Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1997, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
|j~i,y;:j 2. júlí 4. júlí 7. júlí 8. Júlí
Rokkandi verð
á gúrkum
Verö á gúrkum hefur rokkað tals-
vert í verslunum að undanförnu. Fyr-
ir viku var kílóverðið 99 kr. í Bónusi,
fór í 149 kr. á föstudag, féll á mánudag
í 79 kr. kg en steig í gær í 199 kr. í dag
má búast við að gúrkan kosti 149 kr.
kg í Bónusi en óbreytt í Hagkaupi.
Verð á tómötum hefur hækkað tals-
vert, kostuðu 149 kr. kg í síðustu viku
í Bónusi en 260 kr. kg í gær. -ST
Fékk fjórhjól
yfir sig
Bóndi frá Örlygshöfn slasaðist þeg-
ar fjórhjól hans valt og fór yfir hann á
fjallinu Molduxa á Rauðasandi síðdeg-
is í gær. Hann missti mátt í fótum,
marðist illa og fékk mikla verki í
kviðarhol. Maðurinn var að strekkja
fjárgirðingu ásamt öðrum manni.
Félagi bóndans, sem er formaður
björgunarsveitarinnar á Patreksfirði,
var með farsíma og hringdi eftir
hjálp. Aðstæður voru metnar þannig
að ef síminn hefði ekki verið fyrir
hendi hefði tekið um þrjár klukku-
stundir að komast til byggða og til-
kynna slysið. Ákveðið var að óska eft-
ir þyrlu Landhelgisgæslunnar enda
heföi tekið óratíma að bera manninn
yfir ófærur og slóða. TF- LÍF var flog-
ið áleiðis að staðnum. Hún tók lög-
X- regluvarðstjóra síðan upp í til að að-
stoða við að finna slysstað sem fannst
skömmu síðar - rafhlaða í síma björg-
unarsveitarmannsins var þá hætt að
virka. Eftir það var flogið með mann-
inn á Sjúkrahús Reykjavíkur í Foss-
vogi. Samkvæmt upplýsingum DV í
morgim voru meiðsl mannsins minni
en óttast var í fyrstu. -Ótt
Verndartollar
á káli
Landbúnaðarráðuneytið hefur
sett vemdartolla á innflutt hvítkál
og blómkál, þannig að vænta má
talsverðra hækkana á næstu dög-
um. Á sama tíma er lítið sem ekkert
^vframboö af innlendri framleiðslu á
markaðnum. -ST
/þeir fella mann
OG ANNAN-í
HAFNARFIRPI!
Ríkissaksóknari meö lögheimili í sumarbústað:
Ekkert heilsárs-
leyfi á staðnum
- segir bæjarstjóri Kópavogs um fasta búsetu viö Elliðavatn
Hallvarður Einvarðsson flutti ný-
lega lögheimili sitt í nýbyggðan
sumarbústað að Vatnsendabletti 134
í landi Kópavogs. Sigurður Geirdal
bæjarstjóri segir í samtali við DV að
sér komi þetta á óvart þar sem eng-
in heilsársleyfi, eða leyfi til fastrar
búsetu hafi verið gefm út vegna bú-
staðanna í næsta nágrenni Elliða-
vatns. „Heilsársleyfi er á engum af
bústöðunum á þessu svæði,“ segir
Sigurður Geirdal bæjarstjóri.
Aðspurður um viðbrögð bæjaryf-
irvalda i framhaldinu sagði Sigurð-
ur að þetta hlyti að vera alveg nýtil-
komið. „Þú verður að spyrja Hag-
stofuna að því hvort menn hafi leyfi
til að skrá lögheimili í sumarbú-
stað.“
„Menn eiga að vera skráðir þar
Sumarbústaöur og nýtt lögheimili Hall-
varös Einvarössonar ríkissaksóknara
aö Vatnsendabletti 134 í landi Kópa-
vogs. Bæjarstjóra Kópavogs kom á
óvart þegar DV upplýsti hann um aö bú-
staöurinn væri lögheimili ríkissaksókn-
ara. Bæjarstjóri kvaöst ekki vita betur
en lög leyfðu ekki fasta búsetu í sumar-
bústaö. DV-mynd PÖK
sem þeir búa og yfirleitt er fólk
skráð í íbúðarhús, en í einhverjum
tilvikum er búið að samþykkja bú-
stað sem heilsárshús eins og er al-
gengt á Vatnsendasvæðinu þar sem
fjöldi fólks á lögheimili,“ sagði Skúli
Guðmundsson, skrifstofústjóri á
Hagstofunni, í samtali við DV.
