Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Fréttir
Afgreiðslu haldið opinni á nokkrum bensínstöðvum:
Ræðum ekki við olíu-
félögin meðan svo er
- segir Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar
„Það er ekki til að auðvelda
samningaviðræðumar að olíufélög-
in auglýsa að bensinstöðvarnar séu
opnar og félagsmenn úr VR annist
afgreiöslu. Við tilkynntum vinnu-
veitendum það í dag að verði þess-
um stöðvum ekki lokað þegar í stað
munum við ekkert ræða við olíufé-
lögin í þessum kjarasamningavið-
ræðum,“ sagði Halldór Bjömsson,
formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, í samtali við DV í gær.
Þetta gæti því orðið enn ein þúf-
an á þeirri viðkvæmu viðræðubraut
í kjarasamningunum sem nú er ver-
ið að feta sig eftir.
í gær tóku verkfallsverðir Dags-
brúnar mjúkum höndum á þessum
málum en meiri harka verður í
þeim í dag haldi bensínafgreiðsla
áfram, að sögn Dagsbrúnarmanna.
„Við höfum rætt við þá menn sem
era að vinna á bensínstöðvunum og
beðið þá um að láta af þessu. Sumir
hafa tekið vel í það sem og sumir
sem halda einkastöövum opnum.
Við höfmn ekki viljað fara í málið
af neinni hörku í dag. Haldi þetta
hins vegar áfram munum við taka
til okkar ráða,“ sagði Snorri Ár-
sælsson, í verkfallsvörslu Dags-
brúnar, í gær.
Hann sagði að menn hefðu ákveð-
ið að fara ekki fram með hörku á
fyrsta degi. Eins sé verið að koma
skipulagi á verkfallsvörsluna.
„Eftir þennan fyrsta dag verður
ekki um neina miskunn að ræða í
þessum málrnn," sagði Snorri Ár-
sælsson.
-S.dór
Afgreiðsla á bensínstöövum var í gær aflögö vegna verkfalls. Margir þurftu
þá í fyrsta sinn að nota sjálfsala. Hér má sjá starfsmann Olís kenna
viöskiptavini notkun sjalfsala. DV-mynd ÓL
Loönuveiöinni lýkur innan fárra daga:
Um 200 þúsund tonn
eftir af kvótanum
DV, Akureyri:
Skipstjórnarmenn sem DV hef-
ur rætt við, eru á einu máli um að
síðustu dagar loðnuveiðanna
standi nú yfir, en veiðisvæðið
undanfarið hefur verið djúpt úti
af Snæfellsnesi. Ekki er útlit fyrir
að útgefinn kvóti veiðist en hann
nemur 1.277 þúsund tonnum.
Samtök fiskvinnslustöðva
sendu frá sér nýjar tölur um
loðnuaflann í gær. Þar kemur
fram að á sumar- og haustvertíð
nam heildaraflinn 474 þúsund
tonnum, en frá áramótum er afl-
inn hins vegar, samkvæmt þeim
upplýsingum, 578 þúsund tonn.
Samkvæmt heimildum DV vantar
þó í síðari tölumar einhvem aíla
sem landað hefur verið undan-
farna daga. Varlega áætlað er þvi
eftir að veiða um 200 þúsund tonn af
útgefhum heildarkvóta.
Ef afli erlendra skipa sem landað
hefur verið hér á landi frá áramót-
i; Vestmannaeyjar f2
um er talinn með, nemur heildartala
landaðs afla 587 þúsund tonnum.
Mestu hefúr verið landað í Vest-
mannaeyjum, eöa 73 þúsund tonn-
um, ríflega 65 þúsund
og síðan koma Eskifjörður, Nes-
kaupsstaður, Fáskrúðsfjöröur, Siglu-
görður, Akranes og Raufarhöfh. -gk
Felagsmálaráð-
herra sextugur
DV, Blönduósi:
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra varð sextugur í gær. Af því
tilefni var hann með opið hús og
mikla veislu í Fé-
lagsheimilinu á
Blönduósi á laug-
ardagskvöldið og
var þar troðfullt
hús. M.a. komu
þangað samráð-
herrar úr ríkis-
stjóm, þingmenn,
starfsfólk úr
ráðuneytum og
ráðamenn Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga auk
ættingja, vina og
fjölmargra ann-
arra samferða-
manna.
Veitingar voru
ríkulegar í mat og drykk og at-
hygli vakti fagurlega skreytt
veisluborðið þar sem merki Húna-
þings, bjamdýrin, var gert úr ís
og bóndabær með burstum og
grænu þaki gerður úr hangikjöti,
kartöflum og grænmeti.
Fjölmargar gjafír vora Páli færð-
ar, m.a. var sex vetra gæðingur
ættaður frá Hólabaki leiddur i sal-
inn og gaf Sigrún Magnúsdóttir
bónda sínum
þennan hest.
