Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Page 26
58
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 1997
Afmæli
Kristjana Pórdís Ásgeirsdóttir
Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir
tónmenntakennari, Klukkubergi
16, Hafnarfirði, er fertug í dag.
Starfsferill
Kristjana fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún lauk tón-
menntakennaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík 1980.
Kristjana Þórdis hefur kennt í
forskóla og tónfræði við Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar frá 1980.
Þá hefur hún stjómað kór skól-
ans um skeið.
Kristjana Þórdís stjórnaði
Kvennakór Suðurnesja 1980-81
og 1982-83, hefur verið organisti
við Fríkirkjuna í
Hafnarfírði frá 1989 og
stjómað þar
kirkjukórnum og
barnakór frá stofnun
hans 1990. Þá stjórnar
hún Skátakór St. Ge-
orgsskáta í Hafnar-
firði.
Fjölskylda
Kristjana Þórdís Kristjana Pórdís
giftist 2.7. 1978 Guðna geirsdóttir.
Gíslasyni, f. 16.10.
1957, innanhúshönn-
uði. Hann er sonur Gísla Jóns- um;
sonar, fyrrv. prófessors, og Mar- 1958,
grétar Guðnadóttur,
fulltrúa á Skattstofu
Reykjanesumdæmis.
Börn Kristjönu Þórdís-
ar og Guðna eru Gísli,
f. 28.6.1979, skiptinemi
i Þýskalandi; Kristján,
f. 14.11. 1981; Jakob, f.
26.1. 1986; Smári, f.
29.11. 1988; Jón, f. 1.11.
1996.
Hálfbróðir Kristjönu
Þórdísar, samfeðra, er
Guðlaugur Larry
Keen, f. 12.4. 1953, bú-
settur í Bandarikjun-
Guðrún Ásgeirsdóttir, f. 10.5.
, bankastarfsmaður, búsett í
As-
Reykjavík; Lilja Petra Ásgeirs-
dóttir, f. 8.12.1961, meinatæknir í
Mosfellsbæ; Guðlaug Ásgeirsdótt-
ir, f. 16.11. 1962, leikskólakennari
í Reykjavík; Níels Ámi Ásgeirs-
son, f. 23.7. 1965, búsettur í
Bandaríkjunum.
Foreldrar Kristjönu Þórdísar
eru Ásgeir Beck Guðlaugsson, f.
18.12. 1929, forstöðumaður í
Reykjavík, og k.h., Amdís Lilja
Níelsdóttir, f. 10.1. 1935, húsmóð-
ir.
Kristjana Þórdís tekur á móti
ættingjum og vinum að heimili
sínu á afmælisdaginn eftir kl.
19.00.
Hjörtur Snorrason
Foreldrar Hjartar eru Snorri Hjartarson, f.
7.3. 1931, rafvirkjameistari á Akranesi, og
Helga Kristín Bjarnadóttur, f. 2.3.1931, d. 27.5.
1990, húsmóðir.
Ætt
Snorri er sonur Hjartar Jónssonar, hrepp-
stjóra og útvegsb. á Hellissandi, og k.h., Jó-
hönnu Vigfúsdóttur húsfreyju.
Helga Kristín var dóttir Bjarna M. Krist-
mannssonar og Ásthildar V. Jónsdóttur frá
Akranesi.
Andlát
Hjörtur Snorrason, raf-
tæknifræðingur hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur,
Otrateigi 12, Reykjavík, varð
fertugur í gær.
Starfsferill
Hjörtur fæddist á Akranesi
og ólst þar upp. Hann stund-
aði nám við Iðnskólann á
Akranesi, lauk prófi í raf-
virkjun, stundaði síðan nám í
Danmörku og lauk þaðan tæknifræði-
prófi.
Fjölskylda
Hjörtur Snorrason.
Eiginkona Hjartar er Ingibjörg Jóhanns-
dóttir, f. 24.4. 1958, húsmóðir.
Dætur Hjartar og Ingibjargar eru Berg-
þóra, f. 29.9. 1984; Helga Kristín, f. 30.5.
1989.
Systur Hjartar eru Ásthildur Bjarney
Snorradóttir, f. 14.9. 1952; Margrét
Snorradóttir, f. 22.10. 1961.
Ingólfur Möller
Ingólfur Möller skipstjóri, Dal-
braut 21, Reykjavík, lést laugar-
daginn 1.3. sl. Útför hans fór fram
frá Neskirkju í gær.
Starfsferill
Ingólfur fæddist í Reykjavík
13.2. 1913 og ólst þar upp. Hann
lauk stýrimannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum i Reykjavík 1934.
