Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Síða 17
4-
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Ættfræðifélag
íslands
Ættfræðifélag íslands var
stofnað árið 1945. Félagið hélt
hátíðlegt 50 ára afhiæli fyrir
tveimur árum þar sem frú Vig-
, dís Finnbogadóttir, þáverandi
| forseti íslands, var heiðursgest-
ur. Þar voru nokkrir þekktir
ættfræðingar sæmdir gullmerki
félagsins fyrir mikil og góð
störf.
700 manns
í félaginu
Tæplega 700 félagar eru í
Ættfræðifélagi íslands. Mikil
flölgun hefur verið í félaginu
síðustu ár. Formaður félagsins
er Hólmfríður Gísladóttir. Ætt-
fræðifélagið gefur út 2-3 vönd-
uð rit á hveiju ári auk þess sem
send eru út blöð um fundi fé-
lagsins sem fara til allra félags-
manna vítt og breitt um landið.
Unnið að
manntali
Félagið er nú að vinna að
manntalinu 1910 fyrir Ámes-
sýslu. Þegar eru komin út
manntöl fyrir Rangárvalla- og
Skaftafellssýslu en önnur eru i
vinnslu og væntanleg í haust.
íslendingar
miklir
áhugamenn
„íslendingar eru geysimiklir
áhugamenn um ættfræði. Fólk,
sem er t.d. ekki í félaginu, getur
skrifaö til okkar ef það vill vita
eitthvaö um sína ætt. í félags-
blöðunum eru fyrirspurnimar
síðan birtar og komi svör við
þeim eru þau birt í næsta blaði
á eftir. Félagið fundai' yfirleitt
einu sinni í mánuði í Reykja-
vík. Við erum með fund 20.
mars nk. á Hótel Lind og það
væri gaman að sjá sem flesta og
endilega nýtt fólk,“ segir Sig-
urður Magnússon en hann er í
stjóm Ættfræðifélagsins.
-RR
• ;:ilJ LfjQsjjJ----------------
Oddur Helgason, áhugamaður um ættfræði:
17
Gerum ráð fyrir að geta
skráð alla Islendinga
- telur alla Islendinga fyrr og síðar um eina og hálfa milljón talsins
.«É*®
„Viö eram búnir
að skrá um 200
þúsund íslend-
inga í gagna-
banka og erum
með upplýsing-
ar um 150 þús-
und í viðbót í
tölvutæku
formi. í
mestu af ættfræðilegum upplýsing-
um um íslendinga, lífs og liðna, og
koma þeim í tölvutækt form.
Rannsaka ritaðar heim-
Oddur Helgason sést hér fletta í Sellandsbók Bjarna
Jóhannessonar, bónda í Eyjafiröi, sem var uppi á 19.
öld.
gagnabankanum verður hægt að
rekja saman skyldleika allra núlif-
andi íslendinga. Við gerum ráð fyr-
ir að eftir 10-12 ár verði búið að
skrá alla íslendinga sem vitað er að
hafi fæðst. Ég tel að fjöldi íslendinga
í heild fyrr og síðar sé um ein og
hálf milljón talsins," segir Oddur
Helgason sem er mikill áhugamaður
um ættfræði.
Oddur hóf sl. haust samstarf við
þá Reyni Bjömsson og Guðmund S.
Jóhannsson, ættfræðing á Sauðár-
krók. Heiti samstarfsins er O.R.G.
ættfræðiþjónustan.
Meginmarkmiðið með samstarf-
inu er að sögn Odds að safha sem
„Megináhersla
hefur verið lögð
á að skrá'
framættir íslend-
inga en síður að
skrá þá núlifandi
en þó er fyrir-
hugað að bæta
verulega við
gagnagmnninn á
20. öld. Áherslan
er að rannsaka
ritaðar heimildir
frá fyrri tímum,
s.s. kirkjubækur,
dómabækur,
skuldaskrár og leg-
orðsreikninga. Mikil
vinna hefur verið
lögð í að afla gagna
sem em til í handrit-
um ýmissa manna.
Sem dæmi má nefna
ábúendatöl, m.a. úr Þingeyjarsýsl-
um, Múlasýslum og Eyjafírði. Þessi
ábúendatöl em afar mikilvæg og
veita upplýsingar sem ekki hafa ver-
ið aðgengúegar áður,“ segir Oddur.
Oddur vinnur við öfluga tölvu á
heimili sínu í Neðstaleiti 4 í Reykja-
vík. Hann segist byrja að starfa eld-
snemma á morgnana og nýtir dag-
inn vel í að grúska í bókum og rit-
um. Hann hefur sér til aðstoðar Ei-
rík Eiríksson frá Dagverðargerði,
fyrrverandi bókavörð Alþingis, og
saman skrá þeir upplýsingamar inn
á tölvuna.
