Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Page 16
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 3l3"V"
i6 kvikmyndir
Kevin Reynolds, leikstjóri Waterworld og Hróa hattar:
Þróunin slæm í Hollywood
Bandaríski leikstjórinn Kevin
Reynolds, sem meðal annars hefur
leikstýrt stórmyndunum Robin
Hood: Prince of Thieves og Water-
world, var í stuttri heimsókn hér á
landi um síöustu helgi. Kom að eig-
in sögn eingöngu sér til skemmtun-
ar og hvíldar, en nýbúið er að frum-
sýna í Bandaríkjunum nýjustu
kvikmynd hans, 187, sem er dramat-
ísk sakamálamynd með Samuel L.
Jackson í aðalhlutverki. Hefur hún
fengið ágætar viðtökur hjá gagn-
rýnendum vestanhafs.
Helgarblað DV fékk Kevin Reyn-
olds í viðtal um feril sinn sem hefur
verið viðburöarríkur. Þess má geta
að þegar þeir félagar, Kevin Reyn-
olds, og aðalstjarna Waterworld, Ke-
vin Costner, sem einnig var fram-
leiðandi myndarinnar, voru að
klippa Waterworld eftir langan og
strangan tökutíma þar sem mörg
óhöpp komu fyrir eins og frægt er
orðið, rak Kevin Costner nafna sinn
og félaga en Waterworld er þriðja
myndin sem þeir gerðu saman.
Ástæðan var sú að þeir voru ekki
sammála um áherslur. Reynolds
hélt þó leikstjóratitlinum í lokaút-
gáfu myndarinnar en er langt í frá
sáttur við það hvernig endanleg út-
gáfa myndarinnar er eins og síðar
kemur fram í viðtalinu, en fyrst var
hann spurður um nýjustu kvik-
mynd sína, 187:
187 sérstök mynd
„187 er fyrir mér sérstök kvik-
mynd á mínum ferli. Hún er öðru-
vísi en þær myndir sem ég hef gert
áður og það var einstaklega góð til-
finning að starfa við gerð tiltölulega
ódýrrar kvikmyndar miðað við þær
,tvær síðustu sem ég hef leikstýrt.
Myndin er spennudrama sem bygg-
ir mikið á frammistöðu leikaranna,
sem að mínu mati standa sig mjög
vel, sérstaklega Samuel L. Jackson,
sem leikur mjög erfitt hlutverk sem
er ólíkt öUu þvi sem hann hefur
leikið áður. Fjallar myndin um
kennara í New York sem verður fyr-
ir alvarlegri árás frá einum nem-
anda sínum. Þegar hann nær sér
skiptir hann um skóla en finnur
fljótt að umhverfið er jafn fjandsam-
legt og áður og fljótt fara að gerast
einkennilegir atburðir í kringum
hann. Ég vil ekki segja meira um
efni kvikmyndarinnar en það er
margt sem á eftir að koma áhorf-
andanum á óvart. 187 er framleidd
af Icon-kvikmyndafyrirtækinu sem
er að miklu leyti í eigu Mel Gibsons.
í fyrstu var ég ekkert uppveðraður
af að gera skóladrama, enda var ný-
búið að sýna slíkar myndir, meðal
annars Dangerous Minds sem sinnti
þessu efni ágætleg. En þegar ég fékk
handritið í hendur til yfirlestrar
hreifst ég strax enda djúpur og
raunsær boðskapur í því. í upp-
runalegu handriti var gert ráð fyrir
því að hvítur leikari væri í aðal-
hlutverkinu en þegar það kom svo
siðar í ljós að Samuel L. Jackson
hafði áhuga á að leika í myndinni
þá var það lítið mál að breyta aðal-
persónunni í svartan kennara.
Jackson hafði strax mikinn skilning
á persónunni og það var einstaklega
gefandi að vinna með honum enda
lagði hann sig allan fram við leik
sinn í hlutverkinu og á hann skilið
allt það hrós sem hann hefur fengið
fyrir leik sinn í myndinni."
Waterworld var erfið
lífsreynsla
- Waterworld var sú kvikmynd
sem þú leikstýrðir á undan 187.
Sú mynd er meðal dýrustu kvik-
mynda sem gerð hefur verið og
mikið gekk á meðan á tökum stóð
og ekki síður við lokagerð mynd-
arinnar þegar vinaslit urðu milli
þín og Kevins Costners sem lét
þig hætta við myndina. Ertu sátt-
ur við útkomuna?
