Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Blaðsíða 32
r 40
II77H7
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 DV
Vesturbæjarlaugarhópurinn:
w
Atti drjúgan skerf af verðlaununum
Þekktasti hlaupahópur landsins er
eflaust sá sem kenndur er við Vestur-
bæjarlaugina. Sá hópur æfir reglulega
og hlauparar úr öðrum hópum fá jafn-
vel að taka þátt i æfmgum hópsins.
Flosi Kristjánsson, aðstoðarskóla-
stjóri í Hagaskóla, hefur æft með
hópnum frá árinu 1991.
„Við æfum að jafnaði fjórum sinn-
um í viku, þrisvár sinnum á virkum
dögum og einu sinni um helgi. Aldrei
er hlaupið minna en 5 km, helgar-
sprettirnir eru 17 km en vegalengd-
imar á æfingunum fara upp í allt að
því 35 km vikurnar fyrir Reykjavíkur
maraþon," segir Flosi.
„Hópurinn samanstendur af um 40
Umsjón
ísak Öm Sigurðsson
manns, en harðasti kjarninn er um
10-12 manns. Við hlaupum jafnan frá
Vesturbæjarlauginni og það gerist oft
að hlauparar úr öðrum hópum æfi
með okkur, ef þeir hafa misst af æf-
ingu í sínum hópi. Það eru allir vel-
komnir að hlaupa með ef þeir vilja.“
Flestir úr Vesturbæjariaugarhópnum tóku þátt í lengri vegalengdum Reykjavíkur maraþons.
DV-mynd Pjetur
Keppa víða
Hlauparar úr hópnum láta sér ekki
nægja að hlaupa aðeins í Reykjavíkur
maraþoni. „Margir úr hópnum taka
30. ágúst. Reykjalundarhlaup
sem hefst klukkan 11 að
1 Reykjalundi, nema 14 km
i hlaup sem hefst klukkan 10.40.
Vegalengdir eru 0,5 km, 2 km,
3 km, 6 km og 14 km. Upplýs-
ingar í síma 566 6200.
30. ágúst. Dalvíkurhlaup.
| Upplýsingar hjá Vilhjálmi
Björnssyni á Dalvík i síma 466
oft þátt keppni. í ár var fyrst hlaupið
sem kennt var við Húsasmiðjuna, síð-
an kom Krabbameinshlaupið, Mið-
næturhlaupið, Mývatnshlaupið, Skag-
inn og í lok ársins verður hlaupið á
gamlársdag. Fimm eða sex úr hópn-
um tóku þátt í Laugavegshlaupinu (á
milli Landmannalauga og Þórsmerk-
ur) í júlí og náðu þar ágætis árangri
(Ólöf Þorsteinsdóttir úr hópnum var
til dæmis fyrst kvenna þar).
Nokkrir okkar hafa einnig keppt
erlendis. Sá sem mesta hefur reynsl-
una á því sviði er eflaust Ágúst Kvar-
an, en hann er fæddur 1952. Hann fór
í sumar í svokallað Comrad-hlaup í
Suður-Afríku, en það er 89 km langt.
Það er mikið þrekvirki, meir en tvö-
falt maraþon. Ágúst hefur einnig tek-
ið þátt í London maraþoninu."
Hápunktur ársins hjá hlaupahópn-
um er þó örugglega Reykjavíkur
maraþonið, en hlauparar úr hópnum
náðu að tryggja sér drjúgan skerf af
verðlaunum sem veitt voru. „Nánast
allir úr hópnum voru með í einhverri
vegalengdanna, 10 km, 21 km eða 42
km. Um fimm þeirra hlupu heilmara-
þon. Við áttum methafann í 10 km í
aldursflokknum 50-59 ára, Ólöf Þor-
steinsdóttir varð fyrst í kvennaflokki
í heilmaraþoni og við vorum í öðru
sæti sveita (Vinir Dóra) í heilmara-
þoni. Ég hljóp sjálfur hálfmaraþon og
bætti persónulegt met um eina mín-
útu (1 klst., 35 mín. og 35 sek.). Ég er
ánægður með þann árangur því besta
tímanum áður náði ég á Selfossi árið
1992.
