Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 15
I ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1997 tilveran 15 Líf Stúdentsprófin eru að baki, hvíti kollurinn kominn á höfuðið og sumarið framundan. Gaman að vera til, en hvað svo? Mörg þúsund íslensk ung- menni standa í dag frammi fyrir þessari spurningu. Sumir eru löngu búnir að gera upp hug sinn en aðrir hafa enn ekki ákveðið sig. í flóknu og tæknivæddu samfé- lagi er margt í boði og því ekki undarlegt að ungmenni landsins hiki þegar þau þurfa að taka svo stóra og mikilvæga ákvörðun. Tilveran lagði leið sína upp í Háskóla íslands og talaði við Ástu Ragnarsdóttur, yfir- mann námsráðgjafar við Há- skólann, og tvo nýstúdenta, þau Þórarin Óla Ólafsson og Ragnheiði Gunnarsdóttur. eftir stúdentspróf sr ™ 1 I 1 T T f If !F ff ./ Háskóli Islands var stofnaður 1911 en aöalbygging Háskólans var reist 1936-40. Áhugi, hæfni og námsframboð Asta Ragnarsdóttir er fyrsti námsráðgjafinn við Há- skóla íslands og hefur hún starfað við Háskólann í ein 16 ár. Fyrstu sex árin var hún eini náms- ráðgjafinn við Háskólann en nú starfa þar fjórir auk þess sem nem- ar í starfsþjálfun aðstoða þau öðru hverju. Skrifstofan er stærsta ráð- gjafarskrifstofan á landinu og á hverju ári sinnir hún yfir 4000 við- tölum. Bæklingar og áhuga- sviðsprof En hvernig fer námsráðgjöfin fram, hvað segið þið við fólk sem kemur til ykkar og hefur ekki hug- mynd um hvað það vill gera? „Fólk kemur til okkar ýmist til að fá upplýsingar um nám, hér eða annars staðar á landinu, eða til að reyna að finna út á hvaða sviði áhugi þess og hæfni liggur. Við höfum komið okkur upp gagnabanka og erum með bæklinga um nám á íslandi almennt og lýs- ingar á öllu íslenska skólakerfmu. Þannig að ef fólk er tvístígandi hvort það á að hefja nám hér við skólann eða annars staðar getum við liðsinnt því með það. Áhugasviðsprófið hefur notið mikilla vinsælda en það er vísinda- legt mælitæki sem veitir fólki mjög Viðskiptafræði eða stjórnmálafræði? Þórarinn Óli Ólafsson er einn þeirra sem eru nýútskrifaðir. Hann varð stúdent úr Menntaskólan- um í Reykjavík af náttúrufræði- braut en í vetur gegndi hann einnig embætti Inspectors scholae. Þórarinn segist lengi hafa velt því fyrir sér hvað hann eigi að taka sér fyrir hendur að stúdentsprófi loknu en hann sé enn ekki alveg bú- inn að gera upp hug sinn. Eins oq að stjórna eki fyrirtælci Að stjórna skólafélagi er svip- að því að stjórna fyrirtæki og Þórarinn segir að eftir veturinn hafl hann mestan áhuga á að læra annað hvort viðskipta- fræði eða stjómmálafræði. Þór- arinn segir að vinir sínir hafl á undanfómum dögum verið að gera upp hug sinn og sé aðal- stefnan tekin á Háskóla íslands. Flýja land 1 sumar fer Þórarinn ásamt félaga sínum, Baldvini Þ. Bergs- syni, til Kaupmannahafnar til að vinna, ferðast og kynnast landi og þjóð. Þórarinn Óli Ólafsson er nýútskrifaður úr Menntaskólanum í Reykjavík. DV- myndir Pjetur Á leið í útskriftarferð Ragnheiður Gunnarsdóttir er nýútskrifuð úr Mennta- skólanum við Sund af nátt- úrufræðibraut. Tilveran hitti hana þar sem hún