Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1997, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
Fréttir
Hjalti Zóphoníasson, f dómsmálaráðuneytinu, viö kjörkassann sem geymir
kjörseóla f biskupskjörinu. Pab veröur ekki fyrr en laugardaginn 6. septem-
ber sem taliö veröur. Fastlega er reiknaö meö aö ekki komi til annarrar um-
ferbar heldur muni Kari Sigurbjörnsson veröa kjörinn í fyrstu umferö.
DV-mynd Hilmar Pór.
Biskupskjör langt komið:
Karl talinn
sigra strax í
fyrstu umferö
- er mat þeirra presta sem DV ræddi við
Séra Karl Sigurbjömsson er tal-
inn mjög sigurstranglegur í bisk-
upskjörinu sem nú stendur yfir.
Meirihluti hefur þegar kosið og þyk-
ir þeim prestum sem DV ræddi viö
ekki ólíklegt að Karl muni ná hrein-
um meirihluta, strax í fyrstu um-
ferð.
Talsverðar hreyflngar hafa verið
á fylgi frambjóðendanna síðustu
daga og vikur, aðallega þó frá séra
Sigurði Sigurðarsyni yflr til Karls.
Þeir sem DV ræddi við fullyrða að
margir fylgismanna Sigurðar hafi
skipt um skoðun og kosið eða ætli
að kjósa Karl.
Ástæðurnar er nokkrar, en helst
er rætt um að þjóðkirkjunni komi
best að einn frambjóðandi sigri
ótvirætt. Þar sem Karl hefur haft
nokkurt forskot og alltaf verið
reiknað með að hann næði kjöri,
þótt það yrði ekki í fyrstu umferð,
hafi margir þeirra sem kosningarétt
hafa komist að þeirri niöurstöðu að
best fari á að hann sigri strax og
Karl Sigurbjörnsson viröist ætla aö
sigra I biskupskosningum, strax í
fyrstu umferö. Fylgi hefur færst frá
Siguröi Siguröarsyni yfir til Karls.
með því megi koma í veg fyrir frek-
ari átök innan kirkjunnar.
Þeir prestar sem rætt var við voru
þeirrar skoðunar að Karl mundi ef-
laust sinna embættinu af sóma.
Séra Karl Sigurbjörnsson vildi
ekkert segja annað en að hann fyndi
góðan hljómgrunn fyrir framboði
sínu. Þegar hann var spurður hvort
hann teldi að fylgi sitt hefði aukist
á lokaspretti kosningabaráttunnar,
sagðist hann geyma það með sjálf-
um sér hvað fólk segöi við sig. Hann
lagði áherslu á að kjörfundur væri í
gangi og því sé ekki rétti tíminn til
að ræða framboðsmál.
Séra Sigurður Sigurðarson sagð-
ist ekki hafa orðiö var við að hann
væri að tapa stuðningi.
Kjörfundi lýkur á föstudag og at-
kvæði verða talin viku síðar. Þá
verður ákveðið hvenær næsti kjör-
fundur verður, það er komi til hans.
Síðdegis í gær höfðu 155 greitt at-
kvæði af þeim 192 sem er á kjör-
skrá. -sme
Gunnar meb eitt geitungabúiö.
DV-mynd S.
Eyðing geitungabúa:
Aðaltörnin eftir
„Það kemur fyrir aö adrenalín-
streymið tekur kipp. Þótt ég sé í
galla fannst mér nóg um á öðru bú-
inu sem ég eyddi, þegar 1500 bál-
reiðir geitungar reyndu að koma á
mig biti,“ segir Gunnar Birgisson
geitungabúaeyðir. Hann er einn
þeirra sem aðstoða fólk við að losa
sig við geitungabú og hefur gert
mn tveggja ára skeið. Fram undan
eru háannir í eyðingunni.
Gunnar segir algengast að
jarðgeitungar geri sér bú í hol-
um og steinhleðslum. Ef fólk sér
þá skríða ofan í holur bendir það
til þess að bú sé fyrir innan.
Trjágeitungar leita mikið í hlýja
hússtafna með sin bú en líka í
tré og grindverk.
Fyrst þarf að komast að bú-
inu, þá svæfa flugumar og síðan
að fjarlægja búin ef mögulegt er.
Hann svæflr flugurnar með eter,
fyrst varðflugumar sem vakta
opið á búinu og síöan sprautar
hann eter inn í allt búið til að
svæfa afganginn af flugunum.
Kostnaður við eyöingu bú-
anna hjá Gunnari er á bilinu
3.000-6.000 kr. -ST
Steiners-skýrsla Atla Gíslasonar enn hjá saksóknara:
Böndin berast
að Böðvari
- ekkert bendir til alvarlegra brota Arnars og Björns
Trúnaöarskýrsla Atla Gíslasonar
um meint samskipti lögreglunnar í
Reykjavík og Franklíns Steiners
upplýsir, samkvæmt heimildum
DV, aö engar alvarlegar ásakanir
hafi sannast á Bjöm Halldórsson og
Arnar Jensson.
