Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997 5 ðv Fréttir Þjár smámyndir SÁÁ: Tilnefndar til verðlauna á alþjóðlegri kvik- myndahátíð Þrjár smámyndir SÁÁ um fíkni- efnavandann, sem sýndar voru i kvikmyndahúsunum í lok sl. árs, hafa verið útnefndar til verðlauna á alþjóðlegri kynningarmyndahátíð í Búdapest sem her nafnið Prince Award ’97. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk- ar kynningarmyndir eru útnefndar til Prince-verðlaunanna. Myndirnar eru sérstaklega ætlaðar ungu fólki sem sækir kvikmyndahúsin í mikl- um mæli. Skilahoð myndanna eru mjög skýr, áhrifamikil og endur- spegla umhverfíð sem unga fólkið býr nú við. Talið er að á annað hundrað þúsund manns hafi séð myndirnar sem verða endursýndar með vorinu. Leikstjóri er Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri en handrits- höfundur er Páll Pálsson. Grandi hf. styrkti gerð forvarnarmyndanna með tveggja milljón króna framlagi í tilefni 10 ára afmælis fyrirtækis- ins. -RR Hættuljós á bifreiðum: Margir ökumenn vita ekki hvernig á að nota þau - segir lögreglan „Það hefur nokkuð borið á því að ökumenn viti ekki hvernig þeir eiga að nota svonefnd hættu- ljós á bifreiðum sínum. Það hefur sést til ökumanna nota slík ljós þegar þeir hafa stöðvað á akbraut til að hleypa út eða taka upp far- þega, eða jafnvel þegar þeir leggja ólöglega á akbraut til að hlaupa rétt snöggvast inn í næstu versl- un,“ segir Ómar Smári Ármanns- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík. Ómar Smári segir að full ástæða sé að vekja athygli á reglugerð um gerð og búnað ökutækja. „Þar segir orðrétt að hættuljós séu ætluð til notkunar ef ökumað- ur neyðist til að stöðva ökutækið þannig að hætta skapist skyndi- lega eða ef ökutæki stendur óöku- fært á vegi eftir árekstur, skemmt eða bilað þannig að annarri um- ferð stafi hætta af,“ segir Ómar Smári. -RR Umferðarslys: Lögreglumaður slasaðist Lögreglumaður varð fyrir bil á Kringlumýrarbraut í fyrradag. Lögreglumaðru'inn var að gera athugasemd við bíl sem stöðvað- ur hafði verið á götunni þegar aftanákeyrsla varð nokkra metra þar frá. Annar bíllinn kastaðist áfram og á lögreglumanninn. Hann hlaut áverka á hálsi, haki og mjöðm en er ekki talinn alvar- lega slasaður og fékk að fara heim af slysadeild að lokinni rannsókn. Ökumaður bifreiðarinnar, sem ekið var aftan á og kastaðist á lög- reglumanninn, var einnig fluttur á slysadeild en meiðsl hans reyndust minni háttar. -RR Jeppi valt hjá Hólmavík Jeppabifreið valt skammt frá Hólmavík í fyrrakvöld. Ökumaður jeppans missti stjóm á bifreiðinni í skafli og valt hún á veginum. Ökumaður slapp ómeiddur og hljóp tæpa 4 kílómetra til Hólmavík- ur í vonskuveðri til að sækja aðstoð. Jeppinn er talinn nokkuð skemmd- ur. -RR Heimilistæki STORKOSTLEGT VETRARTILBOÐ OPIÐ: Mánud.-föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 Takmarkað magn Gildir 8.-15. mars Samstæða Þvottavél og þurrkari. & RS&< Verð frá kr. Frystiskápar 140 lítra. H.85B.60D.60 Þvottavél sem tekur 5 kg af þvotti. 800 snún- inga. 18 kerfi + sparnaðarkerfi. Þurrkari fyrir 4,5 kg af þvotti. Veltirfram og aftur. Barki fylgir. 24.900 stgr. Keramik helluboró, 2-4 hraðhellur, með eða án halogen og stækkanlegri hellu. 3$ ■ Isskápur, 290 lítra og 67 lítra frystir. H. 143 B. 60 D. 60 cm. Jm Innbyggingarofn, efri eða neðri, með blæstri, 8 eldunarkerfum, klukku, grilli, grillteini, sjálf- hreinsibúnaói, meó eða án kæliviftu. Litir: hvítt/brúnt, spegill, burstað stál, spegill, antik. Innbyggingarofn HT 510, efri eða neðri án blásturs, með tímarofa, grilli, mótor- drifnum grillteini og sjálfhreinsibúnaði. Litir: hvítt/brúnt • MiiliiÍilt' .V * ■m. Brauðrist, tekur 4 sneiðar. Djúpsteikingarpottar, 2 gerðir, taka 2,3 lítra. 2000 vött. Veggháfar, margar gerðir. Breidd 60,70 og 90 cm. Litir: hvítt, brúnt, svart og burstaó stál. Kaffikanna, 6 bolla, með dropastoppara og netsíu. v/Fellsmúla - sími 588 7332 ( Verslun fyrir alla ") Gufustraujárn. Nokkrir litir og gerðir. ATH. einnig sérstakt tilboðsborð með smávöru á ótrúlegu verði nwm ««903 « 5670«« Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.