Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997 JLlV
&
■&
32 ★
* -
kvíkmyndír
^cnM^v
ÓLRÍK S&.*
LJOSMYNDASAMKEPPNI
flestum myndum Besson er stíllinn
í fyrirrúmi, en handritið er einnig
gott og leikurinn á köflmn frábær.
Slakari þykir mér Nikita (1990) sem
segir frá ungri afbrotakonu sem eft-
ir rán er þjálfuð sem atvinnumorð-
ingi á vegum ríkisins. Anne
Parillaud varð fræg fyrir túlkun
sína á Nikitu en slakt handrit dreg-
ur myndina niður. Nikita var end-
urgerð sem Point of No Retum
(1993) með Bridget Fonda í aðalhlut-
verki. ge
tAÍUjfi!
Bíóborgin/Grosse Pointe Blank:
Morðingjar allra landa sameinist
Gamanmyndin Grosse
Pointe Blank er gráleit satíra.
Þar leikur John Cusack leigu-
morðingjann Martin Blank
sem heldur á 10 ára skðlamót
í tengslum við næsta verk-
efni. Á hælum hans eru leigu-
morðingjar á vegum leyni-
þjónustunnar og helsti keppi-
nauturinn í bransanum,
Herra Grocer (Dan Aykroyd),
sem hefur í hyggju að stofna
verkalýðsfélag til þess að
tryggja afkomu „stéttarinn-
ar“. Snurða hleypur þó fyrst á þráðinn þegar Blank uppgötvar að
næsta „verkefni“ er faðir gömlu menntaskólakærustunnar.
Styrkur Leigumorðingjans felst í óvenju myrkum húmor, afbrags
samtölum og góðum leik Cusacks. Aukahlutverkin eru einnig mjög vel
mönnuð. Alan Arkin leikur sálfræðing sem er á barmi taugaáfalls eft-
ir að hafa komist að atvinnu Blanks. Dan Aykroyd hefur ekki verið
jafn góður í mörg ár og Joan Cusack (systir Johns) fer á kostmn í hlut-
verki einkaritarans hjálpsama. Gallar myndarinnar eru einnig nokk-
uð augljósir. Handritið hefði mátt vera jafnara og of margar dauðar
senur má frnna um miðbik myndarinnar. Ástarsamband Blanks og
Debi Newberry (Minnie Driver) skortir spennu og ég er ekki frá því aö
hlutverk Driver, en hún er annars ágæt leikkona, sé veikasti hlekkur
myndarinnar. Á sjálfú skólamótinu gerist fátt markvert og í raun
undrunarefni hversu sá kafli er slappur þegar tekið er mið af bestu
senum myndarinnar.
Á heildina litið er Leigumorðinginn þó afbragðs skemmtun og kost-
ir myndarinnar yfirgnæfa gallana. Hún er að mínu mati ein besta
gamanmynd sumarsins og ætti ekki að valda vonbrigðum ef áhorfend-
ur eru til í að horfa fram hjá þeim hnökrum sem finna má í handrit-
inu.
Leikstjóri: George Armrtage. Aðalhlutverk: John Cusack, Minnie Driver,
Dan Aykroyd, Alan Arkin og Joan Cusack. Guðni Elísson
Morð hf.
TO?l It
- 25. júlí til 27. júlí Allar tölur eru í dollurum -
annað. Myndin var
á sínum tíma út-
nefhd til fjölmargra
óskarsverðlaima og
er afbragðs skemmt-
un.
Atvinnumorðing-
inn hefur verið við-
fangsefni fjölmargra
spennumynda og
margir hafa eflaust
séð Sylvester
Stallone og Antonio
Banderas í Assass-
ins (1995) þar sem
Banderas leikur
ungan leigumorð-
ingja sem ætlar sér
krúnuna með því að
ryðja Stallone úr
vegi. Söguþráður
The Mechanic (1972)
er svipaður en þar
leikur Charles
Bronson aldraðan
atvinnumann sem
tekur imgmenni
leikið af Jan-Mich-
ael Vincent í
kennslu. Þetta er
ein besta mynd
Bronsons og leigunnar virði þó ekki
væri nema fyrir ógleymanlega upp-
hafssenu. Franski leikstjórinn Luc
Besson hefur gert tvær kvikmyndir
um leigumorðingja. Léon (1994) seg-
ir frá einfeldningi (Jean Reno) sem
hefur sérstaka drápsgáfu. Hann
vingast við 12 ára stúlku (Natalie
Portman) og þegar foreldrar hennar
eru drepnir af spilltum lögreglufor-
ingja (Gary Oldman), ákveður hann
að hjálpa henni að ná hefndum. Ég
mæli eindregið með Leon. Líkt og í
Ford á
toppinn
Þaö fór svo sem spáö var. Harri-
son Ford komst á toppinn meö
nýja tryllinn sinn, Air Force One.
Men in Black sem setiö hafa
á toppnum í þijár vikur féllu niö-
ur I þriöja sæti fyrir vikiö þar
sem hinn óvænti smellur Ge-
orge of the Jungle frá Disney
hélt ööru sætinu. Þaö veröur
spennandi aö sjá hvort piltarn-
ir í svörtu ná aö veröa aösókn-
arhærri en The Lost World. Eins og staðan er í dag og miöaö viö
áframhaldandi aösókn er þaö engan veginn útilokaö.
