Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 JLlV notuð CAT 426 '87, upptekin skipting, vst. 9000 Verö 1.500.000 + vsk. CAT 428 nýlegur mótor, yfirfarinn skipting, nýleg dekk, mikiö endurnýjuö vél, vst. 8.500. Verö 1.700.000 + Vsk. CASE 580 G '87 vst 5.600, góövél. Verö 1450.000 + vsk. MAN 24.462 '90, 460 hö, ek. 600.000 km, góö dekk, toppbíll. Verö 3.500.000 + vsk. JCB 3 CX árg. '87, vst 8.700. Verö 1.300.000 + Vsk. Elnnig: CAT 438 '89 vst 10.500, gott eintak. Verö 1.750.000 + vsk. MF 50 D '84, 4x4, skotbíma, vst. 3.200. Verö 1.300.000 + vsk. CAT 212 hjólagrafa '90, m/hamarslögum, vst. 6.800. Verö 4.300.000 + vsk. CAT D 6 D jaröýta árg. '79, gott ástand. Verö 2.600.000 + vsk. CAT D 7 F jaröýta 71. Verö 1.500.000 + vsk. CASE 1150 jaröýta '83, vökvast. tönn. Verö 1.800.000 + vsk. Hjólaskófla Dresser 530 A2, ca 12 tonn '82, vst. 9.700. Verö 1.500.000 + vsk. HEKLA véladeild Laugavegi 170-174, sími 569 5500 á skrifstofuttma Sjómannasamtökin búa sig undir verkfallsátök: Aðeins spurning um tímasetningu - sé ekki annað en vinnustöðvun verði, segir Helgi Laxdal „Ég sé ekki annað en boða verði til vinnustöðvunar til að knýja fram lausn. Við höfum fengið nei við öll- um okkar kröfum og það má mikið gerast ef við eigum að ná samning- um án átaka," segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, um kjaradeilu félagsins við Lands- samband íslenskra útvegsmanna. Ekkert hefur þokast í kjaramál- um sjómanna og útgerðarmanna en sáttafundur vélstjóra og útgerðar- manna veröur haldinn hjá sátta- semjara í næstu viku. Helgi segist ekki binda miklar vonir við árang- ur þess fundar. „Það hafa nánast allar stéttir lok- ið sinni samningsgerð. Sjómenn eru þar undanskildir og það er merkileg staðreynd að ekki skuli vera hægt að koma saman samningum við LÍÚ án átaka," segir hann. Helstu kröfur vélstjóra snúa að hækkuðum skiptahlut til vélstjó- ranna sem þeir telja of lágan miðað við menntun og ábyrgð. Þá vilja vél- stjórar að útgerðarmenn greiði meira í sjúkrasjóð félaganna svo sem gerist hjá starfsfólki í landi. Auk þess vilja þeir að útgerðin leggi til fjármuni til endurmenntunar stéttarinnar. Helgi segir enn ekki vera um formlegt samráð að ræða meðal sjó- mannasamtakanna um aðgerðir til að knýja fram kjarasamning. Helsta krafa allra þriggja samtakanna snýr að verðlagningu á sjávarfangi. Sú lausn sem fundin var í seinasta verkfalli, þar sem sett var á kopp- inn úrskurðarnefnd sjómanna og út- gerðarmanna, hefur gjörsamlega brugðist. Nefndin hefur ekki komið saman í heilt ár og á meðan grasser- ar óánægja meðal sjómanna vegna þeirra áhrifa sem kvótakaup hafa til lækkunar á fiskverði. Sjómannasamband Islands og Farmanna og fiskimannasamband íslands íhuga nú einnig hvaða tíma- setning henti best til að grípa til verkfalls. Það tekur um mánuð að ná saman heimild stjórna einstakra félaga til verkfallsboðunar. Þá þurfa að líða þrjár vikur þangað til verk- fall getur komið til framkvæmda. Það er því ljóst að verkfall getur vart komið til framkvæmda fyrr en öðrum hvorum megin við næstu áramót. Gangi ekki saman með sjó- mönnum og útgerðarmönnum mun því fiskiskipaflotinn allur stöðvast vegna verkfalls í ársbyrjun 1998. -rt Sæbjörg viö eldhúsgluggann þar sem bíllinn kom inn. Bíll inn um eldhúsglugga