Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Síða 29
28 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 DV %elgarviðtalið * Hjþlgarviðtalið LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 Um fátt er meira rœtt þessa dagana í sambandi viö menningarlífiö í landinu en Borgarleikhúsiö og rekstur- inn á Leikfélagi Reykjavíkur. Mörg stór orð hafa verið látin falla um að stofnunin sé deyjandi og að rekstur LR, í þeirri mynd sem hann hefur verið, sé genginn sér til húðar. Til þess að komast að því hvað sé í rauninni að gerast í þessu fornfrœga félagi tók DV hús á Þórhildi Þorleifsdóttur, leikhússtjóra í Borgarleikhúsinu, og fékk hana til þess að rœða um þá gagnrýni sem leikfélagið hefur mátt þola upp á síðkastið, fjárhagsvandann, verk- efnaval vœntanlegs leikárs, leikhússtjórastöðuna og síð- ast en ekki síst framtíð Leikfélags Reykjavíkur og rekst- ur Borgarleikhússins. Þórhildur hefur nú gegnt starfi leikhússtjóra í tœpa sextán mánuði og segist alls ekki sjá eftir því að hafa sóst eftir starfmu þrátt fyrir orrahríð úr ýmsum áttum. rænan árangur eða af öðrum góðum hvötum. „Þessa hluti eigum við ekki að bera saman en við eigum að bera saman atvinnuleikhúsin í landinu. Þegar Borgarleikhúsið var í bygg- ingu gerðu bæði stjómmálamenn og þeir sem hér réðu ríkjum sér grein fyrir því að aldrei myndi ganga minna en að tvöfalda fjárframlagið til leikhússins. Enn er langt í að það hafi náðst,“ segir Þórhildur og bend- ir á að árangurinn af rekstrinum í húsinu, frá því að flutt var þangað inn 1989, sé 60 milljóna króna tap, þrátt fyrir að oft hafl gengið mjög vel. Hún segist hafa tekið við þessu tapi en ekki aukið við það. Hálfnotað hús „Það krafðist fómarkostnaðar að auka ekki við tapið. Ég ákvað að hætta frekar við sýningar á þremur verkum en að eyða peningum sem við áttum ekki tÚ. Sigurður Hróars- son hætti á sínum tíma vegna þess aö honum fannst honum ekki hafa Umræöuna um fleiri hópa inn í húsiö segir Þórhildur vera á algerum villigöt- um. LR hafi þurft aö greiöa meö flestu því sem farið hafi fram í húsinu og þaö gangi ekki þegar félagiö hafi ekki einu sinni fjármagn til eigin reksturs. „Staðan er vissulega slæm í dag en við megum hins vegar ekki vera svo skammsýn að halda að vandamálið hafi byrjað í gær og að það verði leyst á morgun. Vandi Leikfélags Reykja- víkur byrjaði þegar það flutti hingað í Borgarleikhúsið. Því hafa aldrei verið skapaðar aðstæður til þess að reka hér leikhús með fullum sóma, eins og byggingin býöur upp á og eins og til er ætlast," segir Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri, aðspurð hver sé í raun staða LR í dag. Þórhildur segir að skapa verði leikfélaginu allt önnur skilyrði ef það eigi að keppa við Þjóðleikhúsið því það eigi það svo sannarlega að gera. Leikhúsin tvö eigi að vera sam- anburðarhæf en þau verði þá að búa við svipuð skilyrði. Á meðan Þjóð- leikhúsið hafi úr rúmum 300 milljón- um að spila frá ríkinu á hveiju ári fái LR 140 milljónir frá borginni. Það sjái hver maður að samanburður undir slíkum formerkjum sé alls ekki sanngjam. Það megi heldur ekki gleymast að fortíðin sé ekki öll I svörtum litum. Á þeim tíma sem starfsemin hafi verið i Borgarleik- húsinu hafi komið tvö toppár í að- sókn, tvö meðalár og tvö slök ár. Fyrir fram vonlaust „Þaö dregur