Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Qupperneq 13
MIÐVIKnDAGUR 12. MARS 1997 13 Fréttir ar „viðbragðsnefndar" Nefnd sem á að koma saman þegar hætta er á mengun: Ekki ástæða til fund- Strand Vikartinds við Þjórsárósa kom til umræðu á Alþingi í gær. Þingmenn vildu vita til hvaða aðgerða stjórnvöld gripu þegar hætta væri á umhverfisslysi. Umhverfisráöherra sagði aö fyrr hefði mátt grípa til aðgeröa. DV-mynd ÞÖK Við utandagskránunræðu á Al- þingi í gær þar sem rætt var um strand Vikartinds sagði Margrét Frí- mannsdóttir að umhverfisráðherra hefði svarað sér því skömmu áður að sérstök umhverfisnefnd sem hún hafði spurt um ætti hvorki að fjalla um skipulag né undirbúning aðgerða - því hefði hún ekki verið kölluð til. Margrét vísaði þá til svars Eiðs Guðnasonar, fyrrum umhverflsráð- herra, við fyrirspum Kristínar Ást- geirsdóttur á Alþingi árið 1992. Þar hafði Kristín m.a. spurt til hvaða ráð- stafana hefði verið gripið i tengslum við umhverfisslys við strendur lands- ins. í svari Eiðs kom fram að hann hafði skipað nefnd og las Margrét upp hlutverk nefndarinnar sam- kvæmt erindisbréfi. Þar kom m.a. fram að umhverfis- ráðuneytið hefði skipaö nefnd sér- fróðra manna til að kanna hvemig haga skuli rannsókn á lífríki þegar mengunaróhöpp og bráðamengun verður í sjó hér við land. Nefndin á að koma saman þegar mengunar- óhöpp verða - eða þegar hætta er á sllku - hún á að meta mengunar- hættu, skipuleggja rannsóknir á líf- ríki og leiðbeina um viðbrögð og samræma aðgerðir einstakra stofn- ana. Jafnframt sagði Margrét að hlut- verk hennar sé jafnframt að vera eins konar viðbragðsnefnd sem geri ráðstafanir og tillögur er óhapp ber að höndum. „Þessi nefnd er enn til, skipuð sömu mönnum og í henni vom árið 1991 og þess vegna vekur það furðu að hún skuli ekki hafa verið kölluð til strax og strandið átti sér staö,“ sagði Margrét Guðmundur Bjamason umhverfis- ráðherra sagði um það að ekki skyldi hafa verið bragðist strax við hvað varðaði raslið í fjörunni aö hann ætl- aði ekki að leggja dóm á hvort standa hefði mátt eitthvað öðravísi að því máli. Guðmundur sagðist hins vegar telja að þeir sem stjómuðu aðgerðum við Vikartind hefðu leitað allra leiða til að verjast stærri óhöppum og áföllum eins og olíumengun og meng- un frá hættulegri efaum. „Auövitað má segja að það hefði þurft að gerast fyrr,“ sagði Guð- mundur og benti á að fundur hefði verið haldinn á mánudag og annar fundur í gær. í tengslum við framangreinda nefnd sem Margrét vísaði til sagði Guðmundur að henni væri fyrst og fremst ætlað að fjalla um „mengun- aróhöpp og það sem við myndum kalla stærri slys, en á að koma sam- an þegar hætta er á slíkri mengun." Guömundur sagði síðan að þar sem málin væru undir handleiðslu og stjóm Hollustuvemdar ríkisins hafi formaður hennar ekki talið ástæðu til að koma saman. „En hún mun að sjálfsögðu fylgjast með málinu og grípa til upplýsinga um hvemig viö verði brugðist eftir því sem framvindan verður." -Ótt Heimild til að grípa fram fyrir hendur skipstjóra: Yröi flokið aö setja séríslenskar reglur - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra „Hér hefur verið um það rætt að setja séríslenskar reglur sem taka ekki mið af alþjóðlegum reglum og venjum sem gilda um skipsferðir og forræði skipstjóra á skipi sínu. Ég tel að það yrði flókið að setja slíkar reglur og að þær gætu skapað ragl- ing,“ sagði Davíð Oddsson forsætis- ráðherra við utandagskráramræðu á Alþingi um strand Vikartinds í gær. Til stuðnings framangreindu áliti sinu sagði forsætisráðherra m.a.: „Hvernig á skipstjóri sem siglir um heimsins höf að vita að fyrst þegar hann kemur í námunda við íslandsstrendur þá gildi aðrar regl- ur en gilda almennt í alþjóðalögum og samningum um slíkar ferðir? Hvenær á ábyrgð að færast frá skip- stjóra yfir á hendur skipherra Land- helgisgæslunnar? En ég tek undir að það er skynsamlegt fyrir þingið að fá ítarlega skýrslu þegar málið liggur ljósar fyrir en nú er og dóm- stólar hafa farið með sitt hlutverk." -Ótt Ísaíjörður: Félagsmenn í Baldri hvetja til vinnustöðvunar DV, ísafirði: Um 90 manna félagsfundur í Verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði, sem haldinn var á miðvikudags- kvöld, skorar á félagsmenn að sam- þykkja vinnustöðvun félaganna frá og með 2. apríl nk. ef ekki hafi náðst samningar fyrir þann tíma. Þá skorar fundurinn á félags- menn að standa einhuga að baki kröfú um 100 þús. króna lágmarks- laun og öðram kröfum sem lagðar hafa verið fram sameiginlega á veg- um Alþýðusambands Vestfjarða. Fundurinn telur skilningsleysi og skeytingarleysi vinnuveitenda á Vestfjörðum með ólíkindum. Þá seg- ir að þar sem svör vinnuveitenda við hógværum kröfum verkafólks hafi veriö á þann veg að hafna þeim öllum sé ekki önnur leið fyrir hendi en láta þá fá það stríð sem þeir hafa beðið um. -HKr. Auglýsing um framlagn- ingu skattskrár 1996 og virðisaukaskattskrá fyrir rekstrarárið 1995. í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- skatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagning skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem skatt- skyldir eru skv. framangreindum lögum, sbr. 1. kafla laga nr. 75/1981. Samkvæmt 46. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breytingum, um virðisaukaskatt, hefur verið tekin saman virðisaukaskattskrá fyrir rekstrarárið 1995 og liggur hún frammi. í henni er tilgreindur ákvarðaður virðisaukaskatt- ur eða endurgreiddur virðisaukaskattur hvers virðisauka- skattskylds aöila. Skattskrár og virðisaukaskattskrár verða lagðar fram í öllum skattumdæmum miövikudaginn 12. mars 1997 og liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi og hjá umboðsmönnum skattstjóra fyrir hvert sveitarfélag dagana 12. mars til 25. mars að báðum dögunum með- töldum. 12. mars 1997 Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vesffjaröarumdæmi. Sigríöur B. Guöjónsdóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra. Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Kart Lauritzson. Skattstjórinn í Suöurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson. Hverfafundnr með borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfafund með íbúum í Háaleitis- Smáíbúða- Bústaða- Fossvogs- og Múlahverfi í Réttarholtsskóla fimmtudaginn 13. mars kl. 20.00. Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.