Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1997, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1997
Afmæli
Gísli Júlíusson
Gísli Júlíusson verkfræðingur,
Akraseli 17, Reykjavík, er sjötugur i
dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Hafnarfirði. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1947,
fyrrihlutaprófi i verkfræði frá HÍ
1950 og lokaprófi í raforkuverkfræði
frá DTH í Kaupmannahöfn 1953 og
hefur A-löggildingu Rafmagnseftir-
lits ríkisins til rafvirkjunar við há-
spennu- og lágspennuvirki.
Gísli var verkfræðingur hjá Raf-
magnsveitu Reykjavlkur 1953-54,
hjá rafvirkjadeild Sameinaðra verk-
taka á Keflavíkurflugvelli 1954-56,
rak eigin verkfræðistofu, Land-
stólpa hf., í Reykjavík, ásamt öðrum
1956-1957, starfaði hjá íslenskum að-
alverktökum 1957-1958, hjá flugher
(síðar sjóher) Bandarikjanna á
Keflavíkurflugvelli 1958-1965, þar af
deildarverkfræðingur yfir raf-
magnsverkfræðideild 1962-65, vann
hjá Vélsmiðju Njarðvíkur 1965-68,
þar af framkvæmdastjóri frá 1967,
vann að undirbúningi sameiningar
vélsmiðja á Suðumesjum 1966-67,
var stöðvarstjóri BúrfeUsstöðvar
1968-72, deildarverkfræðingur í
rekstrardeild Landsvirkjunar
1972-75, deildarverkfræðingur i
verkfræðideild 1975-83 og deildar-
verkfræðingur og síðan yfirverk-
fræðingur í tækniþróun-
ardeild.
Gísli var fulltrúi
Landsvirkjunar í Land-
vernd til 1984, í stjóm
Landvemdar frá 1984 og
varaformaður frá 1989.
Hann hefur tekið þátt í
störfum orkuspámefndar
frá upphafi, hefur setið í
áætlunamefnd og í um-
hverfis- og rekstramefnd
Nordel, var formaður raf-
magnsverkfræðinga-
deildar VFÍ 1974-75 og í aðalstjóm
VFÍ, í orðanefnd rafmagnsverkfræð-
ingadeildar VFÍ frá 1974, var próf:
dómari við verkfræðideild HÍ
1973-77, í rafveitunefnd Njarðvíkur
1961-68 og formaður 1965-68, for-
maður í félagi sjáifstæðismanna í
Skóga- og Seljahverfi í Reykjavík
1986-95, sat í hreppsnefnd Gnúp-
verjahrepps 1969-73, félagsforingi í
skátafélaginu Víkverjum í Njarðvík
1965-68, í stjóm Félags áhugamanna
um Fjölbrautaskólann í Breiðholti
frá 1978 og formaður frá 1981-90, fé-
lagi í Lionshreyfingunni frá 1962,
formaður Lk Selfoss 1971-72 og fjöl-
umdæmisritari 1975-76. Þá var
hann ritstjóri Fréttabréfs Lands-
virkjunar frá upphafi 1983-93 og hef-
ur skrifað fjölda greina í blöð og
tímarit, íslensk og erlend, um ýmis
verkfræðileg efni.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 13.12. 1949
Jónínu Jónsdóttur, f. 30.9.
1929. Hún er dóttir Jóns
Bergssonar, kaupmanns í
Reykjavík, og k.h., Guð-
bjargar Finnbogadóttur
Amdals, sjúkrasamlags-
forstjóra í Hafnarfirði.
Gísli og Jónína skildu.
Böm þeirra em Jón f.
22.10. 1949, mælingamað-
ur; Margrét, f. 25.1. 1956,
innanhússarkitekt og ljósmyndari;
Júlíana, f. 9.11. 1957, viöskiptafræð-
ingur.
Gísli kvæntist 31.5. 1967 seinni
konu sinni, Helgu Kristófersdóttur,
f. 31.5.1927. Hún er dóttir Kristófers
Oliverssonar, skipstjóra í Sand-
gerði, og k.h., Þuríðar Gísladóttur.
Böm Gísla og Helgu era Þuríður,
f. 10.10. 1960, örverufræðingur og
framhaldsskólakennari; Ólafúr, f. 2.
10. 1961, raforkuverkfræðingur og
tölvunarfræðingur.
Böm Helgu af fyrra hjónabandi
eru John, f. 9.8. 1948, húsasmíða-
meistari; Kristín, f. 10.7. 1949 hús-
móðir; Kristófer, f. 1.7.1951, múrari.
