagt fram um
9 milljóna króna bótakröfu á
hendur konunni. Max hf. hefur nú
verið sameinað öðm fyrirtæki.
Atvinnuþróunarsjóður Suður-
lands keypti um síðustu áramót
Max hf. en Sjóklæðagerðin hf.
keypti síðan 51,9 prósenta hluta í
Max hf.
í málarekstrinum hefur verið
einhver ágreiningur um tölur og
fjárhæðir. Konan hefur haldið því
fram að fjárdráttur hennar nemi
ekki eins hárri upphæð og ákært
er fýrir. Konan hefúr engu að síð-
ur viðurkennt ásetning sinn um
að draga sér fé frá fyrirtækinu og
að hafa gert það itrekað og reglu-
lega. Héraðsdómur Reykjavíkur
mun kveða upp refsidóm í málinu
á næstunni.
-Ótt
Seglagerðin Ægir hefur hannað sérstakan hólk sem hugsaður er til þess að gleypa reyk frá reykingamönnum. Við
hann er tengd vifta sem sogar ólottið út. Með þessu losna t.d. börnin við reykinn og Jón Arnar Barðdal virðist nokk-
uö sáttur við aö vera laus við óloftið. Enn hefur ekkert verið selt en það mun verða reynt. DV-mynd Hiimar Þór
Áhyggjur
vegna Smá-
þjóðaleika
Eftir allan hamaganginn í
Ólympíunefnd íslands á dögunum
þar sem Júlíus Hafstein var felld-
ur úr stóli formanns á aðsilfundi
Óí eru menn innan íþróttahreyf-
ingarinnar áhyggjufullir um
hvernig fer með Smáþjóðaleikana
sem halda á hér á landi 3.-7. júni
sumar í ljósi þess að Júlíus er
hættum störfum í undirbúnings-
nefnd leikanna og tveir aðrir
nefndarmenn einnig. Þá er það
ekki til að bæta ástandið að þrír
lykilmenn úr nýrri stjórn Óí eru í
fríum erlendis, formaður, varafor-
maður og ritari.
„Atburðir síðustu daga hafa sett
strik í reikninginn. Þetta var ekki
eins undirbúið og menn héldu. Ég
get ekki tekið undir það að Smá-
þjóðaleikarnir séu í hættu en
óneitanlega mun undirbúnings-
vinnan tefiast. Það þarf að stokka
upp á nýtt þar sem Júlíus er hætt-
ur en ég hef trú á að við komum
lagi á hlutina. Þessi frí okkar
þriggja úr stjórninni voru löngu
ákveðin. Við sáum ekki fyrir þessi
átök sem átt hafa sér stað,“ sagði
Ari Bergmann Einarsson, ritari
Óí, við DV í morgun.
-GH
L O K I
Veðrið á morgun:
Víða snjó-
koma eða
slydda
Á morgun verður suðaustan-
og austankaldi eða stinnings-
kaldi og víða snjókoma eða
slydda með köflum.
Veðriö í dag er á bls. 36
Almera
.ú Ingvar
rm Helgason hf.
- Sœvarhöfða2
sími 525 8000
Jk