Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
11
DV
Vegabætur á Axarvegi í Berufirði:
Styttir leiðina upp
á Hérað um 60 km
DV.Vík:
„Við erum rétt að skeina af hon-
um. Tökum stærstu steinana úr
veginum og lögum hann þar sem
farið er yfir óbrúaðar ár á vaði,“
sagði Ásgeir Hjálmarsson á Djúpa-
vogi. Hann var ásamt fleirum uppi
á Axarvegi við lagfæringar þegar
fréttamann DV bar að. Axarvegur
er fjallvegur sem liggur upp úr
botni Berufjarðar og kemur niður
innst í Skriðdal á Héraði. Er hann
aðeins fær jeppum en styttir leið
þar á milli um 60 km sé miðað við
hringveginn.
„Faðir minn lagði veginn 1960-62
fyrir samskotafé og peninga sem
fengust úr happdrætti sem var
stofnað til í kringum vegarlagning-
una. Auk þess fékkst lítils háttar úr
fjallvegasjóði. 1962 var ég að vinna
við veginn í 3 mánuði. Þá var hann
svo góður að ég fór á milli á fólks-
bíl.“
Eftir að lagningu vegarins lauk
tók Vegagerðin við honum og að
sögn Ásgeirs hefur nánast ekkert
viðhald verið frá því hann var lagð-
ur.
„Ýta hefur rétt farið yfir hann
öðru hverju en eftir að Landsvirkj-
un notaði Öxi við línulögn hér 1981
varð hann hálfófær. 1988 var byggð
eina brúin á honum og það var
ekki fyrr en 1996 sem settir voru
nokkrir hólkar í veginn," sagði Ás-
geir.
Forsagan að framtakinu nú er að
í vor fór Ásgeir á fund vegamála-
stjóra og var ein helsta ástæða ferð-
Asgeir Hjálmarsson og ýtan.
DV-mynd Njörður Helgason
ar hans sú að faðir hans hefði orð-
ið 100 ára í ár. Ásgeir ræddi við
hann um veginn, hvað væri hægt
að gera til bóta.
„Síðan hef ég njósnað. Ég veit að
komin er hreyfmg á málin. Guðni
Nikulásson, verkstjóri á Egilsstöð-
um, sagði mér frá afgangshólkum á
Höfn og leyfði okkur að nota þá. Ég
fór einnig að leita að fleiri hólkum,
notuðum og nýjum. Þá komu til-
mæli frá Vegagerðinni um að biða
með framkvæmdir þar sem þeir
væru að hugsa um að fara að gera
eitthvað í veginum í haust. Þetta
tel ég að sýni að Vegagerðin gerir
ekkert vanhugsað fyrst rúm 30 ár
þurfti til að komast að þessari nið-
urstöðu," sagði Ásgeir.
Hann segir að það sé verið að
ráðast í stórframkvæmdir eins og
Gilsfjarðarbrú sem stytti leið þar
imi 17 km. Þessi fjallvegur stytti
leiðina um Austurland um 60 km
sé miðað við hringveginn. Mun
meira sé miðað við íjarðaleiðina.
Þann tima sem Ásgeir hefur unnið
í veginum í sumar hafa farið xun 30
bílar þar á dag.
„Það er verið að tala um að klára
einhverjar leiðir áður en farið er í
vegabætur þarna en ég veit ekki
um neinn veg á íslandi sem alveg
er lokið við. Keflavíkurvegurinn
var talinn mikill framúrstefnuveg-
ur þegar hann var lagður. Nú er
hann úreltur þannig að svona veg-
ir taka ekki frá stórframkvæmd-
um,“ sagði Ásgeir um leið og hann
steig upp í ýtuna.
-NH
Fréttir
Reykjavík:
Innbrota-
hrina
Lögreglan í Reykjavík hafði í
nógu að snúast vegna innbrota
í fyrrinótt. Brotist var inn í
íbúðarhús við Kambasel og
ýmsum heimilistækjum stolið.
Lögreglan stöðvaði menn á bíl í
hverfinu og fann þar þýfið.
Mennirnir sátu inni í morgun
og biðu þess að verða yfirheyrð-
ir. Þjófamir hafa án efa verið
búnir að fylgjast með mann-
lausu húsinu. Eigendur þess
eru í útlöndum.
Klukkan rúmlega fjögur í
fyrrinótt var maður handtekinn
við að brjótast inn í bíla vestur
í bæ. Hann er í haldi lögreglu,
grunaður um fleira en þessi
innbrot. Það var maður tekinn
réttindalaus á bfl. Hann var
með geislaspilara í bílnum sem
hann gat ekki gert grein fyrir.
Loks var maður leitaður uppi
og handtekinn eftir að til hans
sást vera að stela af bílum á
bilasölu. -sv
Nilfisk AirCare Filter®
Ekkert nema hreint loft sleppur í
gegnum nýja Nilfisk síukerfið.
Fáðu þér nýja Nilfisk
og þú getur andað léttar!
irQmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI552 4420
Franskir dagar á Fáskrúðsfiröi:
Frakkar fjölmenntu
DV, Fáskrúðsfirði.
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði
var yfirskrift 3ja daga hátíðahalda á
Fáskrúðsfirði og 90 ára afmælis
Búðahrepps 25.-27. júlí.
Fjölmargir franskir gestir, með
bæjarstjórann í Gravelines fremstan
í flokki, komu á hátíðina ásamt Vig-
dísi Finnbogadóttur og sendiherra
Frakka á íslandi. Vigdis afhjúpaði
skjöld sem komið var fyrir á stórum
steini - Tobbusteini - í miðju þorp-
inu. Frakkar notuðu steininn til við-
miðunar þegar þeir lögðu skútum
sínum á firðinum á fyrrihluta aldar-
innar. Borgarstjórinn, sendiherrann
og Vigdís fluttu ávörp.
Hjólreiðakeppnin, Tour de Fá-
skrúðsfjörður, var fjölsótt og nokkrir
aldurshópar kepptu á mislöngum
vegalengdum. Þar hjólaði franski
borgarstjórinn og fleiri Frakkar.
Afhjúpaður var minnisvarði um
Einar Sigurðsson, skipasmið og heið-
ursborgara Búðahrepps, í skrúðgarð-
inum en öld er frá fæðingu hans.
Bamabarn Einars og alnafni afhjúp-
aði minnisvarðann. Öm Ingi fjöl-
Lagt af stað í hjólreiðakeppnina.
Frú Vigdís flytur ræðu við afhjúpun steinsins. DV-myndir Ægir
listamaður stjórnaði skemmtun
trúða í frönsku kaffihúsi í Skrúð.
Fjölmargt annað var á dagskrá og
fjöldi brottfluttra Fáskrúðsfirðinga
heimsótti átthagana þessa daga auk
annarra gesta. Á laugardagskvöldið
var dansleikur í Skrúði við undir-
leik hljómsveitar Geirmundar og þar
var fullt út úr dyrum að vanda og
skemmti fólk sér hið besta. -ÆKr.
Ég auglýsti íbúðina og
fékk leigjanda sama dag!
o\\t mllff himj^
Smáauglýsingar
550 5000