Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1997, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 JL>"V"
« kvikmyndir
fj'iC’ L/iL
Sambíoin í sumar:
Leigumorðinginn
í gamanmyndinni
Grosse Pointe Blank leikur John
Cusack leigumorðingjann Mart-
in Blank sem mætir á 10 ára
menntaskólamót í tengslum við
næsta verkefiii. Leikstjóri er Ge-
orge Armitage en hann gerði
hina ágætu Miami Blues (1990).
Hlutverkin eru í höndum John
Cusack, Minnie Driver, Dan
Aykroyd, Alan Arkin og Joan
Cusack.
Morð í Hvíta húsinu
í Murder at 1600 finnst ung
kona myrt í Hvíta húsinu. Þegar
lögregluforinginn Harlan Regis
(Wesley Snipes) mætir á staðinn
kemst hann að raun um að
leyniþjónustan hefur tekið að
sér alla rannsókn málsins og
Regis er viss um að hún leyni
mikilvægum upplýsingum. Leik-
stjóri er Dwight H. Little. í
helstu hlutverkum eru Wesley
Snipes, Diane Lane, Dennis Mill-
er, Alan Alda og Ronny Cox.
í gamanmyndinni Nothing to
Loose leikur Tim Robbins aug-
lýsingastjóra sem missir stjóm á
lífi sínu þegar það rennur upp
fyrir honum að hann hefur lifi-
brauð af því að ljúga að fólki.
Þegar bófl sem leikinn er af
Martin Lawrence reynir að
ræna bíl Robbins snýr hann
dæminu við og tekur bófann í
gíslingu. Myndinni er leikstýrt
af Steve Oedekerk. Aðrir leikar-
ar eru Michael Gallagher, John
C. McGinley og Lisa Roberts.
Ást og hefndir
Önnur gamanmynd sem sýnd
verður nú síðar í sumar er Add-
icted to Love með þeim Meg Ry-
an og Matthew Broderick.
Myndin segir frá þeim skötuhjú-
um Maggie og Sam sem kynnast
eftir að fyrrverandi elskhugar
þeirra taka saman. Maggie og
Sam taka íbúð á leigu andspæn-
is íbúð þeirra og hyggja á hefnd-
ir. Leikstjóri: Griffin Dunne.
Helstu leikarar: Meg Ryan, Matt-
hew Broderick, Kelly Preston,
Tchéky Karyo og Maureen
Stapleton. -GE
Eddie Murphy.
Svartir menn
Fyrir ekki svo löngu hefði svarti
maðurinn í Svartklæddu mönnun-
um átt heima meðal geimveranna
en ekki þeirra sem berjast við þær.
Núna er svo komiö að svartir menn
eru famir að taka við af hetjuhlut-
verkinu af þeim hvitu, líkt og sjá
má í geimverumyndunum þremur:
Independence Day, Mars Attacks og
Men in Black.
Will Smith er gott dæmi um nýja
kynslóð svartra leikara sem láta sér
ekki nægja að standa í skugganum á
hvítu hetjunni, styðja við hana og
vera útrás fyrir húmor sem iðulega
beinist gegn þeim sjálfum, eins og
t.d. Danny Glover í Lethal Weapon-
myndunum.
Nýlega sást dæmi um slíkan
svartan aukamann sem verður
óvænt aðalmaður í myndinni
Anaconda, og það sem er eftirtektar-
vert bæði þar og í MIB er að jafn-
framt því sem svartir menn eru að
styrkja stöðu sína er konunum
einnig að vaxa ásmegin. Whoopy
Goldberg er enn þá eina svarta kon-
an sem nokkuð hefur kveðið að
(kannski fyrir utan Grace Jones?)
en menn eins og Wesley Snipes,
Denzel Washington og Eddie
Murphy eru löngu famir að bera
uppi sínar eigin myndir, og almennt
séð er orðið æ algengara að sjá
svarta menn í stórum hlutverkum.
Samuel L. Jackson (Long Kiss Go-
odnight, Pulp Fiction), Ving
Rhames (Mission Impossible, Con
Air, Pulp Fiction), Laurence Fis-
hbume (King of New York, Othello),
Ice T (Johnny Mnemonic,
Anaconda), Dennis Rodman (Double
Team) og Tony Todd (Rock,
Candyman) em allt strákar sem em
farnir að eiga stór hlutverk, og svo
eru gamlir jálkar eins og Glover
(Predator 2) og Morgan Freeman
(Seven, Shawshank Redemption)
enn á kreiki.
Þannig er endirinn á MIB dálítið
skemmtilega táknrænn, þar sem
Tornmy Lee Jones segir við Will
Smith: „Ég var ekki að þjálfa félaga,
ég var að þjálfa eftirmann." -úd
TOM 10
-aösókn dagana 4. til 6. júlí Tekjur I milljónum dollara og helldartekjur
Svartir menn
á toppnum
Men in Black er heldur betur aö
sprengja alla skala vestan hafs.
