Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1997, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1997 Fréttir i>v Zorro bjargar ekki jólun- um Þótt grímuklæddi sverðabárð- urinn Zorro bjargi hinu og þessu, bjargar hann ekki jólun- um í ár. Fyrirhugaðri frumsýn- ingu myndarinnar með Antonio Banderas og Anthony Hopkins, sem átti að vera eftir miðjan desember, hefur verið frestað til mars á næsta ári. Ýmsar ástæð- ur eru sagðar fyrir þessu, m.a. tafir við kvikmyndatökur og framúrakstur í fjármálum. Carrey þarf í hreinsun Gúmmíkarlinum Jim Carrey voru veitt MTV-kvikmynda- verðlaun um daginn. Við upp- töku á athöfninni gerðist karl- inn fremur dónalegur, tók m.a. í klofiö á sér. Svo var hann klúr í kjaftinum. Fjarlægja verður ósómann ef þátturinn á að vera leyfilegur öUum aldurshópum i sjónvarpinu. Andrés prins fallinn fyrir sjónvarpskonu Hertogaynjan af Jórvík, sem köUuð er Fergie, á ekki lengur upp á paU- borðið hjá fyrrverandi eiginmanni sín- um, Andrési prins. Hann er neftiUega faUinn fyrir annarri konu. Hún heitir Henriette Peace, er 29 ára, og þykir mjög lík gamaUi vinkonu prinsins, Koo Stark. Koo, sem er orðin 40 ára, þótti á sín- um tíma óhæf tU að verða hertoga- ynja. Hún eignaðist nýlega dóttur, Tatiönu, með bandarískum banka- manni, Warren Walker. SjáUúr er Andrés nú 37 ára. Henriette Peace skortir ekki fé, að því er sagan segir. Hún er dóttir vel stæðs vínkaupmanns og er köUuð Henri af vinum sínum. Núna starfar hún hjá BBC en vann áður á fjármálaskrifstofu Buckingham Palace. Það var einmitt í höU- inni sem þau Henriette og Andrés hittust í fyrsta sinn. Sagt er að það hafi samt aUs ekki verið ást við fyrstu sýn. Henriette var þá með fylgdarsvein með sér sem var her- maður. Eftir starfið í Buckingham Palace tók hún sér hvUdarár og ferðaðist um heiminn. Orðrómurinn segir að það hafi hins vegar verið fyrir fjórum mán- uðum sem þau Andrés og Henriette hittust á ný í veislu. Og þá kviknuðu eldar sem enn loga glatt. Andrés viU hitta Hen- riette sem oftast og jafiivel þó að hún hafi dvalið nokkrar helgar hjá honum á Sunning- hiU þegar Fergie hefur verið fjarverandi hefur þeim tekist að halda sambandinu leyndu í marga mánuði. Nú er staðan hins vegar orð- in þannig að ljósmynd- arar sitja um Henriette og hún reyn- ir að skýla sér eftir megni. Búist er við að Fergie flytji innan tíðar frá SunninghUl þar sem hún hefur um skeið fengið að búa á með- an hún var að létta á skuldunum. En jafnvel þó hún hafi reynt að fidl- vissa aUa um að hún hafi skUning á því að Andrés fái sér nýja konu þyk- ir útUokað að fyrrverandi og núver- andi konur hans búi undir sama þaki. Þess má einnig geta aö her- togaynjan hefur lýst því yfir að hún líti svo á að hún hafi sjálf fuUt frelsi tU að leita sér að nýjum félaga. Reyndar er Fergie sögð hafa gengið svo langt í leit að félögum að mönnum hefúr þótt nóg um. Hún mun hafa hringt í tíma og ótíma tU ýmissa frægra manna og greint þeim frá því að hún vUji eiga stefnumót við þá. Henriette Peace. Duchovny á von á jólabarni Tea Leoni, sem nýlega varð eigin- kona Davids Duchovnys, hetjunnar úr Ráðgátum, hefur greint frá því að hún eigi von á bami um jólin, samkvæmt frásögnum erlendra slúðurblaða. Tea á að hafa greint frá því að um leið og David fékk vitneskju um væntanlegan erfingja hafi hann ólmur vUjað kvænast henni og það á stundinni. Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama afsláttur af annarri auglýsingunni. a\tt milíf himj, Smáauglýsingar 5505000 Félagarnir Bibí og Blaka, sem sennilega eru þekktari undir amerískum nöfnum sínum Batman og Robin, eru ekki dauöir úr öllum æöum. Nú eru þeir búnir aö skipta um ham og farnir aö berjast aftur viö glæpamenn. Að þessu sinni leikur hjartaknúsarinn George Clooney sjálfan Leöurblökumanninn. Meö honum á myndinni hér aö ofan er erkibóf- inn Arnold „Frosti“ Schwarzenegger og búningar þeirra beggja úr væntanlegri mynd. Búningarnir eru til sýnis á veit- ingastaðnum Planet Hollywood í Los Angeles. Símamynd Reuter Gallagherbræður úr Oasis fara eins að: Noel gekk að eiga kærust- una sína á laun í Las Vegas Noel Gallagher gat 'ekki verið minni maður en Liam bróðir hans og gekk því að eiga kærusfima sína, hana Meg Matthews, á laun. Rétt eins og Liam giftist henni Patsy Kensit fjarri forvitnum myndavél- um fréttamanna fyrr á árinu. Noel er, eins og flestir vita, aðallagahöf- undur bresku poppsveitarinnar Oasis og Liam er aðalsöngvarinn. Liam var ekki viðstaddur brúðkaup bróður síns. Noel og Meg gengu í það heilaga í lítilli kirkju í gleði- og gerviborg- inni Las Vegas í Ameríku. Organist- inn lék ekki sálma eins og venjan er, heldur ljúflingslög með gömlu góðu Bítlimum, Yesterday og All My Loving. Skötuhjúin reyndu að gifta sig í London í febrúar en atgangur ffétta- manna var svo mikill dagana og vikumar fyrir fyrirhugaða athöfn að þau sáu sér ekki annað fært en að hætta við allt saman. Brúðgum- inn er þrítugur en brúðurin árinu eldri. Hún starfar hjá hljómplötufýr- irtæki. Gallagherbræður þykja mjög op- Þessi sæta mynd af Noel Gallagher og Meg Matthews var tekin á kvikmynda- hátíöinni í Cannes í vor. Noel og Meg giftu sig um helgina. inskáir þegar sá gállinn er á þeim, mörgum til sárrar skapraunar. Það er kannski þess vegna sem hljóm- sveitin þeirra er einhver vinsælasta poppsveit Breta um þessar mundir. Vinsældum sveitarinnar hefur jafn- vel verið líkt við Bítlana þegar þeir voru upp á sitt besta. Bræðrunum þykir hins vegar ekki gaman að tala við blaðamenn og hafa því fengið á sig óorð fyrir vikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.