Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997
Fréttir
DV
Skipverjar Vikartinds á röngum ráðningarkjörum:
Filippseyingar með
514 dollara á mánuði
- segir Borgþór Kjærnested, eftirlitsfulltrúi ITF, Alþjóðasambands flutningaverkamanna
Borgþór Kjærnested, eftirlitsfulltrúi Alþjóöasambands flutningaverka-
manna, segir sambandiö hafa staðiö í streöi meö Vikartind lengi.
„Við höfum staðið í streði með
þetta skip, Vikartind, mánuöum
saman,“ segir Borgþór Kjæmested,
eftirlitsfulltrúi ITF á Islandi. Hann
segir að ráðningar óbreyttra áhafn-
armeðlima Vikartinds brjóti í bága
við anda kjarasamninga við sam-
band þýskra kaupskipaútgerða,
GIS, German Intemational Ships-
register, um kjör farmanna á leigu-
skipum í lausaverkefnum og sam-
kvæmt skilningi þýska alþýðusam-
bandsins eigi þýskir kjarasamning-
ar að gilda um störf sjómanna á
skipinu þar sem það sé skráð í
Þýskalandi og sigli á fastri áætlun-
arleið. Enginn af undirmönnum
skipsins vom hins vegar Þjóðverjar,
heldur Filippseyingar að einum Pól-
verja undanskildum.
Skipt um nafn fyrir íslands-
siglingar
Borgþór kveðst hafa fengið vit-
neskju um það snemma sl. sumar að
Eimskip væri að taka skip á svo-
kallaða tímaleigu með fullri er-
lendri áhöfn og eftirgrennslan hefði
leitt í ljós að um væri að ræða skip
sem hét bresku nafni og væri skráð
á bresku eynni Isle of Man. En
nokkra áður en skipið hóf siglingar
fyrir Eimskip var hins vegar skipt
um nafn og eiganda skipsins og hét
það nú Vikartindur og í stað þess að
skráður eigandi þess væri Ocean
Maritime LTD, til heimilis í Sum-
merhill Business Park á Isle of Man,
var hann nú allt í einu orðinn Peter
Döhle í Hamborg.
Um leið gerði Þýskalandsdeild
ITF kjarasamning við Peter Döhle í
samræmi við svonefndan GIS Fleet
Agreement-samning. í honum felst
að grunnlaun háseta era 514 dollar-
ar fyrir 40 tíma vinnuviku, en þegar
búið er að bæta við um 20 tíma yfir-
vinnu á viku, eru launin samtals
um 1107 dollarar á mánuði eða alls
tæplega 80 þúsund krónur á mán-
uði. Að sögn Borgþórs eru þessi
laun langt undir því sem greitt er
farmönnum samkvæmt þýskum
kjarasamningum.
DV athugaði hvemig skráningu
skipsins er háttað hjá Skipaskrá
Hamborgar. Þar er Vikartindur
skráður með Hamborg sem heima-
höfn og að skipið sigli undir þýsk-
um fána. Að sögn Borgþórs Kjæme-
sted er fáni Þýskalands skilgremdur
sem hentifáni af Alþjóða flutninga-
verkamannasambandinu, þar sem
þýskar skráningareglur eru mjög
rúmar. Þannig gildi þýskir kjara-
samningar fýrir Þjóðverja, en full-
komlega leyfilegt er að ráða erlenda
sjómenn á þýsk skip á allt öðrum
kjörum, eða samkvæmt fyrmefndu
GlS-samkomulagi fyrir 514 dollara á
mánuði að því tilskildu þó að skip-
in sigli ekki á áætlunarleiðum.
