Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Page 12
12 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 JLlV Þrjár systur giftust þremur bræðrum 8. desember 1968: Völdum þá alveg sjálfar - segir Hildigunnur Guðmundsdóttir, ein systranna Þórarinn Þór blessar brúöhjónin fyrir tæpum 30 árum. Ekki er vitað til þess að þrír bræöur og þrjár systur hafi gengiö í þaö heilaga á íslandi á sama stað og sama tíma. „Strákamir bjuggu hér á Auð- kúlu við Brjánslæk á Barðaströnd og við hittumst á böllum á Birki- mel á Barðaströnd. Það var nokk- uð af ungu fólki á Barðaströndinni þegar við vorum á góðum aldri en færra aftur hér í Arnarfirðinum. Ég held að við höfum lítið verið að spá í það hvernig þetta kæmi út þótt þeir væru bræður. Við völd- um þá að minnsta kosti alveg sjálf- ar og vorum ánægðar með valið,“ segir Hildigunnur Guðmundsdótt- ir, húsfreyja á Auðkúlu í Arnar- firði, um það er hún og tvær syst- ur hennar, Ragnhildur og Inga, giftust þremur bræðram, Hreini, Sigurði og Þorkeli, 8. desember 1968. Ekki er vitað til þess að slíkt systkinabrúðkaup hafi farið fram hér á landi, hvorki fyrr né síðar, þ.e. þar sem öll ganga í það heilaga á sama tíma. Strákamir eru synir Þórðar Siguröur júlíus, sem lést 1971, Ragnhildur Guörún, Bjarni Þorkell Siguröur, Hildur inga, Hreinn og Hildigunnur í kirkjunni aö Brjánslæk 8. desember 1968. Njálssonar og Daðínu Jónasdóttur á Brjánslæk en stelpurnar dætur Guðmundar Jóhanns Einarssonar og Kristínar Theódóru Guðmunds- dóttur. Þau eru öll látin. Tóku við búi Hildigunnur og Hreinn höfðu þekkst í tvö ár og verið trúlofuð frá 16. 7.1967 þegar þau giftust. Þau búa nú á Auðkúlu en þar tóku þeir bræður, Hreinn og Sigurður, við búi 1967. Ragnhildur og Sigurður trúlof- uðust 16. 12. 1967 en Sigurður lést síðan í snjóflóði á Hrafnseyrarheiði 1971. Ragnhildur bjó um hríð ásamt dóttur þeirra á Bijánslæk en eftir að dóttir hennar fórst 1988 fluttist hún til Blönduóss. Þar giftist hún Kristjáni Sigurðssyni. Þau búa nú í Borgarnesi. Þorkell og Inga höfðu þekkst leng- ur en hin. Þau trúlofðu sig 1.1.1968 erlend bóksjá Vísindi og spenna Líklega hefur engum bandariskum rithöfundi samtímans tekist betur að sameina vísindi og spennu í verkum sínum en Michael Crichton en kvikmynd eftir nýjustu bók hans, The Lost World (Horfinn heimur), hefur einmitt nýlega ver- ið frumsýnd hér á landi. Bækur hans seljast í risastórum upplögum og flestar kvikmyndirnar sem gerðar hafa verið eftir sögunum hafa notið mikillar aðsóknar. Crichton, sem fæddist árið 1942 í New York, á langan feril að baki sem rithöfundur og kvik- myndaleikstjóri en samt má segja að hann hafi náð langmestum árangri síðustu tíu árin eða svo. Hann var einn fjögurra systkina sem fengu gott Michael Crichton: metsöluhöfundur sem er enn á uppleiö. og flestar þær skáldsög- ur sem hann hefur skrif- að síðan. Hann samdi einnig mörg kvikmynda- handrit og leikstýrði sjálfur nokkrum kvik- myndum. Gat ekki skrifað En þótt mikil velgengni einkenni nú líf Crichtons hefur hann þurft að takast á við ýmsa erfiðleika. Það kom til dæmis nokkuð langt tímabil í lífi hans þar sem honum var ómögulegt að skrifa. „Það stóð í fimm ár,“ segir hann í viðtali. „Það var alveg sama hvað mér datt í hug, það gekk ekkert upp.“ Á þessum erfiðu árum lagðist hann í flakk til ólíkra heimshorna, meðal Metsölukiljur ••••••••••••••• Bretland Skáldsögur: 1. Patrlcla D. Cornwell: Cause of Death. 2. Frederlk Forsyth: lcon. 3. Joanna Trollope: Next of Kln. 4. Helen Fleldlng: Brldget Jones's Diary. 5. Rosle Thomas: Every Woman Knows a Secret. 6. Meave Blnchy: Evenlng Class. 7. Kathy Lette: Mad Cows. 8. James Herbert: ‘48. 9. Penny Vlncenzl: The Dllemma. 10. Roddy Doyle: The Woman Who Walked Into Doors. Rlt almenns eölis: 1. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 2. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 3. Paul Wllson: A Llttle Book of Calm. 4. Howard Marks. Mr. Nlce. 5. John Gray: Men are from Mars, Women are from Venus. 6. Anne Frank: Dlary of a Young Glrl. 7. Nlck Hornby: Fever Pitch. 8. Redmond O’Hanlon: Congo Journey. 9. The Art Book. 10. Bill Bryson: Nelther Here nor There. Innbundnar skáldsögur: 1. D. & L. Eddlngs: Polgara the Sorceress. 2. Arundhatl Roy: The God of Small Thlngs. 3. John Grlsham: The Partner. 4. Wllbur Smlth: Blrds of Prey: 5. Bernard Cornwell: Sharp'e Tiger. Innbundin rlt almenns eölis: 1. Mlchael Drosnin: The Blble Code. 2. Dave Sobel: Longltude. 