Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997
Útlönd
Stuttar fréttir dv
Frakkar og Bretar sammála innan ESB:
Vilja fá atvinnu-
málin í öndvegi
Vinir og grannar
segja McVeigh
vænsta dreng
Timothy McVeigh, sem var
fundinn sekur um sprengjutil-
ræðiö í Oklahomaborg, var lífs-
glaöur unglingur, duglegur
námsmaöur
og fyrirmynd-
arhermaður
sem bjargaði
lífi manns á
vígvellinum,
aö sögn fyrr-
um nágranna
hans, vina og
félaga úr
hernum.
Þetta kom
fram við
vitnaleiöslur í síðari hluta réttar-
haldanna yfir McVeigh í Denver
í gær. Kviðdómur vegur nú og
metur hvort fallast eigi á kröfur
saksóknara og dæma McVeigh til
dauða eða hvort senda eigi hann
í fangelsi fyrir lífstíð. Búist er
við niðurstöðu í vikulokin.
Clinton beitir
neitunarvaldi
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
beitti neitunarvaldi sínu á laga-
frumvarp um að veita 8,6 millj-
arða dollara í neyðaraðstoð við
35 riki Bandaríkjanna og til að
fjármagna veru hermanna í
Bosníu og viö Persaflóa. Ástæðan
er sú að repúblikanar i þinginu
höfðu með í frumvarpinu ýmis
gælumál sín sem forsetinn er
mjög andvígur.
Flugræningjar
gáfust upp
Þýska lögreglan yflrheyrði í
gær tvo tyrkneska menn sem
rændu flugvél frá Möltu og sneru
henni til Þýskalands. Þar gáfust
mennimir upp. Flugræningjam-
ir höfðu krafist þess að maður-
inn sem reyndi að myrða páfa
árið 1981 yrði látinn laus úr
ítölsku fangelsi. Reuter
Breski fjármálaráðherrann, Gor-
don Brown, lýsti í gær yfir stuðn-
ingi sínum við þá ákvörðun Frakka
að slá á frest undirritun stöðug-
leikasáttmálans fyrir myntbandalag
Evrópusambandsins. Hann sagði
jafnframt að hann og franskur
starfsbróðir hans væru sammála
um að atvinnumálin væm mikil-
vægasta verkefni ESB. Dominique
Strauss-Kahn, fjármálaráðherra
Frakklands, olli miklu uppnámi á
fundi fjármálaráðherra ESB í gær
þegar hann tilkynnti að Frakkar
gætu ekki skrifað undir stöðug-
leikasáttmálann á leiðtogafundi
ESB í Amsterdam á mánudaginn
kemur, eins og fyrirhugað var, þar
sem stjóminni gæfist ekki tími til
að ráðfæra sig við nýkjöriö þing.
Hann bað um tíma til að skoða
betur sáttmálann þar sem gert er ráð
fyrir að þau lönd verði sektuð sem
ekki tekst að halda fjárlagahalla sín-
um í skefjum þegar sameiginlega
myntin verður tekin við. Strauss-
Kahn sagði að það tæki lengur en
viku að skoða málið betur.
Leiðtogar ESB samþykktu skil-
yrðin fyrir stöðugleikasáttmálanum
á fúndi sínum í Dyflinni í desember
síðastliðnum. Samkvæmt honum
má fjárlagahallinn ekki fara yflr
þrjú prósent af landsframleiöslu,
nema mikill samdráttur sé í efna-
hagslífi viðkomandi lands.
Ráðherrar í frönsku ríkisstjórn-
inni, sem tók við völdum fyrir að-
eins einni viku, hafa lýst yfir óá-
nægju sinni með sáttmálann. Þeir
telja að þar sé of mikið kapp lagt á
að halda verðlagi stöðugu á kostnað
hagvaxtar og atvinnu. Til stóð að
sáttmálinn yrði staðfestur í Amster-
dam í næstu viku en nú er útlit fyr-
ir að það dragist til júníloka.
Gordon Brown sagði að þeir
Strauss-Kahn hefðu ræðst við og
orðið ásáttir um að Evrópuþjóðim-
ar yrðu að setia atvinnumálin í önd-
vegi. Reuter
íbúar í Freetown í Sierra Leone standa í biðröð fyrir utan eina af þeim fáu matvælaverslunum í borginni sem eru opn-
ar. Alvarlegur skortur hefur veriö á matvælum og eidsneyti í landinu frá því að herinn tók völdin fyrir tveimur vikum.
Sfmamynd Reuter
3ARHA
fcffT'
20 Kjörísbollr
Guðbjartur Arnar
Nr. 10820
Ingi Þór Hallgrímsson
Nr. 8530
Aron Rúnarsson
Nr. 4592
Berglind Ólafsdóttir
Nr. 11122
Ellen Elmarsdóttir
Nr. 1263
Katrín Diljá Jónsdóttir
Nr. 7474
Sindri Snær Helgason
Nr. 8930
Sigurður Helgi Magnús-
son
Nr. 1890
Dagný Rut Hjartardóttir
Nr. 11398
ívar Þór Birgisson
Nr. 8529
Fanney Vigfúsdóttir
Nr. 1326
Hildur Edda Grétarsdótt-
ir
Nr. 10544
Hafrún Brynja Einars-
dóttir
Nr. 6113
Flóra Karítas
Nr. 10529
Árni Jón Einarsson
Nr. 5830
Sóley Dögg Guðbjörns-
dóttir
Nr. 11399
Tanja Huld Guðmunds-
dóttir
Nr. 7393
Arnar Ingi Einarsson
Nr. 9771
Vilfríður Hrefna Hrafns-
dóttir
Nr. 6637
Karen Kristíne Pye
Nr. 9224
Krakkaklúbbur D V
og Kjörís þakka öll-
um sem tóku þátt
kærlega fyrir frá-
bæra þátttöku.
