Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 35
JjV LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
hestár «
þögult dýrt
Margir góðir gestir hafa komið á
íslandsmót í hestaíþróttum en þær
Claudia Patricia Picon M. og Astrid
Barrero voru sennilega lengst að
komnu gestimir á íslandsmótinu á
Vindheimamelum nýlega. Þær eru
frá Kólumbíu.
Astrid er gift Höskuldi Hildi-
brandssyni, sem hún kynntist í Kól-
umbíu og kom með honum til ís-
lands 1994, en Claudia er vinkona
hennar í heimsókn.
„ísland er kalt, þögult, dýrt,“ seg-
ir Claudia, „og fólkið er mjög sér-
stakt. Fiskurinn er einstaklega góð-
ur og uppáhaldsmatur minn, en hér
er hræðilega kalt. Ég bý í borginni
Bugaramanga sem er í 1800 metra
hæð yfir sjávarmáli í hitabeltinu
við miðbaug og þar er sísumar, um
29 gráða hiti allan ársins hring. Það
hefur verið mjög gaman á íslandi en
ég hef átt i erfíðleikum með að venj-
ast kuldanum. Ég er að fara til Kól-
umbíu aftur bráðlega að læra bók-
hald en á eftir að minnast þess sem
ég sá á íslandi.“
Astrid fer á hestamót með Hösk-
uldi. „Ég hef gaman af að fara á
hestamót og hef komið á bak hest-
um á íslandi. Einnig fór ég
nokkrum sinnum á bak Paso Fino
Columbiano hestum, en það er mjög
dýrt að eiga hesta í Kólumbíu," seg-
ir hún. „Ég er ekki forfallin hesta-
manneskja en hef gaman af að
skreppa á bak og stússast í hestum,"
segir Astrid.
„Paso Fino Columbiano hestur-
inn er heldur stærri en íslenski
hesturinn," segir Höskuldur.
„Hann er afar fmgerður töltari,
léttbyggður, grannvaxinn, fallegur,
stíft spjald og jafnvel upphryggjaðir
og klipinn í kverk.
Hann fengi ekki hátt fyrir bygg-
ingu á íslandi því áhersla er lögð á
að hafa hann flnbyggðan og fæturn-
ir eru afar grannir en sterkir.
Hestunum er eingöngu riðið á
tölti og þó aðrar gangtegundir séu
fyrir hendi er þeim haldiö niðri.
Lögð er áhersla á að hrossin séu
lággeng á töltinu sem fer upp í milli-
ferð og að þau beri fæturna títt. Því
styttra sem skrefið er og örara, því
betra. Það er mjög dýrt að eiga hest
í Kólumbíu.
Mafian eyðilagði markaðinn með
því að sprengja verðið upp til að þvo
peninga og því hafa einungis auð-
kýfingar efni á því að eiga hesta.
Ég var að vinna fyrir tvo auðkýf-
inga í Kólumbíu og kunningjar
þeirra áttu hesta sem ég fékk að
prófa.
sviðsljós
Ánægður
með
sviðsljósið
Brad Pitt hefur aldrei leiðst
að vera sviðsljósið og nýtur
þess nú enn betur eftir að
hann upplýsti að hann og
Gwyneth Paltrow væru end-
anlega skilin. Hann sást á dög-
unum uppáklæddur ásamt
meðleikara sínum, Sir Ant-
hony Hopkins, í Meet Joe
Black, rómantískri gaman-
mynd, sem sýnd verður á
næsta ári. Pitt og Hopkins
hafa leikið saman áöur, t.d. í
myndinni Ledgends of the
Fall. Þar léku þeir feðga sem
elduðu grátt silfur. Myndin
var án efa sú sem gerði Pitt að
þeirri stjörnu sem hann er í
dag.
Frumsýning Face/Off:
Hélt andlitinu
Óskarsverðlaunahafinn Emma
Thompson gerði sig líklega til þess
að fara eftir titli myndarinnar
Face/Off þegar hún var frumsýnd á
dögunum. Um er að ræða hasar-
mynd með John Travolta og Nicolas
Cage.
