Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1997, Blaðsíða 32
FRETTAS KOTIÐ
SlMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gaett. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ1997
^aldur á strandstað. DV-mynd HAH
Á blindsker
DV, Þórshöfn:
Faldur ÞH 153,18 tonna eikarbát-
ur frá Þórshöfn, sigldi á blindsker á
leið á miðin um kl. 9 í gærmorgun
norðaustur af Þórshöfn. Sat hann
þar fastur og hallaði um það bil 45°.
Tveir menn voru um borð; Þorberg-
ur Jóhannsson skipstjóri og Árni
Þórhallsson, og sakaði hvorugan.
Atburðurinn átti sér stað rétt um
háflæði og var báturinn i mikilli
hættu að velta alveg þegar fjaraði frá.
Bátarnir Duna II og Draupnir náðu
jkð draga Fald á flot. HAH
Millifærslumálið:
Ekkjan gaf
skýrslu
Samkvæmt heimildum DV hefur
gjaldkerinn, sem millifærði miklar
fjárhæðir af bankareikningum aldr-
aðrar, auðugrar ekkju inn á banka-
y»»ikninga manns sem henni er
óvandabundinn, ekki verið yfir-
heyrð hjá embætti ríkislögreglu-
stjóra. Sagt var frá þessu máli í for-
síðufrétt DV í gær.
Ekkjan hefur þegar gefið ríkislög-
reglustjóra skýrslu um málið eins og
það horfir við henni og búast má við
að aðrir sem þessu máli tengjast verði
yfirheyrðir á næstu dögum. -SÁ
Akranes:
Dauð skjald-
baka í fjöru-
' borðinu
DV, Akranesi:
„Ég var í fjörunni hérna skammt
frá og var að veiða. Ég leit upp og sá
eitthvað óvenjulegt í fjöruborðinu.
Þegar ég athugaði það betur var þar
dauð skjaldbaka," sagði Sigurgeir
Guðni Ólafsson, 14 ára gutti á bæn-
um Völlum í Innri-OAkraneshreppi.
„Ég held að skjaldbakan hafi villst
hingað til íslands. Skelin á henni er
16,5 sm á lengd og 14,5 sm á breidd.
Ég hef aldrei séð skjaldböku áður
nema á myndum. Hún var dauð en
ég held að hún hafi drepist skömmu
áður en ég fann hana,“ sagði Sigur-
(%3ir Guðni. -DVÓ
Fjárdráttur og umboðssvik vegna Sparisjóðs Þórshafnar:
Sparisjoðsstjori
í tugmilljóna
ákærumáli
Fyrrum sparisjóðsstjóri á
Þórshöfn hefur verið ákærður
fyrir hátt í 20 milljóna króna fjár-
drátt og umboössvik upp á 35
milljónir króna. Hluti af fénu var
endurgreiddur en brotin teljast
engu að síður fullframin sam-
kvæmt ákæru.
Samkvæmt sakargiftum ríkis-
saksóknara hófst fjárdráttur
mannsins árið 1991. Honum er
gefið að sök að hafa frá þeim
tíma og þar til árið 1995 dregið
sér 6,4 milljónir króna af eigum
sparisjóðsins og viðskiptamanna
hans - síðan hafi hann leynt fjár-
drættinum með rangfærslum í
bókhaldi. Maðurinn er jafhframt
ákærður fyrir að hafa síðan dreg-
ið sér samtals um 13 milljónir
króna - þar af 11 milljónir króna
út af verðtryggðum reikningi Líf-
eyrissjóðs Norðurlands - fé sem
hann siðan endurgreiddi.
í tengslum við þetta er mann-
inum jafnframt gefið að sök um-
boðssvik - með þvi að gefa út
tékka upp á 9,5 mUljónir króna af
reikningum sparisjóðsins í því
skyni að dylja fjárdrátt sinn.
Hann er auk þess ákærður fyrir
að veita sjálfum sér 3,5 milljóna
króna yfírdráttarheimild án þess
að fyrir lægi trygging.