Ættfræðin hefur átt hug og hjarta
Odds síðustu ár. Heimili hans er
Stærðfræðilega eru allir fslendingar skyldir í 15. ætdið
- segir Sigurður Magnússon ættfræðigrúskari
„Þetta er hópur áhugamanna um
ættfræði. Það em um 100 áhuga-
menn í hópnum sem allir nota svo-
kallað Espólín tölvuforrit í ættfræði-
leit sinni. Það er besta forritið því
það hefur séreinkenni ættfærslu ís-
lendinga. Við notum ekki ættarnöfii
heldur dóttir eða sonur og það gerir
miklu auðveldara fyrir að rekja ætt-
imar,“ segir Sigurður Magnússon,
fyrrverandi yfirrafmagnseftirlits-
maður, en hann hefur grúskað í ætt-
fræði siðustu 5 árin.
„Við í hópnum höfum bundist
samtökum um að skiptast á upplýs-
ingum. Ef mig vantar upplýsingar
um einhvern í Dalasýslu þá hef ég
samband við einhvem sem er í
Dalasýslu. Ef einhver vill fá upplýs-
ingar um eitthvað sem ég er sérfróð-
ur um þá getur viðkomandi haft
samband við mig. Ég tel mig vera
allsérfróðan um ættir á Breiðafirði,
Vestfjörðum og ætt Högna Sigurðs-
sonar prestafoður sem var þjóðkunn
persóna á 18. öld.
Þjóðlegur fróðleikur
Stærðfræðilega séð held ég að allir íslendingar séu
skyldir í 15. ættlið. Ef gert er ráð fyrir að þrjár kynslóð-
ir séu á hverri öld þá ætti það að vera á 15. öld. Það kem-
ur mjög mikið af þjóðlegum fróðleik fram þegar grúsk-
að er í ættfræði. Það var t.d. ótrúlega mikill aldursmun-
ur oft á tíðum þegar fólk gifti sig fyrr á öldum. Langa-
langafi minn í Skagafirði fæddist 1791, eignaðist 27 böm
Sigurður Magnússon ættfræðigrúskari við tölvu á heimili sínu þar sem hann
safnar ættfræðiupplýsingum. DV-mynd Hilmar Þór
og giftist fjórum sinnum. Hann var hátt í sjötugsaldur-
inn þegar hann giftist í fjórða sinn og konan hans var
um tvítugt," segir Sigurður.
Að sögn Sigurðar notast ættfræðigrúskarar aðallega
við kirkjubækur og manntöl í heimildaleit sinni en ýms-
ar aðrar bækur og rit era líka notuð. -RR
þakið þúsundum bóka og rita en
þeim er öllum raðað skipulega
þannig að þau séu aðgengileg.
„Ættfræðin er tímafrekt en stór-
skemmtilegt áhugamál og ég á sem
betur fer mjög skilningsríka eigin-
konu sem styður mig af miklum
krafti. Það er svo gaman og forvitni-
legt að sjá hinar ýmsu upplýsingar
um ættir og hverra manna fólk er,
svo ég tali nú ekki um ættir manns
sjálfs. Við erum líka að reyna að
skrá ýmsar upplýsingar um viðkom-
andi aðila og við notum eingöngu
skriflegar heimildir og getum þeirra
um leið. Mikilsvert er samstarf sem
tekist hefur milli okkar Eiríks og
Gunnlaugs Haraldssonar, þjóðhátta-
fræðings á Akranesi, og Þuríðar
Kristjánsdóttur sem skráir ættir
Borgnesinga. Einnig er mjög mikil-
vægt samstarf við mormónana, Hér-
aðsskjalasafn Borgarfjarðar og
Skagafjarðar og Friðrik Skúlason
tölvufræðing.
Aðspurður hvort ættfræðingar
verði ekki óþarfir eftir 10-12 ár þeg-
ar að öllum líkindum verði búið að
skrá alla íslendinga sem vitað er um
í gagnabanka segir Oddur að svo
verði ekki.
„Það þarf að stunda ýmsar fram-
haldsrannsóknir í ættfræðinni og
auðvitað bætast alltaf upplýsingar
við hvem fæddan íslending. Ég á
því ekki von á öðru en ættfræðingar
fái áfram að blómstra í framtíð-
mni.
-RR
Umboðsmenn:
2800
Reykjavíln Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf.Borgfirðirma, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðlr: Geirseyrarbúðin,
Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.StraumurJsafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,
Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri.
KEA.Dalvfk. Kf. Þingeyinga, Húsavfk. Austurland: KHB, Egilsstöðum. Verslunin Vfk,
Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stöðfirðimga, Stöðvarfirði.
Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík.
ALLT FYRIR GLUGGANN
Síðumúla 32 • Reykjavík • sími 553 1870
Tjarnargata 17 • Keflavík • sími 521 206
UTSOLULOK
frá 200,-kr. metrinn