auðvitað smám sam- an kjark úr fólki þegar ár eftir ár er veriö að reyna að ná endum saman og staðan er fyrir fram alltaf von- laus. Jafnvel eftir toppár í aðsókn stöndum við frammi fyrir því að skriða rétt yfir núllið. Svo naumt er okkur skammtað að góðu árin nægja engan veginn til þess að mæta tapinu sem er af árunum þar sem verr geng- ur. Mönnum getur auðvitað sýnst hitt og þetta um félagið, verkefnaval og annað slíkt en ég hef enn engan heyrt svara því hvemig Borgarleik- húsið eigi að gera sambærilega hluti og Þjóðleikhúsið fyrir meira en helmingi minna fé.“ Leikhússtjóranum er heitt í hamsi og finnst að félaginu vegið á ómak- legan hátt. Hún spyr t.d. hvemig fólki detti í hug aö fara að bera Leik- félag Reykjavíkur saman við t.d. einn tiltekinn leikhóp sem setji upp eina sýningu þar sem fólk sé jafnvel meira og minna tilbúiö til þess aö gefa vinnu sína, t.d. í von um list- Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri hefur boðað að grípa þurfi til örþrifaráða ef ekki fæst meira fá inn í Borgarleikhúsið virðist sjá sér hag í því að berja á fé- laginu. Vísað hefur verið í umfjöllun Frjálsrar verslunar og bent á að þar hafi verið farið frjálslega með stað- reyndir. Mönnum þyki ljóst að þar hafi markaðsmenn ákveðins leik- hóps stýrt umfjöllun að ákveðnu leyti til þess að vekja á sér athygli. Þegar Þórhildur var spurð hvort ákveðnir niðurrifsmenn væru vísvit- andi að vinna gegn Leikfélagi Reykjavíkur sagði hún ákveðin: „No Comment." Berst móti vindinum „Ég vil segja það eitt að við ættum að geta styrkst af samkeppni hvert við annað og menn verða aö gæta þess að lemja ekki allt í sundur í ákafa augnabliksins. Leikfélagið hef- ur átt mörg blömaskeið og hjá því starfar mikið af mjög hæfileikaríku fólki. Meirihluti leikara okkar er ungt fólk, fullt af eldmóði og áhuga, og sóst er eftir leikurum LR til að leika úti um allan bæ, hjá öðrum leikhópum, í bíómyndum og í út- varpi og sjónvarpi. Það fær mig enginn til þess að trúa því að þeir geti ekki leikið hér í hús- inu. Að mínu mati vaða þeir reyk sem tala um LR sem deyjandi félag. Það hefur blásið á móti en þá er ekki um annað að gera en að setja undir sig hausinn og berjast móti vind- inum. Hann lægir einhvem tím- ann.“ Þórhildur segir mikið niðurbrot hafa átt sér á leikarahópnum hjá LR. Tvö ár í röð sé gripið til stór- felldra uppsagna sem komi auðvit- að róti á en einnig má leita skýr- inga aftur í tímann. „Þegar ég sótti um leikhússtjóra- stöðuna lýsti ég í viðtali við leik- húsráð LR þeirri skoðun minni að uppbygging leikhópsins væri for- gangsverkefni. Hann liði fyrir aö allt of oft hefði ekki tekist nógu vel til með leikstjóraval, Stóra sviðið væri allt of oft notað sem æfingabúðir fyr- ir byrjendur. Það eru takmörk fyrir því hvað leikarar geta verið lengi í kennara- eða þolendahlutverki. Þeir þurfa líka næringu og til- sögn ef þeir eiga að þroskast," segir Þór- hildur. Aldrei í vafa um starfið Þórhildur segist ekki hafa þurft að hugsa sig um hvort hún vildi starfið eftir að Viðar Eggertsson var látinn hætta. Hún hafl frá upphafi verið sannfærð um að hún væri hæfari til þess að gegna því og að hún sjái ekki eftir að hafa látið slag standa. „Ég var ekki sá kjáni að halda að eftir allt rykið sem þyrlað var upp í þeim stormi sem gekk yfir dytti á al- gert dúnalogn þegar ég kæmi. Mál vom hins vegar til lykta leidd að mestu leyti þegar ég hóf störf og ég hef ekki þurft að vera að leika neinn sáttasemjara. Starfið er krefjandi og það væri hroki að segja að allt hafi gengið eins og ég ætlaðist til á afmæl- isárinu. Tíminn til stefnu var hrein- lega orðinn of naumur þegar ég tók við. Ég hef haft betri til að undirbúa næsta ár og er bjartsýn á að það muni ganga vel.