Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 JjV
Föstudaginn 1. ágúst nk.
verður nákvœmlega ár liðið
frá því Ólafur Ragnar
Grímsson var settur inn í
embœtti forseta íslands. Tók
hann sem kunnugt er við af
Vigdísi Finnbogadóttur sem
fimmti forseti lýðveldisins. Af
því tilefni er rétt að rifja upp
árið í stuttu máli og heyra
álit fólks á frammistöðu for-
setahjónanna.
Ár liðið af forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum:
Umhverfis jörðina á 64 dögum
- víðförul en jafnframt vinsæl forsetahjón samkvæmt skoðanakönnunum
Þau hafa verið vinsæl ef marka
má niðurstöður skoðanakannana.
Átta af hverjum tíu kjósendum hafa
lýst sig ánægða með störf Ólafs sam-
kvæmt könnunum DV og Gallups.
Ef miðað er við sjálf kosningaúrslit-
in hefur forsetinn því tvöfaldað
fylgi sitt.
Ólafur stígur niöur fæti á æskuslóöum á ísafiröi, þangaö sem hann fór í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands.
Lögreglumenn standa heiöursvörö, bísperrtir. DV-mynd Hlynur
50 þúsund km að baki
Ólafur hefur svo sannarlega ekki
setið auðum höndum á Bessastöð-
um. Þau Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir hafa farið víða á undanfórn-
um 12 mánuðum, samanber með-
fylgjandi kort sem byggir á umbeðn-
um upplýsingum frá embættinu um
ferðir forsetans.
Alls hafa til þessa farið 64 dagar í
ferðirnar. Innanlands hafa forseta-
hjónin komið til 20 áfangastaða í 23
ferðum og farið til 7 rikja erlendis í
9 ferðum. Þau eru einmitt þessa
dagana í viðamikilli heimsókn til ís-
lendingabyggða í Bandaríkjunum
og Kanada sem stendur fram í miðj-
an ágúst. Að því loknu líða ekki
margir dagar þar til þau fara í opin-
bera heimsókn til Finnlands í lok
ágúst. Einnig er fyrirhuguð opinber
heimsókn til Svíþjóðar í október nk.
Ef öll liðin ferðalögin á meðfylgj-
andi korti eru mæld í kílómetrum
þá hafa Ólafur og Guðrún ferðast
hátt í 50 þúsund kílómetra. Er þá
miðað við fjarlægðir í lofti, gróft
reiknað. Þetta jafngildir því að for-
setinn hafi Qogið einu sinni i kring-
um hnöttinn og vel það.
Óvænt hjá Clinton
Nú þegar tæp vika er liðin af
heimsókninni vestur um haf hefur
Ólafur vakið mikla athygli. Hann
átti óvæntan fund með Bill Clinton
forseta sem sýnir að Bandaríkja-
Innlent
fréttaljós
Bjöm Jóhann Bjömsson
mönnum hefur ekki þótt hæfa að
Ólafur hitti einungis varaforsetann,
A1 Gore. Ólafur vakti einnig athygli
þegar hann viðraði hugmynd sína
um teiknimynd um Snorra Þor-
finnsson í anda Pocahontas. Þá þótti
sumum hann fara út fyrir verksvið
sitt þegar hann fór að tjá utanríkis-
stefnu stjómvalda með sínum hætti.
Forsætisráðherra hefur þó sagt að
þetta hafi verið í lagi.
Nýir siðir
Nýjum mönnum fylgja nýir siðir.
Eðlilega er annar stíll yfir störfum
Ólafs en t.d. Vigdísar. Þannig hefur
Ólafur tekið fyrir veitingu áfengra
drykkja í opinberum móttökum og
takmarkað reykingar. Hann hefur
sett ákveðnar reglur í samskiptum
við fjölmiðla. Blaðaljósmyndarar fá
t.d. ekki að vera viðstaddir móttök-
ur á Bessastöðum öðruvísi en að
vera sómasamlega klæddir. Einnig
þótti það umdeilt þegar takmarka
átti aðgang fjölmiðla í heimsókn
Ítalíuforseta til Bessastaða í júní sl.