hafði nýlokið við að innrita sig í hjúkrunarfræði í Há- skólanum og var ekki laust við að henni væri nokkuð létt eftir að hafa loksins tekið af skarið og skráð sig. „Ég ætlaði alltaf að verða læknir en fannst námið svo vera alltof langt. Mér fannst mjög erfitt að gera upp hug minn og er þetta ein sú erfið- asta ákvöröun sem ég hef tekið í líf- inu og sú mikilvægasta." Ragnheiður hefur lært á fiðlu í ellefu ár og er á 8. stigi. Hún hefur sagt sig úr Tónlistarskóla Reykja- víkur næsta vetur þar sem sam- keppnin er hörð í hjúkmnarfræð- inni eins og í svo mörgum öðram greinum og námið tekur því mikinn tíma. Fyrstu tvær vikumar í júní verður Ragnheiður í útskriftarferð á Costa del Sol á Spáni ásamt sam- stúdentum sínum og í lok júlí fer hún með strengjasveit Tónlistar- skóla Reykjavíkur á alþjóðalistahá- tíð í Skotlandi. Þess á milli verður hún að vinna á Sjúkrahúsi Reykja- víkur. Ragnheiður Gunnarsdóttir átti í erfiðleikum meö að gera upp viö sig hvort hún ætti aö fara í hjúkrunar- eöa læknisfræöi. gagnlegar upplýsingar um sjálft sig. Prófið tek- ur til spuminga sem vísa m.a. til náms, starfs, áhugamála, og hvemig fólk við viljum umgang- ast. Prófin hafa verið notuð hér á landi í um tíu ára skeið en í Banda- ríkjunum frá því 1930 og era þau í stöðugri þróun. Framhaldsskólanemar koma mikið til okkar til að taka þetta próf oft löngu áður en þeir út- skrifast svo að þeir geti tekið mið af útkomunni, valið fyrr og verið betur undir háskólanámið búnir.“ Ýmiss konar þjónusta „Um helmingur þeirra sem koma til okkar era stúdentar í Háskólanum og liðsinnum við þeim gjarnan þegar þeir vilja breyta um nám eða fara i fram- haldsnám. Auk þess höldum við ým- iss konar námskeið, s.s. í vinnu- brögðum, hvernig á að glósa, lestr- araðferðum, einbeitingu, úthaldi, streitu og kvíðastjórnun. Síðan Há- skólinn tók ákvörðun um að veita einstaklingum með sérþarfir aðstoð hefur umfang starfsins aukist til muna og við veitum 70-80 nemum, fótluðum, veikum eða öðrum sem eiga við sérþarfir að etja, persónu- lega ráðgjöf og aðstoð.“ Mikið að gera Þessa dagana er mikið að gera hjá ykkur, annið þið öllum þessum fjölda? Asta Ragnarsdóttir er fyrsti námsráögjafinn sem tók til starfa viö Háskóla íslands. „Það er rétt, þessa dagana koma nýstúdentar hingað í stríðum straumum og leita aðstoðar. Sumir era svo gott sem búnir að ákveða í hvaða nám þeir ætla að fara en þurfa aðstoð við að raða saman fög- um og átta sig á námsskipulaginu. Aðrir eru enn ekki búnir að gera upp hug sinn og koma þá til okkar í lengri viðtöl. Umsóknarfrestur til að sækja um Háskólann rann út 5. júní en nemendur geta skipt um náms- leið allt fram undir lok ágúst. Mörg- um þykir mjög erfitt að ákveða sig hvaða nám þeir vilji stunda enda um margt að velja en við reynum að sinna öllum eftir bestu getu.“ Vaknaðu þjóð í þuneum hlekkjum! Stund aflausnar þinnar er boðuð föstudaginn þrettánda kl. 13.13 þegar „dagur ljómar, og morgunstjama rennur upp í hjörtum yðar.“ (2. Pétursbréf 1:19) SKjryAryÐi leið SflHlFÉLAG 014 tRÓ b

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.