Tekjur Heildartekjur
1. (-) Alr Force One 37,132,505 37,132,505
2. (2) George of the Jungle 13,196,237 48,082,033
3. (1) Men In Black 12,350,884 194,036,790
4.(3) Contact 9,704,949 64,973,014
5. (-) Good Burger 7,058,333 7,058,333
6. (4) Nothlng to Lose 6,917,279 24,476,052
7.(5) Face/Off 5,603,028 96,057,237
8. (6) My Best Frlendls Wedding 4,512,085 103,092,341
9. (7) Hercules 3,151,320 83,426,924
10. (8) Operatlon Condor 1,693,999 8,327,922
11. (9) Out to Sea 1,648,223 23,524,885
12. (11) Con Alr 971,751 94,887,787
13. (13) Speed 2 714,344 45,796,349
14. (14) Uleels Gold 709,550 5,418,501
15. (10) Batman & Robin 703,205 104,552,403
16. (16) Liar Liar 517,650 178,288,465
17.(18) Shall We Dance? 467,312 1,202,153
18.(30) The Fifth Element 420,687 61,778,086
19. (15) The Lost Worid 408,660 223,375,949
20. (12) A Slmple Wlsh 400,330 6,956,815
rsri
Kvikmyndir um atvinnumorð-
ingja eru orðnar margar og ærið
misjafhar að gæðum. Þeir sem vilja
kynna sér þessa tegund mynda eftir
að hafa séð Grosse Pointe Blank
hafa úr ýmsu að velja.
Fyrst er að nefna þær sem líkt og
GPB eru í gamansömum dúr. Síö-
asta myndin sem meistari Billy
Wilder leikstýrði, Buddy Buddy
(1981), er ekki gallalaus en þó hin
besta skemmtun. í henni leikur
Jack Lemmon hrakfallabálk sem
kynnist leigumorðingja (Walter
Matthau) sem á fyrir höndum erfið-
asta verkefni lifs síns. Lemmon og
Matthau fara á kostum í myndinni,
enda ekki margir leikstjórar sem
koma gráleitu gamni jafnvel til
skila og Wilder. 1 Grace Quigley
(1984) leikur Katharine Hepbum
aldraða konu sem ræður „atvinnu-
mann“ (Nick Nolte) til þess að stytta
henni aldur. Fyrst þarf hann þó aö
hjálpa vinum hennar yfir móðuna
miklu. Þessi mynd fékk ekki góða
dóma á sínum tíma en leikur Hep-
bum og Nolte fleytir henni þó
áfram. Mun betri er mynd Johns
Huston, Prizzi’s Honor (1985), þar
sem Jack Nicholson og Kathleen
Tumer leika tvo leigumorðingja
sem eiga i ástarsambandi. Einn dag
era þau ráðin í það að myrða hvort
sumar
FLU
Mei því ab smella af á Kodakfilmu
geturðu unniö til P
í Ijósmyndasamkeppni DV og Kodak.
Hvort sem þú ert á ferSalagi innanlands eSa erlendis skaltu setja Kodakfilmu
í myndavélina og gera þannig góðar minningar aS varanlegri eign.
Veldu bestu sumarmyndina og sendu til DV eða komdu meS hana í einhverja
af verslunum Kodak Express fyrir 26. ágúst - og þú ert meS í litríkum leik
FLUGLEIDIR
2. verðlaun
3. verðlaun
4. verðlaun
6. verðlaun
fyrír bestu innsendu sumarmyndina á Kodakfilmu:
Flugmiðar fyrir tvo með Flugleiðum til Florída.
Canon EOS 500N, með 28-80 linsu, að verðmæti 54.900 kr.
Tæknilega fullkomin myndavil sem gerir Ijósmyndun að leik.
Canon IXUS Z90, að verðmæti 42.100 kr. Myndavél fyrir nýja Ijósmyndakerfið APS.
Fullkomin myndavél sem ávallt gefur góðar myndir.
Canon IXUS, að verðmæti 29.900 kr.
Fyrir nýja Ijósmyndakerfið, APS. Alsjólfvirk og vegur aðeins 180 gr.
Canon Prima AF-7, að verðmæti 8.990 kr.
Sjálfvirkur fókus, filmufærsla ag flass.
Canon Prima Junior DX, að verðmæti 5.990 kr.
SjáHvirk fitmufærsla og fiass.
Skilafrestur ertil
28. égúst 1997
Myndum ber að skila
til DV, Þverholti 11
eða til verslana
Kodak Express.
TryggSu þér litríkar og skarpar minningar
meS Kodak Express gæSaframköllun á
Kodak Royal-pappírinn. Hann er þykkari
en venjulegur Ijásmyndapappír og litir
framkallast frábærlega vel.
Goft verð
Kodak spseði
iaagojiB'
-
Verslonit Hans Pefersen hf: Austurveri, Banka-
stræti, Glæsibæ, Hamraborg, Holagarði,
Hvcrafold, Kringlunni, Laugavcgi 82,
Laugavegi 178, Lynghalsi og Selfossi.
Reykjavik: Myndval Mjodd.
Hafnarf jörður: Filmur og Framkollun.
Grindavik: Solmynd.
Akranes: Bókav. Andrésar Niclssonar.
ísafjörður: Bókav. Jónasar Tómassonar.
Saudarkrókur: Bókav. Brynjars.
Akurcyri: Pcdrómyndir.
Egilsstadir: Hraðmynd.
Vestmannaeyjar: Bókabúð Vcstmannacyja.
Keflavik: Hljómval