Þýska alþýöusambandið leggur,
að sögn Borgþórs, þann skilning í
þessar GlS-ráðningar á ódýru er-
lendu vinnuafli, að þær séu í lagi
svo framarlega sem viðkomandi
skip séu í lausavinnu. Þar sem Vik-
artindur hafi hins vegar verið á
áætlimarleið með GlS-ráðna vmdir-
menn, hafi útgerðinni verið til-
kynnt að GlS-samningurinn yrði
ekki endumýjaður í maí nk. og þar
sem skipið hafi verið sent beint í
siglingar á áætlunarleiðum sl sum-
ar, þá hafi útgerðin brotið gegn GIS-
samkomulaginu og þess vegna sé
hægt að rifta samningunum um-
svifalaust fyrir hönd skipverja. -SÁ
Undirmenn Vikartinds fluttir til Filippseyja skilríkjalausir:
Gáfum enga heimild
- bentum á ábyrgð Flugleiða, segir Jóhann Jóhannsson, forstöðumaður Útlendingaeftirlitsins
„Við gáfum ekki heimild til þess
að skipverjamir af Vikartindi
mættu fara skilríkjalausir úr landi
og höfðum engin bein afskipti af
brottflutningi þeirra,“ segir Jóhann
Jóhannsson, forstöðumaður Útlend-
ingaeftirlitsins, í samtali við DV.
Jóhann segir að fulltrúar Eim-
skips hafi haft samband við Útlend-
ingaeftirlitið til að spyrjast fyrir um
hvort og hvemig hægt væri að flytja
mennina skilríkjalausa til síns
heima. Þeim hefði verið tjáö að það
væri alfarið á ábyrgð þess flugfé-
lags, eða flutningsaðila, sem tæki að
sér að flytja þá.
„Ætli forstjóri Eimskips hafi ekki
rætt við stjómarformann Flugleiða
um hvort Flugleiöir vildu ábyrgjast
heimflutning mannanna," segir
Borgþór Kjæmested, eftirlitsfulltrúi
Alþjóðasambands flutningaverka-
manna á íslandi, við DV. Samkvæmt
heimildum DV voru skipverjamir
settir um borð í flugvél Flugleiða til
Kaupmannáhafnar. Þaðan vom þeir
sendir til Hamborgar og síðan settir
þar um borð í flugvél á leið til Man-
ila á Filippseyjum, en hásetamir
vom allir Filippseyingar að einum
Pólverja undanteknum.
Skipbrotsmönnunum var haldið í
strangri einangrun eftir strandið og
þess sérstaklega gætt að þeir ræddu
ekki við blaðamenn. Borgþór Kjæme-
sted, eftirlitsfúlltrúi ITF, komst þó í
samband við einn þeirra sem óskaði
sérstaklega eftir því að þeir fengju að
ræða við kaþólskan prest. Þegar Borg-
þór og séra Jacob Rolland, prestur á
Landakoti í Reykjavík, komu á Hótel
Selfoss skömmu eftir hádegi sl.
fimmtudag til að hitta skipbrotsmenn-
ina gripu þeir í tómt, búið var að
sækja mennina og senda þá úr landi.
„Skrifstofa ITF í London var búin
að óska eftir því að ég tæki skýrslu
af skipverjunum og af þvi tilefni var
ég búinn að hafa samband við þann
aðila sem hafði ráðið mennina á
skipið og gert við þá kjarasamning.
Ég var líka búinn að hafa samband
við útgerðina í Hamborg og fá leyfi
hennar til að hitta mennina. Síðan
þegar ég kem, er mér sagt að þeir
séu famir og hafi ekki einu sinni
fengið leyfi til að borða hádegismat,
heldur hefðu verið drifnir upp í bíl
rétt fyrir tólf og ekið burt með þá,“
segir Borgþór Kjæmested. -SÁ
Dagfari
Góðir ráðherrar, góð ríkisstjórn
Á jólunum og á öðrum stórhá-
tíðum er haft fyrir sið að gefa
gjafir. Litlar gjafir og stórar gjaf-
ir og til að hafa allt í réttri röð er
auövitað beöið með stærstu og
veglegustu gjöfina þangað til síð-
ast. Til að viðhalda eftirvænting-
unni. Þegar stóri pakkinn er opn-
aður bíða allir spenntir og grípa
andann á lofti og hrópa húrra fyr-
ir rausnarskap gefandans og
kyssa hann í þakkklætisskyni.
