Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 15 Áhöfn í háska „Ég var togaraskipstjóri í 40 ár. Mér telst til að á þeim tíma hafi skip mín borið að landi þorskafla sem nemur árlegum þorskkvóta íslendinga. Núna má ég veiða það sem ég get étið,“ sagði soðkarlinn og saup á bjómum sínmn. Það höfðu orðið miklar breyt- ingar í þorpinu á einum áratug. Togarinn löngu farinn í annan landshluta og vertíðarbátarnir fylgdu á eftir. Eina útgerðin var nokkrir smábátar á krókaleyfi. Frystihúsið stóð tómt og til íhug- unar var að breyta því í byggða- safn eða til þrautavara gæti það orðið útibú frá Byggðastofhun. Plássið, þar sem 800 manns bjuggu þegar mest var, hafði fyr- ir allmörgum árum verið sam- einað stærra byggðarlagi í öðmm landsfjórðungi. Það eina sem var nýtt á staðnum var pöbbinn sem kom í kjölfar bj órbyltingarinnar. Hann hafði um nokkurra ára bil haldið reisn en nú var til umræðu að sameina hann arans og ómerkilegri togara annarra byggðarlaga. Væri þeirra skip með stærsta túrinn tókust þeir á loft og vart var um annað talað þann daginn en afla- skipið sem sló öllum öðrnrn við. Triílukarlamir voru að vísu lítt uppnæmir fyrir góðærinu og litu togarajaxlana hornauga. Við- kvæðið var að svona ryksuguskip ættu ekki að hafa leyfi til að skrapa upp allt kvikt af grunn- slóðinni. Þeir höfðu þó ekki hátt um þessi sjónarmið þar sem þeir óttuðust aö framkvæmdastjórinn myndi refsa þeim og lækka við þá fiskverðið ef þeir segðu of mikið. Þeir létu því lítið fyrir sér fara en lýstu því að kannski væri kominn þjáningu enda vissu þeir að þjóðin lifði jú af veiðum og vinnslu sjávarfangs. Þeir þorpsbúar sem til þess höfðu uppburði reyndu að öðlast hlutdeild í ljómanum sem umlék sjóarana og spurðu þá frétta úr veiðiferðinni. Þannig var þegar leið á löndunardaginn búið að kortleggja nánast hvern þorsk sem barst um borð. Þannig vissi af- greiðslukonan í apótekinu ná- kvæmlega hvemig það gerðist þeg- ar skipið fékk risahal á þriðja degi veiöiferðarinnar og pokinn sprakk þannig að dauður þorskur þakti stórt svæði í kringum skipið. Símstöðvarstjórinn gat lýst í smáatriðum þegar bátsmaðurinn og netamaðurinn voru nærri dottnir aftur úr skutrennunni í at- ganginum við að ná inn stóru hali. Lífið var svo sannarlega fisk- ur og það mikið af honum. Skip- stjórinn naut þeirrar friðhelgi að ekki var verið að ónáða hann með óþarfa spumingum. Hann naut óáreittin- samvista við fjölskyldu sína en ein nágrannakona hans bakaði pönnukökur og lét dóttur sína á bamsaldri skjótast með til aflakóngsins. Þetta var í og með hennar innlegg til að reyna að koma elsta syni sínum í skips- rúm. Þannig liðu árin og þorsk- urinn mokaðist á land. Trillu- útgerðin tórði við hlið hinn- ar arðsömu útgerðar - meira vegna hugsjóna karlanna en af þeirri ástæðu að það borgaði sig að gera út á króka. Afla- brögð smábátanna voru upp og ofan og sífellt varð að sækja lengra frá landi til að fá í soðið. Heldur dró úr afla togaranna líka og þrátt fyrir að afli væri góður voru augljóslega blikur á lofti. málaði í fjöllunum sem plássið hjúfraði sig undir. Það er óhætt að segja að þarna hafi verið gósentíð. Einu sinni í viku kom togarinn drekkhlaðinn að bryggju og þorpsbúar lögðu margir leið sina á höfnina til að votta áhöfn- inni virðingu sina og fá sögur af ævintýralegum aflabrögð- um skammt frá landi. Gerður var sam- anburður á afla heima- tog- M tími til að hætta til sjós og fara á togara. Ljómi um sjóara Það fór ekki milli mála að eftir góðan túr var áhöfhin hátt skrifuð í þorpinu. Héraðslæknir, prestur- inn og aðrir þungavigtar- menn máttu una því að falla neðar í virðingar- stigann en skipstjór- inn og jafnvel stýri- maðurinn. Þeir sættu sig við það í þög ufli Skreiðarhjallarnir svignuðu undan þorskhausum og öðrum þeim afurðum sem áttu eftir að metta maga Nígeríumanna og annarra þeirra sem aðhylltust skreiðina. Aðalbrandarinn í þorp- inu var einmitt um skreiðina. Forsfjórinn, sem hafði heyrt hann á aðalfúndi skreiðarframleiðenda, notaði hann iðulega þegar hann í góðum félagsskap leit yfir hjall- ana: „Skreið til Nígeríu, skreið til Nígeríu," sagöi hann þá digrum rómi og bætti síðan við. „Hver skreið til Nígeríu?" og hlátur hans og nánustu ráðgjafa berg- Þorskurinn friðaður Stjómvöld höfðu stigvax- andi áhyggjur af velmeguninni í sjávarþorpunum. Þenslan var of mikil sögðu hag- spekingarnir