Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Qupperneq 50
Gamanleikarinn Robin
Wiiliams er þekktur fyrir að
geta brugðið sér í allra kvik-
inda líki. Hann lék gamla vin-
gjarnlega konu í myndinni
Mrs. Doubtfire sem flest börn
hefðu viljað eiga fyrir ömmu.
Núna nýlega lék hann síðan
tíu ára gamlan strák í mynd-
inni Jack sem flestir foreldrar
hefðu viljað taka í fangið og
knúsa.
Leikferillinn
Síðustu ár hafa verið farsæl
hjá Robin Williams. Gaman-
myndin Jack hefur notið mik-
illa vinsælda og situr nú ofar-
lega á íslenska myndbandalist-
anum. Á síðasta ári lék Robin
í gamanmyndinni Bird Cage
sem og ævintýramyndinni Ju-
manji sem báðar voru vef sótt-
ar.
Robin hefur leikið í kvik-
myndum i tuttugu ár. Það eru
hins vegar ekki nema um tíu
ár síðan hann varð virkilega
frægur. Það var myndin Good
Morning Vietnam sem gerði
hann frægan árið 1987. Þar lék
hann útvarpsþul hjá banda-
ríska hemum í Víetnam sem
gat m.a. hermt á ógleymanleg-
an hátt eftir hinum og þessum
persónum.
Eftirhermuhæfileikar
Robins fengu líka að njóta sín
í kvikmyndinni Mrs. Doubtfire
sem gerð var árið 1993. Sú
mynd gerði hann gríðarlega
vinsælan og lagði e.t.v. grunn-
inn að þeim vinsældum sem
hann nú nýtur.
Alvarlegur gaman-
leikari
Þrátt fyrir að vera aðallega
þekktur fyrir gamanleik sinn
hefur Robin einnig leikið í
nokkrum myndum af alvar-
legri gerðinni og tekist vel upp
þar. Hann vill ekki skilgreina
sjálfan sig eingöngu sem gam-
anleikara og vill heldur kalla
sig alvarlegan gamanleikara.
Hann hefur leikið í nokkrum
alvarlegum myndum og má
þar m.a. nefna Good Morning
America, The Fisher King og
Dead Poet Society þar sem
hann sýndi snilldarlegan leik
sem frjálslyndur enskukennari
í íhaldssömum drengjaskóla.
Fyrir það hlutverk sitt var
hann útnefhdur til óskarsverð-
launa.
Robin Williams er leikari af
guðs náð. Hann segir einnig að
honum finnist svo gaman að
leika að hann myndi gera það
launalaust. Samt sem áður er
engin hætta á því að hann
verði á fjárhagslegu flæðiskeri
staddur á næstunni eftir vin-
sældir siðustu ára. -glm
Myndir Robins Willi-
ams
Can I Do It 'till I Need Glasses
(1977)
Popeye (1980)
The World According to Garp
119821
The Survivors (1983)
Moscow on the Hudson (1984)
The Best of Times (1986)
Club Paradise (1986)
Seize the Day (1986)
Dear America (talsetning,
1987)
Good Morning Vietnam (1987)
The Adventures of Baron
Múnchausen (1989)
Dead Poet Society (1989)
Cadillac Man (1991)
The Fisher King (1991)
Hook (1991)
The Last Rainforest (talsetning,
1992)
Aladdin (talsetning, 1992)
Toys (1992)
Mrs. Doubtfire (1993)
Being Human (1994)
To Wong Foo, Thanks for Ev-
erything, Julie Newmar (1995)
Nine Months (1995)
Jumanji(1995)
The Birdcage (1996)
Jack (1997)
r
awtlyndbönd
r* *■ -----
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
Chrís O'Donnell:
r
drengurinn O'Do
Leikarinn Chris O’Donnell hefur
mikið að gera þessa dagana. Hann
hefur nýlega leikið í tveimur
myndum sem eru líklegar til að
auka frægð hans og frama. Það
eru myndirnar Leðurblökumað-
urinn og Robin og The Chamber
þar sem hann leikur á móti
gamla refnum, Gene Hack-
Laus við
stjörnustæla
Chris O’Donnell er ekki
dæmigerð Hollywoodstjarna
sem býst við því að hann sjálfur
sé nafli alheimsins. Hægt og
sígandi hefur hann komið
ár sinni vel fyrir borð á
undanförnum árum.
