Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Side 32
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Dreggjar Iög-
, mannafélagsins
„Dreggjar lögmannafélagsins
leggja Pétur Hafstein dómara í
einelti um þessar mundir. Það er
að segja þeir félagsmenn sem
hvorki eru á bak við lás og slá
eða fyrir skiptarétti."
Ásgeir Hannes Eiríksson, í
Degi-Tímanum.
Ummæli
Vesturheimsk sjónvarps-
hjálenda
„Hérlendis drottnar annars og
þriðja flokks bandarískt sjón-
varpsefni svo gersamlega að
heita má að ísland sé orðið vest-
urheimsk sjónvarpshjálenda.“
Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur, í DV.
Verðlækkun í búðum
„Margir vilja þakka Jóhannesi
í Bónus en án verðkannana
Neytendafélagsins væri hann
ekki svona áberandi."
Vilhjálmur Ingi Árnason, Neyt-
endasamtökunum á Akureyri, í
Degi-Tímanum.
Kauphækkanir og þjóðfé-
> Iagið
„Fólk á ekki fyrir skuldum og
fólk fær ekki nógu há laun, samt
litur út fyrir að þjóðfélagið hafi
ekki efni á að heimta kauphækk-
anir að neinu ráði vegna þess að
verðlagið og verðbólgan sjá um
að eyða viðbótinni á skemmri
tíma en hönd á festir."
Ellert B. Schram, í Mbl.
Hér má sjá eina flugvél úr fyrri
heimsstyrjöldinni vel vopnum
búna, tilbúna til árásarferöar.
Aíkastamiklir
flugkappar
Fjöldi flugvéla, sem flugkappar
í heimsstyrjöldunum tveimur
skutu niður, er óljós. Opinber-
lega eiga þessir metin: í heims-
styrjöldinni fyrri er það René
Paul Fenck, ofursti í franska flug-
* hemum. Hann skaut niður 75
flugvélar. Baron Manfred von
Richthofen í þýska flughernum
er sagður hafa skotið niður 80
flugvélar, en ekki er hægt að
Blessuð veröldin
staöfesta nema 60 samkvæmt
þýskum heimildum. Metið í
heimsstyrjöldinni síðari er 352
flugvélar skotnar niðir. Þaö á Er-
ich Hartmann, majór í þýska
flughemum.
Afkastamesti þotuflug-
kappinn
I Kóreustríðinu voru þotur
komnar til sögunnar og þar fór
fremstur í flokki Joseph
Christopher McConnell yngri,
höfuðsmaður í bandaríska flug-
hernum. Hann skaut niður 16
óvinaþotur áður en hann fórst 25.
ágúst 1954. Þetta met stendur enn
þá en mögulegt er að ísraelskur
flugmaður hafi grandað fleiri vél-
um á árunum 1967-1970 en yfir-
völd í ísrael halda nöfnum flug-
manna sinna leyndum.
Kvenflugkappi
Kvenmenn flugu sovéskum
oirustuvélum í síðari heimsstyrj-
öldinni og sú sem þótti standa
öðrum framar var Lydia Litvak,
undirliðsforingi í flugher Sovét-
ríkjanna. Hún skaut niður 12
flugvélar á austurvígstöðvunum
á ámnum 1941-1943. Hún féll í
orrastu 1. ágúst 1943.
Éljagangur norðanlands
Um 359 km suðaustur af Homa-
firði er 990 mb lægð sem þokast
austnorðaustur. 1037 mb hæð er yfir
Norðaustur-Grænlandi.