Vinningshafar fá
vinninganna
senda í pósti
\ næstu daga.
Harðir bardagar
í Brazzaville í
Kongó
Skotbardagar voru í Brazza-
ville, höfúðborg Kongós, í gær-
kvöld þrátt fyrir tilkynningu
franskra yfirvalda um vopna-
hléssamkomulag milli stríðandi
aðila. Átökin, sem hófust á
fimmtudaginn, eru á milli liðs-
manna Nguesso, fyrrverandi for-
seta, og hermanna Lissouba for-
seta. Forsetakosningar verða í
Kongó 27. júlí.
Kongó er fyrrverandi nýlenda
Frakka. Þeir sendu í gær liðs-
auka til Brazzaville og eru
franskir hermenn þar nú um
1200. Helsta hlutverk þeirra er að
flytja á brott hundruð Frakka og
aðra útlendinga frá Kongó.
Fæddi barn
á skólaballi
og fleygði því
í ruslið
Nítján ára stúlka frá Forked
River í New Jersey fæddi dreng á
útskriftarballi í framhaldsskóla á
fóstudagskvöld og fleygði honum
síðan í ruslafötu á salemi skól-
ans. Áður en klukkustund var
liðin frá fæðingunni var stúlkan
komin út á dansgólfið aftur og
bað meira að segja um óskalag.
Ræstitæknir fann drenginn lát-
inn í ruslafotunni. Það kemur í
ljós eftir krufningu hvort dreng-
urinn hafi fæöst andvana eða lát-
ist í ruslafotunni.
Skólafélagar stúlkunnar vissu
ekki að hún var bamshafandi.
Hún var í víðum kjól á útskrift-
arballinu og dansaði eins og ekk-
ert hefði í skorist. Reuter
Athugasemdir
Sameinuðu þjóðimir neita að
hafa gert skýrslu þar sem gerðar
em athugasemdir við framkvæmd
kosninganna í Alsír. Talsmaður SÞ
sagði alþjóðlega eftirlitsmenn hafa
gert skýrsluna.
Ályktun gegn ísrael
Bandaríkin eru andvíg ályktun
SÞ þar sem ísrael er krafið tun
skaðabætur vegna loftárásar á
stöövar SÞ í Líbanon í fyrra.
Ástæöan er sögð sú aö nefnd SÞ
gerði meir en hún hafði heimild til.
Hættur við umsókn
Herforinginn Joseph Ralston er
hættur við að
sækjast eftir
stöðu yfirmanns
bandariska herr-
áðsins í kjölfar
uppnáms vegna
framhjáhalds
hans fyrir 13
árum. Ralston
hefur hins vegar samþykkt beiðni
Cohens vamarmálaráðherra um að
gegna áfram embætti varafor-
manns ráðsins.
Segir af sér
Forsætisráðherra Haiti, Rosny
Smarth, hefur sagt af sér. Hann var
harðlega gagnrýndur fyrir stjórn-
un efnahagsmála og hafa mótmæl-
endur gripið til ofbeldisverka.
Leiðtoginn til Kabúl
Mullah Mohammed Omar, leið-
togi uppreisnarmanna Talebana í
Afganistan, kom um helgina í
fyrsta sinn í heimsókn til Kabúl frá
því að menn hans tóku borgina í
september síðastliönum.
Mótmæli í Sviss
Um 20 grænfriðungar stöðvuðu í
Sviss ferð tveggja vöruflutninga-
bíla sem þeir telja að séu á leið
með kjamorkuúrgang tú Frakk-
lands eða Bretlands.
Bossi fyrir rétt
ítalskur dómari úrskurðaði í
gær að Umberto
Bossi, leiðtogi
Bandalags norð-
amnanna, ætti að
koma fyrir rétt
fyrir að hvetja
stuðningsmenn
sína til ofbeldis,
hótana og ófrægingar. Bossi hefur
þegar verið dæmdur fyrir að hafa
þegið mútugreiöslur til flokks síns.
Tamílar gera árás
Uppreisnarmenn Tamíla á Sri
Lanka gerðu í nótt árás á ffarn-
varðarsveitir stöðvar hersins til að
koma í veg fyrir aðstoð þeirra við
hermenn í norðurhluta landsins.
Neitaö um lifur
James Earl Ray, sem dæmdur
var fyrir morðið á Martin Luther
King, fær ekki að gangast undir
rannsóknir sem gætu leitt til þess
að hann fengi nýja lifur. Ray er
með banvænan lifrarsjúkdóm.
Þrír sluppu lifandi
Þremur mönnum var bjargað lif-
andi úr flaki mongólskrar farþega-
flugvélar sem fórst í morgun. Að
minnsta kosti tólf manns voru í
vélinni.
Páfi lýkur ferð
Jóhannes Páll páfi hefur lokið
pílagrímsferð
sinni á heima-
slóðir í Póllandi
og hafði hún
djúpstæð áhrif á
hann. Hann
hvatti landa sína
til að íhuga nú
vel hvemig þeir
ætluðu að nýta sér frelsi sitt.
Uppskeru beðið
Kim Jong-0, leiðtogi Norður-
Kóreu, þakkaði í morgun bændum,
hermönnum og öðrum borguram
fyrir framlag þeirra til hrísgrjóna-
ræktunarinnar og sagðist vonast
eftir góðri uppskera. Mikill matar-
skortur hefúr verið í landinu að
undanfomu. Reuter