Systkini Gísla era Sigurður, lög-
giltur skjalaþýðandi í frönsku og
ensku; Kristín, kennari; Hallgeir,
verkfræðingur.
Foreldrar Gísla: Júlíus Sigurðs-
son, skipstjóri í Hafnarfirði, og k.h.,
Margrét Gísladóttir húsmóðir.
Ætt
Faðir Júlíusar var Sigurður, b. á
Melshúsum á Akranesi, Jónsson, b.
á Melshúsum, Ásbjömssonar. Móð-
ir Sigurðar var Ambjörg Sigurðar-
dóttir, b. á Bakka í Melasveit, Þórð-
arsonar, systir Þórðar á Fiskilæk,
föður Ágústar Flygenring, alþm. í
Hafharfirði, og Mattíasar Þórðar-
sonar þjóðminjavarðar. Móðir Júlí-
usar var Kristín Ámadóttir Veld-
ing, sjómanns í Hafnarfirði, Frið-
rikssonar, Veldings, sjómanns í
Hafnarfirði, Kristjánssonar, Veld-
ings, verslunarskrifara í Hafnar-
firði.
Faðir Margrétar var Gísli, hafn-
sögumaður og vitavörður í Hafhar-
firði, Jónsson, hafnsögumanns í
Hafnarfirði, Guðmundssonar, b. í
Brúarhrauni í Hafnarfirði, Jónsson-
ar. Móðir Gisla var Margrét Krist-
jánsdóttir Velding, sjómanns í Hafh-
arfirði, bróður Friðriks sjómanns.
Móðir Margrétar var Hallgerður
Torfadóttir, sjómanns í Hafnarfirði,
Jónssonar, tómthúsmanns í Hafhar-
flrði, Jónssonar og Kristínar Krist-
jánsdóttur Velding.
Gísli og Helga era erlendis.
Gfsli Júlíusson.
Brynjar Vilmundarson
Brynjar Vilmundarson, fiskverk-
andi og hrossaræktandi, Lækja-
braut 8, Hellu, er sextugur í dag.
Starfsferill
Brynjar fæddist i Háaskála í
Ólafsfirði, sleit þar bamsskónum og
lauk þaðan bamaskólaprófi. Hann
fór fljótt að vinna fyrir sér, var í
sveit á Kvíabekk hjá Kristjáni föð-
urbróður sínum, afa og ömmu á
hverju sumri frá sex ára til fimmt-
án ára aldurs og fór fyrst til sjós
fjórtán ára gamall.
Brynjar flutti með foreldrum sín-
um tÚ Keflavíkur á fimmtánda af-
mælisdegi sínum. Þar stundaði
hann netagerð, beitingu, verka-
mannavinnu, akstur á Keflavíkur-
flugvelli og fleira sem til féll.
Hann stofnaði og rak Netaverk-
stæði Suðumesja með öðram ásamt
útgerð, saltfiskvinnslu og skreiðar-
verkun í Norðurvör. Þegar eignum
var skipt eignaðist Brynjar Norður-
vör einn. Þar rak hann fyrirtækið í
sama farvegi um árabil en breytti
því í ferskfiskvinnslu og útflutning
fyrir tíu árum. Hann átti þátt í
stofnun Fiskmarkaðar Suðumesja
og var jafnframt einn af fyrstu
starfsmönnum hans. Árið 1975 hóf
Brynjar sauðfjárbúskap ásamt vini
sínum, Jónasi Ingimundcirsyni.
Fyrsta veturinn var féð haft i litlum
skúr við Hringbraut í Keflavík en
vorið 1976 tóku þeir á leigu jörðina
Miðkot á Stafnesi. Þar eiga þeir enn
sauðfé sem Jónas hefur annast hin
síðari ár.
Brynjar fékk brennandi áhuga á
hestum 1978 og hefur átt hesthús í
Keflavík frá 1980. Árið 1990 keypti
hann hluta af jörðinni Efri-Rauða-
læk í Rangárvallasýslu sem hann
nefnir Fet. Þar hefur hann ræktað
hross fram á þennan dag.
Brynjar stundaði golf með góðum
árangri frá 1961 til 1978.
Fjölskylda
Brynjar kvæntist 29.7.
1960 Kristínu Torfadótt-
ur, f. 18.1. 1937,
húsmóður. Hún er dóttir
Torfa Karls Eggerts-
sonar, f. 1893, d. 1951, og
Guðrúnar Brandsdóttur,
f. 1898, d. 1972. Kristín og
Brynjar hófú sambúð í
Keflavík aðeins sextán
ára.
