Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
Andrew Cunanan, morðingi ítalska tískukóngsins Versaces, breyttist í skrímsli:
"éttaljós
25
Altarissveinninn sem varð
að kaldrifjuðum morðingja
„Hann var ekki karlhóra. Þess
í stað mundi ég segja að
hann hafi verið gígóló.
Hann þurfti alltaf að fá
alla athyglina, að vera
hrókur alls fagnaðar,"
segir Nicole Ramierz-
Murray.
Lagaði sig að
aðstæðum
Ekki er hægt að skýra
velgengni Cunanas í sam-
kvæmislífínu með
kynlífinu einu
saman. Þar léku
gáfur hans
einnig mikil-
vægt hlut-
verk, svo
og sa eig-
inleiki
hans
að
geta
lagað
sig ótrú-
lega vel að
þeim sem
hann var
með í
hvert sinn.
Þá skipti ekki
máli hvort
hann var i
tvídjakka á
listasafni eða
í þröngum
gallabux-
um og
erma-
Andrew Cunanan var ósköp venjulegur hæglætisdrengur þegar hann var
að alast upp í Kaliforníu, eins og sjá má á þessari mynd. Símamynd Reuter
Skólasystkini Andrews Cunanans
í hinum fma Bishop’s Gate skóla í
La Jolla í Kaliforníu þóttust viss um
að síðar meiri yrði fremur munað
eftir honum en öðrum nemendum.
Varla hvarflaði þó að þeim að hann
ætti eftir að verða einhver frægasti
morðingi Bandaríkjanna hin síðari
ár, maðurinn sem alríkislögreglan
FBI hafði mestan áhuga á að hand-
sama.
Eltingaleik yfirvalda og Cunan-
ans lauk síðastliðinn miðvikudag
þegar lögregla og sérsveitir réðust
til inngöngu í húsbát í Miami Beach
og fundu lik hins eftirlýsta morð-
ingja. Hann var 27 ára gamall. Talið
er næsta víst að Cunanan hafi stytt
sér aldur með skammbyssunni sem
hann notaði til að drepa ítalska
tískukónginn Gianni Versace í fyrri
viku. Byssan sú var einnig notuð til
að myrða tvo aðra karlmenn og er
Cunanan grunaður um að hafa ver-
ið þar að verki. Hann er enn fremur
grunaður um að hafa myrt tvo
menn að auki.
Fyrsta morð sitt framdi Cunanan
í april og allt þar til á miðvikudag
hafði honum tekist að ganga lög-
reglunni úr greipum, þrátt fyrir
Andrew Cunanan, eftirlýstasti
morðingi Bandaríkjanna.
umfangsmikla leit, bæði í Flórída
og i öðrum fylkjum Bandaríkjanna.
„FBI mun aldrei ná mér, ég er allt
of klár til þess,“ sögðu skilaboð sem
Cunanan talaði inn á símsvara eins
vinar sins. Og það má kannski til
sanns vegar færa.
Flestir minnast Andrews Cunan-
ans sem hæglætispilts þegar hann
var að alast upp í La Jolla, skammt
norður af San Diego. Móðursystir
hans, Barbara Cunanan Carlos,
sagði á fimmtudag þegar ljóst var
hvað hafði gerst á húsbátnum í Mi-
ami Beach: „Ég átti erfitt með að
trúa þvi sem gerst hafði. Hann var
indælispiltur og hæglátur," sagði
hún. „Fjölskyldan var mjög trúræk-
in og var vön að fara saman í
kirkju."
Frænka rifjaði einnig upp að
Andrew litli hefði verið altaris-
sveinn í sóknarkirkjunni sinni.
Það er einmitt þessi mikla breyt-
ing á Andrew Cunanan, úr altaris-
sveini í forhertan morðingja, sem
kemur þeim sem
þekktu hann á ár-
um áður algjörlega
í opna skjöldu.
„Við þekktum
hann sem ljúfan
dreng. Ef einhver
hefði sagt mér fyr-
ir ári að hann
væri morðingi,
hefði ég sagt hin-
um sama að vera
ekki með þessa vitleysu," segir
George Kalamaras sem rekur veit-
ingastaðinn California Cuisine í
hommahverfinu Hillcrest í San
Diego.
ítalski tískukóngurinn Gianni Ver-
sace, fórnarlamb Cunanans.
Nágrannar Cunanans í Rancho
Bernardo, millistéttarúthverfi
norður af San Diego, þar sem hann
ólst upp, minnast hans einmitt sem
rólyndisdrengs.
Axlarbraut
móður sína
En þótt Cunanan væri alla jafna
dagfarsprúður ungur maður átti
hann þó til að grípa til fólskuverka.