Ingólfur fór ungur til sjós, var
léttadrengur og háseti á varðskip-
um og háseti á farskipum
1928-34, var stýrimaður á Brúar-
fossi og á Heklu 1934-39, starfaði
við lagningu hitaveitu í Reykja-
vík, var hafnsögumaður við
Reykjavíkurhöfn 1940-47, var síð-
an samfellt skipstjóri 1947-66,
lengst af á skipum Jökla hf, var
búða- og starfsmannastjóri hjá
Fosskraft við Búrfellsvirkjun
1966-69 en réðst þá til Eimskipa-
félags íslands. Þar starfaði hann
fyrst við hágræðingu við vöruaf-
greiðslu Eimskips í Evrópu en
frá 1972 og til starfsloka 1983 var
hann vöruafgreiðslustjóri Eim-
skips í Reykjavík.
Ingólfur var félagi í Skipstjóra-
félagi íslands frá 1948, formaður
þess 1957-62 og heiðursfélagi þess
frá 1985, formaður sóknarnefndar
Nessóknar 1968-70, var félagi í
Karlakórnum Fóstbræðrum frá
því á stríðsárunum og starfaði
með Gömlum Fóstbræðrum frá
stofnun, var félagi í Frímúrara-
reglunni og virkur í félagsstarfi
Sjálfstæðisflokksins auk þess
sem hann skrifaði greinar í dag-
blöð um þjóðmál og atvinnumál.
Ingólfur var sæmdur riddara-
krossi Hinnar íslensku Fálka-
orðu 1980.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 19.10. 1936,
Brynhildi Skúladóttur, f. 19.1.
1915, d. 10.12. 1995, húsmóður.
Foreldrar hennar voru Skúli
Jónsson, kaupfélagsstjóri á
Blönduósi, og k.h., Elín Friðriks-
dóttir húsmóðir.
Börn Ingólfs og Brynhildar eru
Skúli, f. 20.4. 1939, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Kristínu Sjöfn
Helgadóttur og eiga þau einn son
auk þess sem Skúli á
tvö börn frá fyrra
hjónabandi með Ástu
Högnadóttur; Jakob
Ragnar, f. 7.11. 1940,
hrl; Þóra, f. 7.6.1942, d.
14.8. 1969, var gift Jóni
Þórhallssyni og eign-
uðust þau einn son;
Elín, f. 16.9. 1946, hús-
móðir og ritari, gift
Jóni G. Baldvinssyni
og eiga þau fjögur
böm; Anna Ragnheið-
ur, f. 18.8. 1952, fram-
kvæmdastjóri, gift Stefáni Hjalte-
sted og eiga þau þrjár dætur. Son-
ur Þóru og Jóns Þórhallssonar er
Ingólfur, f. 19.9. 1966, kvæntur
Hafdísi Hreiðarsdóttur, en Ingólf-
ur var að mestur leyti alinn upp
hjá Ingólfi, afa sínum, og Bryn-
hildi.
Systkini Ingólfs: Gunnar Jens,
f. 30.11. 1911, d. 6.6. 1988, hrl. og
forstjóri Sjúkrasamlags Reykja-
víkur; Baldur, f. 19.8. 1914, fyrrv.
ráðuneytisstjóri; Þórður, f. 13.1.
1917, d. 2.8. 1975, yfirlæknir.
Hálfsystir Ingólfs, samfeðra, er
Helga Möller Thors, f.
18.2. 1923.
Foreldrar Ingólfs voru
Jakob Möller, f. 12.7.
1880, d. 5.11. 1955,
alþm., ráðherra og
sendiherra, og k.h.,
Þóra Guðrún Guðjohn-
sen, f. 9.11.1887, d. 25.5.
1922, húsmóðir.
Ætt
Jakob var sonur Ole
Peter Christian Möller,
kaupmanns á Hjalteyri, og k.h.,
Ingibjargar Gísladóttur.
Þóra var dóttir Þórðar
Guðjohnsen, kaupmanns á Húsa-
vík og í Danmörku, Péturssonar
Guðjohnsen, organista í Reykja-
vík, ættfoður Guðjohnsenættar-
innar. Móðir Þórðar var Guðrún
Sigríður, dóttir Lauritz Michael
Knudsen, kaupmanns í Reykja-
vík, og k.h., Andreu Hölter, ætt-
foreldra Knudsenættarinnar.
Móðir Þóru var Þuríður Indriða-
dóttir, b. í Prestshvammi Davíðs-
sonar.
Ingólfur Möller.
Fréttir
Eskiljörður:
Skrautklædd börnin glöddu alla
DV, Eskifirði:
Alltaf er jafn skemmtilegt í
Hulduhlíð, dvalarheimili aldr-
aðra á Eskifirði. Bolludagurinn
var dásamlegur og bollumar svo
góðar að elsta fólkið hér segist
ekki hafa smakkað jafn góðar
bollur áður.