Hann hefur
verið
sagð-
Ferill hans hófst þegar hann gerð-
ist fyrirsæta aðeins þrettán ára
gamall. En eins og við var að búast
af hinum skynsama og jarðbundna
Chris fómaði hann ekki náminu
ur ákaflega venjulegur og jafnvel
litlaus maður miðað við marga
aðra leikara í Hollywood. En það
er kannski það sem hefur markað
honum sérstöðu í Hollywood. Hann
er einfald- ______________________
lega svo
líkur okkur
hinum.
Chris, sem
er tuttugu
og sex ára
gamall, er
nýgiftur
leikskóla-
kennaran-
um
Caroline.
Hann hefur
aldrei verið
í tygj-
Chris O Donnell i hlutverki sinu i myndinm The Chamber.
um viö frægar
leikkonur eða fyr-
irsætur. Hann hef-
ur heldur aldrei
reykt eða neytt eit-
urlyfja. Sannkall-
aður sætabrauðs-
drengur eða hvað?
Bankamafl-
urmn
Chris er yngst-
ur sjö systkina.
Hann ólst upp í
Winnetka sem er
útborg Chicago-
borgar. Hann seg-
ist hafa átt góð æskuár.
Hann heldur enn mjög
góðu sambandi við
foreldra sína og tekur
meira mark á ráðum
þeirra en nokkurra
annarra.
fyrir framann. Hann hafði fylgst
með háskólanámi eldri systkina
sinna úr fjarlægð og hafði skipulagt
líf sitt á mjög einfaldan hátt. Hann
ætlaði sér að komast inn í góðan há-
skóla, vinna vel og næla sér í vel
launað starf í banka að námi loknu.
En framtíðaráætlanir Chris fóru úr
skorðum þegar hann fékk hlutverk í
myndinni Some Men Don’t Leave á
móti Jessicu Lange þegar hann var
u.þ.b. að ljúka framhaldsskólanámi.
Ári seinna, árið 1991, lék hann í
rómantísku gamanmyndinni Steikt-
um grænum tómötum sem naut
mikilla vinsælda. Stóra tækifærið
kom hins vegar árið 1992 þegar
hann hreppti annað aðalhlutverkið
í myndinni Konuilmi þar sem hann
lék á móti stórstjörnunni A1 Pacino.
Fyrir leik sinn í þeirri mynd var
Chris tilnefndur til Golden Globe
verðlaunanna.
Á eftir þeirri mynd lék hann í
nokkrum rómantískum myndum,
m.a. Circle of Friends og Skyttunum
þremur og Mad Love.
Hann vakti hins vegar aftur á sér
mikla athygli árið 1995 þegar hann
lék teiknimyndahetjuna Robin í
Leðurblökumanninum að eilífu.
Traustur
vinur
Leikstjóri mynd-
anna um Leður-
blökumanninn,
Joel Schumacher,
ber Chris vel sög-
una. Hann segir að
hann sé ákaflega
traustur maður og
greinilega vinur
vina sinna. Hann
segir meira að
segja að það liggi
við að Chris haldi
enn þá sambandi
við fólkið sem
fæddist um leið og
hann á fæðingar-
deildinni. Að öllu
gamni slepptu virð-
ist þessi lýsing eiga
ágætlega við Chris
O’Donnell sem læt-
ur sig ekki muna
um að leigja flug-
vélar eða rútur
undir fjöldann allan af vinum sín-
um til þess að missa ekki samband-
ið við þá.
Ný ímynd
Fyrr á þessu ári lék Chris í róm-
antísku myndinni í blíðu og stríðu á
móti Söndru Bullock. Sú mynd þyk-
ir dæmigerð fyrir Chris sem ávallt
hefur verið í hlutverki góða stráks-
ins. Það kostaði hann því talsverðar
fortölur að fá hlutverk hins kaldrifj-
aða lögfræðings í myndinni The
Chamber sem gerð er eftir sögu
Johns Grishams. Sú mynd er allt
annað en rómantísk ástarmynd því
hún fjallar um lögfræðing sem reyn-
ir að bjarga afa sínum, sem er
dauðadæmdur fangi, frá því að
lenda í gasklefanum. Framleiðend-
ur og leikstjóri myndarinnar eru
ánægðir með leik Chris í myndinni.
Það er því aldrei að vita nema Chris
O’Donnell sé laus úr hlutverki góða
stráksins. -glm