Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1997, Blaðsíða 46
=4 afmæli
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 JjV
Regína Stefánsdóttir
Regína Stefánsdóttir, fyrrv. hús-
freyja á Grímsstöðum í Hornafirði,
nú vistmaður á Skjólgarði, dvalar-
heimili aldraðra á Hornafirði í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, varð áttatíu og
fimm ára í gær.
Starfsferill
Regína fæddist á Kálfafelli i Suður-
sveit, ólst þar upp við almenn bústörf
og sá snemma um heimilishaldið
ásamt systkinum sínum vegna veik-
inda móður sinnar. Hún bjó í tvö ár
með Gísla Jónssyni frá Borgarhöfn,
en hann lést.
Regína stundaði nám í Húsmæðra-
skólanum á Hallormsstað í tvo vetur,
1932-34, og var þar kennari veturinn á
eftir. Þá kenndi hún bömum í Suð-
ursveit í tvö ár.
Regína flutti að Grímsstöðum á
Höfn til Gísla Björnssonar 1938 sem
þá var ekkjumaður með fjóra ung-
linga. Þar vom auk þess foreldrar
hans, aldraðir, og einn óskyldur öld-
ungur og annaðist Regina þau öll síð-
ustu árin.
Regína tók mikinn þátt í fé-
lagsmálum. Hún söng í
kirkjukór, sat í stjórn Kvenfé-
lagasambands Aust-
ur-Skaftfellinga, var formað-
ur kvenfélagsins Tíbrár í tutt-
ugu ár og sat lengi í sóknar-
nefnd á Höfn. Hún er heið-
ursfélagi í Tíbrá og Kvenfé-
lagasambandi íslands. Þá
skráöi Regína ásamt Gísla,
manni sínum, félagatal og
Regína
Stefánsdóttir.
æviágrip látinna félagsmanna í Kaupfé-
lagi Austur-Skaítfellinga og lauk hún
því verki ári eftir að Gísli lést.
Regína og Gísli fluttu frá Grímssstöð-
um að Vesturbraut 13 1976 og bjó hún
þar þangað til hún flutti á Skjólgarð
1993.
Fjölskylda
Regína giftist 19.4. 1945 Gísla
Bjömssyni, f. 18. 3 1896, rafveitu-
stjóra, en þau vom í sambúð frá 1938.
Foreldrar hans voru Björn Gíslason
og Borghildar Pálsdóttur,
bændur á Austurhóli og
Meðalfelli í Nesjum í Aust-
ur-SkaftafelIssýslu.
Börn Regínu og Gísla eru
Kristín, f. 29.7.1940, kennari
í Nesjaskóla, gift Hreini Ei-
ríkssyni kennara og eiga
þau þrjú börn og þrjú barna-
böm; Baldur, f. 20.8. 1947,
kennari við Fjölbraut í
Breiðholti, kvæntur Þóreyju
Aðalsteinsdóttur og á hann
tvö böm með Elísabetu Sveinbjörns-
dóttur.
Stjúpbörn Regínu: Arngrímur, f.
10.8. 1919, d. 18.3. 1997, vélstjóri á
Hornafirði, var kvæntur Hrafnhildi
Gísladóttur og átti með henni tvo
syni; Katrin, f. 11.1.1922, d. 27. 5.1996,
húsmóðir í Reykjavík, var gift Guð-
mundi Pálssyni og átti með honum
fjögur böm; Borghildur, f. 1.4. 1923,
húsmóðir á Stöðvarfirði og í Reykja-
vík, gift Jóni Kristjánssyni og eiga
þau fjögur börn; Björn f. 8. 2.1925, raf-
virkjameistari á Höfn, kvæntur Auði
Jónasdóttur og á hann tvo syni.
Systkini Regínu: Eyjólfur, f. 14.7.
