Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 56
TvöMdur i. vinmngur £ Jtv'óld FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1997 Bjarni Ólafsson AK 70 viö komuna til Akraness í gær. DV-mynd DVÓ Árekstur skipanna: - Skall á okkur á fullri ferö - segir Þorkell Pétursson DV, Akranesi „Ég var héma frammi á þegar þetta gerðist," segir Þorkell Pétursson, há- seti á Bjama Ólafssyni Ak 70, sem í gær lenti í árekstri við Ammasat á loðnumiðunum, eins og fram kom í DV í gær. „Okkur brá öUum mikið við ákeyrsluna. Við vorum að kasta nót- inni og sáum hann koma. Það var um 500 metra skyggni og hann hefði átt að sjá okkur,“ segir ÞorkeU. Skipstjóri kaUaði í Ammasat um tal- stöð en fékk ekkert svar. Hann var bú- inn að slá af og bakkaði skipinu með nótina aftan í sér. Því fylgdi töluverð áhætta því að skipið hefði getað fengið hana í skrúfuna. „Hann skaU á okkur á fúllri ferð og virtist ekkert breyta um stefnu," segir ÞorkeU. Bráðabirgðaviðgerð fer fram á skip- inu og ný nót verður tekin um borð. Áætlað er að viðgerð taki viku. -DVÓ Matvöruverslanir, þjónusta í þína þágu um land allt. íavmliii^ Pantið í tíma! L O K I Schaferhundur aflífaður að ósk Heilbrigðiseftirlits: Þetta eru hrotta- leg vinnubrögð - segja eigandur - ekki farið að réttarfarslögum? „Þetta er hræðUegt. Þeir koma bara og hirða tíkina. Innan við klukkustund síðar er tUkynnt að það sé búið að aflífa hana. Þetta er ekkert annað en aftaka á vamarlausu og saklausu dýri. Ég spyr bara hvort það sé ekkert sem heitir dýravemd í þessu landi okkar,“ segir Amalia Henrýsdóttir, fyrrverandi eigandi scháfer-tikarinnar Mónu sem aftífúð var á Dýraspítalanum í fyrradag að ósk HeUbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Lögreglumenn og hundaeftirlits- maður sóttu tæplega þriggja ára tík- ina á heimUi Haralds Ámasonar sem var eigandi hennar undanfarin tvö ár. Ráku á eftir aflífuninni „Það komu hér nokkrir lögreglu- menn og hundaeftirlitsmaður með einhverja heimUd um að taka Mónu þvi hún er óskráö. Ég viðurkenni að ég hef ekki endumýjað skráningu á henni en ætlaði að gera það. Ég reyndi aö láta hana hlaupa burtu en hún er svo gæf og saklaus að hún fór og þefaði vingjamlega af mönnunum. Þeir tóku hana síðan og ég hafði ekki mjög miklar áhyggjur því ég bjóst auðvitað við að á næstu klukkutím- um gæti ég gert eitthvað í málinu. Um klukkustund síðar, þegar ég fór að athuga málið, var mér tjáð á Dýra- spitalanum að HeUbrigðiseftirlitið hefði þegar í stað rekið á eftir því að láta aflifa hana. Þetta era ótnílega hrottaleg vinnubrögð. Ég fékk engan tíma tU að bjarga henni,“ segir Har- aldur. Börnin elskuöu tíkina Haraldur telur að aðfórin að tik- inni sé vegna þess að hún hafi glefs- að í mann fyrir nokkm. „Ég hef aldrei séð neitt áverkavottorð um að Móna hafi meitt manninn. Ég er þess fiUlviss að hann hefúr verið að egna hana. Móna var mjög ljúfúr hundur og alger bamagæla. Margir hér í hverfmu vita það og bömin elskuðu hana. Fjögurra ára fóstursonur minn var heima og var vitni að því þegar þeir tóku hana. Eftir að við fengum fi-éttimar spurði hann mig af hverju hún hefði þurft að deyja,“ segir Har- aldur. Ekki farið aö lögum? „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef liggur ekkert fyrir af því sem ég tel að þurfi í þessu máli til að farið sé að lögum. Þama er ekki, strangt til tekið, farið að réttarfars- lögum og réttaröryggi einstaklinga ekki nægilega tryggt,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, lögfræðingur hjá Dýra- vemdunarfélagi íslands. Heimilt aö aflífa hundinn „Samkvæmt hundasamþykkt Reykja-víkur er heimild að aflífa hættulega hunda samstundis. Við mátum þennan hund hættulegan," segir Kristbjörg Stephensen, lög- fræðingur hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. „Þessi hundur var búinn að vera í stöðugri lausagöngu í eitt og hálft ár og var auk þess leyfislaus. Við höfðum ítrekað aðvarað eiganda hans vegna þess. Við fengum síðan kæra fyrir stuttu um að hundurinn hefði bitið mann. Það liggur fyrir lögregluskýrsla og vitni var að atburðinum. Ef eigend- ur hundsins telja að hér sé um órétt- læti að ræða er þeim frjálst að leita réttar síns,“ segir Kristbjörg. -RR 4 4 4 4 4 4 Haraldur Arnason, eigandi schafertíkarinnar Mónu, sést hér bera hræiö af henni út af Dýraspítalanum í gær þar sem hún var aflífuð. Meö Haraldi er Þór Henrýsson, sonur Amalíu Henrýsdóttur sem átti tíkina áður. DV-mynd Pjetur _ j;;: §8» f®" * " "" gK 1 Alþýðublaðið og Vikublað- ið hætta - renna saman við Dag-Tímann Viðræður standa nú yfir milli út- gefenda Dags-Tímans annars vegar og Alþýðuflokksins og Alþýðu- bandalagsins hins vegar um að Al- þýðublaðið, sem Alþýðuflokkurinn gefur út, og Vikublaðið, sem Al- þýðubandalagið gefur út, renni inn í Dag- Tímann. Eyjólfur Sveinsson, framkvæmda- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, segir í samtali við DV að með útgáfu Dags- Tímans, sem hófst sl. sumar, hafi verið markvisst stefnt að samvinnu í útgáfumálum meðal félagshyggju- fólks og forsvarsmenn flokkanna, sem gefið hafa út Alþýðublaðið og Vikublaðið, telji útgáfumálum sínum best borgið með sameiningu blað- anna tveggja og Dags-Tímans. -SÁ Veðurhorfur á morgun og mánudag: Vætusamt vestanlands Á morgun verður hæg suðlæg átt. Vætusamt verður vestanlands og með suðurströndinni, þokuloft með norður- og austurströndinni en úrkomulít- ið inn til landsins. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast í innsveitum norðanlands. Á mánudag verður suðaustanátt, rigning eða súld, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið. Veðrið í dag er á bls.57 Upplýsingar frá VeÖurstofu íslands Mánudagur Sunnudagur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.