„Nei, alls ekki. Waterworld var
mjög erfið lífsreynsla. Þetta var gíf-
urlega stórt verkefni og þegar svona
stórt verkefni er í gangi og ýmsar
tafir verða þá verður fljótt mikill
ágreiningur milli stjórnenda. Allir
eru að hugsa um sinn hag, eru
hræddir um að missa vinnuna og
því erfitt að fá ákvarðanir sam-
þykktar. í upphafi vorum við með í
höndunum mjög gott handrit og
fengum allar kostnaðartölur sam-
þykktar, aðallega út á styrk Kevins
Costners sem leikara. Fljótt komu
upp miklir erfiðleikar í gerð sviðs-
myndarinnar sem ásamt óveðrum
hamlaði að allt gæti gengið sam-
kvæmt áætlun. Menn urðu stressað-
ir og kostnaðurinn hlóðst upp. Þeg-
ar svo er komið er mjög erfitt að
starfa að sköpunarverki. Það var þó
ekki fyrr en i klippiherberginu sem
við Kevin Costner fórum að líta
hvor sínum augum á lokafrágang á
myndinni og því fór sem fór og ég
var látinn fara. Það eru góð atriði í
Waterworld og þrátt fyrir hrakspár
gekk hún ágætlega en þetta er ekki
myndin sem ég vildi gera.“
Talar ekki við Costner
- Þú og Kevin Costner voruð fé-
lagar og vinir og hafið gert þrjár
kvikmyndir saman. Hafið þið
jafnað ágreining ykkar?
„Nei. Við skildum alveg að skipt-
um við gerð Waterworld og höfum
ekki talast við síðan.“
- Þú sagðir áðan að það hefði
verið ánægjulegt að starfa aftur
við frekar ódýra kvikmynd á
bandariskan mælikvarða?
„Það hefur á undanfómum árum
orðið að mínu mati óheillavænleg
þróun í gerð kvikmynda í
Hollywood. Færri og dýrari kvik-
myndir era gerðar árlega og það lít-
ur ekki út fyrir breytingar í þeim
efnum. Þó verð ég að segja að sum-
arið í ár gefur kannski vonir um að
breytt verði um stefnu. Stóra mynd-
imar hafa margar hverjar gengið
illa, fyrir utan að vera afskaplega
innantómar, og þegar peningamir
skila sér ekki er stutt í breytingar.
En ef almenningur flykkist á þessar
myndir hversu lélegar sem þær era
þá verða engar breytingar. Það er
því miður sannleikur í Bandaríkj-
unum að fólk fer í bíó til að flýja
raunveruleikann og vill ekkert hafa
fyrir því að þurfa að hugsa um hlut-
ina og er mikil breyting orðin á frá
því á sjöunda og áttunda áratugnum
en þá tel ég að margar af bestu
bandarísku kvikmyndunum hafi
verið gerðar. Nú eiga vandaðar og
ekki auðmeltar kvikmyndir ekki
upp á pallborðið hjá bandarískum
áhorfendum. Þetta hefur einnig
komið niður á erlendum kvikmynd-
um, hversu góðar sem þær eru fá
þær ekki dreifmgu í Bandaríkjun-
um og enda því á litlum kvikmynda-
hátíðum og litlum kvikmyndahús-
um í stórborgum sem hafa listræn-
an metnað. Þessi þróun gerir mig
leiðan því þannig myndir vil ég
helst gera. En ég starfa í Hollywood
þótt ég búi í Seattle og markaðurinn
gerir það ekki mögulegt eins og er
að gera slíkar myndir. Ég nálgast
það þó með því að gera mynd á borð
við 187 sem ég tel bestu kvikmynd
sem ég hef gert hingað til.“
Ætlaði að verða lög-
fræðingur
Kevin Reynolds var ekki einn
þeirra sem gekk með það í mag-
anum frá barnsaldri að verða kvik-
myndaleikstjóri.
„Strax í æsku hafði ég gaman af
að búa til sögur og segja öðrum þær
og í eitt ár stundaði ég nám við leik-
listardeild háskólans í San Antonio
í Texas en fór síðan að nema lög-
fræði og útskrifaðist sem lögfræð-
ingur auk þess sem ég tók BA-gráðu
i sögu. Ég byrjaði að starfa sem lög-
fræðingur en leiddist það ógurlega
og hætti störfum og innritaðist í
kvikmyndadeild háskólans í Suður-
Gerö Waterworld var erfið reynsla fyrir Kevin Reynolds og komu upp ósætti milli hans og aöalleikarans, Kevins
Costners. Hann er hér viö tökur á myndinni.
Kevin Reynolds með Reykjavíkurtjörn í bakgrunni. DV-mynd Hilmar Þór