1905, d. 31. 1. 1994, lengst af bóndi á
Kálfafelli, organisti þar og á Höfn;
Steinn, f. 11.7. 1908, d. 1.8. 1991, skóla-
stjóri og organisti á Seyðisfirði;
Magnea, f. 21.4.1914, d. 14.2.1993, hús-
móðir í Suðursveit og á Höfn; Guðný,
f. 16.4. 1917, húsmóðir og símamær á
Akranesi og Reykjavík en dvelur nú á
dvalarheimilinu Eir í Reykjavík.
Foreldrar Regfnu vom Stefán Jóns-
son, f. 14. 4. 1877, d. 14. 2. 1943, hrepp-
stjóri og bóndi á Kálfafelli i Suður-
sveit, og Kristín Eyjólfsdóttir, f. 10.1.
1874, d. 23. 4. 1938.
Ætt
Stefán var ættaður frá Sævarhólum
í Suðursveit, sonur Jóns Þorsteins-
sonar bónda þar.
Kristín var frá Reynivöllum, dóttir
Eyjólfs Runólfssonar, hreppsstjóra og
hómópata frá Mariubakka í V.-Skaft.
Sigurður Skagfjörð Bjarnason
Sigurður Skagfiörð Bjarnason,
verkamaður á Breiðabliki á Skaga-
strönd, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Skagaströnd og
ólst þar upp fram á unglingsár.
Hann fór fimmtán ára til starfa hjá
S.R., fyrst á Siglufirði og síðan á Reyð-
arfirði.
Sigurður vann siðan ýmsa almenna
verkamannavinnu víða um land.
Hann hóf störf hjá Rækjuvinnslunni á
Skagaströnd er hún var sett á laggim-
ar árið 1972 og hefur starfað þar síð-
an, lengst af sem vélamaður.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 1.10. 1972 Sig-
rúnu Kristínu Lárusdóttur, f. 25.2.
1951, verkakonu. Foreldrar Sigrún-
ar eru Lárus Björnsson og Svava
Steinsdóttir. Þau bjuggu áður að
Neðra-Nesi, Skaga. Lárus er nú lát-
inn en Svava býr að dvalarheimil-
inu Sæborg á Skagaströnd.
Börn Sigurðar og Sigrúnar eru
Svava Guðrún, f. 30.5. 1972, lauk
B.A. prófi frá H.í. 1996; Inga Lára, f.
28.11.1973, nemi f þjóðfræði við H.Í.,
en unnusti hennar er Stefán Ómar
Stefánsson, kjötiðnaðarmaður í
Reykjavík.
Systkini Sigurðar eru
Jóhann Karl, f. 19.7. 1935,
múrari í Reykjavík; Anna,
f. 18.12.1939, póstmeistari í
Reykjavík; Sævar, f. 28.7.
1944, verkamaður í Kefla-
vík; Ragna, f. 7.8. 1943,
læknaritari í Reykjavík;
Ingólfur, f. 24.10. 1938, er
nú látinn, var sjómaður á
Skagaströnd; Fritz, f. 13.10.
1951, bifvélavirki í Reykja-
vík.
Foreldrar Sigurðar:
Bjarni Jóhannsson, f. 21.11. 1900, d.
12.9. 1970, verkamaður, og Rósa
Pálsdóttir, f. 1. 9. 1911, húsmóðir.
Þau bjuggu á Bjargi, Skagaströnd,
en áður að Þverá, Hallárdal. Rósa
býr nú að dvalarheimilinu
Sæborg.
Ætt
Föðursystkini Sigurðar:
Gunnar, alþm. á Siglufirði;
Ingibjörg, húsfreyja á Más-
stöðum; Lilja, bóndi að Á í
Unadal; Guðbjörg, hús-
freyja að Hafragili í Laxár-
dal.
Móðursystkin Sigurðar
eru Pétur, trésmiður; Jónína, hús-
móðir á Blönduósi og Hulda, hús-
móðir í Reykjavík.