Veðrið í dag
í dag verður austan- og norðaust-
an átt, víða allhvasst í fyrstu en fer
að lægja er líður á daginn. Snjó-
koma eða éljagangur norðanlands
og austan en léttskýjað sunnanlands
og vestan. Norðaustan- og austan-
kaldi og él við austurströndina í
nótt en víða bjart veður annars
staðar. Hiti nálægt frostmarki við
suður- og austurströndina en 2ja til
7 stiga frost norðanlands og vestan.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustankaldi og léttskýjað. Hiti
0 til 5 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.38
Sólarupprás á morgim: 07.32
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.04
Árdegisflóð á morgim: 03.35
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -2
Akurnes alskýjaö 2
Bergstaöir úrkoma í grennd -2
Bolungarvík snjóél -6
Egilsstaðir snjókoma -1
Keflavíkurflugv. skýjaö -1
Kirkjubkl. léttskýjaö -0
Raufarhöfn alskýjaö -1
Reykjavik skýjaö -0
Stórhöföi skýjaó 0
Helsinki léttskýjaó -7
Kaupmannah. léttskýjaö -3
Ósló hálfskýjaö -8
Stokkhólmur heióskírt -6
Þórshöfn skýjaó 7
Amsterdam þokumóöa 7
Barcelona heiöskírt 12
Chicago rigning 2
Frankfurt skýjaó 6
Glasgow rign. á siö. kls. 7
Hamborg skýjaö 0
London súld 8
Lúxemborg þoka 5
Malaga heiöskírt 7
Mallorca þokuruóningur 5
Paris þoka í grennd 5
Róm þoka 9
New York hálfskýjaö 9
Orlando alskýjaö 19
Nuuk skýjaö 6
Vín skýjað -2
Washington hálfskýjaó 10
Winnipeg léttskýjaö -16
Hákon Már Örvarsson, matreiðslumaður ársins:
Spennandi og krefjandi keppni
„Þetta var tvíþætti keppni,
forkeppni þar sem allir kepp-
endur fengu ákveðið hráefni til
að vinna úr. Það voru um fjöra-
tíu keppendur sem mættu til
leiks á fostudegi en aðeins
fimm komust í úrslitakeppnina
sem haldin var slðan daginn
eftir. í úrslitakeppninni er það
svokölluð „Mystery Baskett"
eða Leyndardómskarfa sem
keppendur fá til að vinna úr. í
henni í þetta skiptið var úrval
sjávarfangs í forrétt og grísa-
læri í aðalrétt og í eftirrétt var
dökkt súkkulaði og mokka. Það
sem vafðist fyrir flestum var
sjálfsagt aöalrétturinn, grísa-
lærið, sem er stórt og mikið, en
mér gekk vel og stóð uppi sem
sigurvegari,“ segir Hákon Már
Örvarsson, matreiðslumaður á
Hótel Holti, sem sigraði í
keppninni Matreiðslumaður
ársins.
Hákon sagði að þetta væri
bæði spennandi og gefandi
keppni: „Ég hef áður tekið þátt
í þessari keppni en þetta er í
fyrsta sinn sem ég sigra."
Hákon hefúr starfað undanfarin
tvö ár á Hótel Holti, með hléi þó:
Hákon Þór Örvarsson.
Maður dagsins
„Ég var um sjö mánaða skeið í
Luxemborg þar sem ég starfaði
hjá Leu Linster sem rekur
þekktan og viðurkenndan mat-
sölustað rétt fyrir utan bæinn
sem margir íslendingar þekkja.
Þetta var góður og lærdómsrík-
ur tími og ég fékk þar mikla
reynslu. Það var bæði erfítt og
gaman að starfa þar.“
Hákon kláraði matreiðslunámið
fyrir tæpum fjórum árum. Hann
er tuttugu og fjögurra ára
þannig að hann á framtíðina í
starfinu fyrir sér og segist líka
vel að starfa á Hótel Holti. „Holt
er viðurkenndur gæðastaður og
með fjölbreyttan matseðil
þannig að starfið er fjölbreytt.
Það er mjög gefandi aö vinna á
slíkum stað.“
Helstu áhugamál Hákonar fýrir
utan starfið eru íþróttir: „Ég hef
verið nokkuð í íþróttum en æfi
núna af fullum krafti í World
Class, er nýlega byrjaður þar og
likar vel. Það er mikið stúss í
kringum starfið ef maður ætlar
að fylgjast með, bæði við að prófa
sig álram og lesa um það nýjasta í
matargerð." Hákon er einhleypur.
-HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1762:
Kastar höndum til verksins
Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði.
FH-Afturelding
í handboltanum
í kvöld verður bæði leikið í úr-
slitakeppninni í handbolta og
körfubolta. Einn leikm- fer fram í
handboltanum þar sem FH og
Afturelding eigast við í
Kaplakrika í Hafharfirði. Aftur-
íþróttir
elding sigraði í leiknum i Mos-
fellsbæ og þurfti að hafa meira
fyrir sigrinum en margir bjugg-
ust við þannig að búast má við
spennandi viðureign í kvöld.
Undanúrslitaleikir númer tvö
í körfuboltanum verða i kvöld. í
Njarðvíkum leika heimamenn
við nágranna sína í Grindavík og
þar verður öragglega hart barist
enda var fyrsti leikur liðanna
jafii og spennandi. í Reykjavik
leika svo KR og Keflvíkingar sem
sigraðu nokkuð öragglega í
fyrsta leiknum. Allir leikir
kvöldsins hefjast kl. 20.00.
Lífið í götunni
Á laugardaginn opnaði Guðrún
Benedikta Elíasdóttir málverkasýn-
ingu sem ber yfirskriftina Lífið í göt-
unni í Listhúsi 39 við Strandgötu i
Hafnarfirði. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Guðrúnar Benediktu en hún út-
skrifaðist úr Myndlista- og handíða-
Sýningar
skóla íslands árið 1987. Á þessum tíu
árum hefur hún starfað við myndlist-
arkennslu og hönnun auk uppsetn-
ingar á ýmsum sýningum og útstill-
ingum. í október 1995 opnaði hún
ásamt þremur öðrum listakonum
vinnu- og listmunagaileríið Skruggu-
stein og hefur starfað þar að listsköp-
un sinni síðan. Guðrún Benedikta
hefúr tekið þátt i mörgum samsýn-
ingum og á síðasta ári var hún kjör-
in bæjarlistamaður Kópavogs 1996.
Sýningin stendur til 7. apríl.
Bridge
Bandaríkjamaðurinn Mike
Passell, sem búsettur er í Dallas (f.
1947), er annar spilarinn í sögunni
sem skorað hefur meira en 40.000
ACBL meistarastig í Bandaríkjun-
um. Hinn spilarinn er Paul
Soloway. Mike Passell hefur marg-
sinnis verið í landsliði Bandarikj-
anna í bridge og vann meðal annars
til Bermúdaskálarinnar í heims-
meistarakeppninni 1979. Hér er eitt
spil með Passell í aðalhlutverki þar
sem honum tókst að yfírvinna
slæma legu í trompinu. Sagnir
gengu þannig, suður gjafari og eng-
inn á hættu:
* 9
** ÁKD
* G1084
* ÁK973
* D
W 8643
* D72
* 108642
Suður Vestur Norður Austur
1 Dobl pass 1G
3 pass 4 p/h
Vestur hóf vömina á því að taka
tvo hæstu í hjartalitnum, en lengd-
armerking vamarinnar virðist eitt-
hvað hafa farið úrskeiðis því vestur
skipti yfir í laufásinn í þriðja slag.
Passell trompaði laufið, spilaði sig
inn á spaðadrottningu og trompaði
aftur lauf. Þegar hann tók ásinn í
trompi fékk hann slæmu fréttimar
um leguna. Hann tók nú ÁK í tígli,
spilaði tígli á drottninguna og
trompaði lauf í þriðja sinn. Nú gat
hann spilað sig út á síðasta hjartað,
sem vörnin hafði „gleymt" að taka
og var búinn að ná trompbragöi
(„tramp coup“). Siðustu tvö spilin
hjá sagnhafa voru K10 i trompi, en
austur átti eftir G7.
ísak Örn Sigurðsson