Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Side 28
36
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 1997
Kærastan
númer tvö
„Hún (kærastan) er búin að
læra að bíllinn og hljómtækin
eru númer eitt en hún er númer
tvö. Hún er búin að sætta sig við
það. Núna er hún að fá bílpróf og
er þegar farin að vinna sér inn
punkta með þvi að þrífa bílinn
svo hún geti fengið hann lánað-
an.“
Bjarni Knútsson, tvítugur bila-
dellukarl, í DV.
Leiðinleg
mamma?
„Ég stakk einu sinni upp á því
að við færum á Uxa af því þar
voru svo góðar hljómsveitir. Son-
ur minn hótaði sjálfsmorði frek-
ar en að fara með mömmu á úti-
hátíð.“
Guðríður Haraldsdóttir út-
varpskona, í Degi-Tímanum.
Ummæli
Ólafux vandi
mál sitt
„Ég er þeirra skoðunar að sum
af svörum forsetans hefði mátt
orða með betri hætti, án þess að
ég vilji fara að tíunda það.“
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra um ummæli Ólafs
Ragnars Grímssonar í Banda-
ríkjaför þess síðarnefnda.
Barbara Cartland er afkastamikill
rithöfundur.
Mest seldi
rithöfimd-
urinn
Enski ástarsagnahöfundurinn
Barbara Cartland er sá rithöf-
undur sem hefur selt flestar bæk-
ur í veröldinni. Hún er einnig
ákaflega afkastamikill rithöfund-
ur þvi eftir hana liggja 470
bókatitlar sem hafa verið gefnir
út á tuttugu og sjö tungumálum í
alls 500.000.000 eintökum.
Blessuð veröldin
Stærsta
málverk
á íslandi
Stærsta málverk á íslandi er
talið vera veggmynd eftir Jó-
hannes Kjarval. Verkið heitir Líf
og list og var málað á veggi
vinnustofu hans í Austurstræti
12.
Dýrasta
fingurbjörg
Hæsta uppboðsverð á fmg-
urbjörg er 8000 pund. Þá upphæð
greiddi listmunasali í London
fyrir Meissen-fingurbjörg úr
postulíni frá því um 1740.
Golfvöllimnn í Ttuigudal
ísfirskir kylfingar geta slegið
holu í höggi á golfvellinum í Tungu-
dal þar sem golfklúbbur ísafjarðar
hefur aðstöðu sína. Til þess að kom-
ast að golfvellinum er ekið til
vinstri við Brúarnesti. Völlurinn er
Umhverfi
aðeins í fjögurra kílómetra fjarlægð
frá miðbæ ísafjarðar. Vallargjald
þar er 1000 krónur fyrir fullorðna
en ókeypis er fyrir börn og ellilíf-
eyrisþega. Golfskáli félagsins er op-
inn milli kl. 8 og 22 og þar er lítil
golfverslun.
Ólöf María Jónsdóttir, nýbakaður íslandsmeistari kvenna í golfi
Golfklúbburinn mitt
annað heimili
„Ég fór fyrst á golfnámskeið hér
hjá bænum þegar ég var tólf ára
gömul. Ég fór með vinkonu minni,
hún hætti í golfinu eftir námskeið-
ið en ég hélt áfram og skráði mig í
golfklúbbinn Keili ári síðar," segir
Ólöf María Jónsdóttir, nýbakaður
íslandsmeistari kvenna í golfi. Ólöf
María segir að hún hafi ftjótt farið
að sjá árangur af golfæfingum sín-
um hjá Keili. Hún varð íslands-
meistari í flokki fjórtán ára og
yngri þegar hún var fjórtán ára og
síðar var hún valin í landslið kylf-
inga.
Hún vill þó ekki meina að golf-
íþróttin sé henni í blóð borin því
hvorki faðir hennar né móðir spil-
uðu golf áður en hún byrjaði að
mimda kylfurnar. „Núna eru hins
vegar bæði mamma og bróðir minn
farin að spila golf og það má því
segja að ég hafi dregið þau út í
þetta.“
Líf Ólafar Maríu snýst að miklu
leyti um golfíþróttina og segir hún
mikinn tíma fara í hana. „Nánast
allur minn tími fer í golfið. Ég er
mikinn hluta sólarhringsins á golf-
vellinum. Eg er
að kenna hjá
Keili milli klukk-
an tíu og fjögur
og eftir það fer
ég sjálf að spila.
