Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 13 Fréttir Nýtt framboð R-listans: Eining um framboð ekki um uppstillingu - Alþýðuflokkur vill Aðildarflokkar R-listans eru allir sammála um að bjóða sameiginlega fram í sveitarstjómarkosningunum að ári en ekki sammála um hvemig raðað verður á listann, um hvort al- gert jafnræði skuli ríkja þannig að hver flokkanna tilnefni tvo fulltrúa á listann en einn Qokkanna einn, eins og varð hlutskipti Alþýðu- flokksins síðast, eða hvort, eins og Alþýðuflokkurinn krefst nú, að fram fari opið prófkjör og niðurstöð- ur þess ráði uppröðun á listann. Allir flokkarnir hafa hver um sig skipað fimm manns I viðræðunefnd sem marka á stefnuna í framboðs- málum R-listans. Fulltrúamir em valdir út hópi flokksfélaga og eru engir þeirra núverandi borgarfull- opið prófkjör - hinir vilja jafnræði við val á framboðslistann Frá kosningafundi R-listans árið 1994. Mun jafnréttisreglan ráða við uppröö- un á nýjan R-lista eins og síðast eða verður annað fyrirkomulag viöhaft? Al- þýðuflokkurinn er á annarri skoöun en hinir flokkarnir, hann vill prófkjör, hinir vilja jafnmarga frambjóðendur frá hverjum fiokki. trúar. Samtals eru þetta 20 manns en auk þess er ætlunin að fimm aðr- ir fulltrúar úr svonefndum félags- hyggjugeira stjómmálanna verði í þessu kosningaráði sem gengur undir nafninu Samráðið. Að sögn Valdimars K. Jónssonar gætu þess- ir fimm aukafulltrúar komið úr Þjóðvaka, Birtingi, Grósku eða öðr- um slíkum samtökum. Samráðið hefur ekki komið saman enn þá en búist er við að það haldi sinn fyrsta fund síðar í þessum mánuði og hafi síðan sumarið og haustið til að móta stefnu í því hvernig valið verður á nýjan R-lista en framboðs- listi liti dagsins ljós upp úr næstu áramótum. -SÁ Alþýðubandalagið: Ekki rétt aö tjá sig - segir Guðrún „Þetta er umræða sem fer fram í okkar hópi og ég tel ekki rétt að við sem stöndum að Reykjavikur- listanum tjáum okkur um þetta opinberlega að svo stöddu heldur ræðum það í okkar hópi og tökum sameiginlega ákvörðun,“ segir Guðrún Ágústsdóttir, borgarfull- trúi R-listans og forseti borgar- stjómar, aðspurð hvers konar fyrirkomulag verði viðhaft við uppröðun á R-listann fyrir sveit- arstjómarkosningarnar að ári. Guðrún er fulltrúi Alþýðubanda- lags á listanum. Guðrún segir að um þessar mundir séu þeir flokkar sem standa að R-listanum að skipa fulltrúa í vinnuhóp sem í munu sitja 5 manns frá hverjum flokk- anna en enginn þessara fulltrúa verði skipaður úr hópi borgarfull- trúa. Vinnuhópurinn á að hafa það verkefni að vinna að framboð- inu og að ákveða með hvaða hætti raðað verður á listann. Þeir mögu- leikar sem til greina koma séu eitt opið prófkjör R;listans, eða þá að flokkarnir sem að listanum Agústsdóttir Guðrún Ágústsdóttir, borgarfuil- trúi Alþýöubandalags og forseti borgarstjórnar. standa skipi sjálfir fulltrúa sína á listann og er hópnum ætlað að komast að niðurstöðu. -SÁ Kvennalistinn: Landsfylgið kem- ur málinu ekki við - segir Steinunn „Fylgi flokka á landsvísu kemur sveitarstjómarstiginu í raun og vem ekkert við,“ segir Steinunn V. Óskarsdóttir borgarfulltrúi Kvenna- listans, aðspurð hvemig Kvenna- listinn vildi standa að uppstillingu á nýjan R-lista fyrir næstu sveitar- stjómarkosningar að ári. Kvennalistinn mælist nú með mjög lítið fylgi í