Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1997, Page 32
—■"‘V
FRETTASKOTIÐ
SI'MINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Rektorskjör í HÍ:
Prófkjör á
föstudag
. - fundur í dag
'-TT prófkjör fer fram á föstudaginn
kemur vegna rektorskjörs í Háskóla
íslands. Sjálft rektorskjörið fer fram
mánuöi síðar, eða 16. apríl. Fimm
prófessorar hafa lýst yfir áhuga á að
gegna rektorsembættinu næsta
kjörtímabil, en þeir eru Jón Torfi
Jónasson, prófessor í uppeldis- og
menntunarfræðum, Páll Skúlason
heimspekiprófessor, Vésteinn Óla-
son, prófessor í ísl. bókmenntum,
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræði-
prófessor og Þórólfur Þórlindsson
félagsfræðiprófessor.
í dag standa Stúdentaráð og Félag
háskólakennara fyrir framboðsfundi
í Háskólabíói þar sem ofantaldir pró-
fessorar flytja framsöguræður og
svara fyrirspurnum. Ailir prófessor-
ar Háskólans eru kjörgengir í rekt-
orskjöri, þannig að fleiri en þeir sem
lýst hafa áhuga á embættinu kunna
að fá atkvæði í prófkjörinu á föstu-
dag. Mönnum mun hins vegar vera i
sjálfsvald sett hvort þeir taka þátt í
síðari umferðinni, hinu raunveru-
lega rektorskjöri sem fram fer 16.
mars, en þar verður væntanlegur
rektor að ná hreinum meirihluta til
að ná kjöri. -SÁ
ísfiskstogari
dreginn til
Eskifjarðar
DV, Eskifirði:
ísfiskstogarinn Hegranes SK 2 frá
Sauðárkróki fékk trollið í skrúfuna
þar sem hann var á veiðum í Rósa-
garðinum í fyrrinótt. Um hádegis-
bilið í gær tók skuttogarinn Hólma-
tindur frá Eskifirði Hegranesið í tog
og komu skipin til Eskifjarðar í
morgun. Um 100 sjómílur eru úr
Rósagarðinum tii Eskifjarðar og
gekk ferðin vel. Ganghraði 5-6 sjó-
mílur á klukkustund. Regía
MjótQörður:
Áhyggjur af
eins tonns báti
Tilkynningaskyldan fékk tilkynn-
ingu i fyrrakvöld þar sem skipverj-
ar á báti í Mjóafirði höfðu áhyggjur
af eins tonns báti með utanborðs-
mótur sem farið hafði út úr firðin-
um. Vont veður var á þessum slóð-
um þegar tilkynningin barst og
fylgdist Skyldan með bátnum þar til
hann var kominn heill í höfn. Sú
var tíðin að bátar af þessari stærð-
- argráðu voru uppi á landi á þessum
árstíma. -sv
Kjarasamningamir aftur af stað:
Skref í rétta
átt eftir kyrr-
stöðuna
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
Þeir Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, og Halldór
Bjömsson, formaður Dagsbrún-
ar, hittust í gær á fúndi í stjóm
Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og
Framsóknar. Þar talaðist þeim
svo til að halda sáttafund i dag
með Dagsbrún, Framsókn og
Verkamannasambandinu. Þar
verða sérkröfur Dagsbrúnar
ræddar ásamt öðrum atriðum í
kröfum þessara aðila. Þar með er
komin hreyfmg á samningamál
þessara aðila en ríkt hefur svo-
kallaö alfrost milli þeirra eftir að
samið var við VR, Rafiðnað-
arsambandið og Iðju.
„Það má vel orða það svo að
það sé Ijós í myrkrinu að menn
fari aftur að tala saman. Það er
skref i rétta átt eftir þá kyrrstöðu
sem. verið hefur í samningavið-
ræðum þessara aðila síðan um
síðustu helgi," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, í samtali við DV í morgun.