Hálfbróðir móður Sigurðar er
Knútur Bemdsen, Blönduósi.
Siguröur
Skagfjörð.
Steinunn G. Kristiansen
Steinunn G. Kristian-
sen, starfsmaður á gesta-
móttöku Hjálpræðishers-
ins, Eskihlið 33, Reykja-
vík, verður sjötug á mánu-
dag.
Starfsferill
Steinunn er fædd að
Refsteinsstöðum í Víðidal,
V.-Hún. Hún er 6. bam í
hópi 9 systkina. Hún dvaldi í for-
eldrahúsum fyrstu æviárin en á
fiórða ári var hún tekin í fóstur að
Umsvölum i Þingi og dvaldi þar uns
fósturfaðir hennar lést 18. 11. 1942.
Þá var jörðin seld og fluttu þær fóst-
urmæðgur til Reykjavikur 1943.
Steinunn stundaði ýmis störf uns
hún lauk brottfararprófi frá Sam-
vinnuskólanum vorið 1947. Þá hóf
hún skrifstofustörf hjá Dósaverk-
smiðjunni hf. og starfaði þar uns
hún giftist Baldri Ingólfi Kristian-
sen pípulagningameistara. Hann
lést 30. 6. 1975.
Fjölskylda
Steinunn og Baldur
gengu í hjónaband 1.4.1954.
Baldur var sonur hjónanna
Mattíu Þóra Þórðardóttur
og Jentoft Kornelíusar
Kristiansen. Þau bjuggu á
Steinunn G. Seyðisfirði allan sinn bú-
Kristiansen. skap. Baldur lést 30. 6.1975
Sambýlismaður Stein-
unnar frá 1987 var Steingrímur Þ.
D. Guðmundsson listmálari. Hann
lést 13. 2. 1996.
Böm Steinunnar og Baldurs eru
5; Þorsteinn Kornelíus, f. 1954, út-
varpsvirki í Noregi, var giftur Agn-
esi Jensdóttur þroskaþjálfa, þau
slitu samvistum og eiga tvö böm;
Halldór Helgi, f. 1956, bankamaöur,
kvæntur Auði Magnúsdóttur hár-
greiðslumeistara, þau eiga einn
son; Þorgerður Mattía, f. 1958, bók-
ari, hún er gift Óttari Magna Jó-
hannssyni sölumanni, þau eiga þrjú
börn; Selma Ósk, f. 1960, leikskóla-
kennari, hennar maki er Helgi
Kristjánsson, M.A. sagnfræðingur
og stálvirki, þau eiga tvö böm;
Helga Árdís, skrifstofustúlka, henn-
ar maður var Einar D. Bragason,
húsasmiður, þau slitu samvistum
og eiga þrjá drengi.
Systkini Steinunnar vora átta en
einn bróðir hennar er látinn. Þau
era Þrúður Elísabet, f. 1917, lengst
húsmóðir á Siglufirði; Ólöf María, f.
1919, húsmóðir i Kópavogi, Selfossi
og Reykjavík; Vilhjálmur, f. 1922,
fyrrv. bóndi á Gauksmýri, V.-Hún.;
Pétur Kristófer f. 1923, bóndi á
Hraunum, Fljótum; Sigurvaldi, f.
1925, pípulagningamaður í Kópa-
vogi; Sigurbjörg, f. 1929, húsmóðir í
Öxl, Þingi A.-Hún.; Jón Unnsteinn,
f. 1931, d. 1988, pípulagningamaður í
Garðabæ, og Klara, f. 1935, húsmóð-
ir í Kópavogi.
Foreldrar Steinunnar vora Guð-
mundur Pétursson, f. 24.12. 1888, d.
1963, bóndi á Refsteinsstöðum í
Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu,
og Sigurlaug Jakobína Sigurvalda-
dóttir, f. 17.12. 1893, d. 28.12. 1968,
húsfreyja.