Skúli sagði að hvert bæjarfélag
ráði i raun hvernig fólk skráir lög-
heimili sitt. Hafi menn heimild bæj-
arfélagsins til að skrá sig i sumar-
húsum fari þjóðskráin ekkert að
breyta því.
Sumarbústaður Hallvarðs Ein-
varðssonar ríkissaksóknara stendur
á viðkvæmu svæði við Elliðavatn.
Vegna vatnsverndunarsjónarmiða
hafa nýbyggingar verið bannaðar á
þessu svæði og nýr bústaður Hall-
varðs því verið umdeildur og m.a.
verið um hann fjallað í fjölmiðlum.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, segir í samtali við DV að
svæðinu sé skipt upp i þrjá áhættu-
flokka, en í þeim fyrsta er öll byggð
bönnuð. Það svæði sem bústaður
Hallvarðs tilheyri, sé í flokki tvö. Á
því sé byggð ekki bönnuð en engar
nýbyggingar leyfðar. „Við höfum
gefið leyfi tO að fólk fái að viðhalda
húsum og endurnýja þau og þar á
meðal er Hallvarður Einvarðsson.
Við höfum ekki lagst af hörku gegn
því að menn endurnýjuðu hús sín á
svæðinu vegna þess að þá hafa þeir
um leið tekið allt frárennsli og lagn-
ir og komið þeim í lag. Við verðum
þannig betur sett á eftir í vatns-
verndarmálum." -SÁ
Honum þykir sopinn greinilega góöur, þessum vaska víkingi, sem er hér aö gleðja sig á víkingahátíö í Hafnarfiröi.
Vegna hennar eru nú staddir hér fjölmargir erlendir víkingar sem eiga áreiöanlega eftir aö lyfta hornum á góöri
stundu. Hátíöin stendur til 13. júlí.
DV-mynd E. Ól.
Veðrið á morgun:
Hlýjast
sunnan-
lands
Á morgun verður suðaustlæg
eða breytileg átt. Á Suðausturl-
andi verður nærri samfelld
rigning en skúrir annars stað-
ar. Hiti verður á bilinu 7 til 14
stig, hlýjast um landið sunnan-
vert.
Veðrið í dag er á bls. 45
Hafnarfjörður:
Meirihluta-
samstarf
búið að vera
Á föstudagskvöld verður haldinn
fundur stjómar fulltrúaráðs, bæjar-
fulltrúa og þingmanns Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði. Á fundinum
verður lagt til að meirihlutasam-
starfi krata og Jóhanns G. Bergþórs-
sonar og Ellerts Borgar Þovaldsson-
ar verði slitið. Verði tillagan sam-
þykkt, sem talið er öruggt, verður
boðaður fulltrúaráðsfundur strax
eftir helgi þar sem málið verður
formlega afgreitt.
Samkvæmt heimildum DV em
bæjarfulltrúarnir Tryggvi Harðar-
son og Valgerður Guðmundsdóttir
hlynnt því að slíta meirihlutasam-
starfinu. Ómar Smári Ármannsson
hefúr ekki geffö sig upp í málinu að
þessu sinni, en Ingvar Viktorsson er
á móti. Foringi krata í Hafnarfírði,
Guðmundur Árni Stefánsson, er
sagður vilja slíta samstarfmu.
Alþýðubandalagsmenn eru til-
búnir til að koma til samstarfs við
krata fram að kosningum í vor.
-S.dór
Matvöruverslanir,
þjónusta í þína þágu
um land allt. [
i§pín vftdnn /
Pantið í tíma!
22
dagar til þjóðhátíðar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bókanir í síma 570 3030