Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
9
Utlönd
tosati.shmr!
W'hoiýe* rA**fr(*Ckt<rtfú
•nic vnvvr thim» voe mii
Mrrilli LS THMK MlU»U
i'ÍMÍ irrrmm fttnr/&ftQmfi+*
Söiii(i yæði Sama cjóða verðíð
Tóbaksfyrirtæki
að samninga-
borðinu
Forráðamenn bandarísku tóbaks-
Bjartsýni eftir viðræöur við Mandela:
Fundur Mobutus og
Kabila mögulegur
Á fjórða hundrað
pílagrímar fórust
Alls létu 343 pílagrímar lífið í eldi
í tjaldbúðum nálægt Mekka á
þriðjudaginn, að því er opinberir
fjölmiðlar í Sádí-Arabíu greindu frá
í gær. Áður hafði verið greint frá
því að 1290 hefðu slasast í eldsvoð-
anum. Flestir hinna látnu voru frá
Indlandi, Pakistan og Bangladesh.
Erfitt reyndist að bera kennsl á
hina látnu vegna þess hversu illa
brunnir þeir voru.
Yfirvöld í Sádí-Arabíu leggja
áherslu á aö um slys hafi verið að
ræða sem ekki tengdist stjómmál-
um á nokkurn hátt. Stjómarerind-
rekar og sjónarvottar segja að
kviknað hafi í eftir sprengingu í
gashylki.
Alls eru um 2 milljónir pílagríma
í og við Mekka og var hámark píla-
grímsferðar þeirra í gær er þeir
klifu Arafatsfjall. Báru þeir plast-
flöskur með vatni og regnhlifar til
að skýla sér fyrir sólinni og hitan-
um sem var 40 stig.
Vera kann að Laurent Kabila, leið-
togi uppreisnarmanna í Saír, eigi
bráðlega fund með manninum sem
hann er að reyna að koma frá völd-
um, það er Mobutu Sese Seko for-
seta.
Heimildarmenn, sem viðstaddir
voru viðræður Kabila og Nelsons
Mandela, forseta Suður-Afríku, i gær
sögðu að fúlltrúar Mobutus væra
einnig í Höfðaborg. Það væri hins
vegar ekki ljóst hvort þeir myndu
hitta Kabila að máli. Upplýsingaráð-
herra Saír, KinKiey Mulumba, sagði
i Kinshasa, höfuðborg Saír, í gær að
forsetinn og Kabila gætu hist strax
og sendimenn þeirra hefðu borið
saman bækur sínar.
Háttsettur s-afriskur embættis-
maður sagði Mandela, sem freistar
þess að finna friðsamlega lausn deil-
unnar í Saír, vilja að Mobutu og
Kabila ræðist við í Suður-Afríku.
Kabila kom til Höfðaborgar frá
Lubumbashi, annarri stærstu borg
Saír, sem uppreisnarmenn náðu á
sitt vald í siðstu viku.
Er Kabila ræddi við fréttamenn
fyrir brottför sína lýsti hann því yfir
að ekkert myndi stöðva þá ætlun
hans að koma Mobutu frá völdum.
„Það verður ekkert vopnahlé fyrr en
Mobutu lætur af völdum."
Verslanir og fyrirtæki opnuðu aft-
ur í Kinshasa í gær en þeim hafði
verið lokað á mánudaginn og þriðju-
daginn í mótmælaskyni við stefnu
forsetans. Uppreisnarmenn Kabila
segjast nú vera í 300 kílómetra fjar-
lægð frá höfuðborginni. Margir Saír-
búar efast um að stjómarherinn sé
fær um að verja borgina. Kabila tjáði
fréttamönnum í gær að sveitir sínar
myndu ná til borgarinnar innan
þriggja vikna. Reuter
Tvær vikur til
kosninga og
Major í vanda
Aðeins tvær vikur eru nú til
þingkosninganna í Bretlandi og
John Major forsætisráðherra
gengur ekkert að saxa á forskot
Verkamannaflokksins í skoðana-
könnunum. Til að bæta gráu ofan
á svart virðist sem baráttan við
andstæðinga innan eigin flokks
ætli að verða forsætisráöherran-
um þyngri í skauti.
í skoðanakönnun sem birtist í
blaðinu Times í morgun hefur
fylgi Ihaldsflokks Majors minnk-
að um tvö stig, er nú 32 prósent.
Verkamannaflokkurinn er með 17
prósentustiga forskot. í síðustu
viku virtist hins vegar sem
íhaldsflokkurinn væri að ná aftur
fylgi frá Verkamannaflokknum.
í gær þurfti Major enn á ný að
glíma við uppreisnarmenn í eigin
flokki sem eru andvígir þátttöku
Bretlands í sameiginlegri mynt
Evrópusambandsins. Tveir að-
stoðarráðherrar höfnuðu varkárri
stefnu Majors og af þeim sökum
brá forsætisráðherrann á það ráð
að taka upp sjónvarpsákall til
kjósenda um að hlusta nú fyrst á
hann áður en þeir ljá uppreisnar-
mönnunum eyra.
Verkamannaflokkurinn segir
aö tveir aðstoðarráðherrar til við-
bótar hafi einnig brotið stefnu
íhaldsflokksins í Evrópumálum.
