Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
25
íþróttir unglinga
Magnea í 7. flokki Vals er góö í
handbolta og stóö hún sig mjög vel
í leiknum gegn Stjörnunni.
MÍ í frjálsum íþróttum:
Guðný með
meyjamet
Tvö ný met voru sett á Meist-
aramóti íslands í frjálsum íþrótt-
um, 15-22 ára, sem fór fram um
nýliðna helgi.
Guðný Eyþórsdóttir, ÍR, setti
nýtt meyjamet í langstökki,
stökk 5,82 metra. Hún átti gamla
metið. 5,69 metra, sett á Meist-
aramótinu 8.-9. febrúar sl.
Bjarni Traustason, FH, náði
einnig besta árangri á handtíma-
töku, til þessa, í 60 metra hlaupi
í sjöþraut, fékk tímann 6,5 sek.
Ólafur Guðmundsson, HSK, varð
í 2. sæti á 6,6 sek.
Theódór Karlsson, 21 árs,
UMSS, bætti sig verulega í há-
stökki og sigraði hinn 16 ára
Einar Karl Hjartarson, USAH,
báðir stukku 2,05 metra. Að-
stæður voru ekki upp á það
besta.
Þann 15. og 16. febrúar fór fram í
Digranesi, í fyrsta sinn, Ákamót HK
sem er handboltamót stelpna og
stráka í 7. flokki og er til minningar
um Þorvarð Áka Eiriksson, fyrrver-
andi formann handknattleiksdeild-
ar HK, já, og reyndar faðir HK, eins
og menn vilja gjama meina. Þor-
varður var faðir Einars, hins
frækna landsliðsmarkvarðar í hand-
bolta og núverandi þjálfara deildar-
meistara Aftureldingar í Nissan-
deildinni.
Árleaur viöburöur
Gunnar Karlsson, unglinganefnd-
armaður í HK, kvaðst mjög
ánægður með undirtektir.
„Þátttaka er frábær, um 600
krakkar mættu til leiks og mikið
fjör. Héðan fara allir ánægðir því
við tókum þá ákvörðun að veita
engin sigurverðlaun, enga verð-
launapeninga en aftur á móti fá
allir áritað viðurkenningarskjal og
Umsjón
er ekki annað að sjá en krakkamir
séu mjög ánægðir með það. - Áka-
mótið mun verða árlegur viðburð-
ur,“ sagði Gunnar.
Skemmtilegur aldursflokkur
Valsstelpunum hefur gengið mjög
vel og finnst stelpunum mjög gaman
að þessu. Á þessum aldri skiptir
ekki miklu máli hvort maður vinn-
ur eða tapar, aðalatriðið er að vera
með,“ sagði Margrét Hafsteinsdótt-
ir, þjálfari Valsliðsins.
Valshnáturnar í liöi 1 slappa af milli leikja. Fremri röö frá vinstri: Árný og Silvía. Aftari röö frá vinstri: Jóna og Magnea.
Stelpurnar sýndu mjög góöan leik gegn Stjörnunni og stelpurnar úr Garöabæ voru líka mjög góöar. Gegnumbrot
beggja liöa voru frábær og mikiö skorað af fallegum mörkum. Þetta eru framtíöarleikmenn Vals, segir þjálfari þeirra,
hún Margrét. DV-myndir Hson
Halldór Halldórsson
Áka-mót HK í handbolta í 7. flokki stráka og stelpna:
Stelpurnar ótrúlegar
- og sýndu aö mikils má af þeim vænta í framtíöinni
Valsliöiö númer 1, frá vinstri, Dorothe, Sigríöur, Andrea, Sigrún Anna, Eygló, Eva, Gréta og hinn
ötuli þjálfari stelpnanna, Margrét Helgadóttir.
Stjörnustelpurnar voru frábærar og áttu góöan leik gegn Val. Liöiö er þannig skipað: Guörún,
Birta, Sigrún, Bergþóra, Harpa, Thelma, Marta, Hildur og Vigdís. Þjáffari þeirra er Ásta Kristjánsd.
MÍ í frjálsum íþróttum - 15-22 ára:
Guðbjörg setti
persónulegt met
- stökk 1,70 m 1 hástökki
Guðbjörg Lilja Bragadóttir, ÍR, er í
mikilli framför.
Á Meistaramóti íslands i frjáls-
um íþróttum, 15-22 ára, sem fram
fór í Laugardalshöll, Kaplakrika
og Baldurshaga, náðist mjög
athyglisverður árangur í mörgum
greinum. T.d. Guðbjörg Lilja
Bragadóttir, ÍR, bætti sig veru-
lega í hástökki, stökk 1,70 metra:
„Ég er lengi búin að bíða eftir
þessu og má segja að strangar
æfingar að undanfomu séu
farnar að skila sér núna,“ sagði
Guðbjörg í samtali við DV.
Nánari umfjöllun um mótið
verður á unglingasíðu DV á
næstunni.
sT @ f!9s "-JS u-gni
Bikarmeistarar FH í handbolta í 4. flokki karla 1997. Strákarnir unnu Víking í úrslitaleik, 22-10. Liöiö er skipaö
eftirtöldum strákum: Einar A. Einarsson (2), Steingrímur Valgarösson (14), Ingólfur Pálmason (7), Stefán Sigtryggs-
son (5), Orri Gunnarsson (11), Arnar Theódórsson (6), Björn Gunnarsson (10), Svavar Pétursson (13), Þorgeir
Ormsson (18), Unnar Helgason (8), Árni Gunnarsson (1), Hjalti Heiöarsson (2), Daníel Scheving (3). Þjálfarar eru
Bambir og Sveinbjörn Sigurösson. Formaöur handknattleiksdeildar FH er Jón Auðunn Jónsson.