Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997
51
Fréttir
Framkvæmdir fyrir Varnarliðið:
Aðalverktakar að fjarlægja gam-
alt eldsneytiskerfi af vellinum
DV, Suðurnesjum:
íslenskir aðalverktakar hafa feng-
ið nokkrar verkiegar framkvæmdir
á vegum Varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli í ár. Meðal þeirra er
sjúkrahúsið og felst verkið i endur-
nýjun á lagnakerfí, hita- og loft-
ræstilögnum, lögnum fyrir loftteg-
undir til lækninga, vatnsslökkvi-
kerfi, eldviðvörunarkerfi, lýsingu
og loftklæðningu. Verkið er nýhafið
og áætlað að því ljúki i mars 1998.
Upphæð verksamnings er 276,5
milljónir.
Að sögn Friðþórs Kr. Eydals, upp-
lýsingafulltrúa Vamarliðsins, verð-
ur nokkur röskun á starfsemi spítal-
ans meðan á framkvæmdum stend-
ur og hefur hluti starfseminnar ver-
ið fluttur í annað húsnæði.
Þá munu ÍAV fjarlægja í ár 20
stóra eldsneytisgeyma sem eru hluti
af gömlu eldsneytisfyllingarkerfi
fyrir flugvélar við akstursbraut K á
flugvellinum. Þeir verða grafnir úr
jörðu og fjarlægðir ásamt dælubún-
aði og mannvirkjum þeim tengdum.
Kostnaður við verkið er 112 milljón-
ir.
Við gömlu flugstöðina á vellinum,
sem nú þjónar flugumferð á vegum
Vamarliðsins, hefúr verið byggður
nýr inngangur frá flughlaði í flug-
stöðina. Verkinu er lokið að undan-
skilinni veggklæðningu og málun
utanhúss sem hvort tveggja verður
framkvæmt í vor. Kostnaður við
verkið er um 19,4 milljónir. ÍAV
hafa verið að byggja stóra vöm-
geymslu ásamt skrifstofum við mat-
vömverslun Varnarliðsins ásamt
endumýjun á verslunarhúsnæðinu.
Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki í
júlí. Kostnaður er um 807 milljónir.
-ÆMK
Akranes:
Söguritara sagt upp
DV, Akranesi:
Stjórn ritnefndar um sögu Akra-
ness ákvað nýlega að senda Jóni
Böðvarssyni samningsdrög um
starfslok. Jón hefur haft með hönd-
um það verkefni að skrifa sögu
Akraness sem upphaflega átti að
koma út í þremur bindum. Aðeins
eitt bindi í bókaflokknum er komið
út.
Annað hindið átti að koma út á
síðasta ári og þrátt fyrir ítrekuð lof-
orð varð ekkert af því að Jón skilaði
af sér verkefninu. Því var ákveðið
að senda honum samningsdrög um
starfslok og hefur verið rætt við
Gunnlaug Haraldsson um að hann
taki að sér að ljúka við verkefnið.
Hann hefur lagt fram drög að efhis-
skrá fyrir þrjú hindi að sögu Akra-
ness. Nú er vonast til þess að skrið-
ur komist á að ljúka við bókaflokk-
inn því Gunnlaugur hefur fallist á
að taka að sér verkið. Hann skrifaði
meðal annars sögu Akranesskirkju
sem var mikið verk og vel unnið.
-DVÓ
H ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboöum í verkið:
“Suðurlandsbrautaræð - Endurnýjun 1997”.
Endurnýja skal hlutann frá Sæbraut að festu austan við Mörkina
nr. 8. Helstu magntölur eru:
DN450/DN630 pípur í plastkápu: 650 m
Stokklok og pípur fjarðlægöar: 535 m
Yfirborðsfrágangur 2000 m2
Útboösgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 15.000 skilatr. Opnun út-
boða: þriðjud. 1. apríl 1997, kl. 14:00 á sama staö. hvr33/7
ÍNNKÁ ÚPÁSfÓFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
Starfsmenn aðalverktaka að koma fyrir tækjum við sjúkrahús Varnarliðsins.
DV-mynd ÆMK
Þú gætir eignast þessa
Macintosh tölvu
ásamt mótaldi
með því að
fylgjast með
í DV!
Taktu þátt í laufléttri og
skemmtilegri getraun með DV og
Apple-umboöinu og þú gætir
eignast PERFORMA 6320/120
Macintosh tölvu meö mótaldi, aö
verömæti 150.000.
Tölvan er öflug, meö gott minni,
hraðvirkt geisladrif og stóran
harðdisk. Hvort sem nota
á tölvuna við vinnu,
nám, leik eða flakk <;
um veraldarvefinn
þá leysir hún vand-
ann á skjótan og auðveld-
an hátt.
Safnaðu saman öllum 7 þátttökuseðl-
unum, sem birtast frá 5.-12. mars, fylltu þá
út, sendu til okkar og þú ert kominn í pottinn.
ote.
ÞVERHOLTI 11 - SIMI 550 5000
Apple-umboðið hf
SKIPHOLTI 21 - SÍMI 511 5111
Heimasiöa: http://www.apple.is
Spurning nr. 7
Hvaba glœsilega
aukablab fylgir DV
í dag?
( ) Jólagjafahandbók
( ) Fermingargjafahandbók
( ) Aukablaö um ferbir
Nafn:______________;_____________________________________
Heimilisfang:____________________________________________
Póstnúmer:_______________________________________________
Kennitala:___________________ Sími:_____________=_________
Sendist til DV - Þverholti 11
Merkt: Makki - 105 Reykjavík
Skilafrestur er til 19. mars.