Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 Spurningin Hvaö myndiröu taka með þér á eyðieyju? Guðmundur H. Guðmundsson: Mat. ívar Örn Jóhannesson: Líka mat. Kolbrún Ingólfsdóttir: Manninn. Felix Jósafatsson: Ég myndi nú helst vilja taka með mér konu og svo eitthvað að borða. Sigurlaug Vilhjálmsdóttir: Kærastann. Anna Rósa Harðardóttir: Nesti og fjölskylduna mína. Lesendur_____________________ Kattaræktunar- félagið Kynjakettir - blekkingar eða náttúrulögmál sem gildir? Ekki er æskilegt aö láta frá sér örþreyttar ræktunarlæöur ógeldar, segir bréf- ritari m.a. Vilhelm skrifar: í tölublaði því sem kattaræktun- arfélagið Kynjakettir hefur nýlega sent frá sér er grein sem heitir „Úlf- ar í kattagervi". Þar greinir höfund- ur frá glæp sem getur varðað allt að 6 ára fangelsi (að sögn greinarhöf- undar). í greininni er fjallað um fyrrverandi formann félagsins og hvemig ein besta undaneldislæðan hafi komist i hendurnar á óæskileg- um kattareiganda, væntanlega þá keppinaut hennar i sölu á kettling- um? En sem formaður á hún að vita að ekki er æskilegt að láta örþreytt- ar ræktunarlæður frá sér ógeldar. Fylgdi kannski heilbrigðisvottorð eins og er við hæfi? í annarri grein í lögum Kynjakatta segir að tilgangur félags- ins sé aö vinna með öðrum katta- og dýrafélögum að baráttu fyrir mál- efnum katta og annarra dýra, katta- ræktenda og kattavina. - Hér tala peningar. Það kostar nefnilega 7.330 kr. að láta gelda læðu og þá er gróð- inn ekki eins mikill, jafnvel þótt læðan sé búin að spóla úr sér kett- lingum í áraraðir! í greininni er sífellt klifað á hin- um mikla glæp. Hvaða glæp? spyr ég. Að senda vinkonu sína til að kaupa kött? Konunni hafði verið vísað frá, þrátt fyrir að hún væri fé- lagi i kattaræktunarfélaginu. Hvers vegna er henni þá synjað um læð- una? Ganga ekki félagsmenn fyrir um kaup á ræktunardýrum eins og kveður á í lögum félagsins? í áðurnefndri grein segir orðrétt: „Svona fólk vill félagið ekki hafa innan sinna vébanda og vonar að þeir sem hafa slíkt innræti hunskist á brott úr félaginu." - Og síðan: „Þetta eiga aðrir félagsmenn og kettimir þeirra ekki skilið." - Hvað eigum við ekki skilið? Fyrir hvern er greinarhöfundur að tala? Er það ekki greinarhöfundur með sína ókurteisi og yfirgang sem ætti að „hunskast á brott úr félaginu"? For- maðurinn og nokkrir aðrir háttsett- ir ættu að huga að því að draga sig i hlé og hleypa fólki sem engra hags- muna hefur að gæta í þessar stöður. Ég hef sjálfur þurft að ganga í gegnum slíka „þolraun", svo ekki sé fastar að orði komist. Allir passa sig og sína og það er eðlilegur gangur í náttúrunni. En náttúrulögmálið gildir ekki í Kynjaköttum, eða hvað? Reyni kattaræktendur með blekkingum og samstarfi sín á milli að útiloka samkeppni (sem ég hef persónulega reynslu af) þá er hér um miklu alvarlegri glæp að ræða en sagan hér að ofan um stelpuna sem keypti kisu fyrir vinkonu sína greinir frá. Því hér er verið að grafa undan meginstefnu félagsins fyrir eigin hagsmuni. Það á að líta alvar- legum augum eigi félagið að vera fyrir alla félagsmenn en ekki fáa út- valda. - Því er spurt: Hver er hinn lagalegi réttur félagsins og kaup- enda gagnvart misvitmm ræktend- um sem svífast einskis til að verja eigin hagsmuni? Helstefna og lífsstefna Jón Torfi Halldórs. skrifar: Undarlegt er háttalag sagnfræð- inga hér á landi í ritgerðum og al- mennri kennslu í skólum landsins um staðreyndir dr. Helga Pjeturs, jarðfræðings og stjömulíffræðings. - Um öll hans fræði til að koma mannkyninu áleiðis til æðri skiln- ings á tilgangi tilverunnar. Ástæða alls ófarnaðar í þessum heimi er fá- fræði um eitthvað nýtt og betra fyr- ir mannlega hugsun. En þetta má leysa með því að koma fram sann- leika sem er að finna í fræðum dr. Helga Pjeturs. Allar hans bækur, sem byrja og enda á orðinu Nýall, eru meistara- verk. Því fyrr sem fólk les og skilur verður betur lifað á þessari jörð með þeirri þekkingu sem þar er að finna. Dæmi úr fræðum dr. Helga: Þeg- ar fólk deyr héðan fer það á það til- verustig sem hugsun þeirra og þroski leyfir en það tilverustig er á annarri plánetu þar sem það hefur líkama eins og hér. „Vitkaðasta skepnan er vesölust. Það em engin ráð til að bjarga þessu við önnur en samband við líf- heim, aukið samband við æðri ver- ur, svo að vér náum að hlaðast það- an eða magnast af nýju lífsafli ... Einungis fyrir þá þekkingu getur samstilling orðið sem dugar til þess að lífheimur verði hér en ekki heimur kvala og heljar.