“ Skandalsjónarmið Þórhildur segir að menningarum- ræða liggi nokkuð í láginni í landinu og það sé mjög sérkennilegt því áhug- inn fyrir hvers konar menningu sé mjög mikill. Opinber umræða um menningu sé afar lítil og kannski þess vegna séum við mjög illa í stakk búin að taka á svona málum eins og átt hafa sér stað í Borgarleikhúsinu. „Við lítum gjaman á öldugang í menningarlífinu út frá skandalasjón- armiði og leggjum ekki mat á hlutina í einhverri heildarmynd. Við spyrj- um ekki hvert við viljum stefna, hvað hafi áunnist eða tapast. Umfjöllunin er oft líkt og um væri að ræða ein- staka atburði eða uppákomur. Eins er þetta með okkur hér hjá LR. Menn vilja líta á eitt leikár í sögu félags sem orðið er hundrað ára og segja „Nei, nei, nei. Þetta gengur ekki.“ Ég segi að þetta gangi víst verði náðarhöggið ekki veitt. Leikfélag Reykjavíkur hefur gengið í gegnum erfiðleika áður, rétt eins og Þjóðleikhús- ið og fleiri menning- arstofnanir, og ég er ekki í vafa um að það eigi eftir að rísa bratt upp aftur. Menn rísa upp svo fremi að þeir séu ekki barðir í hel þar sem þeir liggja særðir," segir Þórhildur Þor- leifsdóttir, leikhús- stjóri í Borgar- leikhúsinu. tekist það sem hann ætlaði sér, að afla meira fiár, og hann vildi ekki safna meiri skuldum. Ég kæri mig heldur ekkert um að safna skuldum en ég ætla ekki að berja höfðinu við steininn endalaust. Ég hef boðað það hér innanhúss að hugsanlega þurfi að grípa til örþrifaráða, uppsagna og niðurskurðar á verkefnum ef við ekki fáum meira fé. Ég held að þegar svo verður komið hljóti menn að vakna til lífsins og spyrja sig þeirrar spurningar hvort Borgarleikhúsið hafi verið byggt til þess að nýta það aðeins til hálfs eða varla það. Menn segja að hér eigi að vera fullt af sýn- ingum, iðandi lífi og allt í fullum gangi. Ég spyr í einfeldni minni: Fyr- ir hvaða peninga á að gera allt þetta?“ Algerlega óraunsætt Undirritaður svarar að bragði hvort ekki megi bara gera þá kröfu til rekst- urs af þessu tagi að hann standi undir sér. Leikhússfiórinn er hreint ekki á því, segir það algerlega óraunsætt. Alls staðar i þeim menningarheimi sem við þekkjum og tilheyrum sé menningarstarfsemi styrkt stórkost- lega og miklu meira en hér. „Það er að minu mati tómt mál að tala um að reka metnaðarfullt leikhús með ákveðinn hóp fastráðinna leikara og fagfóik í hveiju rúmi, sem er for- senda uppbyggingar og þróunar, og gera um leið kröfu til þess að slíkur rekstur standi undir sér. Þeir sem standa i svokölluðum „commercial" leikhúsrekstri velja verkefni bara út frá því hvort þeir telji þau koma til með að bera sig. Vandamálið er að það klikkar líka. Formúlan er ekki til.