Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Page 17
3 ' \ ' LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997
17
Kalifomíu þar sem ég dvaldi næstu
árin. Það sem kom mér áfram var
að Steven Spielberg sá skólamynd
mína, Proof, og hjálpaði mér við að
fjármagna mína fyrstu kvikmynd,
Fandango, sem byggð var á Proof.
Einnig fékk hannn mig síðar til að
leikstýra einum þætti í sjónvarps-
þáttaröð sinni Amazing Stories. Ke-
vin Costner lék aðalhlutverkið í
Fandango. Hann var lítt þekktari en
ég á þessum tíma og var myndin
stökkpallur bæði fyrir mig og hann.
Um sama leyti skrifaði ég handrit
sem ég nefndi Ten Soldiers og var
svo heppinn að United Artist keypti
það strax. Mig langaði ógurlega til
að leikstýra sjálfur myndinni en
fékk það ekki. Handritið lenti í
höndunum á John Milius sem
breytti því mikið. Meðal annars
breytti hann nafninu í Red Dawn og
úr varð allt önnur kvikmynd en ég
hafði hugsað mér.“
- Þegar þú tókst að þér að leik-
stýra Robin Hood: Prince of Thi-
eves, hafði ekki komið kvikmynd
frá þér í þrjú ár.
„Það er rétt. Það var þó ekki
vegna þess að ég væri verkefnalaus
heldur, eins og oft vill verða, varð
ekkert úr framkvæmdum. Þegar
Costner hafði samband við mig og
bað mig um að leikstýra Robin
Hood: Prince of Thieves var ég ekk-
ert ailtof uppveðraður en handritið
var gott og það sem meira virði var,
myndin yrði örugglega gerð. Þetta
tvennt gerði það að verkum að ég
tók að mér leikstjóm hennar. Allt
gekk eins og vel smurð vél við gerð
myndarinnar og varð hún mjög vin-
sæl.“
Lengi haft áhuga á ís-
lanm
- Hvað er það sem dregm-
Kevin Reynolds á fjörur okkar ís-
lendinga?
„Ég hef alltaf haft áhuga á landi
ykkar, lesið mikið um það og kynnt
mér menningu landsins. Það var
svo fyrir um það bil tveimur árum
að ég hitti Jón Ólafsson (forstjóra
Skífunnar) í Los Angeles og við tók-
um tal saman um ísland. Þegar
hann frétti af áhuga mínum á landi
og þjóð bauð hann mér í heimsókn,
boð sem ég hef nú þegið. Ég hef
dvalið hér í nokkra daga, alltof stutt
að mínu mati, og notiö gestrisni
Jóns. Hef meðal annars farið í stutt-
ar skoðunarferðir sem hefur gert
það að verkum að mig langar að sjá
meira af landinu og jafnvel veiða
bæði á stöng og með skotvopni en
ég er mikill áhugamaður um skot-
veiði og vonast ég eftir að koma á
næsta ári hingað aftur.“
- Þú býrð í Seattle en starfar í
HoUywood?
- Los Angeles er borg sem aldrei
hefur heillað mig. Það vill svo til að
þar slær hjarta kvikmyndaiðnaðar-
ins í Bandaríkjunum og ég er kvik-
myndagerðarmaður og það er fátt
annað sem kemst að í huga mínum
en kvikmyndir. Má segja að það að
gera kvikmyndir sé hjá mér nokk-
urs konar þörf eða álög. Ég ólst upp
í Texas þar sem yfirleitt er alitof
heitt fyrir minn smekk og þegar
kom að því að ég fór að velja mér
framtíðardvalarstað varð Seattle
fyrir valinu. Þetta er einstaklega fal-
leg borg og gott að búa þar. Veðrátt-
an hér á landi hefur ekki komið mér
á óvart. Það er oft rigning og vinda-
samt í Seattle og er ég viss um að Is-
lendingum muni líka vel við þá
borg.
- Ertu byrjaður að huga að
næstu kvikmynd?
„Ég er ekki með neitt ákveðið enn
þá, ég er að skoða handrit og tilboð.
Sjálfúr hef ég verið með tvö handrit
í smíðum í nokkurn tíma sem ég hef
mikinn áhuga á að gera. Annað er
drama um bandaríska konu sem bú-
sett er í London en hitt er svört
kómadía, mjög svo svört sem ég vil
ekki útlista nánar á þessu stigi.
Hvort annað hvort þessara handrita
verður mitt næsta verkefhi á eftir
að koma í ljós. Ef upp á borð hjá
mér kemur tilboð um að leikstýra
góðu handriti eftir annan höfúnd þá
er ég alltaf tilbúinn í slaginn svo
það getur orðið bið á að ég geti
sinnt eigin handritum."
-HK
MikU verðUekkun!
Samstarf PFAFF við ítölsku Candy heimilistækjaverksmiðjumar hefur verið
afar farsælt. íslendingar kunna að meta góða ítalska tækni og útlitshönnun,
það sýnir mikil sala á þremur áratugum. Þeir kunna einnig að meta hagstætt
verð, sem einkennt hefur Candy framleiðsluvömr á íslenska markaðnum.
Síðast, en ekki síst kunna þeir að meta trausta
þjónustu PFAFF við viðskiptavini sína.
í tilefhi þessarra tímamóta efnum við nú til Candy daga
í samvinnu við Candy verksmiðjumar.
Mikill afmælisafsláttur frá verksmiðjunum
gerir okkur kleift að veita verulega verð-
lækkun á um 50 gerðum heimilistækja.
Hér eru nokkur dæmi:
IAOI'VAVHAK
vindu.
„eSMO.SOOo^'0^”®
frá
39.000r
EtDAVEL,OFN OGUPPPVOTIAVÉL
Allt í einu tæki.
9490ft-
iirva]
ELDAVELAR
með helluborði og ofni.
frá47.310r
S1wyv.
-8P
rið W arsu '
69800,-
cHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Hér er miðað við staðgreiðsluverð.