skoðanakönnunum og Steinunn var spurð um stöðu listans í R-listasamstarfmu í ljósi þess. Steinunn sagði að við síðustu uppstillingu hefði ekkert verið horft til fylgis flokkanna vegna þess að R- listinn byggi einfaldlega á jafnræði þeirra sem að honum standa. Um leið og jafnræðisreglan sé sett til hliðar sé samkomulaginu um list- ann steftit í hættu. Steinunn segir að samráðshópur- inn sem nú er að taka til starfa muni koma fram með tillögur um hvernig á að setja R-listann saman, en innan V. Óskarsdóttir Stéinunn V. Óskarsdóttir, borgarfull- trúi Kvennalistans. Kvennalistans hafi málið ekki sér- staklega verið rætt. Niðurstöðu hópsins sé beðið en hann verði að fá tíma til að ræða málið og finna ásættanlega aðferð fyrir alla við að setja saman framboðslista. -SÁ Framsóknarflokkur: Jafnræðisreglan grundvallaratriði - segir Valdimar K. Jónsson „Ég held að þetta vinnist aldrei nema jafnræðishugtakið liggi að baki. Það dugar ekki að henda þessu öllu saman i eitt prófkjör sem einn flokkanna kynni að lenda illa úti í,“ segir Valdimar K. Jónsson, formaður fulltrúaráðs framsóknar- félaganna í Reykjavik. Framsóknarmenn sem DV hefur rætt við telja að sökum bágrar út- komu Kvennalistans í skoðana- könnunum að undanfórnu, sam- hliða mjög sterkri stöðu hans innan R-listans á yfirstandandi kjörtíma- bili, jafnvel óeðlilega sterkri, þurfi að endurskoða stöðu listans í nýju R-listasamstarfi. Valdimar var spurður um þetta atriði og sagði hann að listinn gæti vissulega farið mjög illa út úr opnu prófkjöri, enda þótt enginn efaðist um sterka stöðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Þetta væri hættan við Valdimar K. Jónsson, formaður full- trúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík. opið prófkjör og nauðsynlegt að finna ásættanlega leiö fyrir alla að- ila. -SÁ Rúnar Geirmundsson, formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Alþýöuflokkurinn: Stefnum að opnu ^ gmm ■ ■ profkjori - segir Rúnar Geirmundsson „Það er alveg klárt mál að við munum ekki sætta okkur við þá aöferð sem beitt var síðast þar sem annar okkar manna varð raunverulega níundi maður á listanum,“ segir Rúnar Geir- mundsson, formaður Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur, í sam- tali við DV. Rúnar segir það nauðsynlegt að hefjast handa strax við fram- boðsvinnuna áður en sumarfrí hefjast þannig að hægt verði að ganga frá nýjum framboðslista strax að loknum sumarfrium. Þeir flokkar sem standa að R- listanum hafa hver um sig skip- að fimm menn í ráð, svokallað samráð, sem ætlað er að komast að niðurstöðu um hvernig raðað verði á nýjan R-lista. Rúnar seg- ir aö fulltrúar Alþýðuflokksins í samráðinu hafi fengið það vega- nesti að stefna að opnu próf- kjöri. -SÁ AÐALFUNDUR verður haldinn föstudaginn 25. apríl 1997, kl. 15:30 á Grand Hótei Rcykjavík, Hvammi. / VAXTAR ' SJÓÐURINN Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, sbr. 14. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 3. Heimild til stjórnar félagsins um kaup á hlutabréfum félagsins á næstu átján mánuðum, sbr. lög nr. 2/1995 um hlutafélög. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Kirkjusandi, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. / Hluthafar eru hvattir til að mætal REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.