Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 Var aö gefast upp á síðasta ári: Léttist um 31 kíló á átta mánuðum - nú er ég stóránægö, segir Sigrún Magnúsdóttir „Ég varð að gera eitthvað í mín- um málum því ég var orðin 108 kíló og gat ekki lengur borið mig um. Ég var að gefast upp,“ segir Sigrún Magnúsdóttir sem hefur heldur bet- ur tekið á sínum málum. Hún léttist um 31 kíló á átta mánuðum og segir líðanina nú alveg stórkostlega. „Ég fór á Reykjalund þann 7. október síðastliðinn. Þá var svo komið fyrir mér að ég komst ekki milli trappa í stiganum og gekk stundum við hækjur. Ég gat ekkert gengið þvi ég réð ekkert við mig. Á tímabili var ég rúmfóst út af bakinu því þunginn var að sliga líkamann." Á Reykjalundi dvaldi Sigrún í niu vikur og náði af sér 5 kílóum og 900 grömmum. Þaðan fór hún til sonar síns og tengdadóttur og var hjá þeim um tima því að tengdadóttirin var að eiga bam. Sannkölluð megrun „Ég hélt áfram með mínar æfingar, enda var ég staðráðin í því að léttast. Á þessum tíma fór ég til Selmu Júlíus- dóttur miðils í persónulegum erinda- gjörðum. En hún gerði sér lítið fyrir og skellti mér í sannkallaða megrun. Og það er sú besta megrun sem ég hef farið í. Hún felst einfaldlega í breythi mataræði, æfingum og hreyfingu. Ég fer í sund á hverjum einasta degi og oft í göngutúra. Ég borða ekkert sem inniheldur sykur né fitu, alls ekki rjóma og ekkert sem er fitandi. Ég er aldrei svöng. Ég borða kjúkling, kjöt, þó ekki lambakjöt, allan fisk, nema ýsu, grænmeti og ávexti. Með þessum kúr tek ég bætiefni. Nú er liðinn mánuður síðan ég hætti í megruninni en ég hugsa um mataræðið og vigtin stendur í stað.“ Óþægilegt innan um fólk Sigrún segir að sér hafi liðið virki- lega illa þegar hún var sem þyngst. „Mér fannst óþægilegt að vera innan um fólk. Það gat verið fyrir- kvíðanlegt að kaupa sér nýja flík því ég fékk ekki alltaf það sem ég þurfti. Ég varð að láta sérsauma megnið af þeim fotum sem ég átti. Nú er ég búin að leggja þau öll til hliðar, eins og nærri má geta. Ég er stóránægð í dag og farin að fara það sem mig langar til. Það er virkilega gaman að kaupa ný fót því nú get ég valið um og er ánægð með það sem ég kaupi. Ég fer oft út að dansa því það er eitt það skemmti- legasta sem ég geri. Viðhorf fólks gagnvart mér er gjörbreytt. Það er allt annað að vera eins og tunna eða grannur og líða vel. Það er ótrúlegasta fólk sem gengur í veg fyrir mig og spyr mig hvemig í ósköpunum ég hafi farið að þessu. Ef ég sýni fólki myndir af mér fyrir megrun spyrja sumir hvort þetta sé mamma mín! Fólk hjálpar manni svo mikið þegar það fer að tala um hve stórkostlegur ár- angurinn sé.“ Þetta er hægt Ég vona svo sannarlega að fólk, sem er of feitt, geri eitthvað í sínum málum og hvet þaö til þess. Þetta er hægt og það er ekkert mál. Allir þeir sem em svona feitir geta bætt andlega og líkamlega heilsu með skynsamlegu mataræði og hreyf- ingu. En fólk skyldi varast að gefa eftir og hætta þegar það hefur losn- að viö 2-3 kíló. Þá er til einskis barist.“ -jss Samvörður 97: Þyrluflug tafðist vegna þoku - æfingin hefur gengiö mjög vel, segir skipulagsstjóri „Þetta hefur gengið vel og ég held að menn séu almennt mjög sáttir. Það má segja að það sé um gagn- kvæman lærdóm að ræða. Okkar björgunarsveitarmenn læra margt af þeim erlendu og öfugt,“ segir Árni Birgisson, skipulagsstjóri björgunaræfingarinnar Samvörður 97 sem hófst í gær. íslenskir björgunarsveitarmenn hófu störf klukkan 8 í gærmorgun en síðan barst þeim aðstoð um há- degisbilið frá 400 erlendum björg- unarsveitarmönnum. „Okkar menn voru látnir byrja með tilliti til þess að erlenda að- stoðin kæmi um fjórum klukku- tímum síðar. Samvinnan gengur framar vonum, miðað við að hér er um að ræða björgunarsveitar- menn frá 18 mismunandi löndum. Það gekk líka mjög vel að setja upp rússneska sjúkrahúsið sem kastað var úr flugvél. Verkið tók innan við klukkustund. Það eina sem hefur aðeins farið úr skorð- um er þyrluflugið sem hefur tafist dálítið vegna þokunnar," segir Ámi. -RR F*r Þyrla Bandarfkjahers sækir sjúkraskýliö sem er skoröaö á einu bretti. Rússneskir björgunarsveitarmenn standa ofan á skýlinu til aö festa þaö viö þyrluna. DV-mynd Hilmar Þór stuttar fréttir Hálandaleikum frestað Hálandaleikum kraftajötna, sem áttu að fara fram í dag, laugardag, í Hafnarfiröi, hefúr verið frestað fram í september- mánuð. Ástæðan er meiðsli nokkurra keppenda. Öll S&Lbréf seld Öll hlutabréf, sem í boði vora í Samvinnuferðum-Landsýn í gær, seldust upp fyrir kl. 9.30. Sölugengið var 3,40 og voru seldir alls 100 hlutabréfa- skammtar, hver að markaðs- verði 130 þúsund krónur. Páll Óskar heiöraður Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari hefur nýlega hlotið ár- leg verðlaun TUPILAK, sam- taka norrænna samkyn- hneigðra listamanna, og einnig verölaun OGEA, sem eru sam- tök aðdáenda Eurovision söngvakeppninnar. Hollara bensín Olíufélagið Skeijungur hefúr sett á markað umhverfisvænna bensín fyrir litlar vinnuvélar, svo sem garösláttuvélar, vélorf og keðjusagir. Um er að ræða bæði olíublandað bensín fyrir tvígengisvélar og bensín fyrir fjórgengisvélar. -SÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.