Þá var saltkjöt eins og lög gera
ráð fyrir á sprengidag og á ösku-
daginn komu á annað hundrað
börn um morguninn í smáhópum
og sungu af mikilli glaðværð.
Gladdi það viðstadda mikið hve
börnin syngja vel og eitt þeirra,
Kristín Auðbjörnsdóttir, 9 ára,
söng einsöng svo skýrt og fallega.
Hún er dóttir Svanbjargar Páls-
dóttur, sem er yfirhjúkrunar-
kona í Hulduhlíð. Ámi Helgason
framkvæmdastjóri gaf börnunum
vel útilátið sælgæti að launum og
kvöddu bömin glöð í bragði.
Þórhallur Þorvaldsson kennari
kennir börnunum söng í skólan-
um, og tala þar verkin vel. En
hvað það er nú upplífgandi að
heyra blessuð bömin syngja, svo
frjáls og falleg og í skrautlegum
fatnaði.
Regína
-----------------------------’WÆÆÆ.
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafslðttur og stighcekkandi
'ÆÆÆÆÆÆÆÆÆWWÆÆÆÆA
oW milli hinr)jn,
X
Smáauglýsingar
birtingarafsláttur
550 5000
Tll hamingju
með afmælið
12. mars
90 ára
Þuriður Skúladóttir,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
Hún tekur á móti vinum og vandamönnum í
matsalnum að Bólstaðarhlíð 43, laugardaginn
15.3. kl. 15.00- 17.00.
80 ára
Lára Fjeldsted Hákonardóttir,
Hrísateigi 1, Reykjavík.
75 ára
Ásta Gísladóttir,
Lindargötu 61, Reykjavík.
70 ára
Páll Hjaltalín Árnason,
Nónási 3, Raufarhöfn.
60 ára
Þórður Bjamason,
Borgarholtsbraut 43, Kópavogi.
Ásmundur Ólafsson,
Hrauntungu 18, Hveragerði.
Gísli Jónsson,
Rjúpufelli 36, Reykjavík.
Sigríður Sigurbergsdóttir,
Sæviðarsundi 19, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Björn
Pálsson.
Þau hjónin taka á móti gest-
um í Akoges-salnum, Sigtúni
3, Reykjavík, fóstudaginn
14.3. milli kl. 18.00 og 20.00.
50 ára
Guðmundur Jens Þorvarðarson,
Bakkaseli 32, Reykjavík.
Reynir Pétursson,
Tangagötu 16, ísafirði.
Steindór Ögmundsson
vélstjóri,
Túngötu 30, Tálknafirði.
Steindór tekur á móti ættingj-
um og vinum í Dunhaga á
Tálknaflrði, laugardaginn
15.3. frá kl. 21.00 og vonast tU
að sjá sem flesta.
Kristín Björnsdóttir,
Jöklatúni 2, Sauðárkróki.
Lilja Sörladóttir,
Vogalandi 16, Reykjavík.
Guðrún VUhjálmsdóttir,
IQettagötu 14, Hafnarfirði.
Ásta Sigurðardóttir
kaupmaður,
Lækjarhvammi 20, Hafhar-
firði.
Eiginmaður hennar er Þor-
steinn Háifdánarson.
Þau hjónin taka á móti gest-
um í Golfskálanum á Hval-
eyrarholti á afmælisdaginn, milli kl. 19.30 og
23.00.
40 ára
Elfa Signý Jónsdóttir,
Urðargerði 1, Húsavík.
Sigríður G. Sigurðardóttir,
Lerkihlíð 2, Sauðárkróki.
Hulda Sigurðardóttir,
HávaUagötu 27, Reykjavík.
Tvíburasystumar,
Hjördis Valgarðsdóttir,
Kötlufelli 9, Reykjavík og
Ragnheiður Valgarðsdóttir Brændgaard,
búsett í Danmörku.
Guðmundur Karvel Pálsson,
Hlíðarvegi 12, Suðureyri.
Baldur Ólafur Svavarsson,
Lyngmóum 16, Garðabæ.
Magnús Þór Jónsson,
Krosshömrum 17, Reykjavík.
Ásta Björk Bjömsdóttir,
Suðurvangi 4, Hafnarfirði.
Sigrún Ólafsdóttir,
Öldugötu 29, Reykjavík.
Dagný Magnúsdóttir,
Baugatanga 3, Reykjavík.
Eiður Gunnlaugsson,
Reykjasíðu 5, Akureyri.
Gísli Hjörtur Guðjónsson,
Strandgötu 63, Eskifirði.
Þorsteinn G. Þórarinsson,
Litlu-Tungu I, Holta- og Landsveit.
Sólveig Edda Bjamadóttir,
Mánabraut 3, Höfn í Hornafirði.
Birgir Ólafsson,
Unufelli 50, Reykjavík.