“ Þórhildur segist ekki vera að tala um upphæðir á borð við það sem rennur til Þjóðleikhússins. Hún hafi látið sig dreyma um að í nokkrum þrepum væri hægt að þoka styrkjum til Borgarleikhússins upp fyrir 200 milljónir. Verði það gert þurfi ekki að spyija að því að leiðin muni liggja upp á við á ný. um aðra helgi í Borgarleikhúsinu og Þórhildur var fengin til að leikstýra. Hún segir það ekkert koma málinu við að hún sé að leikstýra hópnum. Gengið sé frá málum með þeim hætti að LR geti ekki tapað, aðeins hagnast. Slíka samninga hafi menn ekki verið tilbúnir til þess að gera fyrr en nú. Engar tillögur borgarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði i DV á dögunum, að- spurð um rekstrarvanda LR, að þetta gengi ekki lengur. „Ég varð ekki hissa og mér sám- uðu ummælin ekki en mér finnst að Ingibjörg Sólrún og hennar fólk verði að hafa eitthvað annað fram að færa í umræðunni. Til er samstarfs- samningur milli borgarinnar og LR og borgin fór fram á að samningur- inn yrði endurskoðaður. Að því hef- ur verið unnið í allan vetur en ekk- ert miðað, einfaldlega vegna þess að böndin berast alltaf að aðalmeininu, fiárskortinum. Þá kippa menn að sér hendinni og kjósa heldur að snúa sér að formsatriðum og orðalagi í samn- ingi en að horfast i augu við naprar staðreyndir.“ Minnkandi aðsókn að Borgarleikhúsinu er sögð tala sínu máli um að margt sé að innan hinna steinsteyptu veggja. Þórhild- ur segir að menn hafi farið með rangt mál í sambandi við aðsóknar- tölur. „Þegar talað er um 90 þúsund manns á metári er átt við aðsókn að öllum sýn- ingum og allri starfsemi í Borgarleikhúsinu. Þessi háa tala er siðan borin saman við þau 27 þúsund sem sáu sýn- ingar Leikfélags Reykjavíkur í vet- ur. Þessar tölur eru ekki samanburð- arhæfar. Réttar tölur til samanburð- ar losa 60 þúsund áhorfendur og það er sá fiöldi sem kom í Borgarleikhús- ið síðasta leikár. Ef reikna ætti síðan áfram og spá í aðsókn að þeim sýn- ingum sem hætta varð við vegna fiárskorts liti dæmið allt öðru vísi út. Ekki svo „listræn" „Á stundum hefur einna helst mátt skilja umræðuna þannig að ég væri svo „listræn“ í verkefnavali að ég vildi helst ekki sjá nokkum áhorf- anda í húsinu. í fyrsta lagi geri ég at- hugasemd við að listrænar sýningar og kassastykki séu ósættanlegar and- stæður. Þegar best tekst til helst þetta í hendur. í öðru lagi vísa ég þessu á bug með tilvísun i verkefna- val næsta vetrar. Við byrjum leikár- ið með dúndursöngleik eftir Benóný Ægisson með tónlist eftir Jón Ólafs- son og KK. Ken Oldfield setur þetta allt í réttu sveifluna og þama fær fólk tónlist, söng, grín og gaman og svo kannski eitt og eitt tár í kaup- bæti. Ég á allt eins von á að þar sé kassastykki á ferðinni. Ég er því ekki á móti slíkum verkum." Af fleiri verkefnum nefhir Þórhild- ur Galdrakarlinn í Oz, mikla og stóra sýningu fyrir börn á um aldri, og á jólum verður þunga- vigtarsýningin Feður og synir upp úr skáldsögu Turgenevs, eins af þekktustu höfundum Rússa. Þar koma til liðs við LR tveir Rússar, leikstjóri og leikmyndahönnuður. Loks verði sýndur franskur nútima- farsi sem hefur verið sýndur um alla Evrópu við gífurlegar vinsældir. „Ég get til viðbótar nefht að á Litla sviðinu verður byrjað á Ástarsögu eftir Kristínu Ómarsdóttur, afskap- legu nýstárlegu verki um utangarðs- menn í samfélaginu, og þá verðum við með leikrit eftir Nicky Silver, höfund sem er virkilega að slá í gegn og ég held að geti orðið arftaki Dari- os Fos og gömlu absúrdmeistaranna. Hann er djarfur höfundur