Börn Brynjars og
Kristinar era Brynja, f.
30.10. 1954, skrifstofu-
maður, búsett í Keflavík en böm
hennar era Brynjar Ólafsson, Magn-
ús Daníel Ólafsson og Þóra Kristín
Ottósdóttir; Lára, f. 21.6. 1956,
verkakona, í Grindavík, gift Róberti
Tómassyni branaverði og era böm
þeirra Guðrún Lára Róbertsdóttir
og Vilmundur Karl Róbertsson en
synir Lára auk þess era Kristinn
Már Bjamason og Hermann Rúnar
Helgason; Guðlaug Vilborg, f. 27.12.
1959, býr i Danmörku en
börn hennar era Láras
Friðrik Guðmundsson og
Elín Þorvarðardóttir;
Guðmundur Karl, f. 18.3.
1966, skólaprestur í
Reykjavík, kvæntur
Kamillu Hildi Gisladóttur
kennara og eru böm
þeirra Kristin Gyða Guð-
mundsdóttir og Felix Am-
kell Guðmundsson.
Hálfsystur Brynjars eru
Sigríður Eygló Gísla-
dóttir, f. 9.8. 1929; Pollý
Gísladóttir, f. 2.4. 1931.
Foreldrar Brynjars: Vilmundur
Stefán Rögnvaldsson, f. 29.8. 1906, d.
10.10. 1985, kennari, netagerðar-
meistari og afgreiðslumaður, og
Lára Guðmundsdóttir, f. 4.2. 1909,
húsmóðir. Lára var áður gift Gísla
Vilhjálmssyni sjómanni en missti
hann 1933.
Brynjar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Brynjar
Vilmundarson.
Páll Þormar Garðarsson
Páll Þormar Garðars-
son verkamaður, Ásgötu
17, Raufarhöfn, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Páll fæddist i Reykja-
vik og ólst þar upp en
stundaði nám við Austur-
bæjarskólann í Reykja-
vik.
Páll byrjaði ungur til
sjós og stundaði síðan
sjómennsku á togurum og
fiskibátum.
Hann flutti til Raufarhafnar 1969
þar sem þau hjónin hafa búið síðan.
Páll starfar nú hjá SR-mjöli á
Raufarhöfn en þar hóf hann störf
fyrir rúmu ári.
Páll hefur tekið virkan þátt í fé-
lagsmálum á Raufarhöfn auk þess
sem hann sinnir þar einkum
íþróttamálefnum. Hann er nú
hreppsnefndarmaður á Raufarhöfn.
Fjölskylda
Páll kvæntist 29.4. 1973 Angelu
Ragnarsdóttur, f. 8.1. 1950, verka-
konu. Hún er dóttir
Ragnars Sandholt Björg-
vinssonar, trésmiðs á
Raufarhöfn, og k.h.,
Kristinar Einarsdóttur,
fiskvinnslukonu og Ijós-
móður.
Börn Páls og Angelu eru
Kristín Þormar, f. 28.9.
1971, verkakona á Rauf-
arhöfn, en maður henn-
ar er Hörður Ingimar
Þorgeirsson útgerðar-
maður og eru böm
þeirra Páll Þormar, f.
6.5. 1988 og Þorgeir Brimir, f. 31.8.
1994; Ragnar Þormar, f. 16.2. 1973,
sjómaður í Hafnarfirði en kona
hans er Ásta Helgadóttir húsmóðir
og er sonur hennar Helgi Hlyns-
son, f. 1.6. 1991; Þór Þormar, f.
12.12. 1975, sjómaður á Akureyri,
en kona hans er Berglind Helga-
dóttir nemi og er dóttir Þórs Telma
Hrund, f. 22.10. 1994; Ægir Þormar,
f. 12.12. 1975, sjómaður á Akureyri
en kona hans er Guðriður Sturlu-
dóttir; Jón Þormar, f. 22.1. 1980,
nemi; Garðar Þormar, f. 28.3. 1983,
nemi.
Synir Páls frá því fyrir hjóna-
band era Grétar Þór, f. 13.2. 1967,
verkamaður á Raufarhöfn, en kona
hans er Sóley B. Sturludóttir hús-
móðir og eiga þau tvö böm; Guðni,
f. 1971, verkamaður í Reykjavík.
Sonur Páls frá fyrra hjónabandi
var Garðar Þormar sem lést ung-
ur.
