Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLI 1997
Fréttir
Áfengisvamaráð berst gegn ðlöglegum áfengisauglýsingum:
Kærurnar stoppa
hjá lögreglustjórum
„Fjöldi mála af þessu tagi liggur
hjá lögreglustjórum. Einu svörin
sem við höfum fengið frá þeim er
vitnun í gamlan dóm, ásamt þeirri
yfírlýsingu að þannig yröi dæmt i
öllum þessum málum. Á þeim for-
sendum vilja lögreglustjórar ekkert
aöhafast í málinu,“ sagði Ólafur
Haukur Ámason, áfengisvamaráðu-
nautur hjá Áfengisvamaráði.
Það hefur vakið athygli hve
áfengisauglýsingum hefur fjölgað að
undanfömu, auk þess sem aug-
lýsendur eru hættir að dulbúa þær,
eins og þeir gerðu í fyrstu. Nú
em skilaboðin skýr, eins og sjá
má t.d. á flettiskilti á Vestur-
landsvegi þar sem auglýstur er
sterkur bjór.
Áfengisvamaráð hefur kært
þessar auglýsingar til lögreglu-
stjóraembættanna í Reykjavík
og á Akureyri en án árangurs.
Að sögn starfsmanna Áfengis-
vamaráðs vísa menn á þeim
bæjum stöðugt í framangreindan
dóm í máli þar sem um var að ræða
umfjöllun á áfengi, en ekki auglýs-
ingu, og segjast ekkert vilja aðhaf-
ast. Áfengisvamafulltrúamir segj-
ast álita að munur sé á umfjöllun og
auglýsingu og því beri lög-
reglustjórunum á viðkomandi
stöðum að grípa inn í málið og
koma í veg fyrir að lög séu
brotin með því að auglýsa
áfengi.
„Okkur fmnst þetta ganga
þvert á lögin sem samþykkt
voru vorið 1995. En það er
verulegt undanhald í gangi og
það er greinilega hjá lögreglu-
stjórunum," sagði Ólafur Haukur.
„Þaö kom fram í svari dómsmála-
ráðherra við fyrirspum á Alþingi í
vetur að ráðinn hefði verið maður
til að fylgjast með ólöglegum áfeng-
isauglýsingum. En það er alveg
sama hvemig sá maður vekur at-
hygli á þeim og hvað hann gerir,
það stoppar allt hjá umræddum lög-
reglustjóraembættum, sem vísa
alltaf í dóminn umrædda. Þessi
embætti standa sig engan veginn í
stykkinu og það er engu líkara en
að þau telji að þau lög sem Alþingi
setti hafi ekki verið sett í neinni al-
vöm né ætlast til að eftir þeim væri
farið.“ -JSS
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður ráðherra:
Áfengisauglýsing-
arnar klárt brot
Landslögum storkaö
á freklegan máta
- segir Alexander Alexandersson, starfsmaður Áfengisvarnaráðs
Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra:
Telað
lögin séu
skýr
„Það gilda ákveðnar lagaregl-
ur um áfengisauglýsingar og það
er lögum samkvæmt hlutverk
lögreglustjóranna að taka á mál-
um sem upp koma og era brot á
þeim reglum," sagði Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðherra um
samskipti Áfengisvamaráðs og
lögreglustjóranna í Reykjavík og
á Akureyri.
Þorsteinn kvaðst ekki þekkja
einstaka þætti þessara sam-
skipta.
„En ég tel að lögin séu í sjálfú
sér alveg skýr. Hins vegar geta
verið fjölmörg takmarkatilvik
sem gera auglýsingabann af
þessu tagi erfitt í framkvæmd.
En það var heldur hert á þessu
síðast þegar lögin voru endur-
skoðuð.“ -JSS
Það er fullt af þessum auglýsing-
um úti um allt og það er verið að
storka landslögum á freklegan
máta,“ sagöi Alexander Alexanders-
son, starfsmaður Áfengisvamaráðs.
Hann er skipaður af fjármálaráðu-
neyti, dómsmálaráðuneyti og heil-
brigðisráðuneyti og er staðsettur hjá
Áfengisvamaráði. Hans hlutverk er
m.a. að fylgjast meö að áfengisauglýs-
ingar séu ekki settar upp.
„Ég hef séð um að kæra áfengis-
auglýsingar til lögreglustjóraemb-
ættanna," sagði Alexander. „Ég hef
ekki tölu á þeim auglýsingum sem ég
hef kært, og ég myndi vilja sjá ein-
hvem árangur af þessu starfi mínu.
En embættin visa í genginn héraðs-
dóm og bæði I Reykjavík og á Akur-
eyri hafa þau neitað að taka á þess-
um málum. Það er ég með skriflegt
frá þeim.
Ef lögreglustjóramir taka ekki á
þessum málum þá gefumst við upp.
Mér hefur verið bent á að kæra þetta
sérstaklega til saksóknara, en ég sé
ekki ástæöu fyrir mig sem einstakl-
ing til að gera það, því það er hvort
eð er í verkahring saksóknara að
fara yfir þessi mál og taka þau upp
fínnist honum ástæða til.
Nú höfum við valið þann kostinn
að fara í heilbrigöisráðuneytið og
óska eftir samvinnu við lögfræðing-
ana þar til að fá einhverju áorkað. Ég
hef sent þeim öll gögn yfir þau atriði
sem ég hef kært. Það hefúr tekið sinn
tíma, en vonandi er þetta að komast
á skrið núna.“
Alexander sagði að allar þær
áfengisauglýsingar sem nú væru um
alla borg væra komnar frá áfengis-
heildsölum. Þessi þróun hefði farið af
stað um leið og innflutningur áfengis
færðist á fleiri hendur. -JSS
„Þessar áfengisauglýsingar era
að mínu mati klárt lagabrot. Það er
bannað skv. lögum að auglýsa
áfengi," sagði Þórir Haraldsson, lög-
fræðingur og aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra. Að sögn hans
munu fulltrúar úr heilbrigðisráðu-
neytinu ræða á næstunni við Þor-
stein Pálsson dómsmálaráðherra og
Hallvarð Einvarðsson ríkissaksókn-
ara um áfengisauglýsingar hér á
landi.