Ætt
Guðmundur var sonur hjónanna
Péturs Kristóferssonar og Þrúðar
Elísabetar Guðmundsdóttur sem
bjuggu á Stóru-Borg í Víðidal í
Vestur-Húnavatnssýslu.
Sigurlaug Jakobína var dóttir
hjónanna Sigurvalda Þorsteinsson-
ar og Ólafar Sigurðardóttur sem
bjuggu á Gauksmýri í Vestur-Húna-
vatnssýslu.
Steinunn tekur á móti gestum í
félagsheimili Hallgrimskirkju á af-
mælisdaginn, mánudaginn 8.9. nk.
kl. 17.00-20.00.
Vegna framkvæmda við Hall-
grímskirkju eru bílastæði einungis
við suðurhlið kirkjunnar þar sem
einnig er greiðfær aðgangur að fé-
lagsheimilinu.
Hl hamingju með afmælið 6. september
85 ára
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Skólabraut 3, Seltjarnamesi.
80 ára
Stefania Sigurþórsdóttir, Kirkjuhvoli, Hvolhreppi. Kjartan S. Jónsson, Brekku, Öxarfiarðarhreppi.
75 ára
Magnea Benía Bjarnadóttir, Stigahlíð 32, Reykjavik. Helga Svanlaugsdóttir, Kársnesbraut 27, Kópavogi. Ragnhildur Pétursdóttir, Háaleitisbraut 71, Reykjavík.
70 ára
Einar Daníelsson, Heiðarhvammi 7 B, Keflavík. Sigurður Ingvarsson, Egilsbraut 18, Þorlákshöfn.
60 ára
Guðfreður Hjörvar Jóhannesson, Vatnsstíg 11, Reykjavík. Sigrún Þorsteinsdóttir, Glæsibæ 5, Reykjavík. Pétur Behrens, Höskuldsstöðum, Breiðdalshreppi. Elsa Hjörleifsdóttir, Grenigrund 9, Akranesi. Sigurjón Lárusson, Tindum, Svínavatnshreppi.
50 ára
Sveinbjörg Sveinbjömsdóttir, Funafold 27, Reykjavík. Valgerður Kristín Jónsdóttir, Hringbraut 39, Reykjavík. Ingibjörg Sigurbergsdóttir, Hverfisgötu 72 B, Reykjavík. Guðrún Þorvarðardóttir, Ásbraut 2, Kópavogi. Emilia Ólafsdóttir, Jörundarholti 46, Akranesi. Ingibjörg Þorláksdóttir, Brekkugötu 42, Þingeyri. Hún tekur á móti gestum á heimili sínu í kvöld kl. 18-23. Eva Eugenia Estrada, Njálsgötu 35, Reykjavík. Dóra Þórhallsdóttir, Hlynsgerði 9, Reykjavík. Jóhanna Einarsdóttir, Efstasundi 36, Reykjavík.
40ára
Hulda Maggý Gunnarsdóttir, Mýrarási 13, Reykjavik. Skúli Ágústsson, Bragavöllum 12, Keflavík. Jónína Ingibjörg Ámadóttir, Kirkjubraut 8, Njarðvík. Andrés I. Guðmundsson, Hlíðarhjalla 10, Kópavogi. Þráinn Hafsteinsson, Fjóluhvammi 3, Hafnarfirði. Gísli Jónsson, Álftamýri 22, Reykjavík.
f
Astkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
Halldór Bragason
prentari,
andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 4. september.
Þorbjörg Jónasdóttir
Dóra Halldórsdóttir
Ingibjörg Lilja Halldórsdóttir Hörður Valsson
Þóra Björg Jónasdóttir Ólafur Gfsli Sveinbjörnsson
Yngvi Halldórsson Linda Jónsdóttir
Halldór Halldórsson
Sunna Björg Gunnarsdóttir
SVAR
M 903 « 5670 m
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð tyrir alla landsmenn.