Samheldinn hópur
Vesturbæjarlaugar hlaupahópur-
inn er mjög samheldinn og gerir ým-
islegt annað en hlaupa saman. „Ólaf-
ur Þorsteinsson (1951), sem við köll-
Nokkrir úr harðasta kjarnann úr hlaupahópnum sem kenndur er við Vestur-
bæjariaugina. Lengst til hægri er Flosi Kristjánsson en Gísli Ragnarsson,
sem hlaupið hefur 10 heilmaraþon í röð, er þriðji frá hægri.
um formann hópsins, sér alltaf um að
boða menn í grillveislu á vorin og á
árshátíðir á haustin."
Rúmur einn og hálfur áratugur er
síðan Flosi fór að skokka sér til
heilsubótar. „Ég byrjaði að skokka
árið 1981 og var í þessu einn í heilan
áratug. Það er ekkert sérstaklega
skemmtilegt að hlaupa einsamall,
enda voru æfmgarnar stopular hjá
mér á þessu tímabili. Árið 1991 fór ég
að hlaupa með Vesturbæjarlaugar-
hópnum og síðan hef ég æft reglulega.
Það má segja að hópurinn haldi
manni við efnið. Ég er alveg viss um
að ég hefði ekki nennt að halda þessu
áfram einsamall og það gefur hlaup-
inu mikið gildi að hlaupa í hóp. Við
miðum ávallt hraðann við að hægt sé
að ræða saman á leiðinni. Ég ætla
samt ekki að fara að endurtaka um-
ræðuefni hópsins í fjölmiðlum, sum
þeirra eiga ekkert erindi á prent,“
segir Flosi.
Kópavogssundið:
Velja sjálfir vegalengdina
Verölaunahafar Kóöavogssundsins 1996 samankomnir á sundlaugarbakkanum.
Askrifendur fá
aukaafslátt af
Smóouglýsingar
smáauglýsingum DV
lr////////////////y
OV1
vvW vvvv
Sunnudaginn 7. september verð-
1 ur Kópavogssundið haidið í 4. sinn.
| Sundið stendur yfir frá klukkan 7
að morgni til klukkan 22 að kvöldi.
Kópavogssundið er almennings-
fe keppni í sundi þar sem þátttakend-
Bur velja sjálfir þá vegalengd sem
þeir synda. Engin tímatakmörk eru
sett keppendum til þess að Ijúka
sundinu aðrar en tímamörk keppn-
| innar. Keppendur fá verðlaunapen-
:! ing í samræmi við þá vegalengd
I sem þeir synda.
Brons fá þeir sem synda 500 m
sund, silfur fyrir 1.000 metra sund
: og gull fyrir 1.500 m sund. Allir þátt-
takendur fá viðurkenningarskjal, T-
bol með merki keppninnar og Spari-
■; .. .. -,
sjóðs Kópavogs og Gatorade íþrótta-
drykk frá Sól. Sunddeild Breiöa-
bliks býður upp á kaffi og verður
með kökusölu.
Afreksverðlaun verða veitt þeim
sem synda lengstu vegalengdina í
hverjum aldursflokki. Þátttökugjald
er 700 krónur fyrir fullorðna (fædd-
ir 1981 og fyrr), 500 krónur fyrir elli-
lífeyrisþega og 300 krónur fyrir
börn (fædd 1982 eða síðar).
Á síðasta ári tóku 725 manns þátt
í sundinu, þar af syntu 76% þeirra
1500 metra eða lengra, 13% á bilinu
1.000-1.500 metra og 11% syntu á bil-
inu 500-1.000 metra.
-ÍS