Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
9
Utlönd
Borís Jeltsín Rússlandsforseti kynnir uppstokkun stjórnar sinnar:
Umbótasinnarnir ráða
öllu í efnahagsmálum
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
kynnti langþráðar breytingar á
stjórn sinni í gær þegar hann skip-
aði unga umbótasinna í ráðherra-
stöður og munu þeir hefjast handa
þegar í dag við að hressa upp á efha-
hag landsins. Á meðan bíða aðrir
stjómarliðar eftir fréttum af því
hvað verður um þá.
Jeltsín skipaði hinn 37 ára gamla
nafna sinn, Borís Nemtsov, umbóta-
sinnaðan fylkisstjóra, í embætti
fyrsta aðstoðarforsætisráðherra og
slæst hann þar í lið með Anatolí
Tsjúbaís, helsta höfundi einkavæð-
ingaráætlunar rússneskra stjórn-
valda sem Jeltsín skipaði nýlega í
sama embætti.
„Það er klárt að umbótasinnar
hafa orðið ofan á í efnahagsliði
stjórnarinnar," segir stjómmála-
skýrandinn Sergei Markov. „Allt
sem snýr að efhahagslífinu verður í
höndum umbótasinna."
Nemtsov, sem Jeltsín segir að sé
eftii í forseta, mun leiða umbætur í
félagsmálum, svo sem á velferðar-
kerfinu.
„Ég mun ekki segja ósatt, ég þigg
ekki mútur og ég stel ekki. Ég mun
skýra út fyrir þjóðinni allt sem ég
geri, jafnvel ógeðfelldustu hlutina,“
sagði Nemtsov við fréttamenn.
Hann hefur til þessa verið fylkis-
stjóri í Nízhní Nóvgorod.
Tsjúbais, sem einnig mun fá titil
fjármálaráðherra, mun hafa yfirum-
sjón með efnahagsmálum.
Nokkrir íhaldssamir ráðherrar
hurfu úr stjóminni við þessa nýju
Borís Nemtsov, ungur umbótasinni
á Uppleiö. Símamynd Reuter
uppstokkun Jeltsíns eða þá að þeir
voru lækkaðir í tign.
Jeltsín tilkynnti enn fremur að
hann ætlaði að loka nokkrum ráðu-
neytum, þar á meðal iðnaðarráðu-
neytinu og hergagnaiðnaðarráðu-
neytinu.
Uppstokkunin á ríkisstjórninni
er tíl marks um að Jeltsín er aftur
kominn á fullt í Kreml, eftir níu
mánaða veikindi. Óvist er hins veg-
ar hvort hann hefur persónulegan
og pólitískan styrk til að halda það
út.
„Þetta er svo sannarlega sá
Jeltsín sem hóf umbæturnar í Rúss-
landi,“ sagði Alexander Livhits,
sem missti embætti sitt sem fyrsti
varaforsætisráðherra, við Interfax-
fréttastofuna. Reuter
Metafli upp úr sjón-
um en gagnast
svöngum lítt
Fiskveiðar í heiminum hafa
aldrei verið meiri en nú en ólíklegt
er talið að það muni gagnast fátæk-
um og hungruðum, að minnsta
kosti ekki þegar til skemmri tíma
er litið. Þetta kemur fram í skýrslu
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
SÞ (FAO) sem kynnt var í gær.
í skýrslunni er einnig talað um
umhverfísspjöll sem mikil ásókn í
fiskistofna hefur haft í fór með sér,
einkum í Austurlöndum fjær og
Kína þar sem efnahagslíflð vex
hröðum skrefúm.
Fjórir létust í
eldsprengjuárás á
kaffihús
Fjórir Belgar týndu lífl í elds-
voða sem kom upp í fjölbýlishúsi
í Brussel í gærmorgun eftir að
bensínsprengju hafði verið varp-
að inn í kaffihús á jarðhæð húss-
ins. Átta manns hafa verið yfir-
heyrðir vegna árásarinnar, að
sögn lögreglu. Fimm eru enn í
haldi en ákæra hefúr ekki verið
lögð fram. Reuter
Þýski hönnuðurinn Karl Lagerfeld sýndi þessa kápu úr krókódíla- og hlé-
barðaskinni á tískusýningu í París í gær. sfmamynd Reuter
Feröamálafrömuðir æstir:
Lögreglustjóri varar
ferðafólk við Flórída
Ferðamálafrömuðir í Flórída í
Bandaríkjunum hafa ráðist harka-
lega á lögreglustjórann i Leesýslu í
suðvesturhluta ríkisins fyrir að
hafa hvatt ferðamenn til að halda
sig í burtu.
Lögreglustjórinn lét þau orð falla
í sjónvarpsþætti á föstudaginn að
ekki væri á það hættandi fyrir
ferðamenn að koma í heimsókn til
Flórída þar sem hundruðum glæpa-
manna hefði verið sleppt úr fang-
elsi. „Ég myndi ekki ráðleggja nein-
um, ekki einu sinni mínum eigin
ættingjum, að koma. Ég tel það vera
mjög hættulegt," sagði lögreglu-
stjórinn.
Ummæli lögreglusljórans hafa
ekki bara vakið athygli í Bandaríkj-
unum heldur einnig i Evrópu. Af
ótta við glæpi hafa evrópskir ferða-
menn fækkað ferðum sínum til
Flórída. Á árunum 1992 til 1993 voru
9 evrópskir ferðamenn myrtir í
Flórída.
Ferðamálafrömuðir segja að grip-
ið hafi verið til fjölda aðgerða á und-
anfómum árum til að koma í veg
fyrir ofbeldi gegn ferðamönnum.
Embættismenn benda á að í öllum
rikjum sé á hverju ári glæpamönn-
um sleppt, oft áður en þeir hafa af-
plánað fangelsisdóma sína.
Hæstiréttur úrskurðaði í síðast-
liðnum mánuði að stytta yrði vist
þúsunda fanga vegna þrengsla í
fangelsum. í síðustu viku var 300
fóngum í Flórída sleppt og í þessari
viku fá 200 frelsi. Reuter
CD Rekki 30x30x33 cm. Áður kr. 7,900. Nú:6,320.- Há kommoða 8 skúffur. 30x43x127 cm. Áðurkr. 39,950. Nú: 31,960.- Kommóða 5 skúffur. 57x40x98 cm. Áður kr. 39,950. Nú:31,960.-
Kringlunni 0(
(Lfttu við f kjallara
Falleg húsgögn
Framtíðareign
tofjÍ RADGfíEIOSLUR \ EUROCARD
ÍL’ij'i'iÉi:riiivn.^1 raö^rciöslur
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
Skrifborð - Snyrtiborð
97x46x74 cm.
Áðurkr. 29,800. Nú:23,840.-
Stóll nú kr. 5,520.-
Skatthol
78x50x105 cm.
Áður kr.35,800. Nú:28,640.