Sátta leitaö í
bílastæðadeilu
Lögfræöingar Sameinuðu þjóð-
anna hafa fallist á málamiðlunar-
tillögu bandaríska utanríkisráðu-
neytisins í deilunni um stöðu-
mælasektir erlendra sendimanna
hjá SÞ. Ekki liggur hins vegar
ljóst fyrir hvort yfirvöld í New
York-borg sætta sig viö hana.
Borgarstjóri New York vildi
taka sérstakar númeraplötur af
þeim sendimönnum sem aldrei
greiddu sektir en málamiðlunin
gerir ráð fyrir að sendinefnd í van-
skilum missi eitt númer. Reuter
fyrirtækjanna era að semja í fyrsta
skipti við dómsmálayfírvöld í fjöl-
mörgum ríkjum Bandarikjanna um
hugsanlega sátt í miklum fjölda
málaferla á hendur tóbaksframleið-
endum. Fyrstu umferð viðræðn-
anna, sem hófst fyrir um tveimur
vikum, lauk i Virginíufylki í gær.
Steve Berman, lögfræðingur frá
Seattle sem tekur þátt i samninga-
viðræðunum, sagði að enn hefði
ekki verið ákveðið hvenær viðræð-
urnar hæfust aftur.
Hubert Humphrey, dómsmálaráð-
herra Minnesotafylkis, sagði i síma-
viðtali við Reuters-fréttastofuna að
viðræðumar væru á byrjunarstigi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef
séð forráðamenn tóbaksfyrirtækj-
anna við samningaborðið í þau þrjú
ár sem við höfum staðið í þessum
málaferlum. Það er virkilega þýð-
ingarmikið," sagði Humphrey.
Hann bætti við að sér fyndist til-
lögumar sem til þessa heföu verið
lagðar fram vera ófullnægjandi og
Scott Harshbarger, dómsmálaráð-
herra Massachusettsfylkis, sem
einnig tekur þátt í viðræðunum,
varaði við því að niöurstöðu væri
ekki að vænta alveg á næstvmni.
Berman sagði aftur á móti að
töluvert hefði miðað áleiðis og hugs-
anlegt væri að samkomulag næðist
á þessu ári.
Humphrey og Harshbarger og
Yfirvöld í
Kanada leyfa
þorskveiðar
** Mv n^urtie b
ikMHlltaarllf...
ihjls \iin’ tÍíslrrlírlá
Unr'Íavontr
Ronald Reagan var einn þeirra sem
auglýstu sígarettur.
tuttugu starfsbræður þeirra úr öðr-
um ríkjum hafa höfðað mál á hend-
ur tóbaksframleiðendum til að end-
urheimta kostnað hins opinbera
vegna veikinda reykingamanna.
Vaxandi þrýstingur hefur verið á
tóbaksframleiðendm- um að semja
um bætur til reykingamanna og í
síðasta mánuði var samstaða þeirra
rofin þegar minnsta fyrirtækið, Lig-
gett, gerði sögulegt samkomulag um
greiðslu skaðabóta. Reuter
Kanadísk yfirvöld hafa ákveðið
að leyfa þorskveiðar að vissu marki
undan strönd landsins við Atlants-
haf. Ákvörðunin vekur vonir með
sjómönnum sem verið hafa atvinnu-
lausir árum saman en vísindamenn
gagnrýna hana.
Sjávarútvegsráðherra Kanada,
Fred Mifilin, ætlar að tilkynna í Ný-
fimdnalandi í dag að þorskveiðar
verði leyfðar á ný að hluta til en
þær vora bannaðar 1993 til að stofn-
inn gæti náð sér eftir ofveiðar.
Fiskvemdarráð mælti með því í
október að veidd yrðu 22 þúsund
tonn af þorski á þessu veiðitímabili
undan suðurströnd Nýfundnalands
og St. Lawrence-flóa. Árið 1993 voru
veidd 38 þúsimd tonn á þessum
slóðum.
Nokkrir vísindamenn telja of
snemmt að hefja þorskveiðar. Segja
þeir áreiðanlegustu kannanirnar,
sem þeir hafi undir höndum, sýna
að stofninn hafi ekki náð sér aftur
nógu vel. Reuter
Til þess að öðlast hylli guðsins Shiba og fá óskir sínar uppfylltar pynda hindúar sig á trúarhátíðum. Þessi hindúi rak
járnrör í gegnum tunguna á hátíð í bænum Bainan í austurhluta Indlands. Símamynd Reuter
Tímamót í málaferlum í Ameríku:
Hafnarfjöiöui' - Garöabær
Reylcjavík - Kopavogur
Dalbraut 1 - Reykjavík
Dalsbrauni 11 - Hafnarfirði
Komdu og sœktu
Lóttu senda þer heim
Fjölskyldutilboð
16“ pizza m/2 aleggsteg.
890 kr.
18 pizza m/3 aleggsteg
12“ hvítlauksbrauð
eða margarita.
hvítlauksolía og
2 l kók.
pizza m/2 ateggsteg
990 kr.
1.790 kr.
Ef keyptar eru tvœr pizzur
þá fœrðu 200 kr. í afslátt.
(Glldir eingöngu ef sótt er.)
16 pizza m/3 aleggsteg
1.200 kr.