sem ýtir verulega við okkur en er um leið bráðfýndinn. Annað leikrit eftir Jök- ul Jakobsson, Sumarið ’37, verður á fiölunum hjá okkur og síðan stendur eftir sú spurning hvort við höfum efni á einni sýningu enn á Stóra svið- inu. Við munum svo að sjálfsögðu halda áfram því öfluga barnastarfi sem verið hefur í húsinu,“ segir Þórhildur, ánægð og kinnroðalaus vegna þess sem boðið verði upp á í leikúsinu næsta vetur. En hefur Borgarleikhúsið . beðið álitshnekki úti í þjóðfélaginu? Skaðleg um- ræða „Fárviðri hefur geisað í kringum leikhúsið og það væri fáviska að halda að slíkt gæti geng- ið yfir leikhús eða ein- hverja aðra stofnun án þess að það dragi dilk á eft- ir sér. Öll þessi neikvæða umræða um Borgarleikhúsið hefur haft skaðleg áhrif á almenningsálit- ið og hér innanhúss en mikið hefur áunnist í uppbyggingu hér innan ggja sem ég vona að skili sér út fyrir húsið.“ DV hefur heimildir fyrir því að nokkurrar óá- „Það dregur auövitað smám saman kjark úr fólki þegar ár eftir ár er verið að reyna aö ná endum saman og staöan er fyrir fram alltaf vonlaus," segir Þórhildur um fjárskortinn. Bull Ég er ekki að draga dul á það að við náðum ekki toppsýningu í vetur en þær hafast heldur ekki á hveiju ári, ekkert frekar hér en í öðrum leikhúsum, ekkert frekar hér en að bara sumar bækur bókaútgef- enda verða metsölubækur." Leikhússtjórinn segir allt umtal um skoðanaágreining í leikhúsráði um verkefnaval vera eins og hvert annað bull. Nú sé aðeins rætt um það hversu mikið eigi að spenna bogann. Hún vilji helst fá inn eitt verkefni til viðbótar við þau sem þegar hafi ver- ið ákveðin en sumir í ráðinu vilji fara með meiri gætni. Þórhildur segir Stóra sviö hússins allt of oft hafa veriö notaö sem æfingabúöir fyrir óreynda leikstjóra. DV-myndir GVA Menn missa kjark „í þessu eru peningar í raun töfra- orð. Ég hef sagt að þegar félög eins og LR þurfi sífellt að beijast fyrir til- verurétti sínum missi menn ósjálfrátt þann kjark og öryggi sem er svo mik- ilvægur í leikhúsi. Meiri peningar myndu þýða fleiri verkefni inn í hús- ið og stærri sýningar. Hópurinn sem að því starfar fengi meira sjálfstraust og þar með ósjálfrátt meiri hvatn- ingu. Það myndi um leið kalla á meiri aðsókn." Umræðuna um fleiri hópa inn í húsið segir Þórhildur vera á algerum villigötum. Reynslan hafi sýnt að Borgarleikhúsið hafi þurft að greiða með flestu þvi sem farið hafi fram í húsinu og það gangi ekki þegar LR hafi ekki einu sinni fiármagn til eigin reksturs. „Aðeins tveir leikhópar, Gallerí Njála og íslenska leikhúsið, hafa sótt um að koma með verkefni inn í hús- ið. Báðir hópamir sóttust eftir því að fá að frumsýna í október og þurftu að reiða sig á einhveija aðstoð frá LR. Ég ræö hverjir fá hér inni og því myndi ég vita ef aðrar umsóknir hefðu borist," segir Þórhildur og vís- ar á bug orðum manna hjá Leikfélagi íslands um að Veðmálinu hafi verið úthýst. „Ég veit ekki hvað þeim gengur til en hef af reynslu lært að taka með vara ýmsu því sem þeir segja.“ Þórhildur segir að fordæmisgefandi samningur hafi verið gerður við Höf- uðpaura, leikhóp sem frumsýna muni Uppsagnir og niðurskurður Þórhildur segist ánægö meö verkefnaval komandi leikárs. Þar veröi byrjaö á verki sem hugsanlega geti oröiö kassastykki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.