og fiski- fræðing- arnir boðuðu hrun þorskstofns- ins. Það var ákveðið að friða þorskstofh- inn og leiðin til þess var að mati pólitíku- sanna aðeins ein. Sett var á kvótakerfi því augljóslega voru útgerðar- mennimir best fallnir til þess að passa upp á sinn eigin fisk. Fiskifræðingarn- ir reiknuðu því út fjölda fiska í sjón- um og hagfræðing- arnir tóku upp reiknistokkinn og margfólduðu og deildu eftir þörfum. Forstjór- inn í þorpinu fékk síðan sinn skerf og ævistarf afa hans og föður tók á sig nýja og skýrari mynd. Forsijórinn brosti í kamp- inn en bölvaði á mannamótum. „Djöfulsins kvótinn á eftir að drepa allt hér,“ var viðkvæði hans og hann hætti alveg aö segja skreiðarbrandarann. Skipstjórinn fékk nú skýr fyrir- mæli áður en hann lagði í veiði- ferðir. Búið var til eyðublað á skrifstofunni sem fyllt var út fyr- ir hverja veiðiferð þar sem tíund- aðar voru hinar ýmsu fisktegund- ir. Þannig stóð í reitnum fyrir aft- an þorskinn hversu mikið hann mátti veiða og hvenær. Sömu sögu var að segja af karfa, ufsa og grálúðu. Allt var fyrirfram ákveð- ið og skipulagt. Þorpið hætti að fylgjast með togaranum og algengt Skreið til Nígeríu í milltíöinni reri hann ævagömlum aflóga báti sem staöiö haföi í nausti um árabil. Þorpsbúar vöndust þvf aö sjá hann ýmist bera fisk sinn upp bryggjuna eöa aka hon- um í gömlum hand- vagni. DV-mynd Sveinn bensínsjoppunni. Á blómaskeiði byggðarlagsins var unnið alla daga vik- unnar við að skapa sem mest verðmæti úr þeim mikla afla sem fullkominn floti þorps- búa bar að landi. Nætur- vinna var fremur regla en undantekning og höfnin iðaði jafn- an af lífi því sem sprottið var af velmeguninni. Skipstjórinn á togaranum var hluti af aðli samfélagsins og var í ferða- klúbbi með lækninum, prest- inum, sveitar- stjóranum og for- stjóra frystihússins. Sá var reyndar af þriðju kynslóð eig- enda fyrirtækisins. Það er óhætt að segja að smjör hafi dropið af hverju strái. Botnlaus vinna var að hann lægi bundinn í höfh. Sífellt varð erfiðara með pen- inga hjá fyrirtækinu og forstjór- inn varð að sama skapi öflugri í félagsmálum sem voru að vísu rekstrinum óviðkomandi. Myndin af afa hans, frumherjanum, hékk skökk á skrifstofuveggnum og það varð sífellt erfiðara að halda rekstrinum gangandi frá degi til dags. Vinfengi hans við stjómar- menn í Byggðastofnun varð til þess að peningar fengust fyrir nauðþurftum. Símstöðvarstjór- inn, afgreiðslustúlkan í apótekinu og aðrir þorpsbúar snem sér að öðrum hugðarefnum en aflabrögð- um togarans. Jafnvel trillukarl- amir, sem ýmist vom komnir á kvóta eða sóknardaga, nenntu ekki lengur að tala illa um togar- ann. Þeir vora nú flestir komnir með endurskoðendur á sín snæri og reiknuðu af eldmóði hvemig hægt væri að leigja og selja kvóta og sóknardaga og komast þannig undan því ónæði sem fylgdi sjó- sókninni. Engar pönnukökur Togaraskipstjórinn fékk ekki lengur pönnukökur gefins á góð- um degi. Þrep hans í virðingar- stiga þorpsbúa losnaði og læknir- inn, sveitarstjórinn og forstjór- inn, sem á síðustu stundu náði að sameina fyrirtækið herrafata- verslun í Reykjavík, skiptu með sér efstu þrepunum. Að auki var nú bankastjórinn kominn í klúbb- inn ásamt tveimur sægreifum sem áttu nokkur þorsktonn til að leigja frá sér og framfleyta sér. Skipstjórinn tók breytingunum með þeirri rósemi sem hægt var og sagði upp starfi sínu og hætti Laugardagspistill Reynir Traustason skömmu áður en togarinn var seldur nauðungarsölu. Hann gerði tilraun til að reka videoleigu og selja pitsur á staðnum. Þrir sam- keppnisaðilar hans á staðnum reyndust hafa meira vit á kvik- myndum og bakstri hins ítalska þjóðarréttar. Það varð því úr að hann lokaði og beið eftir ellilífeyr- inum. í milltíðinni reri hann æva- gömlum aflóga báti sem staðið hafði í nausti um árabil. Þorpsbú- ar vöndust því að sjá hann ýmist bera fisk sinn upp bryggjuna eða aka honum í gömlum handvagni. „Það er dálítið skondið að standa nú í fjörunni án þess að eiga eitt gramm af þorskkvóta. Það vill þó til að hér er fiskur uppi í fjöru sem ég get náð í á kænunni minni. Ég lit á þessa þjóð sem eina fjölskyldu sem hlýt- ur að þýða að ég má metta þá munna sem mér sýnist. Það er víst ekki sama hvort maður er soðkarl eða sægreifi," sagði skip- stjórinn sem orðinn var soðkarl og kláraði bjórinn sinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.