Einu sinni réðst hann til dæmis á
móður sína og þeytti henni svo
harkalega upp að vegg að hún axlar-
brotnaði.
Foreldrar drengsins, Modesto,
verðbréfasali frá Filippseyjum, og
MaryAnn, sendu soninn í einka-
skólann Bishop’s Gate þegar hann
var átta ára. Hann var yngstur fjög-
urra systkina og sumir segja að
hann hafi verið fordekraður. Piltur-
inn var góðum gáfum gæddur og
fékk aðdáun ættingja sinna fyrir að
lesa Biblíuna þegar hann var aðeins
sjö ára. Tvær alfræðibækur las
hann svo þegar hann var 14 ára.
Fjölskyldan hafði það mjög gott
þar til heimilisfaðirinn neyddist til
að flýja Bandaríkin eftir að hann
hafði verið sakaður um að svíkja
eitt hundrað þúsund dollara út úr
fyrirtækinu sem hann vann hjá.
Upp frá því bjó fjölskyldan við
kröpp kjör.
Eiginkonan algjör tík
Cunanan innritaðist í Kalifomíu-
háskóla að loknu framhaldsskóla-
námi en entist þar ekki nema eitt
ár. Þá tók hann upp á því að búa til
ævintýralegar sögur um sjálfan sig
og fortíð sína, sögur sem ekki áttu
sér neina stoð í raunveruleikanum.
Hann sagði vinum sínum ýmist að
hann hefði gengið í Yale, einn
virtasta háskóla Bandaríkjanna,
eða háskóla sjóhersins, að hann
væri kvæntur og ætti dóttur en að
eiginkonan væri algjör tík.
Á skólaárum sínum í Bishop’s
Gate fór Cunanan ekki leynt með að
hann væri sam-
kynhneigður. í
San Diego lifði
hann og hrærð-
ist í tveimur
heimum
homma. Annars
vegar með jafn-
öldram sínum í
áðumefndu
Hillcresthverfi
og hins vegar
lagði hann lag
sitt við sér eldri menn í La Jolla.
Honum veittist auðvelt að töfra
gömlu hommana í La Jolla með
leiftrandi - gáfum sínum. Upp úr
krafsinu hafði hann fullt af dýrum
fötum, flottan bíl og fullt veski af
kritarkortum. Þeir sem borguðu
brúsann vora ríkir kaupsýslumenn
sem þótti mikið til koma að sjást
með ungum og fallegum pilti úti á
lífínu.
Þegar leitin að Cunanan stóð sem
hæst lýsti lögreglan honum sem
vændismanni. Ritstjóri tímarits
homma og lesbía í San Diego er
hins vegar ekki sammála þeirri
skilgreiningu.
lausum bol í dúndrandi hávaða á
leðurbar.
Cunanan bjó um tíma með 61 árs
gömlum arkitekt, Lincoln Aston að
nafni, sem hélt honum uppi. Aston
var hins vegar myrtur árið 1995 af
manni sem hann hafði hitt í
hommaklúbbi. Annar fullorðinn
milljónamæringur keypti þá hús
Astons og Cunanan bjó með honum
í ár. Margir telja að endalok þess
sambands hafi orðið til þess að Cun-
anan tapaði sér algjörlega. Vanga-
veltur eru uppi um að á svipuðum
tíma hafi hann komist að því að
hann væri HlV-smitaður og að hann
hafi vilja jafna um við þá sem hann
taldi að hefðu smitað sig og þá sem
lifðu í vellystingum.
Hann hætti að stunda líkams-
rækt, varð miklu frekar mjúkur en
feitur, og lagðist í sjálfspín-
ingarklám og kynlíf.
Áður en Cunanan kvaddi San
Diego hélt hann vinum sínum
veislu á veitingastaðnum California
Cuisine sem áður er nefndur. Þar
var kampavínið óspart drukkið og
skálað. Allir töldu að Cunanan væri
að fara að leita sér að öðrum ríkum
karli til að leggjast upp á, í bæði eig-
inlegri og óeiginlegri merkingu.
„Ekkert ykkar þekkir mig í raun
og veru,“ sagði hann við gesti sína í
kveðjuskyni. Og það voru orð að
sönnu.
Byggt á Reuter, Daily Mirror,
Sunday Times, Scotland on
Sunday o.fl.
FARANGURSKASSAR
toppgrindur og burðarbogar
Eigum mikið úrval af farangurskössum, toppgrindum
og burðarbogum á flestar gerðir bifreiða.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum
okkar í síma 588 2550.
BílavörubúÖin
FJÖDRIN
Ifararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
Þyrla frá lögreglunni í Miami á sveimi yfir húsbátnum þar sem Andrew Cun-
anan varöi síðustu stundum lífs síns. Símamynd Reuter
Erlent
fréttaljós