“ - Þetta er úr bókinni Ennýall eftir dr. Helga Pjeturs (fyrsta kafla sem heitir Stjömusamband). Um er að ræöa tvær stefnur á þessari jörð: Helstefnu og lífsstefnu. Með von um að umræða um fræði dr. Helga varpi ljósi á þann nýja sannleika um tilgang tilverunnar. Sjávarútvegsmál - sífelldar ráðstefnur Einar Árnason skrifar: Það þykja engin samtök með sam- tökum að ekki sé nú talað um stjórnmálaflokka sem ekki koma með nýjar og nýjar tillögur í sjávar- útvegsmálum. Það em boðaðar ráö- stefnur á ráðstefnur ofan til að ræða kvótann, veiðileyfagjaldið, stjórn- kerfi fiskveiða, aflasamsetningu og hvað eina sem mönnum dettur í hug. Alþýöuflokkurinn boðaði til sjáv- arútvegsráðstefnu um síðustu helgi. Þá er nú von til þess að Alþýðu- bandalagið (og „óháðir") boði til DJ§iRQ©A þjónusta - eða hringið í síma 5000 niilli kl. 14 og 16 Frá sjávarútvegsráöstefnu á Grand Hótel. einnar slíkrar. Ég veit ekki til að nokkuð hafi þokast í sjávarútvegs- málunum á því sviði sem brýnast er að leysa; veiðileyfagjald eða ekki veiðileyfagjald, þrátt fyrir allar ráð- stefnurnar og umræðuhópana. Heldur ekki á Alþingi. Sjávarút- vegsmálin eru í íslensku „limbói“ og verða áfram á meðan ráðamenn þjóðarinnar sjálfir (þingmenn og jafnvel ráðherrar) em bundnir á klafa hagsmuna núverandi sjávar- útvegsstefnu. DV Engin uppskrift að biskupi? < Lára skrifar: Á forsíðu DV 24. þ.m. er hcift eftir séra Karli Sigurbjömssyni mnsækjanda um biskupsembætt- ið: „Engin uppskrift að biskupi". - Þetta er ekki rétt. í fyrra bréfi Páls til Tímótuesar stendur í kaflayfirskrift um leiðtoga kirkj- unnar þetta m.a.: „Það orð er satt, að sækist einhver eftir bisk- upsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk. Biskup á að vera óað- finnanlegur, einkvæntur, bind- indissamður, hóglátur, háttprúð- ur, gestrisinn, góður fræðari. Ekki drykkfelldur, ekki ofsafeng- inn, heldur gæfur, ekki deilu- gjam, ekki fégjarn". - Svo mörg em þau orð, og þannig hljóðar < Guðs orð sem uppskrift að bisk- upi. Of dýr gisting innanlands Markús skrifar: Það er enginn vafi á að gisting á hótelum hér innanlands þegar ferðast er um landsbyggðina er enn of dýr. Ég kynnti mér þetta lítillega og komst að því að sam- bærileg hótel úti á landsbyggð- inni hér og t.d. í Frakklandi em yfirleitt um helmingi dýrari hér. Regnbogahótelin svokölluðu hér á landi kosta frá 6.000 kr. með morgunverði. Svipuð hótel í Frakklandi kosta þetta 300-350 < franka, eða 3.600-4.200 kr., með morgunverði. Þetta eru þau verð sem hér ættu að gilda á hinum almennu ferðamannahótelum landsbyggðarinnar til þess að fólk kljúfi kostnaðinn af því að ferðast um landið. Edduhótelin kosta t.d. 7.100 með baði en 4.800 án baðs. - Baðið er þvi selt á 2.300 kr. Er nokkurt vit í verð- lagningu á gistingu yfirleitt hér á landi? Einn maður - eitt atkvæði Svavar hringdi: Kunningi minn benti mér á grein í Alþýðublaðinu sem Guð- < mundur Árni Stefánsson skrif- aði með ofannefndri fyrirsögn. Ég las greinina og er meira en ( sammála Guðmundi Áma í öll- um greinum. Hann ræðir mis- skilda byggðastefnu og landið ( sem eitt kjördæmi. Við bregð- umst ekki við vanda landsbyggð- arinnar með þvi að halda fast við misrétti í kosningaskipan. Megi Guðmundur Ámi og aðrir réttsýnir þingmenn tryggja að þessu kjörtímabili ljúki ekki án þess að tekið verði á hinu alvar- lega máli um kjördæmamálið. Lúkas Kostic: Óverðskuldaður ( brottrekstur Elli hringdi: j Ég er aldeilis furðu lostinn yfir ákvörðun þeirra KR-inga aö reka Lúkas Kostic rétt sisvona. j Hann sem hefur þrátt fyrir allt og allt náð afar góðum árangri hjá strákunum. Maður trúir því bara alls ekki sem heyrist nú hvíslað að ráðning nýs þjálfara til úrvalsdefidarliðs KR sé bara tímabundin. Ætlunin sé að ráða Guðjón Þórðarson sem þjálfara úrvalsdeildarinnar. Svona hringl í byrjun sumars boðar ekki gott. Þjónusta máln- j ingarverslana Heiðar hringdi: ( Ég las um frábæra þjónustu litaráðgjafa Sjafnar fyrir fólk sem ætlar að mála hús sín - að , bjóða upp á sýnishom hvemig t.d. húsið verður með hinum ýmsu litum. Þessa þjónustu ættu málningarverslanir að bjóða - og það frítt. Það væri sannkölluð nýjung og vel þegin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.