í Borgarnesi: Eldhúsið eins og eftir sprengingu Tvö börn Sæbjargar voru meö henni i eldhúsinu þegar óhappiö varö. Sem betur fer sluppu þau nær ómeidd. DV-mynd Anney. „Ég var í eldhúsinu ásamt tveim- ur ungum börnum mínum þegar skyndilega kvað við ógnarlegur hvellur. Það næsta sem ég vissi var að glerbrot og alls konar brak flaug um eldhúsið og bíll var kominn hálfur inn um eldhúsgluggann hjá mér,“ sagði Sæbjörg Kristmanns- dóttir, kennari í Borgamesi, í við- tali við DV. Sæbjörg var í eldhúsinu á heimili sínu að Skúlagötu 23 ásamt tveimur bömum sínum, sex og eins og hálfs árs, þegar hvellurinn varð. „Ég held að hvellurinn hafi stafað af því að loftpúði í mælaborðinu blés út við höggið. Það næsta sem ég áttaði mig á var að bíllinn var kom- inn hálfur inn um gluggann. Eftir á að hyggja var þetta svipaö og maður sér í Hard Rock Café.“ Glerbrot og brak Um leið og bíllinn kom inn um gluggann rigndi glerbrotunum yfir eldhúsið. Þá spýttist brak úr bílnum inn, svo sem ljósin í heilu lagi, hjól- koppur og alls konar dót, auk flísa úr gluggapóstinum. „Eldhúsið var eins og eftir sprengingu, öll eldhúsinnréttingin er nær ónýt, meira að segja eldhús- vaskurinn og glerbrot stungust inn í veggina. Krafturinn var svo mikill að eitthvað af þessu spýttist inn í herbergi, stofuna og inn á bað. Það dreifðist um allt hús og við vomm fram á nótt að þrifa það upp. Húdd- ið á bílnum var v-laga eftir þetta." Sæbjörg sagði að það væri mesta mildi að hún og börnin skyldu ekki verða fyrir brakinu og glerbrotun- um og slasast. „Að vísu skarst litli drengurinn smávegis og það þurfti að taka gler- brot úr hælnum á honum. Hann sat á gólfinu þegar ósköpin dundu yfir en stóð síðan upp og gekk á gler- brotunum þannig að hann skarst." Skammt frá heimili Sæbjargar er vinkilbeygja en svo virðist sem öku- maðurinn hafi af einhverjum ástæð- um misst stjóm á bílnum og tók hann því ekki beygjuna heldur fór rakleiðis inn um eldhúsgluggann. Með honum í bílnum var kona sem slasaðist mikið. Hún var fyrst flutt á sjúkrahúsið á Akranesi en síðan á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem hún var lögð á gjörgæsludeild. Hún mun nú vera á batavegi. -JSS Hækkun bóta: Þeir lægst launuðu fengu meira - segir Friörik Sophusson „Við báðum Þjóðhagsstofnun um að líta á forsendumar aftur og það kom í ljós að engin ástæða var þess vegna til að breyta þeim. Meðalalaunahækk- unin var 5,5 til 6 prósent á þessu ári eins og við gerðum ráð fyrir þegar ákvörðun um bætur var tekin á sínum tíma. Þrátt fyrir þetta ákváðum við að hækka sérstaklega umfram meðallauna- hækkunina," segir Friðrik Soph- usson, fjármálaráðherra um ástæður 2,5 prósenta viðbótar- hækkunar almannatrygginga- bóta og atvinnuleysisbóta. „Við rökstyðjum hækkunina þannig að þeir lægst launuðu fengu heldur meira en hinir í kjarasamningunum," segir Friö- rik. -rt Risaflyðra á Höfn Runólfur Hauksson, trillukarl á Höfn, fékk þessa glæsilegu flyöru nýveriö á miöunum út af Hornafiröi. Var hann einn um borð og fékk því nálæga trillukarla til aö innbyröa hana meö sér. Lúöan reyndist viö mælingu 205 sm löng og 115 kíló aö þyngd. Á uppboði hjá Fiskmarkaöi Hornafjaröar var hún seld á 11.500 krónur. DV-mynd Júlía Imsland, Höfn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.