Þannig er þessu farið í tengsl-
um við þá miklu atburði sem nú
eru að gerast í samningamálun-
um. Kjarasamningar teljast
kannske ekki til stórhátíða en
þeir eru örlagaríkir fyrir þjóðlífið
og þetta eru langir og strangir
dagar hjá samningamönnum og
hátíðarstund þegar skrifaö er
undir nýja samninga og allir
takast í hendur.
Það hefur ekki litið vel út með
lausnir og verkalýðsfélög hafa afl-
að sér verkfallsheimilda og bitið í
skjaldarrendur og um helgina var
ekki útlit fyrir annað heldur en
að verkföll hæfust. Raunar er
fyrsta verkfallið skollið á.
En þá koma VR-menn og Raf-
iðnaðarsambandið og semja fyrir
hönd sinna umbjóðenda og slíta
sig út úr samstöðunni og reka
fleyg í verkalýðshreyfinguna.
Meira að segja Iðja, sem telst til
láglaunafólks, hefúr samið. Og
aðrir verkalýðsforingjar sifja eft-
ir með sárt ennið og bölva upp-
hátt og tala um svikara og lodd-
ara í þeim félögum sem búin eru
að skrifa undir.
Þessi fleygur er mikil gleði-
stund fyrir ríkisstjómina. Ráð-
herramir voru raunar búnir að
lofa stórum pakka frá sjálfum sér
þegar samningar væru komnir á
lokastig og þegar VR og Iðja og
rafiðnaöarmenn semja og svíða
jörðina undan hinum þeim sem
enn era í skotgröfunum kætist
ríkisstjómin að sönnu og getur
ekki lengur beðið með pakkann
góða.
Hún opnaði hann í gær og
dreifði góðgætinu út um allt borð.
Gjörið svo vel, sagði forsætisráð-
herra, fimm milljarðar í skatta-
lækkunum, takk fyrir.
Fjármálaráðherra var kannske
ekki alveg eins glaður í bragði en
bar sig mannalega og sagði að
þetta væri ekki alveg eins mikil
gjafmildi og forsætisráðherra
vildi vera láta. Ríkissjóður mundi
ná þessum peningum inn í óbein-
um sköttum. Fólkið mrnidi eyða
peningunum með einum eða öðr-
um hætti og tapiö mundi allt
skila sér aftur í ríkissjóö.
Það breytir hins vegar ekki því
að ríkisstjómin er góð og ráð-
herrarnir eru góðir og vilja allt
fyrir okkur gera og eru þakklátir
þeim verkalýðsforingjum sem
hafa samið á undan hinum til að
eyðileggja samningana fyrir þeim
sem eftir era.
Þeir ætla meira að segja að
borga okkur skattana til baka.
Skattalækkanirnar eru afturvirk-
ar. Hluta staðgreiðslmmar í ár
verður skilað aftur fyrir aldamót
og nú er bara um að gera að
halda lífi í nokkur ár í viðbót og
þá munum við upplifa skatta-
lækkanir og endurgreiðslur á
gömlum sköttmn og þetta er alveg
stórkostleg lífsreynsla fyrir marg-
ar kynslóðir íslendinga sem
aldrei hafa áður orðið vitni að því
að ríkisstjóm skili aftrn- sköttum
sem hún hefur innheimt.
Þetta er líka kveðja til þeirra
sem eftir eiga að semja. Ætla þeir
virkilega að halda kaupkröfum
sínum til streitu eftir að ríkis-
sfjórnin hefur sýnt þessa gjaf-
mildi og þessa göfugmennsku?
Það er ekki neitt til-í stöðunni
annað en að þeir standi upp og
þakki fýrir sig og kyssi ríkis-
stjórnina fyrir gjöfina. Það væri
bara frekja að heimta annan
pakka.
Dagfari