3. Paul Brltton: The Jlgsaw Man. 4. Slmon Slngh: Fermat's Last Theorem. 5. Jonathan Dlmbleby: The Last Governor. (Byggt A The Sunday Tlmes) uppeldi; foreldrar þeirra hvöttu þau þannig til að kynna sér fagrar listir með því að fara í leik- hús, heimsækja söfn og lesa bækur. Byrjaði 14 ára Strax á unglingsárunum fór Crichton að reyna fyrir sér við skriftir. Honum tókst að selja fyrstu blaöagrein sína aðeins 14 ára að aldri; það var ferðasaga sem birtist í New York Times. Þegar hann hóf háskólanám í Harvard urðu enskar bókmenntir fyrir valinu í upphafi. En ritsmíðar hans þar fengu litlar undirtektir og hann færði sig fljótlega yfir í mann- fræði. „Enskudeildin var ekki góð fyrir væntanlegan rithöfund," sagði hann síðar, „Hennar hlutverk var að búa til háskólákennara." Árið 1964 lauk hann háskólaprófi meö sóma og hélt fyrirlestra í mannfræði við Cambridge háskól- ann í Englandi árið eftir, en sneri þá viö blaðinu og hóf nám í læknis- fræði. Það nám kom honum að góð- um notum síðar þegar hann fór að skrifa spennusögur þar sem fléttan snerist að verulegu leyti um vís- indarannsóknir af ýmsu tagi, þar á meðal í læknisfræði. Alla tíð síöan hefur gífurlegur áhugi hans á vís- indum birst með einum eða öðrum hætti í flestum skáldsögum hans. Fyrsta sagan, The Andromeda Umsjón Elías Snæland Jónsson Strain, kom út árið 1969 og náöi miklum vinsældum. Þar fjallar hann um vírus sem berst til jarðar utan úr geimnum og tilraunir vís- indamanna til að takast á við þann vágest. Hún var kvikmynduð eins annars um Afríku og Asíu, og reyndi líka að leita lausna í alls konar sérkennilegum lífshátt- um. Stóð sig til dæmis að því eitt sinn í miðri eyðimörk að standa í hrókasamræðum við kaktus! En árið 1985 small allt saman á ný og þá hófst hin eiginlega ofurvel- gengni hans. Skáldsögur á borð við Jurassic Park um ræktun risaeðla, Rising Sun, um harkalega árekstra á milli menningarheima Banda- ríkjamanna og Japana, Disclosure, um kynferðislega áreitni á vinnu- stað, og nú síðast The Lost World, sem er framhald af Jurassic Park, hafa fært honum gífurlegar vin- sældir og rí'údæmi - og allar verið kvikmyndaðar með góðum árangri. Sumar þe=,sara bóka, ekki síst Ris- ing Sun og Disclosure, leiddu einnig t'l mjög harkalegra deilna í Banda- ríkjunum - sem varð bara til þess að auka enn söluna. og bjuggu á Brjánslæk. Til stóð að þau tækju við búi þar ásamt bróður stúlknanna en af því varð ekki. Þau fluttust til Þingeyrar tveimur árum eftir brúðkaupið og búa þar enn. Sumum fannst þetta fyndið „Sumum fannst þetta skrýtið en öðrum eitthvað fyndið. Þcuna fundu þijár stúlkur þrjá stráka á svipaðan hátt og alltaf gerist. Það var auðvit- að sérstakt aö eiga sömu tengdafor- eldrana en ég held að fjölskyldan hafi verið samrýndari fyrir vikið,“ segir Hildigunnur. Hún sagði þær systur frábiðja sér allar myndatök- ur í dag en lánaöi DV myndir úr brúðkaupinu sem fór fram í Brjáns- lækjarkirkju. Það var séra Þórarinn Þór sem gaf hópinn saman. -sv Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Mary McGarry: Songs In Ordlnary Tlme. 2. Jacquelyn Mltchard: The Deep End of the Ocean. 3. Julle Garwood: The Clayborne Brldes: Parts 1-2. 4. Sandra Brown: Excluslve. 5. Dean Koontz: Demon Seed. 6. Danlelle Steel: Malice. 7. Faye Kellerman: Prayers for the Dead. 8. John Grisham: The Runaway Jury. 9. Jeffrey Archer: The Fourth Estate. 10. Anne Rlce: Memnoch the Devil 11. Phlllp Margolin: The Burning Man. 12. Wally Lamb: She's Come Undone. 13. Mary Higgins Clark: Moonllght Becomes You. 14. Ursula Hegi: Stones From the Rlver. 15. Terry McMillan: How Stella Got Her Groove Back. Rit almenns eölis: 5 1. Maya Angelou: The Heart of a Woman. 2. Stephen E. Ambrose: Undaunted Courage. 3. Danlel Goleman: Emotlonal Intelllgence. 4. Jon Krakauer: Into the Wlld. 5. James McBride: The Color of Water. 6. Jonathan Harr: A Civll Actlon. 7. Mary Pipher: Revlvlng Ophella. 8. Andrew Weil: Spontaneous Heallng. 9. Laura Schlesslnger: How Could You Do That?! 10. Scott Adams: The Dllbert Prlnclple. ; 11. Carmen R. Berry & T. Traeder: Glrlfrlends. 12. Carollne Knapp: Drlnklng: A Love Story. 13. Thomas Cahlll: How the Irlsh Saved Clvillzatlon. 14. Kathleen Norrls: The Cloister Walk 15. Davld Sobel: Longltude. (Byggt A New York Tlmes Book Revlew)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.