Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Side 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Fréttir
x>v
Allen svarar bók
Miu með kvikmynd
Kvikmyndaleikkonan Mia Far-
row var ekkert aö skafa utan af
hlutunum í bók sinni What Falls
Away um lífið með leikstjóranum
Woody Allen. Og nú getur hún
vænst þess að fá brátt svar við
bókinni. Allen er nefnilega farinn
að undirbúa gerð kvikmyndar þai-
sem lýst verður öllum hneykslis-
málunum sem urðu þess valdandi
að sambandið fór út um þúfur.
dag er 50% afsláttur
Kristin Scott Thomas er útnefnd til óskarsverðlauna:
J.R. í nýjum sjón-
varpsmyndaflokki
Larry Hagman, sem flestir
þekkja sem skúrkinn J.R. í sjón-
varpsmyndaflokknum Dallas, leik-
ur nú heiðvirðan dómara í nýjum
myndaflokki. Dómarinn leggur
jafn mikla rækt við lög og reglu og
bömin sín og sögusviðið verður
borgin New Orleans.
Tók bónorði
kærastans
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford
hefur ekki farið leynt með það að
hana langar að giftast á ný og eign-
ast böm og nú virðist sem draumar
hennar ætli að rætast. Kærastinn
og bareigandinn Rande Gerber er
búinn að stynja upp bónorðinu og
Cindy sagði já. Brúðkaupið fer
væntanlega fram síðar á þessu ári.
Hagstœö kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
Fékk þann úrskurð að
hún gæti ekki leikið
Þegar Kristin Scott Thomas, sem
útnefnd hefur verið til óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni The English Patient, var í
menntaskóla var henni tilkynnt að
hún gæti ekki leikið. Kristin var
búin að innrita sig í Central School
of Speech and Drama í London þeg-
ar hún var 18 ára en hætti við
vegna úrskurðarins sem hún fékk í
menntaskólanum.
„Þeir sviptu mig öllu sjálfs-
trausti," sagði Kristin í nýlegu
tímaritsviðtali. Að loknu mennta-
skólanámi starfaði hún við ýmis-
legt, eins og þjónustustörf, móttöku-
störf og skrifstofustörf áður en hún
hélt til Parísar sem au- pair. Þar
töldu vinir hennar hana á að snúa
sér að leiklistarnámi. Hún fór að
ráðum þeirra og stundaði nám við
Ecole Nationale de Theatre þar sem
hún hitti eiginmann sinn.
Kristin, sem er 36 ára, hefúr búið
í París í 18 ár og hefur verið gift
franska kvensjúkdómalækninum
Francois Oliviennes í 15 ár. Þau
eiga tvö böm, Hönnu, 7 ára, og
Jósef, 4 ára, og búa í íbúð á vinstri
bakka Signu í París. Kristin segir
eiginmanninn hvetja sig til dáöa.
Hún kveðst eiginlega ekki hafa
neitt sérstaklega gaman af því að
leika en tekur fram að hún kunni
ekkert annað. Hún hefur engan hug
á því að reyna fyrir sér í Hollywood.
„Ég myndi ekki vita fyrir hverjum
ég ætti að skríða og þó ég vissi þaö
myndi ég ekki vita hvemig ætti að
gera það.“ Hún varð heimsfræg fyr-
ir leik sinni í myndinni Four Wedd-
ings and a Funeral en í henni lék
hún Fionu sem var allt annað en
ástríðufull, á yflrborðinu að
minnsta kosti.
í kvikmyndinni The English Pati-
ent leikur Kristin aftur á móti hina
blóðheitu Katherine, gifta konu sem
verður ástfangin af ungverskum
greifa er Ralph Fiennes leikur.
„Mér fannst eins og hlutverk Kat-
herine hefði verið skrifað fyrir mig
svo að ég skrifaði leikstjóranum til-
finningaþrungið bréf og bað um að
fá hlutverkið."
Ferill Kristin byrjaði með falli.
Fyrsta hlutverk hennar var í mynd-
inni Under the Cherry Moon með
poppstjömunni Prince. Myndin féll
en Kristin var skömmu síðar verð-
launuð sem efnilegasti byrjandinn
af Evening Standard fyrir leik í
myndinni A Handful of Dust.
Fram undan em hlutverk í
Revenger’s Comedies og Amours et
Confusions.
Kristin Scott Thomas vildi leika
blóðheita konu. Sfmamynd Reuler
af annarri auglýsingunni.
Loðfeidir eru bara fyrir dýrin, segja þessar ungu stúlkur í París. Þær eru félagar í samtökum sem berjast fyrir siðvænni
meðferð á dýrum og mótmæltu um daginn fyrir utan skrifstofur tískuhönnuöarins Karls Lagerfelds. simamynd Reuter
aW milll him,
Smáauglýsingar
5S0 5000
Leikari farinn aö láta á sjá:
Pacino bætir á sig aukakílóum
A1 Pacino er ekki eins og við
erum vön að sjá hann, hreystin upp-
máluð með tinnusvart hárið sleikt
aftur eins og mafíósi. Nei, leikarinn
frægi er farinn að láta á sjá, eins og
flestir karlar á hans aldri, orðinn
hálfsextugur og árinu betur, byrjað-
ur að hlaða utan á sig.
Pacino brá sér á finan veitinga-
stað í Los Angeles fyrir skömmu en
var ekki sjálfúr jafn fínn í tauinu,
heldur í ósköp venjulegum íþrótta-
galla, með hafnaboltahúfu á hausn-
um og í leðurjakka yfir öllu. Einn
gesta veitingahússins sagði að leik-
arinn hefði greinilega fundið ein-
hvers staðar til því aðstoðarkona
hans hefði þurft að hjálpa honum
við að rísa á fætur.
Vonandi var hann bara þreyttur
eftir mikla vinnu undanfarið.