Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
13
Fréttir
Nýja brúin yfir Botnsá:
Hamingjuósk-
ir fyrir að
aka fyrst yfir
- segir María S. Ágústsdóttir
Nýja brúin yfir Botnsá en umferð þar yfir var opnuö í fyrrakvöld.
Sportkafaraskóli
stofnaður
„Við vorum að koma að norðan
rétt fyrir miðnætti. Þegar við kom-
um að Botnsá sáum við að það voru
margar vinnuvélar þarna við veg-
inn. Það kom starfsmaður á móti
okkur og við héldum að hann ætlaði
að banna okkur að fara þarna yfir.
Þá óskaði hann okkur til hamingju
og sagði að við værum fyrsti bíll til
að fara nýju brúna,“ segir María S.
Ágústsdóttir.
María, eiginmaður hennar, Harald-
ur S. Magnússon, og tvö bamaböm
þeirra, 8 og 10 ára, urðu þess heiðurs
aðnjótandi að aka fyrst yfir nýju
brúna yfir Botnsá í Hvalfirði í fyrra-
kvöld.
„Við höfðum mjög gaman af þessu
og óskuðum mönnunum til hamingju
með að hafa klárað veginn,“ segir
María. -RR
DV, Suðurnesjum:
„Við ætlum að koma köfun á betra
stig þar sem fólki gefst færi á að læra
köfun á auðveldan og skemmtilegan
máta. Það hefur ekki fyrr verið stofii-
aður skóli hér á landi í köfun - þetta
er sá fyrsti. Margir hafa áhuga á að
læra köfun og nú er hægt að láta þann
draum rætast," sögðu þeir Tómas J.
Knútsson og Sigurður Ámundason.
Þeir hafa opnað Sportköfunarskóla
íslands við Hafnargötuna í Keflavík og
kenna þar. Tómas hefur stundað köf-
un í 22 ár og starfað sem kennari í 5
ár. Sigurður verið kafari í 20 ár og
kennt í 12 ár. Báðir hafa kennt hjá
skólum erlendis. Viðstaddur opnunina
var yfirmaður alþjóðasamtaka sport-
kafarakennara, PADI. Skólinn er full-
gildur aðih í PADI. ísland er 147. land-
ið þar sem samtökin kenna köfún.
Tómas J. Knútsson og Sigurður Ámundason.
DV-mynd Ægir Már
PADI hefúr útskrifað 70% þeirra sem
lært hafa köfún í heiminum.
„Við erum búnir að kafa mikið. Á
Suðurnesjum eru einhverjir bestu
staðir til köfúnar á landinu. Við reikn-
um með að kenna fleirum en Suður-
nesjamönnum. Þá höfum við farið
með hópa ferðamanna í köfun,“ sögðu
þeir félagar. Skólinn útvegar nemend-
um búnað sem til þarf. -ÆMK
irarra-
Mgim
Fjölni
Biðröð við herminn.
Hermir:
DV-mynd Helgi
Geðveikt stuð
DV Olafsfírði:
Það er ekki hægt að segja annað
en að hermirinn hafi gert mikla
lukku hér í bæ. Ólafsfirðingum
gafst færi á að prófa þetta galdra-
tæki sem líkir eftir rússibana, og
alls kyns öðrum farartækjum.
Biðröð myndaðist og var nóg að
gera fram eftir degi. „Þetta var
geðveikt stuð,“ sagði einn 8 ára
strákur en sagðist jafnframt vera
of ringlaður í höfðinu til að muna
hvað hann uppliföi.
Að minnsta kosti 50 krakkar og
unglingar prófuðu herminn - einn
og einn fullorðinn laumaði sér
með - sem héðan lagði leið sína til
Akureyrar.
-HJ
Dómur Kjaradóms:
BSRB lýsir
vanþóknun
Stjóm BSRB lýsir algjörri van-
þóknun á vinnubrögðum Kjara-
dóms þegar hann skammtar æðstu
embættismönnum þjóðarinnar
mun meiri kjarabætur en samið
var um í síðustu kjarasamningum.
Stjómin segir í fréttatilkynningu
að hækkanir upp á 9-20% nái
engri átt þegar launafólk fær að-
eins 4,7% og lýsi siðleysi hjá
sjálftökuliði þjóðarinnar.
Stjóm BSRB gagnrýnir þá ein-
hæfhi sem er í skipan Kjaradóms
en aðeins lögfræðingar eiga þar nú
sæti og bendir á hugsanleg tengsl í
milli þess og þeirrar ákvörðunar
dómsins að hækka laun héraðs-
dómara sérstaklega eða um allt að
20%. Stjómin mótmælir vinnu-
brögðum dómsins harðlega og
hvetur stjómvöld til að grípa í
taumana þegar í stað. -SÁ
Það marg-
borgar sig
að lesa DV
q'it milli
°& ■
t
Á>/
Smáauglýsingar
550 5000