Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLI 1997
31
DV
Er Díana ófrísk?
Hvers á aumingja Díana
prinsessa að gjalda? Hún fær engan
frið fyrir fjölmiðlum blessuð kerl-
ingin og nú stendur pressan á önd-
inni rétt eina ferðina enn. Nú velta
fjölmiðlar þvi fyrir sér hvort
prinsessan sé ófrísk. Ástæðan fyrir
þeirri hugmynd er sú að þegar
Diana var að spígspora um í sund-
bol á frönsku Rívíerunni um daginn
mátti sjá móta fyrir lítilli bumbu og
einhverjir þóttust sjá að brjóst
prinsessunnar hefðu stækkað.
Liffræðilega klukkan tifar hjá
Díönu sagði i Sunday Mirror og síð-
an var þvi bætt við að prinsessan
hefði lengi þráð að eignast stúlku-
bam.
Þegar blaðamenn flykktust að
Díönu á frönsku Rlvíemnni sagði
hún að á næstunni ætti fólk eftir að
reka upp stór augu því hún ætlaði
að upplýsa nokkuð sem kæmi vem-
lega á óvart. Það er Ijóst að ef Díana
er ófrísk mun allt snúast á annan
endann.
Þeir eru þó margir sem fussa og
Ætli Díönu prinsessu hafi grunað að allt færi á annan endann þegar hún
spókaði sig í sundbol á frönsku Rívíerunni en þar var hún í fríi ásamt sonum
sínum. Magi prinsessunnar stóð örlftið út í loftið og fjölmiölarnir voru ekki
lengi að leggja saman 2 og 2 og fá út a.m.k. 5 = Díana er ófrísk.
sveia yfir þessum sögusögnum og
segja að Diana myndi ekki leyfa sér
að verða ófrísk núna. Monica Gren-
fell sem skrifar um heilsurækt í
Sunday Mirror segir að ástæða þess
að Díana hafi bætt á sig nokkmm
kílóum sé mjög eðlileg.
„Hún hefur einfaldlega leyft sér
að borða meira í fríinu. Hún hefur í
langan tíma stundað æfmgar stíft og
passað upp á mataræðið en hún
hefur einfaldlega sleppt fram af sér
beislinu í fríinu. Ef þú stundar ekki
magaæfmgar á hverjum degi verða
vöðvarnir slappir eins og eðlilegt er
og erfiðara verður að halda magan-
um inni. Það má einnig finna aðra
skýringu en eins og flestir vita þjáð-
ist hún af lystarstoli í langan tíma
og eitt af einkennum þess sjúkdóms
þegar til lengri tima er litið er stór
magi. Prinsessan hefur bætt á sig
kílóum en hún lítur samt mjög vel
út,“ sagði Grenfell.
Og nú er bara að bíða og sjá
hverju prinsessan svarar ef henni
finnst þetta þá svara vert.
Sviðsljós
George Clooney
kyssir stelpurnar
Hjartaknúsarinn og læknaleikar-
inn George Clooney, sem fær fleiri
konur til að kikna í hnjáliðunum en
aðrir karlmenn, ætlar sér að fram-
leiða og hugsanlega leika í mynd-
inni Þúsund kossum. Eins og nafnið
gefur til kynna verður það róman-
tisk gamanmynd. Clooney leikur í
einni slíkri sem verið er að sýna í
bænum og þykir standa sig vel. í
Þúsund kossum segir frá konu sem
telur að lífsforunauturinn verði sá
sem smelli á hana þúsundasta koss-
inum. Það verður vonandi George.
Jennifer Aniston heitir þetta fagra fljóð, aðalleikkona kvikmyndarinnar
Picture Perfect sem frumsýnd var í New York í vikunni. Á eftir fóru allir í partí
á CoCo Opera veitingastaönum og höföu það gott. Símamynd Reuter
Kryddpía hélt fram hjá
með vampírubananum
Kryddpían Victoria Ad-
ams, sem gengur undir nafh-
inu Flotta kryddið, eyddi
mörgum ástríðufullum nótt-
um á Ritz-hótelinu í örmum
ungs leikara, Coreys Haims,
sem var þekktastur fyrir að
reka fleyg í hjarta alræmdrar
blóðsugu í myndinni The Lost Boys.
Á meðan sat kærasti flottpíunnar,
Mark Wood, aleinn heima og harm-
aði örlög sín.
Ástamæturnar með Corey höfðu
svo djúpstæð áhrif á hina ungu
Victoriu að hún var ekki
fyrr komin heim en hún til-
kynnti kærastanum að ekk-
ert yrði af fyrirhuguðu brúð-
kaupi.
„Victoria er dásamleg
stúlka,“ segir Corey í viðtali
við -breskt æsiblað. „Og það
sem meira er, hún var mjög svo
gestrisin."
Victoria ku hafa sagt löngu síðar
að hún hafi aldrei tekið þátt í jafn
frábærum ástarleikjum og
nætumar á Ritz með honum Corey.
Fylgstu með í allt sumar
Víð sendum
í sumarbústaðínn
Hringdu í súna 550 5000 og fáðu DV sér pakkað og merkt á
sölustað nærri dvalarstað þínum hérlendis í sumar.
Já, ég vil svo sannarlega fá DV sent til mín
í sumarbústaðinn á eftirfarandi sölustað:
Tímabil:
□ Arborg, Gnúpverjahreppi
□ Baula, Stafholtstungum, Borgarfiröi
□ Bjarnabúð, Brautarhóli
□ Bitinn, Reykholtsdal
□ Brú í Hrútafiröi
□ Esso-skálinn í Hvalfirði
Q Ferstikla í Hvalfiröi
Q Grenivík
Q Grímsey
Q Hlíöarlaug, Úthlíö, Biskupstungum
Q Hyrnan I Borgarnesi
Q Hreöavatnsskáli
Q Hrísey
Q Laufiö, Hallormsstaö
Q Laugarás, Biskupstungum
Q Minni-Borg, Grímsnesi
Q Reykjahlíö, Mývatnssveit
Q Shellskálinn, Stokkseyri
Q Skaftárskáli, Klaustri
Q Staöarskáli, Hrútafiröi
Q Sumarhóteliö Bifröst
Q Söluskálar, Egilsstöðum
Q Varmahlíö, Skagafirði
QVeitingaskálinn, Vföihllö
QVerslunin Grund, Rúðum
QVerslunin Hásel, Laugarvatni
Nafn
Sumarleyfisstaður
Póstnúmer
Sími
SENDIST TIL DV, bVERHOLT111,105 REYKJAVÍK, MERKT ÁSKRIFT
Það borgar sig að
vera áslcrifandi að DV.