Það má því segja
að golfklúbbur-
inn sé mitt ann-
að heimili.“
Aðspurð segist
Ólöf vera hálf-
gert íþróttafrík
og öll hennar
áhugamál snúi
að íþróttum. „Ég
dútla í handbolta
á veturna til að
halda mér i
formi og svo spil-
aði ég fótbolta
þar til ég var
fjórtán ára og fór
á fúllu í golfið.“
Ólöf lauk stúd-
entsprófi um síð-
ustu jól og hygg-
ur á nám í íþróttakennaraskólan-
um á Laugarvatni næsta vetur. „Ég
Ólöf María Jónsdóttir.
Maður dagsins
og barnlaus.
stefni líka á að
fara seinna til
Bandaríkjanna í
skóla að læra
eitthvað tengt
iþróttum. Núna
langar mig mest
að læra sjúkra-
þjálfun og von-
andi að fá golf-
styrk frá skólan-
um.“
Ólöf er fædd og
uppalin í Hafnar-
firði og finnst
gott að búa þar.
„Ég er innfædd-
ur gaflari. Bæði
pabbi og mamma
eru Hafnfirðing-
ar og ég gæti
ekki hugsað mér
að búa á neinum
öðrum stað.“
Ólöf, sem er
tuttugu og eins
árs, er einhleyp
-glm
Myndgátan
Stígur á bak
Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi.
A keppir í meistaradeild Evrópu
í kvöld.
Meistara-
deild
Evrópu
í kvöld kl. 18.30 leikur karlalið
ÍA við liöið Slovice frá Slóvakíu I
meistaradeild Evrópu. Leikurinn
fer fram á Akranesvelli.
í kvöld eru einnig tveir leikir í
Evrópukeppni landsliða karla,
átján ára og yngri. Nágrannamir,
Frakkar og Portúgalar leika tU úr-
slita á Laugardalsvelli kl. 18 og
írar og Spánverjar leika um þriðja
sætið á Kaplakrikavelli kl. 14.
Iþróttir
Einn leikur í
Sjóvár-Almennra-
deildinni í kvöld
Einn leikur er í Sjóvár-Al-
mennra-deildinni í kvöld. Lið
ÍBV og Leifturs leika á Vest-
mannaeyjavelli kl. 20.
Bridge
SpU dagsins kom fyrir i fyrstu
lotu í leik Neons og VÍB í þriðju um-
ferð bikarkeppni Bridgesambands
íslands. Legan í spilinu er ótrúlega
hagstæð fyrir NS og réttlætti geysi-
harðar sagnir þeirra á öðru borð-
anna. Suður gjafari og aUir á hættu:
* K108
* KDG1083
* 63
* K5
Suður Vestur Norður Austur
Sævin Aðalst. Guðm.B Ásm.
1 ♦ pass 3 ♦ 3 *
5 ♦ dobl p/h
Sævin Bjarnason í sveit Neons
ákvað að opna á einum tígli (stand-
ard) þrátt fyrir punktafæðina.
Þriggja tígla sögn norðurs var
hindrunarsögn og austur kom inn á
sexlit sinum í hjarta. Sævin dró
ekkert af þegar hann lét vaða beint
í 5 tígla, sem sennUega hafa frekar
verið sagðir tU fómar en vinnings.
Aðalsteinn Jörgensen í vestur hefur
eflaust álitið að nú væru jólin kom-
in og doblaði þennan djarfa samn-
ing. En hann grunaði lítt hvað í
vændum var. SpUið liggur ótrúlega
vel fyrir sagnhafa og ekki var nokk-
uð leið að hnekkja því. TíguUinn lá
sérlega vel, 3-2 og bæði háspUin upp^
í svíningu. Þar að auki lá spaða-
kóngur fyrir svíningu og lauflitur-
inn gat ekki legið betur. Vinnings-
möguleikar þessa samnings eru
undir 10%, en það breytti engu um
það að spUið vannst. Gróðinn fyrir
þetta spil reyndist sveit Neon dýr-
mætur, því leikinn vann sveit Neon
með 3 impa mun.
ísak Öm Sigurðsson
♦ G653
* Á962
♦ KG5
* D7