Nái Emma að halda andlitinu
mun hún halda áfram tökum á póli-
tísku dramaverki sem kemur fyrir
sjónir kvikmyndahúsagesta á næsta
ári.
Dagskipunin var
Face/Off þegar myndin
var frumsýnd. Emma
Thompson reyndi hvaö
hún gat.
Þeim Claudiu Patriciu Picon M. og Astrid Barrero finnst kalt á íslandi en Höskuldur Hildibrandsson og Sævar Freyr
Höskuldsson eru ýmsu vanir. DV-mynd EJ.
'-M:
Það var griðarlega gaman að ríða
út. Þama eru aðallega fjöll og mikl-
ar sléttur á pöllum í landslaginu og
mjög strjálbýlt. Borgir eru eins og
verslunarmiðstöðvar sem er dreift
um landið en ekkert á milli.
í Kólumbíu er annað hestakyn,
berbneski hesturinn, hreinn brokk-
ari og ber minna á honum. Hann er
álíka stór og Paso Fino Columbiano,
en heldur massífari og stæltari,"
segir Höskuldur.
r^>
ij'yinZftíiX
vinnutimi
Nýr fyrirtækjasamningur:
- fyrir þig
- fyrir fjölskylduna
- fyrir viðskiptavini
Hagkaup og starfsfólk þess er
stolt af að kynna fyrsta fyrirtækja-
samning sinnar tegundar ó íslandi.
Frá og með 1. september 1997
gengur í gildi nýr fyrirtækjasamn-
ingur hjá verslun Hagkaups á
Eiðistorgi. Þessi samningur er sá
| fyrsti í röðinni við starfsfólk okkar í
öllum verslunum Hagkaups.
Hornsteinn NÝRRAR starfsmanna-
stefnu Hagkaups er að skapa
starfsfóíkinu betra vinnuumhverfi
sem byggir á: Sveigjanlegum
vinnutíma, betri launum, aukinni
starfsþjálfun, fjölgun tækifæra til
þess að vaxa og þróast i starfi og
| fjöíbreyttum störfum.
Umsóknareyðublöð liggja
[frammi í verslun Hagkaups við
Eiðistorg.
Torfi Matthíasson,
verslunarstjóri svarar
góófúslega öllum fyrirspurnum
um störfin og nýja
vinnufyrirkomulagið í
síma 561 2000 eóa á staónum.
í Hagkaupi Eiðistorgi
r- sveigjanlegur vinnutími
r- betri laun HENTAR STYTTBt
r- aukin starfsþjálfun 06 SVEIGJANLEGRt
fjölgun tækifæra til þess MNNUTÍMi Þfp?
að vaxa og þróast í starfi
r" fjölbreytt störf
Hagkaup leitar að starfsfólki til almennra verslunar- og
þjónustustarfa sem: Hefur áhuga á að þjóna
viðskiptavinum, leggur metnað sinn í að tryggja gæði vöru
og þjónustu, hefur gaman af þvi að vinna í góðum hópi
fólks, er samviskusamt, reglusamt, drífandi og hefur
frumkvæði til að gera ávallt gott betra.
Hjá Hagkaupi á Eióistorgi verður tekið tillit tiL mismunandi
þarfa einstaklinga þar sem boóið veróur upp á sveigjanlegan
vinnutíma. Meðal fjöldi vinnustunda 6-7 klst. á dag og unnið
á tvískiptum vöktum. Eina viku mætir starfsfólk kL. 8.00 eóa
9.00 að morgni og hefur Lokió störfum kl. 15.00 en næstu viku
á eftir mætir starfsfóLk kL. 14.45 og vinnur til kl. 21.00 eða
21.45. Unnið er aóra hverja heLgi meó góóum vaktahléum á
milLi.
Starfsviðið er fyrst og fremst þjónusta og
ráðgjöf við viðskiptavini.
LEITAÐU UPPLYSINGA!
FARIÐ VERÐUR MEÐ ALLAR FYRIRSPURNIR OG
UMSÓKNIR SEM TRÚNAÐARMÁL!
Umsóknum skaL skilað fyrir 6. ágúst nk. Heimilisfangió er:
Hagkaup Eiðistorgi
Merkt: spennandi vinnutimi
170 Seltjarnarnes