Systkini Páls era Sigfús Þormar,
verkstjóri hjá ístaki, búsettur í
Garðabæ, kvæntur Svövu Kristins-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Sig-
riður Þormar, húsmóðir í Reykja-
vík, en hún á þrjú böm; Sigfríð
Þormar, húsmóðir í Reykjavík, gift
Jóni Péturssyni og eiga þau þrjú
böm; Kristinn Þormar, búsettur í
Keflavík, kvæntur Jónu Samúels-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Guð-
rún Helga Þormar, húsmóðir í
Noregi.
Foreldrar Páls era Garðar Þorm-
ar Pálsson, bifreiðarstjóri og
starfsmaður Landsvirkjunar, og
Ingunn Þormar húsmóðir.
Pádl og Angela taka á móti vin-
um og vandamönnum í félagsheim-
ilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn í
kvöld frá kl. 20.30.
Páll Þormar
Garðarsson.
Björg
Guðfinns-
dóttir -
leiðrétting
í afmælis-
grein um
Björgu Guð-
finnsdóttur
húsfreyju,
áttatíu og
fimm ára,
sem birtist í
helgarblaði
DV þann
30.8. sl„ féll
niður nafn á
yngstu
dóttur
Bjargar.
Hún er Ingveldur Ólöf Ragnars-
dóttir, f. 6.8. 1948, vistmaöur í
Blesugróf og leikari í leikhópnum
Perlunni.
Þessu er hér með komið á
framfæri og viðkomendur beðnir
velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
Björg
Guöfinnsdóttir.
Hl hamingju
með afmælið
4. september
80 ára
Sigríður Júlíusdóttir,
Stigahlíð 14, Reykjavík.
Sigurður Jónsson,
Reynistað, Staðarhreppi.
Sæunn Jónsdóttir,
Hjallabraut 3, Hafnarfirði.
75 ára
Pétur
Hraunfjörð,
verkamaður, skáld,
frístundalistamað-
ur og kvikmynda-
leikari,
Gnoðavogi 18,
Reykjavík.
Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Skagfiröingabraut 37,
Sauðárkróki.
70 ára
Gunnar Þorbergsson,
Vitastíg 15, Reykjavík.
Hannes G. Jónsson,
Lyngbrekku 17, Kópavogi.
Gunnar Geir Gunnarsson,
Klapparstíg 1, Reykjavík.
60 ára
Magnea Sigurbergsdóttir,
Selparti, Gaulveijabæjarhr.
Svanhildur Erla Levy,
Haðalandi 17, Reykjavík.
Reynir Magnússon,
Lerkigrand 4, Akranesi.
Lovísa Margrét
Marinósdóttir,
Miðbraut 11,
Seltjamarnesi.
50 ára
Ragnhildur
Andrésdóttir,
húsmóðir og bóndi
að Ystu-Görðum í
Kolbeinsstaða-
hreppi, verður
fimmtug sunnudaginn 7.9. nk.
Eiginmaður hennar er Ölver
Benjamínsson.
Þau taka á móti gestum að
heimili sínu laugardaginn 6.9.
eftir kl. 20.00.
Kristján Gunnarsson,
Skildinganesi 62, Reykjavík.
Daníel Þórarinsson,
Sogavegi 156, Reykjavík.
Anna Breiðfjörð,
Jöldugróf 4, Reykjavík.
Friðgeir Hjaltason,
Hafsilfri, Raufarhafnarhreppi.
Theódóra Ingvarsdóttir,
Háholti 17, Keflavík.
Guðjón Þorkelsson,
Lækjarhvammi 3, Hafnarfirði.
40 ára
Bjamþór
Haraldur
Sverrisson
sjómaður,
Fjarðarstræti 4,
ísafiröi.
Gunnar Rúnar
Magnússon,
Gerðhömrum 15, Reykjavík.
Klara Hreggviðsdóttir,
Þórisstöðum, Hvalfjarðar-
strandarhreppi.
Guðmundur Sigfússon,
Ártröð 13, EgOsstöðum.
Sigríður Björnsdóttir,
Birkibergi 22, Hafnarfirði.
Tamara Bezoukladnikova,
Smiðjuvegi 4 C, Kópavogi
Ásbjöm Þ. Björgvinsson,
Bröttukinn 10, Hafharfirði.
Guðbjörg Ólafsdóttir,
Oddsstöðum I, Lundarreykja-
dalshreppi.
Hreiun Halldórsson,
Höföatúni 10, Reykjavík.
Ingibjörg Hauksdóttir,
Hrísbraut 12, Höfn,
Homafirði.