Hvað varðar umboðssvikin er
sparisjóðsstjóranum fyrrverandi
einnig gefið að sök að hafa mis-
notað aðstöðu sína og skuldbund-
ið sparisjóðinn með 23 milljóna
króna sjálfskuldarábyrgð með
áritun á skuldabréf útgerðarfé-
lagsins Skála hf. tU Fiskveiða-
sjóðs. Þetta hafi hann gert án
heimUdar og vitundar stjórnar
sjóðsins. Þessi umboðssvik áttu
sér stað í aprU 1994 en ábyrgðin
féU úr gildi í desember 1995.
Mál þetta kom upp seint á ár-
inu 1995. Sparisjóðsstjórinn, sem
gegnt hafði starfinu um árabU,
sagði síðan upp þann 7. desem-
ber. Hann hætti störfum sama
dag. -Ótt
Sigurgeir Guðni Olafsson meö skjaldbökuna sem hann fann í Gerðisfjörunni.
DV-mynd Daníei
i sjonum
ÞARF KJARADÓMUR EKKI
AE> KÍKJA Á
BANKASTJÓRALAUNIN?
Veður á morgun:
Suðaust-
an kaldi og
rigning
Á morgun verður suðaustan-
kaldi og rigning um sunnan- og
vestanvert landið en hægara og
bjart veður norðaustan tU. Hiti
verður á bUinu 10 tU 18 stig,
hlýjast norðaustanlands.
Veðrið í dag er á bls. 37
Sighvatur Björgvinsson:
Stærsta
sameiningar-
skrefið
„Það er engin spurning um það
að þetta er fyrsta stóra verkefhið
sem A-flokkarnir vinna sameigin-
lega. Fram tU þessa hafa útgáfumál-
in verið eitt af því sem hefur hvað
harðast skUið Uokkana að. Það voru
aUtaf mjög hatrömm átök mUli blað-
anna sem gefin voru út af A-flokk-
unum. Þess vegna er þetta eitt
stærsta skrefið sem stigið hefur ver-
ið í átt til aukins samstarfs þeirra
að standa sameiginlega að blaðaút-
gáfu,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son, formaður Alþýðuflokksins, í
samtali við DV.
„Það var einróma samþykkt á
framkvæmdastjómarfundinum í
fyrradag að hefja samstarf við Al-
þýðubandalagið og Dagsprent um
útgáfu dagblaðs. Ástæðan fyrir því
að við vUjum halda þennan flokks-
stjórnarfund á morgun (í dag) er sú
að þegar við fengum umboð til að
ganga frá útgáfumálum Alþýðu-
blaðsins var þess óskað að við gerð-
um flokksstjórninni grein fyrir nið-
urstöðunni. Og það ætlum við að
gera,“ sagði Sighvatur.
Um það hvort flokkarnir vUji fá
að hafa einhver áhrif varðandi rit-
stjórnarstefnuna sagðist Sighvatur
ekki geta ímyndað sér það.
„Þessir flokkar áttu sjálfir blöð og
útgáfa þeirra gengur ekki. Það hef-
ur sýnt og sannað að stjórnmála-
flokkar eru ekki þeir aðUar sem
mestum árangri ná í blaðaútgáfu,"
sagði Sighvatur. -S.dór
Selfoss:
Fjórum sleppt
Lögreglan á Selfossi hefur sleppt
fjórum mönnum úr haldi sem yfir-
heyrðir hafa verið vegna líkams-
árása á Selfossi undanfarnar tvær
helgar.
Samkvæmt upplýsingum DV ligg-
ur ekki fyrir játning mannanna
vegna árásanna en vitni styðja þá
kenningu að þeir hafi átt þátt í
þeim.
„Nokkur fjöldi vitna hefur verið
yfirheyrður vegna beggja þessara
árásarmála. Það er verið að ljúka
rannsókninni og ég get ekki tjáð
mig frekar um hana. Málið verður
sent áfram til saksóknara," segir
Þorgrimur óli Sigurðsson í rann-
sóknardeUd lögreglunnar á Selfossi,
aðspurður um málið. -RR
Sótti sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
sjómann út í rússneskt flutningaskip
á Faxaflóa í gærkvöld. Maðurinn
hafði mUdar kvalir innvortis og var
hann fluttur á Landspítala tU rann-
sóknar. Grunur manna beindist að
nýmakasti eða sprungnum maga. -sv
Pantið í tíma!
■ 2 1
dagar til þjóðhátíðar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bókanir t stma 570 3030
Matvöruverslanir,
þjónusta í þína þágu
um land allt.