Halldór Björnsson var ekki
jafn bjartsýnn þrátt fyrir boðað-
an samningafund. Það er greini-
legt að mikil reiði er ríkjandi hjá
þeim sem ekki sömdu aðfaranótt
mánudagsins út í þá sem sömdu.
„Ég á ekki von á því að ein-
hver hreyfing komist á samn-
ingamálin þrátt fyrir þennan
fund í dag. Ég fæ ekki séð hvem-
ig VSÍ á að fara aö því sveigja af
þeirri braut sem mörkuð var
með samningunum við Iðju, VR
og Rafiðnaðarsambandið á dög-
unum. Að mínu mati voru þeir
samningar svik við verkalýðs-
hreyfinguna af hálfu þessara
þriggja aðila sem gerðu samning-
inn við VSÍ,“ sagði Halldór
Björnsson, formaður Dagsbrún-
ar, í morgun.
í morgun hófst verkfall jám-
iðnaðarmanna við Reykjavíkur-
höfn. Leggst þá af öfl viðhalds- og
viögerðarvinna við krana og
fleiri tæki við höfnina.
-S.dór
Ásgeir Magnússon skipstjóri á bjargbrúninni. Það var dapurleg sjón aö sjá bátinn liðast í sundur. DV-mynd æmk
Stækkun járnblendis:
Elkem leitar
samkomulags
Viðræður standa nú yfir milli ís-
lenskra stjómvalda og Elkem í Nor-
egi um stækkun Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grandartanga og meiri-
hlutaeign Elkem i verksmiðjunni.
Viðræðunefnd frá Noregi er nú
stödd hér á landi en viðræðurnar
hófust á ný á mánudag, eftir að upp
úr þeim slitnaði í síðustu viku.
Stjómendur Elkem munu hafa ósk-
að eftir því að reyna til þrautar að
ná samkomulagi. Þorsteinn Hilm-
arsson, upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar, sagði í morgun að þar
væri beðið eftir niðurstöðu við-
ræðnanna, en engin beiðni um
aukna orku til verksmiðjunnar
hefði verið lögð fram enn að
minnsta kosti. Ekki náðist í iðnað-
arráðherra í morgun. -SÁ
Rafvirkjar:
Felldu í gær en
kusu aftur í
morgun
Kjarasamningurinn, sem Rafiðn-
aðarsambandið gerði fyrir sína fé-
lagsmenn hjá Reykjavikurborg, var
felldur á fundi í gær með 39 atkvæð-
um gegn 38. Villa kom í ljós í samn-
ingnum sem lækkaði laun nema.
Það var leiðrétt og aftur var kosið í
morgun. Kosningin stóð yflr þegar
DV fór í prentun. -S.dór
Þorsteinn GK:
Sigmenn
náðu aðeins
einum björg-
unarbáti
DV, Suöurnesjum:
Ég er niðurbrotinn maður eftir
þetta. Það er dapurleg sjón að sjá
bátinn í fjöruborðinu og skammt í
að hann liðist í sundur í briminu
og skolist á haf út,“ sagði Ásgeir
Magnússon, skipstjóri á Þorsteini
GK, en hann var í gær ásamt
nokkrum skipverja sinna og
mönnum úr Björgunarsveitinni
Þorbirni í Grindavik að skoða
bátinn við Krísuvíkurberg.
Skipið er illa farið og aðeins
tímaspursmál hvenær það liðast í
sundur. Sigmenn frá Björgunar-
sveitinni Fiskakletti í Hafnarfirði
voru á staðnum og reyndu að ná
einhverju verðmæti úr Þorsteini.
Aðeins náðist björgunarbátur.
-ÆMK
FENGU ÞEIR I SIG
STRAUM?
Veðrið á morgun:
Kaldi eða
stinnings-
kaldi
Á morgun verður norðaustan-
kaldi eða stinningskaldi en lægir
er líður á daginn. Dálítil él verða
við norðausturströndina en bjart
veður sunnanlands og vestan.
Veðrið í dag er á bls. 60
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt
íslenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentboröar
Prentar i tvær Imur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Kvöld- og
helgarþjónusta