Hins vegar er eitt og annað í
skýrslunni, samkvæmt sömu heim-
ildum, sem sýnir að yfirstjórn lög-
reglunnar í Reykjavik hafi verið
ábótavant í nokkrum tilfellum.
Hvað það er varast menn að ræða
enda er skýrslan trúnaðarmál. Sam-
kvæmt því sem DV kemst næst er
ekkert þar að frnna sem lýtur aö
störfum yfirmanna fíkniefnadeild-
ar, sem Arnar og Bjöm eru ábyrgir
fyrir. Það er að segja, hlutir sem
falla undir ábyrgð þeirra sem lög-
reglufulltrúa, sem er ekki há staða
innan lögreglunnar. Þá mun ekkert
hafa komið fram við rannsóknina
sem sannar að Amar og Bjöm hafi
veitt Franklín Steiner skjól til að
stimda fíkniefnasölu. Ekki heldur
að þeir hafi þegið fé af fíkniefnasöl-
um.
Hafi þeir gert eitthvað gagnrýni-
vert í starfí, þá væri það þess eðlis
að það félli undir húsbóndaábyrgð
Böðvars Bragasonar lögreglustjóra.
Ríkissaksóknaraembættið hefur
haft skýrslu Atla Gíslasonar um
tengsl lögreglunnar og Franklíns
Steiners til meðferðar í rúma tvo
mánuði. Þrátt fyrir þetta langan
tima er ekki að vænta ákvörðunar
um hvort ákært verður vegna rann-
sóknarinnar eða ekki. Ekki heldur
hvort óskað verði frekari rann-
sóknar. Hjá embætti ríkissaksókn-
ara fengust einungis þær upplýsing-
ar að engra frétta væri að vænta af
málinu á næstunni. -sme
Siggi dipló á nýrri drossíu
- níu sinnum hefur lögregla tekið af honum farþega
„Ég gefst ekki upp. Núna er ég
með tvo bíla á götunni þar sem ég er
ekki á neinni stöð. Fólk kemur til
mín og skorar á mig að berjast
áfram og það mun ég gera. Það eru
margir eldri bílstjórar sem fylgjast
vel með hvemig mér gengur," sagði
Sigurður Jónsson, Siggi dipló, leigu-
bílstjóri, en hann hefur fest kaup á
nýjum bíl, Lincoln Continental, sem
verður tilbúinn i leiguakstur innan
skamms.
Sigurður er í máli gegn íslenska
ríkinu þar sem Sigurður telur að lög
sem banna leigubílstjórum að vinna
eftir að þeir eru 75 ára standist ekki,
en Siggi varð 75 ára í október í fyrra.
Sigmður segir að tapi hann málinu í
Hæstarétti skjóti hann því til mann-
réttindadómstólsins.
„Ég hef lagt allt undir, íbúðina,
æruna og bílana og gefst ekki upp.
Það hafa margir leigubílstjórar á
móti því að ég sé að vinna. Álls hef-
ur lögreglan tekið mig niu sinnum
síðan í október og þá taka þeir far-
þegana úr bílnum. Sami bílstjórinn
hefur kært mig sex sinnum af þess-
um níu skiptum," sagði Sigurður.
-sme
Stuttar fréttir
Kvótinn dýr
Verðmæti fiskveiðikvótans í
lögsögmmi er alls um'158 millj-
arðar króna. Þau fyrirtæki sem
ráða mestri kvótaeign eru Sam-
herji og Þormóður rammi-Sæ-
berg hf. Viðskiptablaðið segir frá
þessu.
Stöðvar 2 og 3
Uppgjöri vegna sameiningar
Stöðvar 2 og Stöövar 3 er nú lok-
ið og þurftu eigendur Stöðvar 3
að greiða um 35 milljónir til að
halda hlut sínum í Stöð 2, að því
er Viöskiptablaðið segir. Nauða-
samningar Stöðvar 3 hafi ekki
dugað til að þeir slyppu á sléttu.
Mínní bóksala
Heildarvelta I bóksölu rýrnaði
um 39% á árunum 1991-1995,
samkvæmt skýrslu Hagfræði-
stofhunar. Skýrslan var unnin
fyrir samtök bókaútgefenda en
þeim hugnast ekki niðurstöðurn-
ar, að sögn viðskiptablaösins.
Þenslan byrjuð,
segir VSI
Afkoma fyrirtækja fer versn-
andi vegna hækkandi launa, seg-
ir VSÍ og heitir á forsætisráð-
herra að lækka vexti og afgreiða
fjárlög með tekjuafgangi. Stöð 2
sagði frá.
Eitt háskólasjúkrahús
í nýrri skýrslu um skipulag
sjúkrahúsa í Reykjavík og ná-
grenni er lagt til að eitt öflugt há-
skólasjúkrahús starfi á íslandi og
sinni m.a. bráðaþjónustu en
minni sjúkrahús sinni einfaldari
aðgerðum og sjúkraþjónustu.
RÚV sagði frá.
Hugverkasýning í
Helsinki
Forseti íslands opnaði í gær ís-
lenska bóka-, tónlistar- og hug-
búnaðarsýningu í Helsinki. -SÁ