Ekki nóg með aö hún hafi slegið
þjóðhátíðarhelgarmetið f Banda-
rikjunum sem Independence Day
setti f fyrra heldur er hún orðin
þriðja tekjuhæsta mynd yfir eina
heigi frá upphafi. Það eru aöeins
Lost World og Batman Returns
sem hafa gert betur. Men in Black
er því tekjuhæsta mynd yfir eina helgi frá upphafi án þess
að vera framhaldsmynd.
John Travolta - Nicholas Cage myndin, Face Off, stefnir f
að veröa smellnasti óvæntasti smellur sumarsins á sama
tíma og Batman & Robin stefnir í að verða mesta klúður
sumarsins. Aftur á gjörgæsluna með Clooney.
Tekjur Helldartekjur
l.(-) Men In Black 51.068 84.133
2.(1) Face/Off 16.067 51.521
3.(2) Herkules 12.193 50.030
4.(4) At my Best Friend’s Weddlng 10.818 69.281
5.(3) Batman & Robln 8.027 90.716
6.(-) Out to Sea 5.887 7.655
7.(5) Con Alr 3.791 85.073
8.(6) Jurrasic Park II 2.604 218.334
9.(-) Wild America 1.810 2.875
10.(7) Speed II 1.517 41.113
11.(8) Llar Liar 1.002 174.806
12.(20) Anaconda 0.713 62.522
13.(11) Ulee’s Gold 0.650 2.120
14.(9) Austln Powers 0.619 50.978
15.(16) Brassed Off 0.257 1.749
16.(13) Jungle 2 Jungle 0.244 58.334
17.(10) Gone Fishin 0.226 17.811
18.(14) Chaslng Amy 0.218 10.706
19.(21) The Pillow Book 0.191 1.278 £
20.(18) Volcano 0.171 47.067
Men in Black, Svartklæddir menn
Menn og ekki menn ***
Örlög þeirra kvikmynda sem byggðar hafa verið á teiknimyndasögum
hafa verið margvísleg. í MIB er eins og yfirfærslan milli miðla sé aldrei full-
frágengin og kemur þetta sérstaklega niður á plottinu. Sagan segir frá sér-
sveit svartklæddra manna sem sjá um að stýra umferð geimvera um jörðina.
Tilvist þessara geimvera er öllum atmenningi ókunn og þar með þarf tilvist
sérsveitarinnar að vera jafit óþekkt. Og síðan er heiminum ógnað af völdum
óvinveittrar geimveru og MIB eru kallaðir til. Þetta býður upp á ýmsa kosti
sem margir hverjir eru notaðir vel. Sérstaklega er útlitshönnunin og hug-
myndafræðin í kringum geimveruflugstöðina og sjálfar geimverumar vel
heppnaðar. Frá upphafi hefúr teiknimyndasagan þrifist á sérstökum húmor
sem felst til dæmis í því að taka orðtök bókstaflega með tilheyrandi afleið-
ingum (að missa andlitið, fá hníf í bakið ...). Hér er orðið irmflytjandi (e.
alien) gemýtt, þar sem geimverumar (e. ahen) em bókstaflega „innflytjend-
ur“ sem falla Ijúflega inn í hóp mennskra innflytjenda og eiga sér sína
„landamærastöð" í New York. Hins vegar er áherslan slík á þennan húmor
og stíl aö sjálfur hasarinn verður útundan og í raun virkar MIB meira sem
grínmynd en hasar. Að því leyti á hún meira skylt með Mars Attacks en
Independence Day. Ekki svo að skilja að það sé galli, en meðan Mars Attacks
bjargaöi átakalitlu plotti með pottþéttu útliti, þá vantar dálítið sökkulinn í
MIB. Geimveruhlutinn er yndislega vel gerður en svo er eins og hitt hafi orð-
ið útundan sem gerir það að verkum að myndin virkar dálítið stefimlaus. Á
hinn bóginn bjargar leikurinn miklu þar sem Will Smith og Linda Fior-
entino em hreint frábær og skyggja algerlega á annars indælan Tommy Lee
Jones. Auk þess var afskaplega falleg stund þar sem svartklæddu mönnun-
um bættist kona í hópinn og enn er verið að leika sér með orð; verður næsta
mynd WIB? Svo að þrátt fyrir alla galla er þessi mynd ómissandi fýrir alla
þá sem láta sér ekkert ómannlegt óviðkomandi.
PS. Og þessi náungi sem sagði að skrímsli væm sjaldgæf, hann ætti að
bregöa sér oftar í bíó.
Leikstjóri: Barry Sonnenfield. Handrit: Ed Solomon. Hönnun geimvera: Rick
Baker. Músík: Danny Elfman. Aðalhlutverk: Tommy Lee Jones, Will Smith
og Linda Fiorentino. -úd