„Það sem hefur gerst er að lög-
reglustjórar hafa talið skilgreiningu
á auglýsingu mjög vafasama eftir
þennan umrædda dóm héraðsdóms,
þ.e. hvaö er auglýsing og hvað um-
fjöllun. Þar með telja þeir sig standa
á svo hálum ís lagalega séð að þeir
hafa ekki talið sér fært að rannsaka
þessi mál. Persónulega er ég þessu
ekki sammála."
Þórir sagði að næsta skref væri
að kanna hvort dómsmálaráðherra
og ríkissaksóknari væra sömu skoð-
unar og lögreglustjóramir og hvort
þeir teldu lagabókstafinn ónothæf-
an, eins og hann er núna. „Ég er
persónulega ekki þeirrar skoðunar,
en tel að það eigi að bregðast við og
að þeir, sem æöstu handhafar lög-
reglu- og dómsvalds, geti beitt sér til
þess
En ef þessir aðilar sjá sér það
ekki fært af því að lögin era óskýr
þá verður að taka þetta mál upp á
Alþingi. Ég tel þess ekki þörf. Það á
að taka nokkur áþreifanlegustu
dæmin, láta rannsaka þau og ákæra
í framhaldi af því og sjá hver niður-
staðan verður."
Þórir sagði að þessar áfengisaug-
lýsingar færu í taugamar á mörg-
um, sem eðlilegt væri. Fólk vissi að
þær væru lagabrot og að lögum ætti
að fara.
„Það er hins vegar okkar sjónar-
mið að það sé lögregla sem eigi að
halda þeim lögum uppi eins og öðr-
um lögum í landinu." -JSS
Stuttar fréttir
Minna aflaverðmæti ,
Heildarafli landsmanna á
fyrri helmingi ársins varð 1.277
þús. tonn og hefúr sjaldan eða
aldrei verið meiri. Heildarverö-
mæti dróst þó saman miðað við
sama tíma í fyrra. Það varð nú
27,7 milljarðar en var í fyrra
29,1 milljarður. Viðskiptablaðið
segir frá.
Meira svínakjöt
Sala á svínakjöti jókst um
12% á 12 mánaða tímabili til
loka júní síðastliðins, miðað við
sama tímabil næst á undan. Þá
jókst einnig sala á alifuglakjöti
nokkuð. Hrossakjötsala dróst
verulega saman og kinda-
kjötsala talsvert. Viðskiptablað-
ið segir frá.
600 milljóna halli
Borgarsjóður verður rekinn
með 630 milljóna halla á árinu að
mati borgarhagfræðings. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri segir aö kjarasamningar
vorsins vegi þyngst í hallanum
væntanlega. RÚV sagði frá.
Ekkert barnafyllirí
Borgarstjóri Reykjavíkur og
bæjarstjórinn á Akureyri skora á
foreldra að senda ekki börn und-
ir lögaldri eftirhtslaus á útihátíð-
ir um verslunarmannahelgina.
Ný bíómynd
Hrafh Gunnlaugsson hefur
gert nýja kvikmynd. Hún heitir
Myrkrahöfðinginn og er byggð á
píslarsögu sr. Jóns Magnússon-
ar, Jóns Þumals, sem taldi sig
fómarlamb galdra á miðöldum.
Stöð 2 sagði frá.
2,4 aukamilljarðar
Ríkissjóður mun óvænt fá
yfir 2,4 milljarða umframtekjur
af innfiutningi nýrra bíla á ár-
inu. Þetta er umfram þaö sem
fjárlög gera ráð fyrir. Viðskipta-
blaðið segir frá. -SÁ
Lögreglustjórinn í Reykjavík:
Þarf skýrari reglur
„Af ýmsum ástæðum hafa þessi
kærumál ekki haft þann framgang
sem æskilegt hefði verið. Eínhvem
tíma var talað um að það þyrfti laga-
breytingu til að koma málum í rétt
horf og ég get litlu spáð á þessu stigi
um hvaða framgang síðustu kærur
muni hafa,“ sagði Böðvar Bragason,
lögreglustióri í Reykjavík, um kær-
umar sem embættinu hafa borist
vegna áfengislauglýsinga.
- Nú hafa lögreglustjóraembættin í
Reykjavík og á Akureyri vísað í til-
tekinn dóm og telja ekki grundvöll til
að gera neitt með kærumar með
hliðsjón af honum?
„Það er rétt, við höfúm farið af
stað með mál, sem hafa ekki haft
framgang, og þá vísa ég í þessi lagaá-
kvæði sem dómstólar töldu ekki
nægilegan grundvöll fyrir áfellingu.
Þetta hefur veriö hálfgert basl í gegn-
um tíðina."
- Hefúr verið farið af stað með
kærur sem embættinu hafa borist í
seinni tíð?
„Nei, þessar kærur era héma hjá
okkur, enda þarf að undirbúa þau
mál ef menn vilja fara af stað aftur.
Ég tel að það þurfi miklu einfaldari
og skýrari reglur um þetta.“
- Flokkast þær áfengisauglýsingar,
sem nú sjást mjög víða, undir laga-
brot?
„Ég svara þessu ekki, en vísa í þaö
sem ég sagði áðan.“ -JSS