Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1997
29
íslenska ása
trúarfálagið
Ásatrú er einhvern veginn
ekki eitt af þvi sem maður teng-
ir við nýjustu tækni. En þeir
eru engu að síður með heima-
síðu sem er á http:
// www.saga.is/asatru.
Allt um flugur
AUt sem þú vilt hugsanlega
vita um flugur en hefur ekki
getað komist að enn þá getur
þú nú fundið á
http://www.ex.ac.uk/-gjlra-
mel/diptera.html.
Jerry Seinfeld
Það þykir enginn sjónvarps-
þáttur vera samkeppnisfær nú-
orðið nema að vera með heima-
síðu. Jerry Seinfeld er að sjáif-
sögðu enginn eftirbátur og síð-
an hans er á
http://www.nbc.com/entertain-
ment/shows/seinfeld/biosein-
feld.html.
Devils Own
Kvikmyndin Devil’s Own
hefur verið sýnd undanfarið
við miklar vinsældir. Heima-
síða þeirrar kvikmyndar er
http:
/ / www.spe.sony.com/movies/f
eatures/devilsown.html.
Curling
Hin stórskemmtilega en jafn-
framt stórfurðulega íþrótt, curl-
ing, er ekki vel þekkt á íslandi,
nema þá helst þegar menn leita
að fáránlegum íþróttum. En til
eru menn sem stunda þetta af
miklum áhuga og einn þeirra
hefur gert myndarlega curling-
heimasíðu, http:
//www.tsn.ca/broadcast-
booth/curling/curling.html.
Ofnæmi og asma
Ofnæmi og asma eru algeng-
ir kvillar hérlendis. Hægt er að
fræðast um margt tengt þessum
miður skemmtilega gesti á http:
// www.allemet.com.
tS
Breskir grínarar
Margir kunna vel að meta
breskan húmor. Hægt er að fá
ýmis sýnishom af honum á
http: //www.comedyweb.co.uk.
Henrik Ibsen
í bók-
menntirnar.
Það era
margir höf-
undarnir
sem eiga
sína heima-
síðu þótt
þeir hafi
ekki verið í ______________
tölu lifenda lengi. Einn þeirra
er Henrik Ibsen en heimasíðu
hans er að finna á
http://www.hd.uib.no/ibs-
■ ■ Ráðstefna um rafsilfur og greiðslukortaviðskipti á netinu:
Oryggi mun stóraukast á næstu árum
Skýrslutæknifélag Islands stóð í
síðustu viku fyrir ráðstefnu sem
bar heitið Rafsilfur - verslun og við-
skipti á Intemetinu. Sex fyrirles-
arar, fjórir íslenskir og tveir erlend-
ir, ræddu hvaða nýjungar væru í
gangi á sviði öryggismála i verslun-
um á netinu. Var þar rætt um
tvenns konar greiðslumiðla:
greiðslukortin, sem era notuð í yfir
80% af þeim viðskiptum sem fara
fram á netinu, og rafsilfur (e. e-
cash) sem virkar að langmestu leyti
eins og hefðbundin peningavið-
skipti, nema peningarnir eru ekki í
prentuðu formi heldur tölvutæku.
Haukur Oddsson, formaður
Skýrslutæknifélagsins, setti ráð-
stefnuna. í máli hans kom m.a. fram
að velta rafrænnar verslunar á net-
inu var aðeins 500 milljónir Banda-
ríkjadala (u.þ.b. 35 milljarðar
króna) á síðasta ári, sem er t.d.
þrisvar sinnum meira en velta Hag-
kaups. 2,7 milljónir notenda fram-
kvæmdu einhverjar aðgerðir í þess-
um verslunum. Það sem aðallega
var keypt var hugbúnaður og vara-
hlutir í hljómtæki og tölvur. Að
sögn Hauks er þvi hins vegar spáð
að eftir 4-5 ár verði velta verslunar
á netinu 10 milljarðar Bandaríkja-
dala.
Greiðslukortaviðskipti
Fyrsti ræðumaður á ráðstefnunni
sjálfri var Júlíus Óskarsson, for-
stöðumaður tæknisviðs Visa- ís-
land. Hann rakti fyrst sögu net-
verslunar þar sem menn sendu
fyrst greiðslukortanúmer sín
óbrengluð til verslunarinnar, með
öllu því óöryggi sem fylgdi, bæði
fyrir korthafann og verslunina.
Þannig voru dæmi um að freistandi
tilboð kom á netið og þegar til kom
reyndist ekkert vera á bak við það
og korthafinn tapaði peningunum.
Einnig gat það gerst að maöur gat
pantað vörur á kortnúmer annars
Forrit sem reiknar
út námslán
Samtök íslenskra námsmanna
erlendis (SÍNE) hafa nú látið gera
forrit þar sem reiknað er út
hversu mikil námslán námsmað-
ur á kost á.
Hægt er að komast í forritið frá
heimasíðu SÍNE, http://www.-
centrum.is/sine. Þegar í forritið
er komiö er spurt um ýmislegt
sem notað er þegar reikna á út
námslán, s.s.fjölskylduaðstæður,
tekjur námsmanns og maka hans,
tímabil sem lánið er sótt um fyrir,
hvernig nám um sé að ræða o.fl.