Borið var við þrengslum í húsinu.
Þá kvörtuðu námsmenn í Kaup-
mannahöfn undan því að hafa ekki
fengið tækifæri til að hitta forset-
ann í veislu sem selt var inn á í
Danmerkurheimsókninni í fyrra.
Holáttir vegir og pitsa
Forsetahjónin hafa farið víða síð-
astliðið ár sem fyrr segir. Fyrsta
óopinbera heimsóknin var á bind-
indismótið í Galtaiækjarskógi dag-
inn eftir innsetninguna og helgina á
eftir voru þau viðstödd niðjamót
Bólu-Hjálmars í Skagafirði. Fyrstu
opinberu heimsóknirnar heima fyr-
ir voru hins vegar til Vestfjarða í
september sl. Fyrst til ísafjarðar og
norðanverðra Vestfjarða og síðan í
Barðastrandarsýslu. Eftirminnilegt
er einmitt þegar Ólafur gagnrýndi
holótta vegi í sýslunni og þótti þar
setja þrýsting á þingmenn kjördæm-
isins.
Fyrsta opinbera heimsóknin á er-
lenda grundu var til Danmerkur í
nóvember sl. Heimsóknin þótti tak-
ast vel. Dönskum fjölmiölum þótti
það t.d. aðdáunarvert þegar Ólafur
Hér er Ólafur ásamt Haraldi Noregskonungi.
fór og fékk sér pitsu hjá Pizza 67 í
Kaupmannahöfn.
Grátandi börn
í byrjun þessa árs voru þau við-
stödd útför Bertils prins í Svíþjóð og
í febrúar var farið í opinbera heim-
sókn til Noregs. Þar vöktu þau hjón
mikla athygli, einkum Guðrún
Katrín fyrir glæsilega framkomu og
klæðaburð. Harðar reglur norsku
konungshjónanna settu þann
skugga á heimsóknina að íslending-
ar fengu ekki að koma með börnin
sín í móttöku forsetans í Hákonar- |
höll í Björgvin. Böm em bönnuð í
opinberum móttökum með kon-
ungshjónunum þar sem grátur ung-
barna er sagður trufla hugarró E
þeirraí Urðu foreldrarnir islensku
að skilja bömin sín eftir grátandi ,
úti í vagni.
Á árinu hafa forsetahjónin farið
vítt og breitt hér innanlands. í
febrúar var heimsókn í Reykholt,
Þingeyingar heimsóttir í byrjun
maí, Dalamenn í júní, auk þess sem
þau hafa verið viðstödd flestar af-
mælishátíðir sveitarfélaga á árinu.
Nefna má fjölmargar aðrar uppá-
komur sem forsetahjónin hafa verið
viðstödd en við vísum á áðurgreint
kort.
Of geyst af stað? *
Af ofansögðu má sjá að Ólafur og
Guðrún hafa verið mjög sýnileg, svo
mikið að menn spyrja sig hvort þau
hafi kannski farið of geyst af stað.
Eitthvað hljóta ferðalögin líka að j
kosta. Samkvæmt fjárlagafrum-
varpi á að verja rúmum 60 milljón-
um króna til embættisins í ár, þar
af um 30 milljónum í laun til forset-
ans og starfsmanna embættisins.
Það er nokkur aukning frá síðasta
ári sem reyndar er að mestu til
komin vegna nýrrar skrifstofu við
Laufásveg og endurbætts húsakosts
á Bessastöðum.
Ólafur hefur þótt koma vel fyrir
og þau hjón bæði. Þau koma fram
saman í nær öllum tilvikum og j
virka mjög samhent. Þykja þau á
margan hátt glæsilegir fulltrúar
þjóðarinnar út á við.
En hvað finnst mönnum? Við leit-
uðum álits nokkurra valinna ein-
staklinga úti í þjóðfélaginu. Svör ,
þeirra fylgja hér í opnunni.
-bjb