Davíð Oddsson
færði honum siif-
urskjöld, en á
hann höfðu ráð-
herrar krotað
nöfn sín eins og
Davíð orðaði það
þá hann afhenti
gjöfina. Þá gáfu
samherjar í hér-
aði Páli málverk
af honum sjálf-
um, en listamað-
urinn Guðráður
á Beinakeldu
málaði myndina.
Fjölmargar fleiri
gjaflr vora gefnar sem allt of langt
mál yrði upp að telja. Ræður voru
haldnar langt fram á nótt og þess á
milli vora flutt skemmtiatriði. Að
lokum var dansað og stóð fagnaður-
inn lengi nætur. -MÓ
Afmælisbarniö ásamt eiginkonu
sinni, Sigrúnu
borgarfulltrúa.
Magnúsdóttur
DV-mynd MÓ
Dagfari
í völundarhúsi peninganna
Borgarleikhúsið hefur sett upp
og frumsýnt áhugavert leikrit eftir
Sigurð Pálsson. Það heitir Völund-
arhús. Þar býr fólk í völundarhúsi
sem það ratar ekki út úr og býr í
sínum eigin heimi og aðrir komast
ekki að. Rata ekki inn.
Þetta er eflaust bráðsnjöll flækja
og hugmyndin er alla vega sótt í
nútímann og enda þótt fólk búi
ekki sjálft í völundarhúsum, eru
mörg slík völundarhús allt í kring,
sem enginn vogar sér inn i og er
aldrei boðið inn.
Eitt þessara völundarhúsa er
völundarhús fjármagnsins. Sumir
kalla það hinn frjálsa markað. Aðr-
ir kalla það kolkrabba. Þetta era
hin heilögu vé þeirrar stéttar þjóð-
félagsþegnanna sem hugsa stórt og
eru máttarstólpar þjóðfélagsins,
mennimir sem leggja fé sitt í
áhættu og fyrirtækin sem hafa allt
sitt á þurra. Þeir kaupa hlutabréf í
atvinnufyrirtækjum hvers annars
og selja svo aftur hlut í sínu eigin
fyrirtæki, sem kaupir hlut í þriðja
fyrirtækinu, sem á það fyrirtæki
sem fyrst keypti.
Hér er ekki um neinn bilskúra-
business að ræða, enda eltast mátt-
arstólparnir ekki við tittlingaskít.
Þeir einbeita sér að þeim stóru.
Tryggingarfyrirtæki, olíufélög, síld-
arverksmiðjur, sjónvarpsstöðvar,
skipafélög, verðbréfaþing og flugfé-
lög eru helstu viðfangsefni og bestu
fjárfestingarnar. Og nú eru það
bankarnir sem vekja áhugann.
Reyndar var búið að slá saman
nokkram bönkum í einn banka
undir heitinu íslandsbanki, til að
auðvelda mönnum yfirsýn yfir fjár-
magnsmarkaðinn og fjárfestingarn-
ar, en íslandsbanki höndlar ekki
með nema hluta af peningastreym-
inu og enn eru það ríkisbankamir
sem taka alltof stóran skerf til sín í
völundarhúsi peninganna.
Að því hefur hins vegar verið
unnið hörðum höndum að koma
stjómmálamönnum í skilning um
að selja þurfi ríkisbankana. Bank-
ar í eigu ríkisins eru andstæðir
hagsmunum almennings og samfé-
lagsins og þeir eru betur komnir í
höndum almennings og samfélags-
ins með því að selja þá.
En til að bankinn geti orðið góð
söluvara þarf hann að eignast hlut
í góðum og gegnum fyrirtækjum og
það var þess vegna sem stjóm
Landsbankans ákvað fyrir helgi að
kaupa Vátryggingarfélagið til að
tryggja að bankinn kæmist í réttar
hendur eftir að hann er seldur.
Bankar seljast ekki í réttra manna
hendur nema bankamir eigi eitt-
hvað bitastætt sem borgar sig að
kaupa.
Þetta vora skynsamleg kaup hjá
bankanum og það má enginn mis-
skilja það að ríkið sé að sölsa und-
ir sig tryggingarfélagið og heldur
ekki ríkisbankinn, því bankinn er
að kaupa Vátryggingarfélagið tO að
eiga það þegar bankinn verður
seldur. Til að tryggja það að hann
verði keyptur. Til að tryggja að
hann verði keyptur af réttum aðil-
um, sem hafa efni á að eiga banka
sem á eitthvað.
Ef fólk skilur þetta ekki, verður
að hafa það vegna þess að fólk skil-
ur ekki völundarhús peninganna
og ratar hvorki inn í þau né út úr
þeim og það er heldur alls ekki til
þess ætlast því völundarhús pen-
inganna eru bara fyrir þá sem eiga
peninga og þurfa að eignast pen-
inga til að eignast meiri peninga.
Aðrir eiga ekki að skipta sér af
þeim peningum, enda eru þeir vel
varðveittir í góðum höndum þeirra
máttarstólpa sem rata um völund-
arhúsin og þurfa aldrei út úr þeim
að fara.
Þetta verðum við skilja þegar vá-
tryggingarfélög era seld og keypt.
Dagfari