Þegar búið er að gefa allar þessar
upplýsingar eru þær sendar i for-
ritið sem reiknar út hversu há
lánin verða samkvæmt gefnum
forsendum.
Reikna má með að námsmenn
muni grípa þetta tækifæri fegins
hendi, því með þessu geta þeir
gert nákvæmari áætlun en áður
um hverjar tekjur þeirra verða á
námstímanum.
í sumar er ætlunin að setja á
vefsíðu SÍNE annað forrit sem
reiknar þá út greiðslubyrði lán-
anna þegar kemur að því að borga
þau til baka.
Tribh A.S. Grewal hjá Verifone kynnir
DV-mynd E.ÓI.
manns, með tilheyrandi óþægind-
um fyrir verslunina og korthafann.
Júlíus kynnti í ræðu sinni staðal
sem kallast SET (secure electronic
transaction) en tvö stærstu korta-
fyrirtæki heimsins, VISA og
Mastercard, sameinuðust um þenn-
an staðal. í honum eru notaðir tveir
lyklar, einkalykill, sem aðeins einn
notandi hefur, og dreifilykill sem
allir hafa. Skilaboð sem brengluð
eru með dreifilykli er aðeins hægt
að afbrengla með einkalykli við-
komandi notanda og öfugt. Einnig
kynnti Júlíus svokallaða stafræna
undirskrift sem er notuð til að stað-
festa færslu. Allt þetta er til þess
fallið að auka öryggi kortaviðskipta
á netinu. Hann spáði því, eins og
reyndar fleiri sem töluðu á þessari
ráðstefnu, að öryggi í netverslun
muni stóraukast á næstu áram.
hugbúnaöinn fyrir verslun á netinu.
Stefán Hrafnkelsson, fram-
kvæmdastjóri Margmiðlunar, taldi í
sínum fyrirlestri að SET-staðallinn
gæfi miklar vonir um öryggi á net-
inu. Hann taldi að þessi staðall yrði
notaður samhliða svokölluðum
smartkortum sem er stungið í tölv-
una og þannig yrði hægt að sann-
reyna að um réttan einstakling
væri að ræða. Þar að auki fengi
verslunin aldrei kortanúmerið held-
ur færi það beint í bankann og hann
kannaði hversu heiðarleg verslunin
væri.
Hugbúnaður
sem notar SET
Næsti fyrirlesari var Tribh A.S.
Grewal sem starfar hjá Verifone.
Þetta fyrirtæki hefur m.a. framleitt
um 93% af öllum þeim greiðslu-
kortaposum sem eru notaðir í versl-
unum hér.
Grewal kynnti hugbúnað sem ber
nafnið Internet Consummer og er
sérstaklega ætlaður til nota í versl-
unum. Hugbúnaður þess er tengdur
vafranum (plugin for browser).
Hann virkar þannig að þegar búið
er að ákveða hvað á að kaupa birt-
ist „veski“ þar sem valinn er
greiðslumiðill. Þetta virtist mjög
þægilegt í notkun þegar hann sýndi
þetta og það verður gaman að sjá
þetta þegar það kemst í almenna
notkun.
Á næstu tölvusíðum verður fjall-
að um hinn greiðslumiðilinn sem
rætt var um á ráðstefnunni, þ.e. raf-
silfrið.
Síða um Guðmundar-
og Geirfinnsmálin
Komin er á vefmn heimasíða þar
sem Guðmundar- og Geirfmnsmálun-
um eru gerð ítarleg skil og þau skoð-
uð frá ýmsum hliðum. Maðurinn á
bak við þessa síðu er Tryggvi
Húbner tónlistarmaður, en hann hef-
ur lengi haft mikinn áhuga á þessum
máli.
Meðal þess sem fmna má á síð-
unni eru blaðagreinar sem skrifaðar
hafa verið um máhð síðustu fimm
árin, 22. kafli laga um meðferð opin-
berra mála og tengingar við sam-
bærileg mál erlendis. Einnig gefst
þeim sem skoða síðuna tækifæri til
þess að koma sínum skoðunum á
ffamfæri og sjá skoðanir annarra.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin
eru umfangsmestu sakamál í réttar-
sögu íslands og því er líklegt að
margir verði nokkurs vísari af því að
skoða þennan vef Tryggva. Slóðin er
http://www.this.is/mal214, en nafnið
kemur til af því að þetta sakamál var
mál nr. 214 i hæstarétti árið 1978.
-m
MANUDAGS -g
spi all
ídag
s J hittumst
IHVERFINU GRAFARVOGUR
Alþingismenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík
eru með viðtalstíma í hverfum
borgarinnar á mánudögum.
*
I dag verða
DAVÍÐ ODDSSON
forsætisráðherra
&
ÁRNI SIGFÚSSON
borgarfulltrúi
Hverafold 1-3 (Apótéksmegin)
kl. 17-19
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla
Reykvíkinga að ræða málin og skiptast
á skoðunum við kjörna fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og
láttu skoðanir þínar heyrast
,
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
Nánari upplýsingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins
http://www.centrum.is/x-d
VÖRÐUR - FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAG ANN A í REYKJAVÍK